Morgunblaðið - 10.09.1988, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
fólk f
fréttum
Alan Freeman er hér á hjóli sínu, knúnu áfram af sólarorku.
Bretland
Nýtir sólarorkuna og áfram kemst hann
Nágrannar Alans Freeman kalla
hann „hr. Sólskin", enda er þessi
sjötugi atorkumaður mikill áhuga-
maður um nýtingu sólarorku. Bfll
hans, hjól og bátur eru öll knúin
áfram af sólarorkunni einni saman.
Alan á fyrsta bfl í heimi sem
ekur fyrir sólarorku, en fer ekkki
hraðar en 15km/klst. Bátur hans
fer á hvaða hraða sem er niður ána
við heimili hans, og hjól hans er
hægt að keyra á lOkm/klst. með
vind í bakið. Eina vandamálið sem
kemur stundum upp er jú stórt, það
COSPER
C Pl B
I0Ö25
C03PER
er þegar sólin hverfur bakvið ský,
og rigning eða myrkur tekur við.
En uppfinningamenn láta sjaldan
deiga síga. Alan var orðinn þreyttur
á að stöðva alla umferð á miðjum
vegum þegar skyggja tók, og hefur
nú gert sér annan og betri búnað.
Hann fleygði því sem var úr tré og
hannaði örþunnt trefjagler sem
hentar mun betur til að taka við
sólarljósinu og umbreyta sólarorku
í rafmagn en þungt timbrið. Því
getur hann nú kveikt á rafhlöðum
þegar litla sól er að fá, nýtir þá
betur það sem fæst og ekur farar-
tækið þá áfram.
Alan vakti mikla athygli fyrir tíu
árum þegar hann kynnti uppfinn-
ingu sína, en hann hefur í gegn um
þau ár verið að bæta svo að eftir-
tekt vekur hjá lærðum og leikum.
Sjálfum fínnst honum þetta ekki
vera neinn sérvitringsháttur, og
þykir það illt þegar vegfarendur
benda og flissa. Hann segir sjálfur:
„Ég tek þessu mjög alvarlega. Mér
þykir bara leitt að geta ekki verið
hér á næstu öld, þegar allir verða
famir að ferðast um á bílum og
bátum eins og þeim sem ég hef
hannað."
Það er kannski að maður losni
við fnykinn af drossíum nútímans,
einn dag á elliárum.
Þetta sagði Blaðskella mér.
Heimsmeistarinn í hnefa-
leikum, hann Mike Tyson, sem
er tröllríkur, þénaði nú bara Iitl-
ar 800 milljónir ísl. krónur þegar
hann sigraði Michael Spinks. En
hann sparar og sparar. Til dæm-
is flýgur hann ókeypis, eða með
góðum afslætti, milli landa. Ný-
Iega flaug hann til Moskvu og
þá þurftu fylgdarsveinar hans
að borga fuUt verð, en ekki hann,
og ekki bauð hann heldur neinum
að borga farið af milljónunum
sínum. Hann er semsagt sagður
alveg ferlega nískur.
Rokkstjarnan og milljónerinn
Rod Stewart gæti suUað i sig
kampavíni og borðað kavíar all-
an daginn ef honum sýndist svo.
En óekki. Hann er vitlaus i fisk
og franskar og pantar það næst-
um daglega. Hann upplýsir menn
sjálfur um matseðil sinn i viðtali
við enskt dömublað nýlega, fisk-
ur-og franskar, hamborgarar og
franskar, nautasteik og fran-
skar... franskar kartöflur skal
það að öllu jöfnu vera.
Hvern mundi ekki sundla ef
hann fyndi gullarmband að
andvirði 300.000 ísl. kr. i póst-
kassanum sinum. Jú, henni
Farraw Fawcett brá heldur bet-
ur við óvænta gjöfina, en hélt
að ástkær sambýlismaður hennar
Ryan O’Neal væri að koma henni
á óvart. En nei, það var einhver
annar. Svo nú veltir hún vöngum
yfir gefandanum, og það gerir
maðurinn hennar líka.
Michael Landon elskar börn.
Hann hafði ákveðið sig
sem unglingur að eignast fullt
hús barna. Og hann hefur ráð
til þess, þökk sé meðal annars
„Greiy'að á gresjunni" eins og
gárungarnir kölluðu það hér áð-
ur. Nú byggir Landon sér stórt
hús með 10 barnaherbergjum,
en hann á ennþá bara niu börn.
Svo heimildarmenn sem hugsa
rökrétt segja það tíunda á leið-
inni.
Ameríka
Var blind í átta ár
-kngela Walters, 25 ára, varð blind
sautján ára gömul. Hún gifti sig fyrir
tvítugt og eignaðist fjögur böm — en
hafði aldrei séð þau. Elsta bamið er fímm
ára og það yngsta aðeins eins árs. Útlit-
ið var ekki bjart fyrir Angelu sem í ofaná-
lag varð ekkja fyrir ári síðan.
En það átti eftir að birta til í orðsins
fyllstu merkingu. Hún gekkst undir upp-
skurð nú fyrir stuttu þar sem grætt var
í hana heilbrigt auga. Angela man vel
eftir augnablikinu þegar hún sá bömin
sín fyrst. Þegar umbúðimar voru teknar
frá auganu kom hún auga á elsta son
sinn, Jason sem er fímm ára. „Hann
brosti til mín og var fallegri en ég hafði
nokkum tímann ímyndað mér“ segir
Angela með tárin í augunum.
Læknar telja að uppskurðurinn hafi
gengið mjög vel, þó enn sé nokkur hætta
á að líkaminn hafni nýja auganu. „Þótt
það versta geti gerst, hef ég að minnsta
kosti fengið að sjá litlu bömin mln“ seg-
ir Angela og geislar af gleði.