Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Nokkur orð
um bjórinn
■ ■'/t Til Velvakanda.
Fyrst að búið er að leyfa bjór-
drykkju í þessu landi, þá eigum við
að framleiða bjórinn sjálfír. íslend-
ingar hafa sýnt fram á, að þeir
geta bruggað bjór, sem er vel sam-
bærilegur við þann erlenda. Spörum
okkur gjaldeyri og látum íslendinga
sjálfa hafa af þessu vinnu.
Með þökk fyrir birtinguna,
* B.G.I.
Tökum friðartali Kreml-
arherra með fyrirvara
Til Velvakanda.
Sá sem þetta ritar fagnar frið-
vænlegri horfum í alþjóðamálum.
Einkum ber að fagna því, hversu
mjög utanríkisstefna Sovétmanna
hefur mildast. Með einurð sinni
hefur Ronald Reagan tekist að fá
þá að samningaborðinu, með það
fyrir augum, að semja um raun-
verulega afvopnun. Eins er ánægju-
legt, að sovéska innrásarliðið í Af-
ganistan skuli vera á leið þaðan og
kúbanskir skósveinar þeirra virðist
ætla að draga her sinn brott frá
Angólu.
En samt sem áður er nauðsyn-
legt að hafa í huga, hvaða ástæður
liggja að baki þessum tilslökunum
Kremlarherrana. Það er ekki mann-
úð og miskunnsemi sem þessu veld-
ur. Ekki heldur virðing fyrir óskum
hins almenna rússneska borgara.
Nei, ástæðan fyrir þessum breyt-
ingum á utanríkisstefnunni er bág-
ur fjárhagfur Sovétríkjanna. Gorba-
tsjov og félagar hans hafa áttað sig
á því, að efnahagslíf Sovétríkjanna
getur hvorki staðið undir vopna-
kapphlaupi við Bandaríkjamenn né
landvinningastríði í Asíu.
Af þessum sökum dregur Sovét-
stjómin her sinn frá Afganistan og
leitast við að ná afvopnunarsamn-
ingum við Bandaríkin. Hún gerir
það til þess að hafa frið til að koma
á endurbótum í efnahagskerfinu og
gera það samkeppnisfært við efna-
hagskerfi hins fijálsa heims. Stað-
reyndin er sú, að Sovétríkin em
auðugt land, en áratuga miðstýring
og óstjórn hefur komið í veg fyrir
framfarir í efnahagslífínu.
Þrátt fyrir þessa framfaravið-
leitni Gorbatsjovs f efnahagsmálum
ber okkur að hafa í huga, að stjóm-
kerfið í Sovétríkjunum hefur ekki
tekið neinum raunvemlegum breyt-
ingum. Þar er enn við lýði sáma
mannfjandsamlega alræðiskerfíð
og ól af sér harðstjóm Stalíns.
Gorbatsjov var alinn upp í þessu
kerfi og komst þar til valda og
áhrifa, yngri en nokkur fyrirrenn-
ara hans. Það er ekki nokkur
ástæða til að ætla, að hann sám-
þykki einhveijar þær breytingar,
sem hafa í för með sér skert völd
hans.
Af þeim sökum ber okkur Vestur-
landabúum að taka öllu friðartali
Sovétstjómarinnar með fyrirvara.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem nugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, em ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafiinúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafiileyndar.
Auðvitað eigum við að semja um
afvopnun, ef tryggt er, að hún sé
gagnkvæm og vamarmáttur Vest-
urlanda nægilega mikill til þess að
fæla Kremlarherra frá árás. Við
höfum engar forsendur til að
treysta þeim, þótt þeir friðmælist
nú við okkur og lofi öllu fögm.
Sagan hlýtur að kenna okkur, að
þeim er ekki treystandi, frekar en
öðmm þeim, sem ekki byggja vald
sitt á þjóðarviljanum heldur ógnar-
stjóm.
Með þökk fyrir birtinguna,
Lýðræðissinni.
Þessir hringdu .. .
Löng bið hjá Gjaldheimt-
unni
Rúnar hringdi:
»Ég var staddur í afgreiðslu
Gjaldheimtunnar síðasta föstu-
dagsmorgun um 9 leytið. Af-
greiðslan með tölvunum gekk vel
en annað var upp á teningnum
þegar að gjaldkerastúkunni kom.
Þar skapaðist mikil bið, því þar
var aðeins einn við afgreiðslu.
Hinn gjaldkerinn hafði sofíð yfir
sig. Mér fínnst lágmarkskurteisi
hjá fólki að sofa ekki út, þegar
það veit að búast má við miklum
önnum."
Hvenær fáum við Þjóðar-
bókhlöðuna?
Vesturbæingur hringdi:
„Mig langar til að fá svör við
því hjá ráðamönnum þessa lands,
hvenær sé áætlað, að Þjóðarbók-
hlaðan verði tekin í notkun. Ef
ég man rétt beitti Sverrir Her-
mannsson, fyrrverandi Mennta-
málaráðherra sér fyrir þjóðarátaki
til að ljúka byggingunni og lagði
sérstakan skatt á okkur borgar-
ana í þeim tilgangi. Vissulega
hefur mikið verið unnið við húsið
frá því þetta átti sér stað, en er
ekki ætlunin að Ijúka þessum
framkvæmdum á næstunni?"
Skór hurfu i Laugardals-
lauginni
Kona hringdi:
„Ég fór með barnabam mitt,
11 ára pilt, í sundlaugamar f
Laugardal fyrir nokkru. Þegar við
komum upp úr lauginni voru
skómir hans horfnir. Þetta vom
nýir skór af Nike-gerð, uppháir
og reimaðir, hvítir á litinn. Ef ein-
hverjir foreldrar hafa orðið varir
við skóna í fómm bams síns vil
ég hvetja þá til að skila þeim aft-
ur í Laugardalslaugamar, þaðan
sem þeir vóra teknir.
Ekki loka Laugaveginum
íbúi við Njálsgötu hringdi:
„íbúamir við Njálsgötu, Grett-
isgötu og Bergþóragötu munu
aldrei fallast á sjónarmið um að
loka Laugaveginum fyrir umferð,
sem „Lesandi" kynnti í dálknum
föstudaginn 12. ágúst. Slík lokun
hefði í för með sér gífurlega aukn-
ingu á umferð um þessar þijár
götur, með öllu því ónæði sem
henni fylgir. Ástandið hefur verið
nógu slæmt hjá okkur þegar
Laugaveginum hefur verið lokað
tímabundið."
Gleraugu týndust á Kot-
móti
Glæný kvenmannsgleraugu
týndust á Kotmóti Hvítasunnu-
manna að Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð um verslunarmanna-
helgina. Gleraugun era tvískipt,
með jámlitri málmumgjörð.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 91-79302.
Afgreiðslutími ÁTVR
Neytandi hringdi:
„Mig langar til að koma á fram-
færi spumingu, sem ég vona að
forráðamenn Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins geti gefíð mér
svör við. Hún er. Hvers vegha era
útsölur verslunarinnar lokaðar í
hádeginu? Fjöldi fólks lýkur ekki
vinnu fyrr en eftir 6 á kvöldin og
hefur ekki aðstöðu til að bregða
sér frá í vinnutímanum. ÁTVR
er þjónustustofnun, sem ætti að
miða starfsemi sína við þarfir
neytenda. Er ekki kominn tími til
að hætta þeim feluleik sem menn
hafa stundað { sambandi við
áfengismál hér á landi? Þorri full-
orðinna íslendinga neytir áfengis
sér að skaðlausu og sá stóri hópur
hlýtur að hafa rétt til að kaupa
þessa neysluvöra í hádeginu, al-
veg eins og annan vaming."
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verði
SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
Pið fáið að sníða niður allt plötuefni
hjá okkur I stórri sög
- ykkur að kostnaðarlausu.
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28
ÁTT ÞÚ HLUTABRÉF?
Hlutafélag Kaup- gengi Sölu- gengi
Alrúennar Tryggingar hf. 1,09 1.15
Eimskipafélag Islands hf. 2.66 2,80
Flugleiðir hf. 2,30 2,42
Hampiðjan hf. 1,10 1.16
Hlutabréfasjóðurinn hf. 1.18 1,24
Iðnaðarbankinn hf. 1,61 1,69
Verzlunarbankinn hf. 1,19 . 1,25
Útvegsbankinn hf. 1,19 1,25
Skagstrendingur hf. 1,50 1,58
Tollvörugeymslan hf. 0,95 1,00
Veistu hvers virði
þau eru?
T aflan að ofan birtist annan hvern fimmtudag í viðskiptablaði
Morgunblaðsins. og sýnir gengi þeirra hlutabréfa sem
HMARK. kaupir og selur gegn staðgreiðslu. Ef þú átt
hlutabréf geturðu margfaldað nafnvirðið með kaupgengi
þeirra í auglýsingu HMARKs og útkoman er það verð se'm
HMARK greiðir þér fyrir bréfin.
0
IÐNAÐARBANKINN
Ef þú átt hlutabréf í
Iðnaðarbankanum að nalnvirði
10.000 kr.:Kaupgengiðer1,61 og
HMARK greiðir þár því 16.100 kr.
fyrir þau.
FLUGLEIÐIR
Ef þú átt hlutabréf í Flugleiðum
að nafnvirði 100.000 kr.:
Kaupgengið er 2,30 og HMARK
greiðir þér því 230.000 kr. fyrir þau
Verið velkomin í HMARK, Skólavörðustig 12, og
VIB, Armúla 7, til að kaupa og selja hlutabréf.
Hlutabréfamarkaburinn hl.
Skolavordustig 12, 3.h. Reykjavík. Sími 21677
VIB
VERDBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Armula 7. 108 Reykjavik. Simi68 15 30