Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
Fjármálaráðuneytið:
Skuldabyrði vangold-
inna skatta verði létt
Fjölmenni í Gjaldheimtunni vegna fregna um niðurfellingu
Fjarmalaraðherra kynnti fyrir ríkisstjórninni í síðustu viku hugmynd-
ir um að létta skuldabyrði einstaklinga, sem enn skulda skatta frá því
áður en staðgreiðslukerfi var tekið upp, með ívilnun á greiðslukjörum.
Fyrirkomulag á þessum rýmri kjörum er ekki ákveðið, en fyrirhugað
er að nýjar reglur liggi fyrir í vikunni. Að sögn Stefáns Friðfinnsson-
ar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, er meðal annars rætt um að þeir
sem borgi skattskuldir sinar fljótt og vel, fái einhveija eftirgjöf drátt-
arvaxta. Vegna fregna af þessum fyrirætlunum flykktist fjöldi skatt-
greiðenda í Gjaldheimtuna í Reykjavík í gær og vildi fá svör við því,
hvort nú væri rétti tíminn til þess að gera upp gamlar syndir, án drátt-
arvaxta.
„Það má segja að fyrsti apríl hafi
verið endurtekinn 15. ágúst,“ sagði
Stefán Friðfinnsson. Hann sagði að
ekki væri rætt um að fella niður alla
dráttarvexti, heldur ætti að auðvelda
einstaklingum að greiða vangoldin
þinggjöld sín. „Hugmyndir fjármála-
ráðherra voru lagðar fram í ríkis-
stjóm og hún gaf samþykki sitt fyr-
ir þeim, en það þarf að útfæra þær
nánar," sagði Stefán. Hann sagði að
auk þess yrði að semja um þetta
fyrirkomulag sérstaklega þar sem
gjaldheimtur innheimtu gjöld sveitar-
félaga jafnframt gjöldum til ríkisins.
„Það hefur engum dottið í hug að
ríkisstjómin geti gefíð mönnum eftir
skuldir við sveitarfélög."
Fjármálaráðuneytið kannar nú
hvort lagabreytingu þurfi til þess að
nýjar inheimtureglur geti gengið í
gildi. „Ef svo er, verður þeirrar heim-
ildar aflað, en lögfræðileg álitsgerð
liggur ekki fyrir,“ sagði Stefán.
Að sögn Snorra Olsen, deildar-
stjóra innheimtudeildar fy'ármála-
ráðuneytisins, hefur það komið illa
við marga skattgreiðendur að stað-
greiðsla skatta sé látin ganga fyrir
er opinber gjöld em dregin af launum
manna. „Gamla skuldin situr hins
vegar eftir og dankar þá oft á drátt-
arvöxtum, en menn geta ekki velt
skuldunum á undan sér eins og áður
var,“ sagði Snorri. Samkvæmt lögum
um staðgreiðslu opinberra gjalda má
draga 75% af launum manna. Fyrst
em þá dregin opinber gjöld af heild-
artölunni á launaseðlinum, 'en síðan
koma eldri skuldir til greiðslu þar til
skattgreiðandi á 25% heildarlaun-
anna eftir. Það nægir þó oft ekki til
þess að saxa nægilega á gömlu
skuldimar. „Hingað hafa komið
margir og óskað eftir samningum
um eldri skuldir," sagði Snorri.
VEÐURHORFUR í DAG, 16.ÁGÚST1988
YFIRLIT í GÆR: Við Svalbarða er 1022 mb hæð, en milli Færeyja
og Noregs er 992 mb lægð sem þokast norðaustur. Grunnt lægðar-
drag er við suðurströndina. Langt suðvestur í hafi er vaxandi 982
mbl lægð, sem hreyfist hægt norðaustur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Hæg austan og norðaustanátt á landinu. Dálítið súld veröur
austanlands og við noröurströndina. Skúrir á Suðurlandi, en þurrt
á Vesturlandi og í innsveitum fyrir norðan. Hiti verður á bilinu
8—15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Austanátt. Dálítil
rigning eða súld við suður- og austurströndina, en þurrt á Norður-
og Vesturlandi. Hiti á bilinu 8—15 stig.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að isL tíma
Akureyri Reykjavík hiti 10 13 veður skýjað skýjað
Bergen 14 skúr
Helsinki 21 skýjað
Kaupmannah. 23 léttskýjað
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk 6 þoka
Ósló 19 rigning
Stokkhólmur 17 skúr
Þórshöfn 13 alskýjað
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 18 skýjað
Barcelona 28 léttskýjað
Chicago 24 þrumuveður
Feneyjar 32 heiðskírt
Frankfurt 29 léttskýjað
Glasgow 14 skúr
Hamborg 20 skýjað
tas Palmas 24 léttskýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 16 heiðskírt
Lúxemborg 22 skýjað
Madríd 32 léttskýjað
Malaga 28 mistur
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 24 þokumóða
New York 28 léttskýjað
París 23 skýjað •
Róm 29 þokumóða
San Diego 18 skýjað
Winnipeg 18 léttskýjað
Brunnið hey á hlaðinu á Leirulæk. Morgunbiaðið/Ásdís Haraidsdóttir
Hey í hlöðu of-
hitnaði og brann
UM 130 rúmmetrar af heyi í rúllu-
böggum eyðilögðust af hita og
eldi á bænum Leirulæk í Álftanes-
hreppi á Mýrum snemma á laugar-
dagsmorguninn. Litlar skemmdir
urðu á hlöðunni og 2/s hlutar heys-
ins, sem í henni var, slapp
óskemmt.
Að sögn Ingimundar Grétarsson-
ar, bónda á Leirulæk, varð eldsins
vart er maður úr sveitinni sá reyk
leggja frá hlöðunni og gerði við-
vart. Slökkviliðið úr Borgamesi
Fríkirkjan:
Biskup fundar
með Gunnari
Fundur með safnað-
arstjórn í vændum
BISKUP íslands, herrp Pétur Sig-
urgeirsson, hefur gerst milli-
göngumaður í deilu safnaðar-
stjórnar Fríkirkjunnar við sr.
Gunnars Bjömssonar og stuðn-
ingsmenn hans. í gær átti biskup
fund með sr. Gunnari og sr. Sig-
urði Sigurðarsyni, formanni
Prestafélags íslands.
„Við urðum sammála um að tjá
okkur ekki um málið út á við að svo
stöddu," sagði Pétur biskup í sam-
tali við Morgunblaðið. „Málin voru
rædd almennt. Ég vonast eindregið
til þess að það takist að ná sáttum
í þessari deilu.“
Biskup . sagðist hyggjast halda
fund með safnaðarstjóm Fríkirkj-
unnar innan skamms, en ekki er
ákveðið hvenær fundurinn verður.
kom á staðinn og tók slökkvistarf
á aðra klukkustund. Notast var við
svokallaða baggagripu sem var sett
utan um baggana og þeir síðan
dregnir út undir bert loft með drátt-
arvél. Að sögn Ingimundar réð hag-
stæð vindátt miklu um að eldurinn
náði ekki að breiðast út um hlöðuna.
„Heyið hefur sennilega verið of
kjammikið. Það var slegið í sprettu
og ekki unnt að þurrka það. Þurr-
heysgeymslan var orðin full og ég
batt það sem afgangs var í trausti
þess að það myndi ná að ryðja sig
á eðlilegan hátt,“ sagði Ingimund-
ur. „Það gjólaði aðfaramótt laugar-
dagsins og þá hefur sennilega náð
að komast strengur inn og smogið
um bil með veggjum. Þannig hefur
komist inn nægt súrefni til að eldur
næði að kvikna." Ingimundur sagði
að hey- og bústofnstrygging mundi
bæta sér skaðann.
Fótbrotnaði í
dráttarvélaslysi
MAÐUR fótbrotnaði er hann varð
undir dráttarvél í Fljótum á
sunnudag. Að sögn lögreglunnar
á Siglufirði er mildi að ekki fór
verr en maðurínn fór til síns
heima á sunnudagskvöld eftir að
gert hafði verið að meiðslum hans.
Slysið varð með þeim hætti að
dráttarvél rann til er maðurinn ók
henni yfir brú, sem lá yfir skurð
skammt frá bænum Nesi í Fljótum.
Reyndist fallið lágt og slapp maður-
inn með fótbrot og nokkrar skrám-
ur. Að sögn lögreglunnar á Siglufirði
em slík slys fátíð.
Baldur Trausti
Eiríksson látinn
Baldur Trausti Eiríksson, fyrr-
verandi forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar, lézt laugardaginn
13. ágúst síðastliðinn, 75 ára að
aldri. Baldur heitinn var gestkom-
andi norður í Siglufirði, í tilefni
af 70 ára kaupstaðarafmæli stað-
aríns, er hann lést.
Baldur fæddist á Isafirði 14. júlí
1913. Foreldrar hans vóru hjónin
Kristín S. Einarsdóttir og Eiríkur
Br. Finnsson, verkstjóri. Baldur varð
stúdent frá MA 1934 og hélt þá til
starfs og náms í Þýzkalandi.
Baldur flytzt til Siglufjarðar 1937.
Hann hóf þar störf sem ritstjóri Sigl-
fírðings en vann lengst af verzlunar-
og skrifstofustörf. Hann starfaði hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins 1943-64,
var framkvæmdastjóri Útgerðarfé-
lags Siglufjarðar hf. 1964-69 og full-
trúi hjá Sementsverksmiðrju ríkisins
á Akranesi frá 1969 unz hann lét
af störfum fyrir aldurs sakir.
Baldur var bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, fyrst á ísafirði
en síðan í Siglufirði, og forseti bæjar-
stjómar Siglufjarðar um árabil. Á
hann hlóðust §ölmörg trúnaðarstörf
á vegum Sjálfstæðisflokksins, Siglu-
fjarðarkaupstaðar og ýmissa félaga-
samtaka. Hann var umdæmisstjóri
íslenzka Rótaryumdæmisins
1979-80.
Fyrri kona Baldurs var Hólmfríður
Sveinbjömsdóttir Sveinssonar bónda
að Hámundarstöðum í Vopnafirði.
Hún lézt 1967. Síðari kona hans er
Aldís Dúa Þórarinsdóttir Dúasonar,
skipstjóra og hafnarstjóra í Siglu-
firði, og lifir hún mann sinn.