Morgunblaðið - 16.08.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
23
Hvítárgljúfur:
Hrapaði
50 metra
niður í
stórgrýti
UNGUR maður hrapaði niður í
Hvítárgljúfur skömmu eftir há-
degi á laugardag. Hann var að
lóðsa stóran gúmmíbát niður í
gljúfrið á þar til gerðum vír er
línan sem notuð var til að slaka
bátnum niður slitnaði. Hrapaði
maðurinn með bátnum um 50
metra niður í stórgrýti. Hann slas-
aðist alvarlega, hlaut fótbrot, rif-
beinsbrot og höfuðáverka auk
annára meiðsla. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var kvödd til og flutti
hún manninn á Borgarsjúkrahú-
sið.
Atburður þessi átti sér stað í
grennd við Brattholt um 2 km neðan
við Gullfoss. Tíu manna hópur, þar
af þrír Norðmenn, ætlaði á gúmmí-
bátnum niður Hvítá en ferðir sem
þessar hafa verið vinsælar í sumar
einkum meðal ferðamanna. Sem fyrr
segir er gúmmíbáturinn fluttur niður
að ánni á vír sem strengdur er milli
gljúfurbrúnarinnar og árinnar. Mað-
ur verður að fylgja bátnum niður til
að lóðsa hann framhjá og yfir runna
á leiðinni. Að sögn sjónarvotts varð
slysið skömmu eftir að maðurinn
lagði af stað með bátinn. Segja má
að betur hafi farið en áhorfðist því
báturinn er þungur og lenti hann
ofan á manninum í stórgrýtinu við
árbakkann.
Þyrla Landhelgisgæslunnar gat
ekki lent á þeim stað sem maðurinn
féll niður og því var gripið til þess
ráds að hífa manninn upp í þyrluna.
Flugstjóri í ferðinni var Páll Hall-
dórsson, flugmaður Jakob ÓLafsson
Morgunblaðið/BAR
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SIF yfir slysstaðnum við Hvítá. Ver-
ið er að undirbúa manninn fyrir að vera hífður um borð.
og stýrimaður Vilberg M. Óskars-
son. Jakob segir að aðstæður hafi
verið nokkuð hrikalegar þar sem
dálítill vindur var í gljúfrinu. „Yfir-
leitt þurfum við ekki að hífa menn
um borð yfir landi en það kemur þó
fyrir eins og við Baulu fyrir nokkru.
Málið er að þyrlan þarf sléttan flöt
til að lenda á og slíkt var ekki til
staðar. Mestu máli skiptir að allt
gekk vel,“ sagði Jakbob.
Erlingur Thoroddsen hjá Nýja
Ferðaklúbbnum sem skipuleggur
bátsferðirnar niður Hvítá segir að
þetta sé fyrsta slysið hjá þeim í fjög-
ur ár og hafi verið þeim töluvert
áfall. Að meðaltali eru þrjár báts-
ferðir í hverri viku á vegum klúbbs-
ins yfir sumarmánuðina.
HREINIÆTI
ER OKKAR FAG
flaírsturtuklefi með öllum
fylgihlutum á frábæru verði
J. ÞORLAKSSON &
NORÐMANN H.F.
RÉTTARHÁLSI 2
SÍMI 8 38 33
STRIK/SlA