Morgunblaðið - 16.08.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
sa
1818-1918-1988
460manns
til Hiíseyjar
Sigtufirði.
Liður í hátíðarhöldunum í Siglu-
firði átti að vera boð Björgunar-
sveitarinnar Stráka til siglingar
í Héðinsfjörð með varðskipinu
Tý. Lagt var af stað í gær en
snúa varð við í Héðinsfirði þar
sem skipið komst ekki nógu inn-
arlega í fjörðinn til að hægt
væri með góðu móti að ferja far-
þega til strandar. Var þá tekið
til þess bragðs að sigla í Hrísey.
Um 460 manns voru með í ferð-
inni og var fólk mjög ánægt með
siglinguna og lét vel af óvæntri
heimsókn til Hríseyjar.
Matthías
Það er ákaflega góð
stemnuiing á afmælinu
- segir Ísak J. Ólafsson bæjarstjóri á Siglufirði
ÍSAK J. Ólafsson hefur gegnt starfi bæjarstjóra á Siglufirði
síðast liðin 2 ár. „Ég er ekki Siglfirðingur en líkar mjög vel hér
og get vel hugsað mér að vera hér til frambúðar,“ sagði ísak i
viðtali við Morgunblaðið. „Siglfirðingar eru sérstaklega hlýlegt
og gott fólk og undirbúningur afmælishátíðarinnar hefur gengið
eins og í sögu.“
„í fyrra var skipuð undirbún-
ingssnefnd vegna afmælisins,"
segir ísak aðspurður um skipu-
lagningu hátíðarhaldanna. „Haft
var samráð við félagasamtök og
hópa í bænum og tóku þeir að sér
ýmis verkefni, til dæmis við fegr-
un bæjarins, en allt var þetta
gert í sjálfboðavinnu. Hér hefur
skapast alveg sérstök stemmning
við undirbúning hátíðarhaldanna
og held ég að mer sé óhætt að
segja að sjaldan hafi ríkt eins já-
kvæður andi meðal bæjarbúa.“
Um framkvæmdir á vegum
bæjarins segir ísak. „Við höfum
staðið aftarlega í gatnagerðar-
málum en það er óðum að færast
til betra horfs því að á þessu ári
eykst sá hluti gatnakerfisins sem
er malbikaður um fimmtung.
Menntamálin brenna mjög á okk-
ur um þessar mundir og fagnaðar-
efni að nú eigi að hefja undirbún-
ing fiskvinnslunáms á Siglufirði.
Það er ekki síst vegna fárra
menntunartækifæra sem krakk-
arnir flytjast héðan á mesta mót-
unaraldrinum, eða þegar þau eru
15 eða 16 ára, og fæst þeirra
snúa til baka. Ef þau ílengdust
hér nokkur ár til viðbótar er ég
viss um að færri flyttust á brott.“
„Undanfarin 2 til 3 ár hefur
nóga vinnu verið að fá á Siglu-
firði,“ heldur ísak áfram. „En
vandi sjávarútvegsins er greini-
legur hér eins og í öllum öðrum
sjávarplássum. Ég er smeykur við
stöðuna í dag. Hér eru Stór og
Það var handagangur í öskjunni á sýningu Brúðuleikhússins. Börnin fylgdust með af athygli og skemmtu
sér hið besta.
Texti og viðtöl:
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Myndir: Þorkell Þorkelsson.
Hér sést forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, skoða málverkasýn-
inguna í Ráðhúsinu ásamt ungum siglfirðingum.
eftir hina miklu blóðtöku er'fylgdi
því að síldin þvarr og fólk flúði bæ-
inn í leit að atvinnu.
Faðir Siglufjarðar
Það sté ekki sá ræðumaður í pontu
á hátíðarsamkomunni í Siglufjarðar-
kirlqu sem ekki minntist sr. Bjama
Þorsteinssonar, sem af mörgum er
nefndur faðir Siglufjarðar. Séra
Bjami vígðist til Hvánneyrarpre-
stakalls árið 1888 eða fyrir réttri öld
og á þessu ári em liðin 50 ár frá
því að hann lést. Frá þeim degi er
séra Bjami flutti til Siglufjarðar átti
bærinn og íbúar hans hug hans all-
an. Hann var ekki aðeins andlegur
leiðtogi Siglfirðinga, heldur einnig
forystumaður í bæjarmálum og um
skeið oddviti Siglfirðinga. Það var
ekki síst fyrir tilhlutan hans að Siglu-
Qörður fékk kaupstaðarrettindi árið
1918.
Sem alkunna er safnaði sr. Bjami
Þorsteinsson íslenskum þjóðlögum
og er safn hans grundvallarrit í
íslenskri tónlistarsögu og óhætt að
fullyrða að annað eins þrekvirki hafí
ekki verið unnið á þessu sviði hér á
landi. Siglfírðingar minnast sr.
Bjama á táknrænan hátt dag hvem,
þvf að á hveijum miðaftni spilar
klukknaspilið í kirlqutumi Siglu-
fjarðarkirkju stef úr lagi hans,
Kirkjuhvoli.
Fjölbreytt dagskrá
Sérstök afmælisnefnd var skipuð
á síðasta ári til þess að undirbúa
hátíðarhöldin. Haft var að leiðar-
ljósti að hafa hátíðarhöldin sem fjöl-
breyttust, með menningar- og
skemmtidagskrá við allra hæfí.
Þijár sýningar voru opnaðar á
upphafsdegi afmælisvikunnar og
yerða þær opnar alla daga vikunnar.
í Ráðhúsinu er myndlistarsýning.
Þar má sjá málverk og vatnslita-
myndir eftir landskunna málara. All-
ar eiga myndimar það sameiginlegt
tsak J. Ólafsson bæjarstjóri á
Siglufirði.
vel rekin fyrirtæki en rekstrarskil-
yrði eru slæm og þess vegna eru
fyrirtækin rekin með tapi.“ Þrátt
fyrir fjárhagsvandann er bæjar-
stjórinn hvergi banginn: „Á hátí-
ðisdegi sem þessum kemur best í
ljós að ef rétt staðið að málum á
bæjarfélagið bjarta framtíð fyrir
sér“
Frá sýningu Hestamannafélagsins Glæsis á sunnudag.
Vigdís Finnbogadóttir á tali við heimamenn.
að sýna Siglufjörð síldaráranna eins
og hann kom listamönnunum fyrir
sjónir. Þama má sjá myndir eftir
Mugg, Gunnlaug Blöndal, Kristínu
Jónsdóttur og Kristin Pétursson, svo
einhveijir séu nefndir.
í gagnfræðaskóla Siglufjarðar
hafa nemendur sett upp heimildasýn-
ingu um sögu Siglufjarðar. Sýningin
er einkar fróðleg, sagt er frá í mynd-
um og prentuðu máli, auk þess sem
gamlir munir lífga upp á hana. Þriðju
sýninguna má beija augum í Slysa-
varnarfélagshúsinu niður við höfn.
Þar er á ferðinni ljósmyndasýning
tileinkuð sjómennsku á Siglufirði, í
þeirri von að fyrr eða síðar verði
komið á fót minjasafni um Siglu-
fjörð, eins og segir á spjaldi í and-
dyri sýningarsalarins. Flestar myndir
Leikarar Alþýðuleikhússins þakka fyrir sig að Ioknu Ævintýri á
isnum. Andartaki síðar voru þeir úti á meðal barnanna og gríman
fallin.
á sýningunni tók Vigfús Sigurgeirs-
son.
...og börnin gleymdust ekki
Engin er hátíð nem börnin fái eitt-
hvað við sitt hæfi. Það var líf í tusk-
unum á sýningu Brúðubílsins á
Skólabala. Ungir Siglfírðingar létu
ekki sitt eftir liggja og tóku ríkan
þátt í sýningunni. Alþýðuleikhúsið
var einnig á staðnum og sýndi Ævin-
týri á ísnum við mikinn fögnuð áhorf-
enda. Að sýningu lokinni brugðu leik-
aramir sér út til barnanna og leyfðu
þeim að skoða búningana og spjöll-
uðu við þau um sýninguna. Ný-
breytnin mæltist vel fyrir hjá yngstu
kynslóðinni, enda ekki á hveijum
degi sem tækifæri gefst til að svala
forvitni sinni á þennan máta.
Messað í Hvanneyrarskál
Hún var tignarleg fylkingin sem
hélt upp að Hvanneyrarskál laust
eftir hádegi á sunnudag. Hesta-
mannafélagið Glæsir stóð fyrir hóp-
reið.til messu. Fremstir riðu félagar
í hestmannafélaginu með Erling
Óskarsson, bæjarfógeta og sr. Vigfús
Þór Ámason í fararbroddi. A eftir
gengu bæjarbúar og aðrir gestir.
Klukkan 2 eftir hádegi hófst svo
hátíðarmessa undir bemm himni og
töldu kunnugir að ekki hefðu færri
en 500 manns mætt til guðsþjón-
ustunnar. Var það mál manna að
tekist hefði að fá fjölda manns til
að gera sér ferð upp í Hvanneyrar-
skál sem þeir hefðu annars ekki far-
ið. Að guðsþjónustu lokinni sá Hesta-
mannafélagið Glæsir um reiðsýningu
á gamla knattspymuvellinum við
Túngötu og var bömum boðið á bak.
Enn er hátíð í bæ
Góður rómur var gerður að dag-
skráratriðum hátíðarhaldanna um
helgina. Afmælisvikunni lýkur laug-
ardaginn 20. ágúst, en þá verður
öllum bæjarbúum boðið til grillveislu
á vegum íþróttabandalags Siglu-
fjarðar. Margt verður um að vera
alla daga vikunnar og má þar nefna
Sjóstangveiðimót og vígslu nýs
knattspymuvallar að Hóli, að
ógleymdum sfldardansleik á föstu-
dagskvöld á Hótel Höfn.