Morgunblaðið - 16.08.1988, Page 24

Morgunblaðið - 16.08.1988, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 Sviss og EB: Þung’atakmarkanir á veg- um í Sviss valda deilum Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. STYSTU flutningaleiðir á milli Ítalíu og Norður-Evrópu eru um svissnesku Alpana en vegna and- stöðu almennings í Sviss heimila þarlend stjórnvöld ekki umferð þyngri vöruflutningabíla þar en 28 tonna. Almennar þungatak- markanir bæði innan EB og Sviss eru annars 40 tonn. Það er fyrst og fremst ótti við hávaða- og loftmengun sem ræður afstöðu Svisslendinga. Viðræður á milii svissneskra stjómvalda og Evrópubandalagsins um þessi efni hafa fram að þessu verið árangurslausar. Flutninga- leiðir um Alpana eru Evrópubanda- laginu mjög mikilvægar þar sem þær tengja bandalagsríkin í Norð- ur-Evrópu við Ítalíu og Grikkland. Töluverðir flutningar fara um Aust- urríki til Ítalíu og áfram um Júgó- slavíu til Grikklands. Hvorki Júgó- slavar né Austurríkismenn hafa sett sérstakar þungatakmarkanir á vöruflutningabíla frá EB-löndun- um. Umferð um Sviss hefur mest Atlantshaf sbandalagið: Hvatt til fækkun- ar vígvaUarvopna Brussel. Reuter. EIN helsta niðurstaða könnunar sem vígbúnaðarsérfræðingar Atlantshafsbandalagsins hyggj- ast ljúka síðar á þessu ári er sú að mæla með mikilli einhliða fækkun vígvallarvopna með kjarnorkuhleðslum. Talsmaður Evrópuhersljómar NATO skýrði frá þessu á blaðamanna- fundi í síðustu viku. Talsmaðurinn sagði að í skýrsl- unni yrði lagt til að kjamaoddum yrði fækkað, til að mynda í stór- skotavopnum sem draga allt að 30 kflómetra. Það væri gerlegt yrðu önnur skammdræg kjam- orkuvopn svo sem eldflaugar af Lance-gerð, sem draga allt að 110 kflómetra, endumýjaðar. Talsmenn NATO sögðu að fækkunin væri í samræmi við þá stefnu bandalagsins að viðhalda virkri kjamorkufælingu með sem fæstum kjamorkuvopnum. Hún samræmdist einnig Montebello- ákvörðuninni svonefndu frá 1983, sem gerir ráð fyrir að skammdræg kjamorkuvopn verði endurnýjuð. Vestur-Þjóðveijar hafa verið mótfallnir endumýjun vígvallar- vopna með kjamorkuhleðslum og hafa haldið því fram að þeim stafi sérstök hætta af vopnum Varsjár- bandalagsins vegna legu Vestur- Þýskalands. Þeir hafa mælst til þess að fækkun skammdrægra kjamorkuvopna hafí forgang í af- vopnunarviðræðum austurs og vesturs. Talsmenn Atlantshafs- bandalagsins lögðu þó áherslu á að könnunin væri aðeins liður í endurskoðun á vamarmálum sem hefði hafíst árið 1979 og vísuðu því á bug að með einhliða fækkun skammdrægra. kjamorkuvopna væri einkum verið að reyna að forðast ágreining við Vestur-Þjóð- verja. farið í gegnum Gottahard-göngin en sú leið liggur um viðkvæm land- búnaðarhérðu. Samkvæmt framtí- ðarspá Svisslendinga mun umferð um landið þrefaldast ef þungatak- mörkunum verður aflétt. Reikna megi með því að þá færu þrír stór- ir flutningabflar um göngin á mínútu. Bændur á þessu svæði segja að öskrandi umferð 40 tonna ferlíkja muni eyðileggja viðkvæmt samfélag lítilla sveitaþorpa í hrika- legu landslagi og brothættri nátt- úru. í Sviss óttast menn að EB muni draga lappimar í væntanlegum samningum við þá um hlutdeild þeirra í EB-markaðinum 1992 ef Svisslendingar verði ekki liprari gagnvart flutningum um landið. Helst hefur verið upp á því stungið af hálfu Svisslendinga að lögð verði jámbraut um landið sem flutt geti flutningabflana. Framkvæmdastjóri EB hefur tekið þessum tillögum fálega og bent á að slíkar fram- kvæmdir taki áratugi og þetta mál verði að leysa innan skamms. Sam- kvæmt heimildum í Brussel er stefnt að því að ná samningum við Svisslendinga á næsta ári. Burma: .... Reuter Byltingarkennd farþegaflugvél í Bandaríkjunum hefur verið ákveðið að smíða farþegaflugvél, sem verður systurvél V-22 Osprey-flugvélarinnar, sem verið er að þróa fyrir herinn þar vestra. Flugvélin verður þeim eiginleik- um búin að hún þarfnast ekki langra flugbrauta heldur á hún að geta hafið sig lóðrétt til flugs af litlum bletti, eins og þyrlur. Þegar hún hefur náð góðri hæð er hreyflunum, sem eru á væng- endunum, snúið svo þeir vísi fram og þarmeð getur flugvélin náð mun meiri hraða en þyrlur. Stjómvöld leita stuðn- ings fyrmm leiðtoga Nýr þjóðarleiðtogi valinn á föstudag Bangkok, Reuter. STJORNVÓLD í Burma, sem standa höllum fæti eftir óeirðirn- ar í síðustu viku, hafa opinber- lega biðlað til Ne Win, fyrrum * Atta ár frá stofnun Samstöðu: 100 manna lögregluliði beitt gegn andófsmönnum . O O Varsjá. Reuter. SVEITIR óeirðalögreglu brutu á bak aftur göngu stuðningsmanna Samstöðu, hinnar óleyfilegu hreyfingar pólskra verkamanna, i borginni Gdansk á sunnudag en um þessar mundir eru átta ár lið- in frá verkföllunum í Póllandi sem leiddu til stofnunar samtak- anna. Að minnsta kosti 20 manns fengu að kenna á kylfum óeirðas- veitanna og voru handteknir, að sögn heimildarmanna Reuters- fréttastofunnar. Um 200 manns tóku þátt í göngunni og var 100 manna lög- regluliði beitt gegn þeim. Fyrr um daginn hafði farið fram útifundur í borginni þar sem Lech Walesa, leið- togi Samstöðu, flutti ávarp. Talið er að um 3.000 manns hafi sótt fund- inn. í fréttum pólska sjónvarpsins sagði að sex lögreglumenn hefðu slasast í átökunum en þess var get- ið að „viðhorf lögreglumannanna" hefði komið í veg fyrir frekari átök. PAP, hin opinbera fréttastofa Pól- lands, sagði að stuðningsmenn Sam- stöðu hefðu lagt kaffihús eitt í rúst og hrópað: „Niður með kommúnis- mann." Heimildarmenn í röðum Samstöðu sögðu að átökin hefðu hafíst er einn göngumanna grýtti stól að sveitum óeirðalögreglu. Atök- in stóðu í um 15 mínútur en þá dreifðist hópurinn. Um 20 manns voru handteknir. leiðtoga landsins, um aðstoð hans við að koma í veg fyrir frekari óeirðir. Erlendur sendimaður í Rangoon sagði í símtali við Reuters-írétta- stofuna að málgagn stjómarinnar Botataung hefði á sunnudag vitnað í fyrrum leiðtoga landsips, Ne Win, þar sem hann segir að ef stilla eigi til friðar f landinu verði að gera það í samráði við alþýðu landsins. Ne Win, sem var við völd í Burma frá því árið 1962, var settur af fyr- ir þremur vikum. Arftaki hans var Sein Lwin, sem fór frá á föstudag eftir óeirðimar sem brutust út í síðustu viku, sem kostuðu hundruði manna lífíð. Ne Win og eini leyfði stjóm- málafiokkur landsins, sósíalista- flokkur Burma, hafa ráðið einu og öllu í Burma síðustu 26 árin. Ne Win lagði til fyrir skemmstu að eins flokks kerfíð yrði lagt niður í landinu og fiölflokka lýðveldi tekið upp í þess stað. Flokkurinn hafnaði þessu og setti Ne Win, sem er 77 ára, af. Sein Lwin, sem er afar óvinsæll stjómmálamaður í Burma, tók við sem leiðtogi landsins. Málgagn stjómarinnar vitnaði í ræðu sem fyrrum leiðtogi hélt árið 1963, þar sem hann sagði að til þess að leysa vandamálin í Burma yrðu valdhafar að ræða við al- þýðuna. Einnig er vitnað í ræðu sem Ne Win hélt á síðasta ári þar sem hann sagði að hver þjóð yrði að fínna eigin leiðir til að leysa inn- anríkisvanda. Ólíklegt þykir að Ne Win muni taka við stjóm á ný en flokkurinn mun reyna ð finna nýjan leiðtoga á fundi sínum á föstudag. Þykir greinin í málgágni flokksins benda til þess að hann reynt verði að fara bil beggja við val á leiðtoga til að koma í veg fyrir að óeirðir bijótist út að nýju í landinu. Astandið í Burma er að komast í eðlilegt horf. Útgöngubann er þó enn að nóttu til. Verslanir hafa opnað að nýju og vegatálmanir hafa verið teknar niður. Veggspjöld þar sem krafíst er breytinga á stjóm landsins, frelsunar pólitískra fanga og réttarhalda yfír Sein Lwin era þó enn víða í Rangoon. Bretland: Þingmenn fáfróð- ir um varnarmál Reuter Óeirðalögreglumenn handtaka fylgismann Samstöðu í Gdansk á sunnudag. Leiðtogar Samstöðu hafa hvatt pólska verkamenn til að setja fram kröfur um kauphækkanir og bættan aðbúnað á vinnustöðum fyrir 31. ágúst en þá verða átta ár liðin frá því að gengið var til samninga við stjómvöld, sem leiddu til stofnunar Samstöðu. Með þessu móti hyggjast leiðtogar Samstöðu þrýsta á stjóm- völd um að leyfa starfsemi samtak- anna en þau vora lýst óleyfileg sam- kvæmt ákvæðum herlaga sem sett vora í desember árið 1981. London. Reuter. BRESKIR þingmenn vita margir hveijir furðulítið um varnarmál, ef marka má niðurstöður könnun- ar, sem birtist í Sunday Telegraph á sunnudag. Af 171 þingmanni, sem þátt tók í könnun blaðsins, vissu aðeins 14 að John Galvin er yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins í Evrópu. 29 þingmenn vissu að Manfred Wömer hefur tekið við embætti framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins af Carrington lávarði. Tæplega fjórði hver maður vissi að innan við fjögur prósent af fjárlögum þessa árs renna til kjamorkuherafla Breta. 116 þingmenn breska íhalds- flokksins og 55 þingmenn Verka- 'mannaflokssins tóku þátt í könnun- inni. í frétt blaðsins sagði að þing- menn Verkamannaflokksins virtust almennt betur að sér um öryggis- og vamarmál en íhaldsmenn. Gallup sá um framkvæmd könnunarinnar fyrir óháð samtök áhugamanna um öryggis- og vamarmál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.