Morgunblaðið - 02.12.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
9
JÓLABASAR
Jafnframt
sölusýningu okkar höldum við jólabasar,
nú um helgina, á glerblástursverkstœðinu.
Þar verða seldir
lítið útlitsgallaðir glermunir
(II. sortering) á niðursettu verði.
Verkstœðið
eropiðfrákl. 10—18,
laugardag og sunnudag.
Verið velkomin
Sigrún & Sören
IBERGVÍK
Bergvík 2, Kjalarnesi 210 Vartná, símar 666038 og 667067.
Schiesser<$’
(-JfáámstÆtsná/dfe/át/, áfa/ír op ótdir
(-féómaÆisriœ/ýé/ á&e/rfs' 33-5J?
4=
lympi
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibae, s. 31300
Enn um geng-
isfellingn
Á flokksþingi fram-
sóknarmanna hafði Val-
ur Amþórsson, formaður
SÍS, þann boðskap helst
fram að færa, að nauð-
synlegt væri að fella
gengið. Atvinnufyrirtæki
gætu ekki haldið út við
núverandi aðstæður.
Engu er likara en þessi
ræða stjómarformanns-
ins hafi hreinlega farið
fram hjá mörgum fram-
sóknarmanninum. Af
lestri Timans i gær má
að minnsta kosti ráða, að
þar á bæ hafi menn ekki
tekið sérstaklega eftir
þeim; nema forsíðan sé
ein allsheijarárás á
formanninn og boðskap
hans. Þá birtir Timinn
viðtal við Guðmund J.
Guðmundsson, verka-
lýðsforingja, um það, að
Sölumiðstöð hraðfrystí-
húsanna vilji „pina geng-
islækkun upp á
Steingrím" eins og það
er orðað i fyrirsögn.
Skyldi vera átt við Val
undir rós?!
Vandræði rikisstjóm-
arinnar vegna alls þessa
umtals um gengismálin
benda ekki til þess að þar
sé starfhð undir mark-
vissri verkstjóm, þar sem
tekið sé á hveiju máli
fyrir sig og það afgreitt.
Þvert á mótí em megin-
mál eins og þetta þvæld
fram og til baka án þess
að nokkur þori að taka
af skarið. Þjóðviljinn
boðaði það í fyrradag,
að „tæknimenn" myndu
hafa úrslitaáhrif á niður-
stöðu í umræðum um
gengi krónunnar án þess
að skilgreina nokkuð
frekar, hverjir þar væm
á ferðinni. Ráðlausir
stjórnarherrar velja oft
þann kost að skjóta sér
á bak við „tæknimenn".
Slikar ráðagerðir sýnast
nú vera á döfinni hjá
ríkisstjóminni. Kannski
vill forsætísráðherra
vera í útíöndum þegar
ákvarðanir um gengis-
skráninguna em teknar.
Að sjálfeögðu er úr
Guðmundur J. Guðmundsson telur að lokun trystihúsanna sé I aðsigi:
„SH vill pína gengis
lækkun upp á Steingrím"
Aðgerðarleysi stjórnarinnar
Þrátt fyrir langa fundinn í ríkisstjórninni fyrir viku verða menn
ekki varir við neinar aðgerðir af hennar hálfu. Hvað sem því líður
er forsætisráðherra á förum til útlanda og ætlar að vera þar
alla næstu viku. Segist hann meðal annars ætla að hitta Marga-
ret Thatcher, forsætisráðherra Breta, þótt hún hafi ekki átt upp
á pallborðið hjá þeim framsóknarmönnum. Ef til vill er það þraut-
aráðið að fara í smiðju til hennar til að læra hvernig taka eigi
á vandamálum? Auk þess er hún forystumaður markaðshyggj-
unnar í Evrópu og því nógu mikill frjálshyggjumaður til að fram-
sóknarmenn geti sitthvað af henni lært í þeim þrengingum sem
við blasa. í Staksteinum er einnig vikið að sögunni, menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra.
vöndu að ráða. En það
fer ekki á milli mála
hveijir hafa tekið að sér
að leysa efhahagsvand-
ann. Og það verður ekki
gert með úreltum að-
ferðum einhvers konar
sósialisma. Sporin frá
fiórða áratugnum hræða.
Sagan og ráð-
herrann
Sverrir Hermannsson,
fyn-verandi mennta-
málaráðherra, hefúr birt
opinberlega fyrirspurnir
tíl Ammundar Backmans
lögmanna, sem var trún-
aðarmaður Svavars
Gestssonar menntamál-
ráðherra við gerð sam-
komulags vegna svo-
nefrids Sturlumáls, þar
sem meðal annars var frá
þvi gengið að fiármálráð-
herra félli frá áfrýjun á
dómi bæjarþings Reykja-
víkur vegna málsins. Er
svara trúnaðarmannsins
við þeim fyrirspumum
nú beðið en Sverrir Her-
mannsson segir meðal
annars:
„Mér er alveg sérstak-
lega mikið niðri fyrir að
fa útlistun yðar á loka-
dómi yðar, þar sem Svav-
ar Gestsson, mennta-
málaráðherra, gefúr eft-
irfarandi yfirlýsingar í
Morgunblaðinu sl. laug-
ardag: „Ráðuneytíð hefir
strikað yfir þennan kafla
í sögu sinni með þessari
niðurstöðu," þ.e. niður-
stöðu yðar, herra hæsta-
réttarlögmaður, sem
vafalaust er, byggð á
grunnmótaðri lögspeki
yðar og réttdæmi.
Það vill nefiiilega svo
til að undirritaður var
aðalhöfúndur að þessum
kafla í sögu meiuitamála-
ráðuneytísins. í honum
er að finna eitthvað af
starfsæru hans og þvi
miður ýmissa helztu
starfsmanna mennta-
málaráðuneytisins. Ein-
hver myndi nú segja að
mín vegna sæi ekki á
svörtu. En Svavar Gests-
son er raunar af þvi húsi,
þar sem alsiða er að færa
sögulegar staðreyndir út
og inn úr mannkynssög-
unni eftir „smag og be-
hag“. (Að ég sletti
dönsku er tíl virðingar-
og álierzluauka.) Þegar
Sovét-tsland, óskalandið,
kemur, er aldrei að vita
hvemig íslandssagan
muni lita út. Ef armur
Ó. Grímssonar i Alþýðu-
bandalaginu verður ofan
á er hætt við áð lítið
muni fara fyrir sögu
Svavars. Nema maðurinn
verði strikaður út með
öUu.“
Orðagjálfiir
fjármálaráð-
herra
Magnús Óskarsson,
borgarlögmaður, víkur
að þessu sama máli í
Morgunblaðsgrein í gær
og gagnrýnir þar (jár-
málaráðherra fyrir að
hafii tekið fram fyrir
hendur á dómstólunum.
Bendir Magnús á veilum-
ar i röksemdafærslu
Ólafs Ragnars Grimsson-
ar og kennir málflutning
hans við orðagjálfúr sem
sé alkunnugt eins og sjá
megi af þessu:
„Makalaust er t.d. að
sjá þegar Ólafur Ragnar
Grímsson tekur viðmæl-
endur sina í málæðis-
þyrluflug i stað þess að
ræða efiii máls. Eftir
lendingu standa þeir svo
í svima og moldroki og
byrja grátfegnir að tala
um allt annað. Dæmi um
þetta er viðtalið sem tveir
ágætir fréttamenn áttu
nýlega við Ólaf Ragnar
um ólympíumet spiUing-
arinnar i kringum Stefán
Valgeirsson. Öðrum
fréttamanninum varð á
að kalla Stefán nefiida-
tröU (gott islenzkt orð og
réttnefiii), og þá lyftist
þyrlan. Er hún lenti var
umræðuefiiið orðið spiU-
ing fréttamannsins, sem
svo ógætílega hafði talað
um engilinn hvita yfir
sjóðum landsmanna."
, 1 ummmmiL
Áhættulaus og aróbær ávöxtun
Kominn er út nýr flokkur verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs.
Hægt er að velja um: 3ja og 5 ára bréf með ársávöxtun 7,3% og 8 ára bréf
með ársávöxtun 7,0%.
Spariskírteini eru í 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000
króna einingum. Þau eru ríkistryggð og fyrir einstaklinga utan
atvinnurekstrar eru þau tekju- og eignarskattsfrjáls og því bæði
örugg og arðbær fjárfesting.
Spariskírteini ríkissjóðs fást á afgreiðslustöðum
Landsbanka íslands og þar er jafnframt séð um
innlausn eldri spariskírteina.
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskiptum
Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í útibúum
bankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna