Morgunblaðið - 10.09.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
11
hb^D
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Að lokum Bijánsbardaga seg-
ir frá Þorsteini Hallssyni af Síðu,
að hann var kyrr, er flótti var
brostinn í flokk þann sem hann
hafði fyllt. Svo segir í Njálu
(157):
„Þorsteinn Hallsson nam
staðar, þá er aðrir flýðu, og
batt skóþveng sinn. Þá spurði
Kerþjálfaður, hví hann rynni
eigi.
„Því,“ sagði Þorsteinn, „að
eg tek eigi heim í kveld, þar sem
eg á heima út á íslandi." Ker-
þjálfaður gaf honum grið.“
Hannes Hafstein kvað (orti
svolítið í eyðumar eins og skáld-
um er títt):
„„Flýr þú ei sem aðrir menn?“
æptu margir þá í senn.
Sverðið höndum tók hann tveim,
Tyrfing sneri mótí þeim.
„Eg næ samt ei háttum heim,
þvi ég á heima út’á ísalandi."
Fleiri svör hann bauð af stæltum brandi."
Að ná háttum er að komast á
tiltekinn stað fyrir háttatíma eða
háttutima, tímann þegar mál er
að hætta störfum og vöku og
ganga til hvflu. Háttum er þágu-
fall af kvenkynsorðinu háttur í
fyrrgreindri merkingu. Grímur
Thomsen kvað og leggur í munn
Skúla fógeta, er honum þóttu sjó-
menn duglitlir:
„Þið munuð fá að súpa á sjó,
þótt sitjið og bælið fietíð,
og háttunum ná í helviti, þó
þið hjarið á meðan þið getíð.“
Sögnin að hátta stýrir stundum
falli og stundum ekki. Maðurinn
háttar merkir að hann gengur til
hvílu eða að minnsta kosti afklæð-
ist. Maðurinn getur lfka háttað
sig og börnin sfn. Sögnin að
hátta kemur fyrir þegar f fomum
sögum. Svo segir í þætti af Hall-
freði vandræðaskáldi í Flateyjar-
bók:
„Og er háttað var um kveldið,
sagði Hallfreður að hann kveðst
mundu hlutast til rekkna skipun-
ar. Ætla eg mér að hvíla f nótt
hjá Kolfinnu, en eg mun lofa fé-
lögum mínum að breyta sem þeir
vilja."
í Sögu Guðmundar Arasonar
biskups hins góða segir:
„Sigmundur var einn karla á
bænum og hafði háttað i dags-
ljósi, því að föstudagur var. Helga
frilla Sigmundar kvaðst ekki
mundu gefa honum.“
Úr nöldurskjóðunni:
1) „Rannsóknir hafnar vegna
hugsanlegra
jarðgangaframkvæmda" var fyrir
sögn í blaði ekki fyrir löngu, og
þetta er rétt mál. Flestir
fréttamenn virðast nú búnir að
átta sig á þvf, að eignarfall af
göng er ganga, ekki „gangna"
eins og af kvenkynsorðinu
göngur. Gerð jarðganga f
gegnum Ólafsfjarðarmúla stendur
fyrir dymm. En því miður eru
undantekningar. í sjónvarpi mátti
um daginn heyra fréttamann
margstaglast á vitleysunni
Jarðgangna“ f þessu sambandi.
Hann hefur það eitt sér tl
afsökunar að hafa verið sjálfum
sér samkvæmur. En þeir
fréttamenn, sem ekki geta, eða
ekki vilja, fara rétt með svona
einföld orð, ættu að fara í göngur
í haust, og ekki bara fjárleitir,
heldur leita sér að betra málfari.
2) í blöðum fyrir skömmu mátti
sjá hvort tveggja: „Útsalan er hjá
Jöfur h/f“ og „Hann vinnur hjá
Höldur". Þetta er undarleg
málhelti. Jöfur (=konungur)
beygist eins og akur , og því er
útsalan hjá Jöfri. Höldur beygist
eins og hestur, og því vinnur
452. þáttur
maðurinn hjá Höldi. Er
hugsanlegt að nokkur íslendingur
sé svo illa máli farinn, að hann
segi að einhver væri „hjá
hesturinn"!? Ja, ég veit ekki hvað
segja skal. Rétt áður en ég
skrifaði þennan þátt, heyrði ég
fréttamann í útvarpi, sem ég hélt
ekki málhaltan, segja að skipið
hefði komið „til Sandgerði", ekki
Sandgerðis. Og heyrt hef ég f
vörpum fleirtöluna
„Ingibjörgumar! fyrir
Ingibjargiraar, og þolfallið af
mannsnafninu Baldur haft
„Bald“. Finnst ykkur ekki
tilkomumikið: „Hún fór að hitta
hann Bald sinn“!?
3) Enn er samruninn f fuilu
flöri, ruglingur orðtaka.
Sjónvarpsþulur sagði að eitthvað
„réði baggamuninn". Hann
blandaði saman orðtökunum að
ráða úrslitum og ríða
baggamuninn, f svipaðri
merkingu.
4) „Bush er háttsettasti
maðurinn____“, stóð í blaði fyrir
nokkru. Hér er heldur báglega
stigbreytt Bush hefur
væntanlega verið hæst setti
maðurinn sem um var rætt í þessu
sambandi.
5) „Þeir ruku upp á milli handa
og fóta," sagði annar
sjónvarpsmaður. Ja, ná má hver
skilja og skýra sem vill, mér er
ekki fyUilega ljóst hvað þetta
merkir (svona í „brunalegu tilliti",
eins og maðurinn sagði).
Úr bréfi frá Salómon sunnan:
Það var kona í Kálfsmýrarskóla
sem komst upp á milli hans óla
og hennar Möngu —
og stendur f ströngu
frá öðrum f jólum tQ jóla.
P.S. Nýtt heimilisfang umsjónarmanns
er Skarðshlfð 26 G, 603 Akureyri.
Kolaorkuver framtíðarínnar
Raunvísindl
Egill Egilsson
Orkuvandi framtíðarinnar kallar
á margar lausnir, og ekki er útséð
um hver kostur verður tekinn fram
yfir hvem, jafnvel ekki innan næstu
aldar. Helstu kostir sem um er að
velja em olfa og skyld jarðefni,
kjamorka og kol. Þótt hlutur ein-
stakra af þessum þáttum sé óviss,
má telja að f lengd standi valið á
milli kolanna annarsvegar og
kjamorkunnar hins vegar. Valið fer
eftir tækniþróun almennt, og ekki
sfst eftir hvers konar öryggiskröfur
verða gerðar. í grófum dráttum
má segja að valið standi um kolsýr-
ingsmengun frá kolaverum annars-
vegar og hinsvegar um kjamorku-
ver sem em rekin með meiri áhættu
en hið margfræga Tsémóbyl-ver.
Kol
Kol em þegar notuð í veralegum
mæli til raforkuframleiðslu. Lang-
mestur hluti þeirra kola sem em
unnin fara til þessa þáttar. Eitt
ósköp veryulegt orkuver getur
framleitt meira en öll fslensk vatns-
orkuver samanlagt. En sú vinnsla
veldur...
Mengun
Mengun er I meginatriðum
tvenns konar. Báðir þeir þættir em
almenningi kunnir af umflöllun
fjölmiðla. í fyrsta lagi er hið svo-
nefnda súra regn, sem stafar af
brennisteinsinnihaldi kolanna.
Brennisteinninn berst út í and-
rúmsloftið og ummyndast í brenni-
steinssým, sem fellur til jarðar með
margskonar skemmdum á um-
hverfi. Þennan þátt má losna við
að verulegu leyti (sjá síðar).
Hins vegar er sá þáttur sem leið-
ir til veðurfarsbreytinga. Brennslu
kola fylgir óhjákvæmilega koltvf-
sýringur, en hann stígur til lofts
og veldur hinum svokölluðu gróður-
húsaáhrifum með tilheyrandi
hækkun hitastigs. Geislar sólar
smjúga inn til jarðar, en innrauðir
geislar sem myndast við það ájarð-
aryfirborði komast ekki út. Orkan
er föst f gildm, og hitinn hækkar.
Þessi mengun er óhjákvæmileg
afleiðing kolabrennslu.
Framtíðarorkuverið
Framtfðarorkuverið felur aðeins
f sér þessa sfðasttöldu mengun (sjá
mynd). Kalkblandan sem útblástur-
inn fer f gegnum gengur f samband
við brennisteininn og myndar t.d.
gips, sem fellur til botns. í reynd
er hreinsað f mörgum þrepum. Það
er semsé í aðalatriðum einföld og
ekki mjög dýr leið að losna við
þessa hlið mengunarinnar.
Eftir þessa hreinsun fer útblást-
urinn um hverfil, þar sem hann
losnar við orku, en lækkar þrýsting
og kólnar. Enn má ná orku úr út-
blæstrinum með að láta hann
mynda gufu, sem sfðan snýr öðmm
hverfli.
Þessu orkuveri fylgir semsé góð
nýting og tiltölulega lftil mengun.
GaJlar
Á hinn bóginn verður að vega.
og meta kolsýmmengunina á móti
ókostum hinnar leiðarinnar sem
völin stendur um. Það er að hefja
orkuframleiðslu úr úran 238, en
af þeirri gerð sem notuð er sem
stendur (úran 235) em til takmark-
aðar birgðir. Með öðmm orðum:
Fram til þess tfma að farið verður
að framleiða mengunarlausa tak-
markalausa orku með kjamasamr-
una er ekki völ á neinum gallalitlum
orkugjafa.
Brids
Amór Ragnarsson
Starfsemi Bridge-
félags Reykjavíkur
veturinn 1988-1989
Spilamennskan hefst með tveim-
ur eins kvölds Mitchell-tvímenning-
um. í Mitchell-tvímenningi sitja
N-S-spilarar fast, en A-V-spilarar
færa sig.
Síðan hefst 6 kvölda Barómeter-
tvímenningur. í Barómeter-
tvímenningi er staðan reiknuð út
eftir hverja setu og spilarar fá út-
skrift af skori hvers spils.
Vikuna 17.—23. október verður
spilaður Lands-tvímenningur. í
Lands-tvímenningnum em sömu
spilin spiluð hjá flestum bridsfélög-
um á landinu og reiknað út sem
um einn riðil sé að ræða.
Þar við tekur 5 kvölda Butler-
tvímenningur. í Butler-tvímenningi
er reiknað út sem um sveitakeppni
sé að ræða.
Dagskránni fyrir áramót lýkur
svo með eins-kvölds Jólasveina-
keppni.
Eftir áramót hefst spilamennsk-
an með 7 kvölda Monrad-sveita-
keppni þar sem spiluð verða 32
spil á milli sveita. í Monrad-sveita-
keppni spila efstu sveitimar saman
og svo framvegis.
Dagskrá vetrarins lýkur með 6
kvölda Barómeter-tvímenningi.
Áætluð dagskrá vetrarins lítur
þannig út:
14. sept:
Mitchell-tvímenningur, eitt kvöld.
21. sept.:
Barómeter-tvímenningur, 1. kvöld af 6.
28. sept.:
Barómeter-tvímenningur, 2. kvöld af 6.
5 okt.:
Barómeter-tvímenningur, 3. kvöld af 6.
12. okt:
Barómeter-tvfmenningur, 4. kvöld af 6.
19. okt:
Lands-tvímenningur, eitt kvöld.
26. okt:
Barómeter-tvímenningur, 5. kvöld af 6.
2. nóv.:
Barómeter-tvímenningur, 6. kvöld af 6.
9. nóv.;
Butler-tvfmenningur, 1. kvöld af 5.
16. nóv.:
Butler-tvímenningur, 2. kvöld af 5.
23. nóv.:
Butler-tvímenningur, 3. kvöld af 5.
30. nóv.:
[Undankeppni Reykj avíkurmóts
í tvlmenningi:]
7. des.:
Butler-tvímenningur, 4. kvöld af 5.
14. des.:
Butler-tvímenningur, 5. kvöld af 5.
21. des.:
Jólasveinakeppni, eitt kvöld.
[4. jan.: Reykj avíkurmót
í sveitakeppni.]
[11. jan.: Reykjavíkurmót
í sveitakeppni.]
[18. jan.: Reykjavíkurmót
í sveitakeppni.]
25. jan.:
Monrad-sveitakeppni, 1. kvöld af 7.
1. feb.:
Monrad-sveitakeppni, 2. kvöld af 7.
8. feb.:
Monrad-sveitakeppni, 3. kvöld af 7.
15. feb.:
Monrad-sveitakeppni, 4. kvöld af 7.
22. feb.:
Monrad-sveitakeppni, 5. kvöld af 7.
1. mars:
Monrad-sveitakeppni, 6. kvöld af 7.
[8. mars.: Undankeppni íslandsmóts í
sveitakeppni.]
15. mars: Monrad-sveitakeppni, 7.
kvöld af 7.
[22. mars: íslandsmót í sveitakeppni.]
29. mars:
Barómeter-tvímenningur, 1. kvöld af 6.
05. apríl:
Barómeter-tvímenningur, 2. kvöld af 6.
12. apríl:
Barómeter-tvímenningur, 3. kvöld af 6.
19. apríl:
Barómeter-tvímenningur, 4. kvöld af 6.
26. apríl:
Barómeter-tvímenningur, 5. kvöld af 6.
03 maí:
Barómeter-tvimenningur, 6. kvöld af 6.
Allir spilarar fá útskrift af spQ-
iinntn
í lok hvers spilakvölds fá allir
útskrift af spilum kvöldsins. Þannig
geta menn yfírfarið spilin eftirá og
yfirfarið sagnir, vöm og sókn og
hugsanlega lært eitthvað af því.
Útreikningur verður tölvuvædd-
ur.
Til að flýta fyrir útreikningi verð-
ur hann tölvuvæddur svo að úrslit
kvöldsins liggi fyrir nokkmm
mínútum eftir að spilamennsku lýk-
ur.
Allir eru velkomnir.
Ekki þarf að vera félagi í BR til
að skrá sig í keppni, en félagsmenn
hafa forgang ef húsfyllir skyldi
verða. Þeir sem spiluðu hjá BR
síðasta vetur em allir félagsmenn.
Þeir sem hafa litinn tíma geta
líka verið með.
Reglur um varamenn em mjög
frjálslegar, t.d. geta 3 eða 4 ein-
staklingar myndað eitt par.
Spilarar hafa aðgang að helstu
erlendu bridstímaritunum.
BR hefur gerst áskrifandi að
helstu eriendu bridstSmaritum fyrir
félagsmenn sína.
Þátttökugjöld verða i iágmarki.
Gjöld fara eftir fjölda þátttak-
enda. Þar sem búist er við mikilli
þátttöku verða keppnisgjöld í lág-
marki.
(Fréttatflkyimwg)
Brídsfélag Breiðholts
Fyrsta spilakvöld haustsins hjá
félaginu verður þriðjudaginn 13.
sept. Spilaður verður eins kvölds
tvímenningur. Spilarar, mætum
hressir til leiks eftir sumarfriið og
sumarspilamennskuna. Keppni
hefet kl. 19.30 í Gerðubergi. Keppn-
isstjóri verður Hermann Lámsson.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON solustjóri
LARUS BJARNASOM HDL. LOGG. FASTEIGNASALI
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
í gamla góða Vesturbœnum
4ra herb. 1. hæö ( þríbhúsi um 100 fm nettó. Vel með farin. Skuld-
laus. Þvottah. f kj. Gott varð.
Einbýlishús - hagkvæm skipti
Steinh. hæó og rish. Grunnfl. rúmir 100 fm. Á hæðinni or 4ra herb. ib.
Risið er 4ra herb. Fallegur trjágarður ó 1150 fm leigulóð. Húsið stendur
austast i Fossvoginum Kópvmegin. Nánari uppl. aðeins á skrtfst.
Undir standsetningu
2ja-3ja herb. ib. f steinh. i gamla bænum ó 1. hæð. Sórhitaverta. Laus
fljótl. Tvib. Nánar ó skrífst.
Bjóðum ennfremur til sölu
2ja herb. suðuríb. ofarl. i lyftuh. við Austurbrún. Laus strax.
2ja herb. glæsil. suðuríb. í lyftuh. við Álftahóla. Fráb. útsýni.
3ja herb. þakíb. v/Barónstíg. Svaiir. Kvistir. Gott verð.
6 herb. sér efri hæð v/Bugðulæk. Eignask. mögul.
Ib. og verslunarhúsn. ó úrvalsst. I Gbæ.
4ra herb. ib. í suðurenda v/Hvassaleiti. Góður bílsk.
Raðhús stórt og gott v/Engjasel. Bflsk. fyigir.
Hagkvæm skipti
f Vesturborginni óskast ný og vönduö (b. 100-120 fm Skipti mðgui.
ó sérh. ó úrvaisst. ð Högunum. Nánar á skrífst.
Opið á morgun
laugardag
kl. 11-16.
AIMENNA
FASTEIGN ASAL AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370