Morgunblaðið - 02.12.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
7
Hafnarfjörður:
Umferðarljós tekin í
notkun á 3 gatnamótum
UMFERÐARLJÓS verða tekin í
notkun á þrem gatnamótum í
Hafiiarfirði á morgun, laugar-
dag, þ.e.a.s. gatnamótum Hafh-
arfjarðarvegar og Flatahrauns,
Reykjanesbrautar og Lækjar-
götu-Lækjarbergs og Reykjavík-
urvegar og Flatahrauns. Upp-
setning ljósanna kostar samtals
um Qórar milljónir króna.
Umferðarljósin á gatnamótum
Hafnarfjarðarvegar og Reykjanes-
brautar verða samtengd umferðar-
ljósum á Hafnarfjarðarvegi í
Garðabæ. Umferðarljósin á Hafnar-
fjarðarvegi og Reykjanesbraut eru
kostuð af Vegagerðinni en umferð-
arljósin á Reykjavíkurvegi eru kost-
uð af Hafnarfjarðarbæ, segir í
fréttatilkynningu.
Agæti og Þykkvabæjarkartöflur:
Sameinast um pökkun
og dreifingu kartafina
TVEIR stærstu kartöfluheild-
salarnir, Ágæti hf. og Þykkva-
bæjarkartöflur hf., hafa sam-
einast um pökkun og dreifíngu
kartaflna.^ Pökkunin verður í
aðstöðu Ágætis og þaðan fer
dreifingin firam héðan í frá.
Arnar Ingólfsson framkvæmda-
sfjóri Ágætis segir að þessi sam-
vinna gæti orðið fyrsta skrefið
til sameiningar þessara tveggja
fyrirtækja sem bæði eru í meiri-
hlutaeigu kartöflubænda. Þá
eru einnig að hefjast viðræður
þessarra fyrirtækja við Sölufé-
INNLENT
lag garðyrkjubænda og Banana
hf. um víðtæka samvinnu í
dreifingu grænmetis og kart-
aflna.
Arnar segist hafa unnið að því
að koma á friði á þessum mark-
aði. Hann segir að ríkt hafi stríð
en ekki samkeppni. Hægt væri að
auka hagkvæmni dreifingarinnar
án þess að slaka á gæðakröfum.
Það kæmi til dæmis hvorki fram-
leiðendum né neytendum til góða
að 5-6 sendibílar ækju hver á eft-
ir öðrum í verslanirnar.
í frétt frá Þykkvabæjarkartöfl-
um og Ágæti kemur fram að bæði
fyrirtækin hafí orðið fyrir áföllum
á undanförnum mánuðum vegna
gjaldþrota og lokunar verslana.
Sameining pökkunar og útkeyrslu
dragi úr kostnaði en leiði ekki til
lakari gæða eða þjónustu. Bæði
vörumerkin verða notuð áfram.
Morgunblaðið/Þorkell
Davíð Oddsson, borgarsfjóri, klippir á borðann, sem strengdur var yfir aðalganginn á fyrstu hæð
nýju verslunarmiðstöðvarinnar. Fjöldi manns var viðstaddur opnunarathöfiiina.
V erslunarmiðstöð-
in Kringlan 4 opnuð
120 verslanir í þremur húsum við Kringluna
NY verslunarmiðstöð var opnuð í gær í Kringlunni 4 í Reykjavík.
I byggingunni eru 20 verslanir á tveimur neðstu hæðunum, en
einnig verða þar skrifstofiir á efri hæðum. Davíð Oddsson
borgarsfjóri opnaði húsið formlega klukkan þijú í gær og að
sögn aðstandenda hússins komu þúsundir manna að skoða sig
um og versla í hinum nýju húsakynnum.
Jónas Sveinsson, annar for-
svarsmanna fyrirtækisins For-
um, sem rekur Kringluna 4,
sagði að þrátt fyrir samdrátt-
artíma í byggingu verslunar-
húsnæðis teldi hann að verslun-
armiðstöðvar á borð við þessa
ættu framtíðina fyrir sér. „Fyrir-
tæki vilja vera fleiri saman. Það
sparar auglýsingar og ýmislegt
annað hagræði er að slíkum
rekstri,“ sagði Jónas.
Von bráðar verður opnuð við
hlið Kringlunnar 4 Kringlan 6,
þar sem verða 40 verslanir. Jón-
as sagði að þegar að því kæmi
yrðu við Kringluna þijár verslun-
armiðstöðvar með samtals yfir
120 verslanir.
GULLVÆGAR BÆKUR
í SAFNIÐ
Þrautgóðir ó raunastund
Steinar J. Lúðviksson
Björgunar- og sjóslysasaga íslands, 19.
bindi
Bókin fjollar um árin 1972—1974.
Þá gerðust margir stórviðburðir. Togarinn Hamranes sökk
út af Jökli 1972. Hörmuleg sjóslys urðu í skaðaveðrum
1973 þegar vélbátarnir María og Sjöstjarnan fórust. Einn-
ig segir frá strandi Port Vale við ósa Lagarfljóts.
Minningar Huldu Á Steffánsdóttur
Skólastarf og efri ár
Hulda segir frá Kvennask'ólanum á Blönduósi þar sem hún
var skólastjóri og Húsmæðraskóla Reykjavíkur sem hún
veitti forstöðu.
,,Mér finnst bókin msð hinum beztu, sem ég hef
lesið þessarar tegundar" Þór Magnússon, þjóðminja-
VÖrður um fyrstu minningabólr Huldu ( bréfi til hennar 10. jan. 1986.
Þjóðhættir og þjóðtrú
Skráð af Þórði safnstjóra i Skógum
Þessi bók er árangur af samstarfi Þórðar Tómassonar safn-
stjóra í Skógum og Sigurðar Þórðarsonar hins fróða af
Mýrum í Hornofirði. Hér greinir frá lífi og starfi, þjóð-
siðum og þjóðtrú.
OR.LYGUR
SlÐUMÚLA 11,
SÍMI 8 48 66
VjS/Q’Sd