Morgunblaðið - 16.08.1988, Side 43

Morgunblaðið - 16.08.1988, Side 43
s* MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 43 Verslunarráð: Fundur haldinn um gjaldþrotamál Verslunarrád íslands heldur á morgun, miðvikudag, morgiin- Sluppu ómeiddir úr bílveltu Selfossi. ÞRÍR piltar sluppu ómeiddir þeg- ar jeppabifreið þeirra fór útaf Suðurlandsvegi og valt skammt austan við Strönd á Rangárvöllum á sunnudag. Jeppinn, sem er af Bronco-gerð, valt heila veltu og lenti á hjólunum niðri í lækjarfarvegi. Ekki er Ijóst hvað olli veltunni. sig. Jóns. Ekiðá 6 ára dreng EKIÐ var á 6 ára dreng á Haga- mel um klukkan hálfátta á föstu- dagskvöld. Drengurinn var á leik á Hagamel ásamt félögum sínum og hljóp út á götuna þar sem hann lenti fyrir bíl á leið vestur. Drengurinn slasaðist nokkuð, lærbrotnaði meðal annars og var lagður inn á sjúkrahús. verðarfund um gjaldþrotamál í Skálanum á Hótel Sögu milli kl. 8 og 9.30. Varpað verður fram spurningum á borð við hvort mörg gjaldþrot stafi af rangri lánastefnu, hvort gjaldþrotalög- in séu gölluð og flókin og hvort gjaldþrotin séu fleiri og stærri vegna rangra vinnubragða banka og annarra lánadrottna. Fundurinn er opinn en óskað er þátttökutilkynninga milli kl. 8 og 16 til Verslunarráðs í dag, þriðju- dag. I frétt frá Verslunarráði segir að gjaldþrotamál séu fleiri í Reykjavík núna en nokkru sinni fyrr og því sé spáð að holskeflan sé þó ekki riðin yfir. Þetta ástand snerti allt viðskiptalífið meira eða minna og margir séu þeirrar skoð- unar að brestir í löggjöf og fjár- málakerfi, aðhaldsleysi og síbreyti- legar rekstraraðstæður hjá fyrir- tækjum eigi meðal annars hlut að máli. Á fundi Verslunarráðsins munu fímm menn hafa framsögu um þessi mál og síðan verða um þau almenn- ar umræður. Frummælendur verða Ragnar H. Hall skiptaráðandi, Sverrir Norland, forstjóri Smith og Norland hf., Ásgeir Gunnarsson, fv. forstjóri Veltis hf., Þorvaldur G. Einarsson, lögfræðingur Búnaðar- banka íslands og Ásgeir Thorodds- en, lögmaður Lögheimtunnar hf. Breska hljómsveitin Mirage leik- ur á tónleikum í Lækjartungli á næstunni. Hljómsveit- in Mirage spilar í Lækjartungli BRESKA hljómsveitin Mirage mun leika í Lækjartungli dag- ana 18.—21. ágúst. Hljómsveitina skipa bræðurnir Nicos og Carlos Griffith frá Lon- don og Kiki Billy frá Liverpool. Mirage hefur gefið út þrjár hljóm- plötur, „88 for 88“, „Jack Mix VII“ og „In Full Effect“ sem allar hafa notið vinsælda víða um heim. (Fréttatilkynningj Arnarfell selt Norð- mönnum KAUPSKIPIÐ Arnarfell liefur verið selt norskum kaupendum. Skipið sigldi utan um helgina í síðasta sinn undir íslenskum fána og verður afhent nýjum eigendum þegar það kemur til Hamborgar. Samtímis sölu Arnarfellsins er Skipadeild Sambandsins að semja um kaup á öðru skipi. Ástæða þessara skipakaupa er sú, að Skipadeildin er að endurnýja flota sinn, losa sig við lítil og úr- elt skip og kaupa önnur sem henta betur markaðnum eins og hann er í dag. „Það hefur verið stefna hjá skipa- deildinni að endurnýja skipastólinn," sagði Omar Jóhannsson fram- kvæmdastjóri Skipadeildar. „Byijað var á því fyrir einum fimm árum, þá komu Dísarfell og Jökulfell. Síðan hafa verið seld þtjú skip, Hvassa- fell, Skaftafell og núna Arnarfell. Þetta eru minnstu og elstu skipin sem eru seld og önnur yngri og stærri koma í staðinn. Arnarfell var byggt 1974 og keypt hingað 1980. Ómar sagði að sölu- verð skipsins væri um það bil 40,5 milljónir króna á núverandi gengi. Ekki hafði verið endanlega gengið frá kaupum á nýju skipi, en það verður skrásett á Islandi og með íslenskri áhöfn. Eitt leiguskip er nú í förum fyrir Skipadeildina og sagði Ómar að verið væri að fækka leigu- skipum eins og unnt er í samræmi við það sem stjórnvöld og stéttarfé- lög hafa farið fram á. [SflMBO] 1 XJöfóar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! V' - IfU - »- ÍHjr" Nú veistu hvernig þú færð hollan, bragðgóðan, fjölbreyttan og fljótlagaðan mat. Meö Mueller’s pasta .......... Allt sem þú óskar þér í einum munnbita. Mueller’s pasta er ekki bara spaghetti. Mueller’s er líka lasagna, vermicelli, núðlur og skrúfur úr spínati, tómötum og durum semolina, sem er eggjahvítu- rík og fitusnauð korntegund. Að auki er Mueller’s pasta ríkt af B- víta- mínum og járni. Mueller’s pasta getur þú fengið án kólestrols og salts. Með Mueller’s pasta færðu hollan og bragðgóðan mat. Það er góð hugmynd að fá sér Mueller’s pasta (borið fram Mullers). * Uppskriftin er fengin úr bókinni Pastaréttir í bóka- flokknum Hjálparkokkurinn frá Almenna bókafélaginu. Pasta og pylsur Handa fjórum. Undirbúningur: Um 15 mín. Suða/steiking: Alls 15-20 mín. Basilíkum, merían 100 g beikon 200 g kokkteilpylsur 350-400 g pasta Salt, olía og smjör 1-2 hvítlauksgeirar 100 g óðalsostur (eða jarl) 1. Meyrsjóðið pastað í velsöltuðu vatni og 1 msk af olíu. Klippið beikonsneiðarnar í 2 eða 3 bita, fínrífið ostinn. 2. Snöggsteikið beikonið og síið úr því á eldhús- pappír. Brúnið pylsurnar í beikonfeitinni og hald- ið þeim heitum. 3. Hellið soðnu pastanu í sigti og bræðið 1 msk af smjöri í pottinum. Bætið í krömdum hvítlauk, rifnum osti og dálitlu fersku eða þurrkuðu basilík- um og merían. Helllð síuðu pasta í pottinn, setjið á lok og hristið pottinn svolítið yfir hitanum. 4. Hellið réttinum í framreiðslufat og leggið beik- on og pylsur ofan á. Borið fram strax með tómat- salati. Mueller’s "?NEÐ Mueller’s ;*bs pasta swirls ENRICHEU MACARONI PROOUCT r SEMOUNA plué FARINA NF.TWT. 14 OZ./397Q KARL K. KARLSSONcn CO. Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32 MuellBr’s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.