Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 59
59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRA MÁNUDEGl
TIL FÖSTUDAGS
Reykjanesskaginn:
Sveitarsijórnarmenn bera
ábyrgð á gróðureyðingunni
Náttúruunnandi skrifar:
Á ÞESSU sumri hafa orðið miklar
umræður um gróðureyðinguna hér
á landi og ekki að ófyrirsynju. Al-
menningur er nú að átta sig á því,
að við búum ekki í landi hinnar
„óspilltu náttúru" eins og það heit-
ir í auglýsingum ferðamálafröm-
uða, heldur í einu niðumíddasta
landi á allri jarðarkringlunni.
Útlenda vísindamenn, meðal ann-
ars bandaríska, sem hér hafa verið
á ferð, rekur f rogastans yfír gróð-
ureyðingunni og er það dómur
þeirra, að ástandið hér sé áþekkt
því versta í fátæktarríkjum Afríku.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
hvers vegna svona er komið. 1.100
ára búseta í landinu hefur tekið
sinn toll og ekki er hægt að sakast
við fyrri tíðar menn þótt þeir hafí
reynt að bjarga sér.
Nú er hins vegar öldin önnur og
ofbeitin með öllu ástæðulaus. Samt
virðist það stefna sumra manna og
jafnvel heilla stjómmálaflokka að
hætta ekki fyrr en síðustu gróður-
leifamar eru foknar burt. Stundum
er talað um náttúmperlur hér á
landi og þá kemur mönnum jafnan
Mývatnssveit og Þórsmörk í hug.
Báðir þessir staðir eru nefnilega það
viðundur í hinni „óspilltu náttúm“,
að þar þrífst enn nokkur gróður
þótt eyðimörkin sæki stöðugt á.
Gróðurinn við Mývatn þykir raunar
svo merkilegur, að það kostar 50
kall að skoða hann.
íslenskir vísindamenn hafa sagt,
að hvergi á láglendi sé landið jafn
illa leikið og á Reykjanesskaga og
það vissu þeir útnesjamenn,
Njarðvíkingar, Keflvíkingar og aðr-
ir fbúar Rosmhvalaness, þegar þeir
girtu sitt land af fyrir allri beit. Á
innnesjunum er annað uppi á ten-
ingnum. Þar fá frístundabændur
og mörg þúsund flár enn að leika
lausum hala. Nauðsynjalaus gróð-
ureyðing er glæpur og á honum
bera sveitarstjómarmenn á þessu
svæði fulia ábyrgð. Þeim er í lófa
lagið að banna sauðfjárhaldið en
þeir og ríkisvaldið hafa hingað til
virt að vettugi margendurteknar
áskoranir skógræktarfélaga, sam-
takanna Lífs og lands og margra-
félaga annarra.
Ungir framsóknarmenn em um-
hverfísvemdarsinnar að eigin sögn
og hafa gert ítrekaða tilraun til að
bjóða til sín vestur-þýska græningj-
anum Petm Kelly; kvennalistakon-
ur hafa miklar áhyggjur af meng-
uninni og allir vitá hver afstaða
alþýðubandalagsmanna er, í orði
kveðnu a.m.k. Þá þykjast hinir
flokkamir ekki vera eftirbátar ann-
arra í þessum efnum. Samt sem
áður virðist það ekki hvarfla að
neinum fulltrúa þeirra í borgar- eða
bæjarstjómum að snúa vöm í sókn
gegn „mesta umhverfisvandamál-
inu“ og beita sér fyrir friðun
Reykjanesskagans.
Ástæðan er einfold. ísienskir
stjómmálamenn eiga sér þá hug-
sjón helsta að hljóta endurkosningu.
Frístundabændur, þótt fáir séu,
hafa verið ötulir við að ota sfnum
tota en þær mörgu þúsundir, sem
vilja sjá landið gróa upp, hafa verið
sundraðar og samtakalausar. Á því
þarf að verða breyting. Við þurfum
að snúa bökum saman og krefja
þessa fulltrúa okkar skýrra svara
svo ljóst sé hvar í flokki þeir standa,
með uppgræðslu landsins eða eyð-
ingu. Áð því búnu vitum við betur
hvað við emm að kjósa í kosningum.
4*
Auæg’ð með störf sr. Gunnars Bjömssonar
Velvakandi góður.
Ég hef undrandi fylgst með þeim
ósköpum sem gengið hafa á í
Fríkirkjunni. Ég er nú og allt mitt
fólk fríkirkjumeðlimir í þijá ættliði.
Við emm ofboðslega ánægð með
störf sr. Gunnars Bjömssonar.
Hann nær til bama og unglinga á
alveg sérstakan hátt. Hann nær líka
mjög vel til eldra fólks. Messur
hans em meiriháttar, fjörugar 0g
lfka alltaf eitthvað merkilegt sem
hann er að segja.
Ég spyr: Heldur þessi fámenna
klíka í safnaðarstjóminni sig vera
að vinna Fríkirkjunni eitthvert
gagnt Er þetta sv ona vandað og
heiðarlegt fólk að það hafi efni á
óforskömmuðum árásum á prestinn
okkar?
Annað hefur heyrst og skyldi
ekki koma að þvf að fólkið í safnað-
arstjóminni þurfi að standa skil á
gerðum sínum?
Ég á ekki orð yfír þetta kvenfé-
lag. Ekki er ég félagi í því, og dett-
ur ekki f hug að ganga í það, með-
an því er stjómað af þessu fólki.
(Það em sömu konumar í stjóm
þess og em f stjóm Fríkirkjusafnað-
arins eða þá menn þeirra.)
Hins vegar veit ég að sr. Gunnar
reyndi árangurslaust að fá þær til
þess að fjölga kaffídögum til þess
að fólkið sem býr út um allt gæti
hist oftar. Er kannski hættulegt að
koma saman? Getur fólk þá farið
að pæla?
Það fréttist sko líka af ykkur,
heiðursfólk f safnaðarstjóm og
kvenfélagi. Þið hafið ekki passað
ykkur í skítkastinu, heldur komið
þið upp um ykkur, núna sfðast með
ótrúlegu áróðursbragði sem þið
kallið Fréttabréf. Ja, svei.
Guðný Helgadóttir.
í>essir hringdu . .
Skyrtuhnappur fannst
Handsmíðaður skyrtuhnappur
úr silfri fannst á bílastæði við
Flugstöð Leif Eiríkssonar. í
hnappinum er grænn steinn. Upp-
lýsingar í síma 16616.
Drengur með
frímerkjaáhuga
Kona á áttræðisaldri hringdi:
„Ég frétti af þremur vinahjón-
um sem öll eiga vangefin böm.
Eitt þessara hjóna á dreng sem
hefur mikinn frímerkjaáhuga og
vil ég gefa drengnum frímerlrja-
safnið mitt því ég er að fara á
sjúkrahús." Ef einhver kannast
við þessi hjón og drenginn þeirra
vinsamlegast hafíð þá samband í
síma 96—71362.
2 úlpur fundust
Við Suðurfell fundust tvær
rauðar baraaúlpur með grænu
fóðri s.l. mánudag. Upplýsingar í
síma 71966 eða 75746.
Ánægð með messu
Oddný hringdi:
„Ég vil láta í Ijós ánægju mína
með messu í Hjallasókn þar sem
Krislján Einar Þorvarðarson
messaði. Það gladdi mig mikið við
skímina að heyra nöfn bamanna
svo greinilega framborin."
Veski hvarf af Borginni
Veskið var svart umslag með
snyrtivörum. Þeir sem hafa orðið
þess varir hringi í síma 31939 eða
16497.
Max und Moritz—Stóri og
Móri
Meðlimur Smámyndavinafé-
lagsins hringdi:
„Ríkissjónvarpið hefur að und-
anfömu sýnt teiknimyndir um
Max og Mórits og hefur okkur
félagsmönnum þótt sem íslensku-
fræðingar sjónvarpsins hafí leitað
langt yfir skammt að þýðingu á
þessum ágæta teiknimyndaþætti.
Svo er nefnilega mál með vexti
að við félagsmenn lásum um þess-
ar fígúmr í þýskutímum í MR og
þýddum þá sögumar Stóri og
Móri við hrifningu Halldórs Vil-
hjálmssonar þýskukennara."
Innilega þakka ég börnum mínum, tengdabörn-
um svo og öllum þeim, er glöddu mig meÖ heim-
sóknum, gjöjum, skeytum, blómum og hlýjum
handtökum vegna afmcelis míns þann 24. ágúst
sl. og geröu mér daginn ógleymanlegan.
Ég biÖ Drottinn aÖ launa ykkur kœrleika ykk-
ar og fyrirhöfn.
Jóhanna F. Karlsdóttir
frá Valshamri.
Nýr opnunartími
Eftir 1. sept. verða verslanir
HAGKAUPS opnar sem hér segir:
Mánud. - fimmtud. 9.00-18.30
Föstud. 9.00-19.30
Laugard. 9.00-16.00
Kringlan sérvörudeild
Mánud.-fimmtud. 1000-1900
Föstud. 1000-1900
Laugard. 1000-1600
, Kringlan matvörudeild
Mánud. -fimmtud. 1000-1900
Föstud. 1000-1930
Laugard. 1000-1600
Kjörgarður
Mánud. -fimmtud. 900-1800
Föstud. 900-1900
Laugard. 1000-1300
Seltjarnarnes
Mánud. - fimmtud.
Föstud.
Laugard.
9.00-18.30
9.00-19.30
10.00-16.00
Njarðvík
Mánud. -fimmtud. 1000-1830
Föstud. 10°°-2000 *
Laugard. 1000-1400
Akureyri
Mánud. -miðvikud. 900-1800
Fimmtud. -föstud. 9°°-1900
Laugard. 1000-1600
HAGKAUP