Morgunblaðið - 02.12.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
11
Bók um
steina
Bókaútg'áfan Bjallan hefúr
sent frá sér bókina Islenskir
steinar.
I kynningu Bjöllunnar segir m.a.:
„Bókin íslenskir steinar er ætluð
leikmönnum og er fyrsta bókin um
íslenska steinaríkið. Þar segja frá
í myndum og máli ljósmyndari,
steinasafnari og tveir jarðfræðing-
ar.
Bókina prýða yfir 90 fallegar
myndir sem sýna fjölbreytni
íslenska steinaríkisins. Einum eru
þær augnayndi, öðrum hjálp til að
þekkja fjölmargar tegundir og af-
brigði.
Myndir og texti munu gera al-
menningi kleift að fást við grein-
ingu steina og þar er að finna leið-
beiningar um steinasöfnun og hvar
helst sé að leita fanga.“
Saga af
Suðurnesj-
um á ensku
Bókaútgáfa Máls og menning-
ar hefúr sent frá sér enska þýð-
ingu á bókinni Saga af Suður-
nesjum, ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum, sem gefíð var út á sl.
ári myndskreytt af Ragnheiði
Gestsdóttur. Enska þýðingin ber
nafnið The Fishermans’s Boy
and the Seal og ritaði Vigdís
Fnnbogadóttir forseti formála
um uppruna ljóðsins og íslenska
menningu.
Saga af Suðurnesjum er byggð
á íslenskri þjóðsögu og segir frá
dreng sem rær til fiskjar en steyp-
ist útbyrðis. Á hafsbotni hittir hann
selinn Kobba, sem reyndar er sonur
Faraós. Hann tekur drenginn með
sér í höll sína á hafsbotni þar sem
verða óvæntir fagnaðarfundir en
sagan endar á því að selurinn skilar
honum heim á jólakvöldi.
í bókinni eru litmyndir á hverri
síðu og er hún unnin og prentuð í
Prentsmiðjunni Odda.
Eðvald Hinriksson
Bók eftir
Þorstein
Matthíasson
Skjaldborg hf. hefúr gefið út
bókina I annríki fábreyttra daga
eftir Þorstein Matthíasson.
I fréttatilkynningu útgefanda
segir: „Þetta er þriðja bókin í þess-
um bókaflokki. Þetta er saga fólks-
ins sem lætur lítið yfir sér frá degi
til dags. En í frásögu þess birtist
saga lands og þjóðar. Þau eru hetj-
ur sem ekki er hampað, þau unnu
störf sín í æðruleysi og lögðu grunn-
inn að velferðarríki nútímans. Þess-
ir segja frá: Jón á Stapa, Sigríður
B. Olafsdóttir, Helgi Gestsson,
Margrét Þórarinsdóttir, Friðrik
Rósmundsson, Þórlindur Magnús-
Endurminningar Eð-
valds Hinrikssonar
HJÁ Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Úr eldinum til
Islands, endurminningar Eðvalds
Hinrikssonar skráðar af eistn-
eskum rithöfundi, Einari Sand-
en, sem er búsettur á Englandi.
í fréttatilkynningu AB segir
m.a.: „Eðvald Hinriksson, fyrrum
knattspyrnuhetja og faðir þeirra
Jóhannesar og Atla Eðvaldssonar,
er einn þeirra flóttamanna sem
komu hingað til íslands upp úr
síðari heimsstyrjöld. Saga hans er
sennilega fjölskrúðugasta og magn-
aðasta saga flóttamanns á Islandi.
Þorsteinn Matthíasson
son, Þórey Jóhannesdóttir, Steinn
Þórðarson, Bjarni M. Jónsson og
Eiríkur Guðmundsson.
Hann var foringi í PolPol, verndar-
lögreglu lands síns, en varð að flýja
er Rússar hernámu landið. Hann
tók aftur upp þráðinn hjá PolPol
er Þjóðveijar hernámu Eistland.
Þjóðveijar ákváðu síðar að skjóta
hann en hann slapp við það og sat
þess í stað í einangrun í fangelsi á
annað ár.
Frá Eistlandi flúði hann til
Svíþjóðar í bát ásamt öðrum flótta-
mönnum. Sænsk yfirvöld framseldu
eins og kunnugt er marga eistneska
flóttamenn til Sovétríkjanna árið
1945. Eðvald Hinriksson átti að
verða einn þeirra, Rússar sóttu svo
fast að fá hann. En hann slapp
fyrir liðsinni vinsamlegra Svía sem
komu honum á skip í siglingum.
Þaðan lá leiðin í skjólið á íslandi.
Hér gátu Rússar ekkert aðhafst
annað en haldið uppi árásum sem
engin áhrif höfðu. En hvers vegna
sóttu Rússar svo fast að ná Eðvald
Hinrikssyni? Það var af því að hann
vissi of mikið sem foringi í verndar-
lögreglu lands síns.
Eðvald Hinriksson er löngu orð-
inn íslendingur og rekur hér nudd-
stofu. Hér hefur hann lifað rólegu
lífi eftir svo storma- og viðburðaríka
ævi ; að slíks munu ekki mörg
dæmi.“
Úr eldinum til íslands er 252
blaðsíður að stærð. Setningu, um-
brot og filmuvinnu annaðist Metri
hf. Prentun fór fram í Prentstofu
G. Benediktssonar, bókband í Fé-
lagsbókbandinu Bókfelli og
Steingrímur Eyfjörð hannaði kápu.
Endurminningar
Kristins Olsen
FRJÁLST framtak hefúr sent
firá sér bókina „Kristinn Olsen —
svipmyndir frá litríkum flug-
mannsferli“ eftir Sæmund Guð-
vinsson, fyrrverandi blaðafúll-
trúa Flugleiða. í bókinni segir
Kristinn Olsen frá mörgum eftir-
minnilegum atvikum á löngum
flugmannsferli sínum en Krist-
inn er einn af brautryðjendum
flugsins á íslandi og handhafi
flugskírteinis númer 7.
I fréttatilkynningu útgefanda
segir: „Kristinn segir í bókinni frá
því hvemig hann heillaðist af flug-
inu þegar hann var unglingur, frá
flugnámi sínu í Kanada og síðan
frá baráttunni sem hófst þegar
komið var heim frá námi. Aðstaðan
var bágborin og oft flogið við hin
erfiðustu skilyrði. Kristinn segir frá
mörgu eftirminnilegu er gerðist á
þessum ámm, m.a. frá síldarleitar-
fluginu, frá björgun skíðaflugvélar-
innar af Vatnajökli og ævintýra-
flugi til Suður-Ameríku, Grænlands
og fleiri staða. Hann segir einnig
frá eftirminnilegum samferða-
mönnum, eins og Múra flugstjóra,
sem bjó til ævintýrin ef þau urðu
ekki á vegi hans á annan hátt.“
Fjölmargar ljósmyndir prýða
bókina sem er 150 blaðsíður. Bókin
er sett og prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar og bundin hjá Arn-
arfelli. Kápu hannaði Friðrik Erl-
ingsson.
Bók um
Sigur-
björn
biskup
Bókaútgáfán Setberg hefúr
sent frá sér bókina Sigurbjörn
biskup — ævi og starf eftir Sig-
urð A. Magnússon rithöfúnd.
í kynningu Setbergs segir m.a:
„Trúarkraftur og orðsnilld séra
Sigurbjöms Einarssonar biskups
hefur látið fáa Islendinga ósnortna.
Að baki þessa meistará orðsins
liggur sviptivindasamur og fjöl-
þættur æviferill sem er vel lagaður
fyrir fróðlega og tilþrifamikla ævi-
lýsingu.
Þessi bók bregður upp ijölda
eftirminnilegra mynda úr langri og
litríkri lífssögu, allt frá kröppum
kjömm bemskuáranna í Meðal-
landi, til erfiðra námsára í
Reykjavík og Uppsölum, prestskap-
aráranna á Skógarströnd og í
Reykjavík, kennsluára við Háskóla
íslands og langs embættisferils í
biskupsstóli. Inn í þá fjölskrúðugu
sögu fléttast þættir úr þjóðvamar-
baráttunni og baráttunni fýrir end-
urreisn Skálholts á sjötta áratugn-
um. Eins og gefur að skilja er einn-
ig komið inn á guðfræðileg viðhorf
Sigurbjörns og kynni hans við
ýmsa helstu guðfræðinga aldarinn-
ar.“
Bókin er 380 blaðsíður og auk
þess prýða hana yfir 100 ljósmynd-
ir.
ÞRiÁR FALLEGAR SÖGUBÆKUR FYRIR BÖRNIN
BRÁÐUM KOIHIA
BLESSUÐ JÓLIN
Einstaklega falleg og vönduð bók með sögum um
jólaundirbúning, tilhlökkun, jólahald og fleira
sem tengist jólunum. í bókinni eru ennfremur
fjölmargar jólavísur, leikir og skemmtanir. Bók
sem iðar af sannkallaðri jólagleði.
Stefán Júlíusson þýddi, valdi og endursagði efnið.
TVÆR HEIÐU-BÆKUR
Bækurnar um Heiðu eru líklega með þekktustu
barnasögum, sem komið hafa út. Bækurnar tvær
sem hér um ræðir heita HEIÐA FER AÐ
HEIMAN og HEIÐA HEIMSÆKIR AFA og eru
þær endursagðar á góðu máli með skýru letri.
Fallegar, litprentaðar bækur í þýðingu Óskars
Ingimarssonar.
SETBERG