Morgunblaðið - 16.08.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 16.08.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 / f Lögreglan plötuð á Oxnadalsheiði Lögreglan á Akureyri var plöt- uð upp á Oxnadalsheiði i fyrri- nótt eftir að karlmaður hafði hringt á stöðina og tilkynnt um útafakstur um kl. 3.30. „Hann sagðist sjálfur hafa ekið út af veginum og væri hjálpar þurfi. Þegar hann var hinsvegar spurður um meiðsl, lagði hann á. Lögreglubíll og sjúkrabíll voru um- svifalaust sendir af stað frá Akur- eyri alla leið vestur að bænum Kot- um þar sem komið er niður í Norð- urárdalinn án þess að fínna nokk- uð. Sem betur fer eru svona uppá- komur sjaldgæfar enda varla hægt að skilja hver getur haft gaman af slíku uppátæki. Túrinn tók okkur um þijár klukkustundir." Fremur rólegt var hjá vörðum laganna á Akureyri að öðru leyti um helgina. Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur, þrír voru teknir fyrir of hraðan akstur og fjórir minniháttar árekstrar urðu á Akureyri um helgina án þess þó að slys á mönnum hafi hlotist af. Fimm gistu fangageymslur lögregl- unnar, sem er heldur minna en oft áður. Bifreið af gerðinni Lada Sport árgerð 1979 gulbrúnni að lit var stolið við bifreiðaverkstæði að Os- eyri 6 um helgina. Bílnum hafði verið lagt við verkstæðið sl. föstu- dag og þegar bifvélavirkjar ætluðu að taka til hendinni í gærmorgun, var bifreiðin horfin. Bíllyklar munu hafa verið skildir eftir í bílnum, en þeir sem einhveijar upplýsingar geta veitt, eru beðnir um að láta lögregluna á Akureyri vita. Lokaátak vegna sundlaug- ^arbyggingar við Sólborg: Ein milljón komin inn Við getum ekki kvartað yfir viðtökunum sem við höfum fengið yfir helgina. Nú þegar hefur ein milljón króna safnast siðan á föstudag og er fé ennþá að streyma inn á póstgíróreikninginn," sagði Rakel Bragadóttir ritari á vistheimilinu Sólborg i samtali við Morgunblaðið. Fimm manna hópur starfsmanna á Sólborg hefur undanfarnar vikur undirbúið söfnun, sem þau kusu að nefna lokaá- tak vegna sundlaugarbyggingar við Sólborg, og nutu þau aðstoðar Rásar 2 við verkið. Rákel sagði að fé hefði nánast streymt inn alls staðar af landinu og hefðu upphæðimar verið allt frá 500 krónum og upp í 25.000’krón- ur frá einstaklingum. Skipveijar á Akureyrinni EA áttu hinsvegar krónumetið, en þeir slógu saman oggáfu alls 75.000 krónur til sund- laugarbyggingarinnar. Á blaða- mannafundi er haldinn var fyrir skömmu kom fram að tvær milljón- ir vantaði til að endar næðu saman svo hægt yrði að ljúka bygging- unni, sem staðið hefur síðan sum- arið 1983. Söfnunin hófst í svæðis- útvarpinu á Akureyri á fimmtu- dagskvöld og var henni síðan hald- ið áfram allan föstudaginn á Rás 2. „Fólk hringdi inn alla helgina með framlög og getum við ekki annað en verið ánægð með árang- urinn. Að minnsta kosti sjáum við fram á að hægt verður að halda framkvæmdunum áfram enda er mjög brýnt að vistmennimir fái þá aðstöðu sem sundlaug býður upp á.“ Rakel sagði að póstgíróreikning- urinn væri ennþá opinn fyrir þá sem hafa áhuga á að leggja til framlög og væri númerið á honum 544655. Ætlunin væri að reyna að taka sundlaugina í notkun um áramót og ætti það að takast með góðra manna hjálp. Aðeins vantaði tæpa milljón svo ljúka mætti verk- inu. Hún vildi koma á framfæri þakklæti til allra þeirra er stutt hefðu verkið. Morgunblaðið/Rúnar Þór Guðrún H. Þórarinsdóttir sölumaður hjá Innréttingahúsinu, Hákon E. Farestveit sölumaður hjá Einari Farestveit og sonur hans Tryggvi á Akureyri í gær. Sýningarferð um landið Innréttingahúsið hf. stendur nú fyrir sýningarferð um landið í samvinnu við Einar Farestveit & Co. Ferðin hófst í Borgarnesi sl. föstudag. Farið var á flutningabíl með aftanívagni, sem er með uppsettum eldhúsinnréttingum, fataskápum og baðinnréttingum frá HTH í Danmörku auk Blomberg-heimilistækja. Um er að ræða nýjung hérlendis og er framtakið hugsað sem sérstök þjónusta við landsbyggðarfólk, sem ekki hefur tíma eða aðstöðu til að gera sér ferð í höfuðstaðinn, að því er segir í fréttatilkynningu. Bíllinn er í eigu framleiðanda innrétting- anna, HTH í Danmörku, og var fenginn að láni í tvær vikur. Innrétt- ingahúsið er 10 ára um þessar mundir og er ferðin farin meðal annars í tilefni af afmælinu. Akureyri er sjötti bærinn sem heimsóttur er. í dag verður bíllinn á Ólafsfirði fyrir hádegi og á Dalvík eftir hádegi. Á morgun, miðviku- dag, er ferðinni heitið til Húsavíkur. Engin um- sókn um hagsýslu- stjórann ENGIN umsókn barst um stöðu hagsýslustjóra hjá Akur- eyrarbæ sem auglýst var laus til umsóknar frá og með 1. októ- ber nk., en þá lætur núverandi hagsýslustjóri, Úlfar Hauksson, af því starfi og tekur við fjár- málastjórn hjá fóðurverksmiðj- unni ístess hf. Nýlega var einnig auglýst staða forstöðumanns öldrunarþjónustu hjá Akureyrarbæ. Cecil Haralds- son, sem gegnt hefur því starfi um hríð, lætur af störfum 1. októ- ber. Að sögn Sigfúsar Jónssonar bæjarstjóra hafa sex umsóknir borist um þá stöðu. Ekki vildi hann gefa upp nöfn umsækjenda, en búast má við að íjallað verði um umsækjendur á bæjarstjórnar- fundi í dag. Krossanes og þrír ein- staklingar kaupi Súluna? Stjórn Krossanesverksmiðjunn- ar verður kynnt ákveðið tilboð í dag sem þrír af starfsmönnum Súlna hf. hafa náð við Leó Sig- urðsson eiganda skipsins. Þre- menningarnir, þeir Sverrir Leósson útgerðarstjóri, Bjarni Bjarnason skipstjóri og Finnur Kjartansson vélstjóri hyggjast kaupa 75% skipsins sameigin- lega og hafa þeir farið fram á það við Krossanesverksmiðjuna að hún standi undir kaupum á 25% eignarhluta þess, að því er Sigfús Jónsson bæjarstjóri og stjórnarformaður Krossanes- verksmiðjunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. „Mér líst ágætlega á hugmynd- ina. Þeir eru búnir að ná ákveðnu samkomulagi við eiganda skipsins og eru að biðja okkur að taka þátt í kaupunum og finnst mér það alls ekki fráleitt svo framarlega sem okkur líst vel á tilboðið. Það yrði að minnsta kosti til þess að halda skipinu á staðnum. Við ætl- um fyrst og fremst að kynna okk- ur tilboðið og aðra skilmála í dag þannig að of snemmt er að segja til um framhald málsins," sagði Sigfús. Hann sagði að endanlegt kaupverð lægi ekki fyrir. Það færi eftir því hvaða búnaður fylgdi skipinu og hvort það færi í slipp fyrir eða eftir sölu. Líklega yrði kaupverð þó eitthvað lægra en rætt var um í fyrra þegar til tals kom að selja skipið. Þá var talað um 180 millj. kr. Öldungameistaramót íslands í golfi: 94 keppendur að Jaðri Jakobína Guðlaugsdóttir og Þorbjörn Kjærbo íslandsmeistarar Öldungameistaramót íslands í golfi fór fram í blíðviðri á Jaðarsvelli um helgina og tóku 94 manns þátt í mótinu. Mótið var opið konum 50 ára og eldri og körlum 55 ára og eldri. •Jakobína' Guðlaugsdóttir GV sigraði í kvennaflokki án forgjafar á 175 höggum og hélt hún þar með íslandsmeistaratitlinum frá því í fyrra. Steindóra Steinsdóttir NK lenti í öðru sæti á 187 högg- um og Guðrún Eiríksdóttir GR á 191 höggi. í karlaflokki án for- gjafar sigraði Þorbjörn Kjærbo GS á 240 höggum. Knútur Bjöms- son GK lenti í öðru sæti á 246 höggum og Alfreð Viktorsson GL í þriðja sæti á 247 höggum. I kvennaflokki með forgjöf sigraði Steindóra Steinsdóttir NK á 133 höggum. Patricia Jónsson GA var í öðru sæti á 141 höggi og Þóra Rósmundsdóttir GH í þriðja sæti á 141 höggi. í karla- Sigurvegarar í kvennaflokki án forgjafar. Frá vinstri Jakobína Guðlaugsdóttir GV, Steindóra Steinsdóttir NK, Guðrún Eiríks- dóttir GR. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigurvegarar í karlaflokki án forgjafar. Frá vinstri Knútur Björnsson GK, Þorbjörn Kjærbo GS og Alfreð Viktorsson GL. flokki með forgjöf sigraði Gísli Sigurðsson GK á 139 höggum. Alfreð Viktorsson GL var í öðru sæti á 140 höggum og Þorbjörn Kjærbo GS í þriðja sæti á, 142 höggum. Leiknar voru 36 holur í öllum þessum flokkum nema í karla- flokki án forgjafar þar sem leikn- ar voru 54 holur. Að sögn Odds Jónssonar formanns mótanefndar tókst mótið með ágætum og mik- ill keppnisandi ríkti að Jaðri um helgina. Næsta öldungameistara- mót fer fram að ári liðnu í Grafar- holti, en hefðin er sú að mótið er haldið þar sem landsmót fór fram árinu áður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.