Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
„Brauð handa hungruðum heimi“:
Veit að fólk bregst vel við
- segir íramkvæmdastjóri Hjálparstofiiunar kirkjunnar
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunn-
ar er nú í þann veginn að hefja
sína árlegu jólasöfiiun undir
kjörorðinu „Brauð handa hungr-
uðum heimi“. Sigríður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Hjálparstofiiunarinnar, segist
vera vongóð um að fólk bregðist
vel við eins og endranær, þrátt
fyrir samdrátt í þjóðfélaginu.
Hjálparstofiiunin styrkir að
þessu sinni verkefiii í Mósambík,
Eþíópíu, Bangladesh og Indl-
andi.
Jólasöfnunin er helsta tekjulind
Hjálparstofnunar kirkjunnar, en
hún nýtur engra opinberra styrkja.
Gíróseðlar og söfnunarbaukar
verða sendir inn á hvert heimili,
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigríihir Guðmundsdóttir, fi-amkvæmdastjóri Hjálparstofiiunar
kirkjunnar.
en auk þess selur Hjálparstofnunin
svokölluð friðarkerti, sem hægt
verður að fá í flestum blómaversl-
unum og í kirlqugörðum á að-
fangadag. Sigríður Guðmundsdótt-
ir sagði að Hjálparstofnunin hefði
verið ánægð með viðtökumar við
jólasöfnuninni í fyrra, þegar 17
milljónir króna söfnuðust, og rekst-
ur stofnunarinnar gengi nú vel.
Hjálparstofnun kirkjunnar mun
halda áfram matvælagjöfum í norð-
urhluta Mósambík í samvinnu við
norrænar hjálparstofnanir, en
nokkur ný verkefni verða styrkt
að auki: vamaraðgerðir gegn út-
breiðslu sjúkdóma í Bangladesh
eftir flóðin þar sem gerðu 25 millj-
ónir manna heimilislausar og bygg-
ing skóla og heimili fyrir vangefin
böm á Indlandi. Þá er að ijúka
byggingu á heimili fyrir munaðar-
laus böm í Eþíópíu, sem byijað var
á eftir útgáfu plötunnar „Hjálpum
þeirn" árið 1985.
Söfnunin stendur formlega fram
til jóla og verða kirkjur opnar á
Þorláksmessu til að taka á móti
framlögum. Mikið er þó um að fólk
sendi inn fé á milli jóla og nýárs,
að sögn Sigríðar, og Hjálparstofn-
unin tekur að sjálfsögðu við fram-
lögum allt árið.
Petri Sakari aðalhljómsveitarstjóri á æfingu með Sinfóníuhljómsveit
Islands.
Fjögur aldamótaverk
á Sinfóníutónleikum
FIMMTU áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða á morg-
un, laugardag, kl. 16.00 í Háskólabiói. Á efiiisskránni verða Qögur
verk, sem eru samin um og eftir síðustu aldamót. Einleikari verður
rúmenski fiðluleikarinn Silvia Marcovici og hljómsveitarstjóri Petri
Sakari, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Verkin sem verða flutt eru leikum sínum. Hún hefur hlotið verð-
Passacaglia fyrir hljómsveit op. 1 laun í einleikarakeppnum í París og
eftir Anton Webem, Fiðlukonsert nr.
1 í g-moll op. 26 eftir Max Bruch,
Forleikurinn að Síðdegi skógarpúk-
ans eftir Claude Debussy og að lok-
um L’Ascnecion, Upprisan, eftir
Olivier Messiaen.
Silvia Marcovici er fædd og uppalin
í Rúmeníu. í frétt frá Sinfóníuhljóm-
sveitinni segir: „Hún stundaði nám
í tónlistarskólunumí Bacau og Búk-
aresst og var m.a. nemandi Stefáns
Gheorghiu. Aðeins 15 ára að aldri
hreif hún áheyrendur og gagnrýn-
endur á fyrstu opinberu einsöngstón-
Búkarest og í framhaldi af þeim lék
hún með Si."íóníuhljómsveit Lund-
úna.
Leið hennar lá síðan um fjölmarga
tónleikasali Evrópu þar sem hún
hefur leikið undir stjóm Eugen Or-
mandy, Rostropovitch, André Prévin,
Placido Domingo o.fl. þekktra lista-
manna. Nýlega lék hún fiðlukonsert
eftir Síbelíus með Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Gautaborg undir stjórn
finnska hljómsveitarstjórans Neeme
Jarvi.“
Hoffinann íær nýjan förunaut
Reykjavík:
Fyrra bindi af sögu hafrannsókna viö ísland, rakin frá önd-
veröu til 1937. Þar er fyrst greint frá skrifum íslenskra og
erlendra höfunda um fiska og aðra sjávarbúa og lífríki hafs-
ins kringum landið í fornum ritum, síðan hefst hafrannsókna-
þáttur útlendinga á 19. öld og smám saman verða rannsókn-
ir þessar umfangsmeiri og vísindalegri og hlutur (slendinga
í þeim vex, uns þeir gerast jafnokar erlendra vísindamanna
í fiskifræði og hafrannsóknum.
Höfundur Hafrannsókna við íslander dr. Jón Jónsson fiski-
fræðingur, fyrrum forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Hefur
hann ráðist í stórvirki með riti þessu og lagt drög að því lengi.
Bókin er prýdd fjölda mynda, m.a. litmynda
úr handritum.
Bókaútgáfa
/MENNING4RSJOÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7» REYKJAVÍK • SÍMI 6218 22
GÓÐ BÓK ER GERSEMI
- segir fi*amkvæmdas1jóri samtakanna Gamli miðbærinn
„VERSLUN hefur dreglst jafii mikið saman á öllum stöðum í
Reykjavík að undanförnu. Hins vegar hafa þeir, sem eiga verslanir
bæði í Kringlunni og gamla miðbænum, lagt meiri áherslu á Kringl-
una og hafa til dæmis lengur opið þar en i gamla miðbænum,” sagði
Ástbjörn Egilsson, framkvæmdastjóri samtakanna Gamli miðbærinn,
í samtali við Morgunblaðið.
Garðar Siggeirsson, kaupmaður,
sem rekur verslanir bæði í Kringl-
unni og Aðalstræti, segir að gera
verði átak í umhverfis- og umferð-
armálum gamla miðbæjarins. Sífellt
fleiri geri innkaup sín í Kringlunni
á meðan verslun í gamla miðbænum
sé að dragast saman. Garðar telur
orsakirnar fyrir því að æ færri leggi
leið sína í gamla miðbæinn til að
versla til dæmis þær að í borginni
séu um 200 of margar verslanir,
aðkoman að gamla miðbænum sé
mjög slæm fyrir akandi fólk og
menn hræðist bílastæðaleysi þar.
„Ég get tekið undir það að versl-
anir í Reykjavík séu of margar og
afkoman sé slæm og á þetta höfum
við margoft bent. Hins vegar voru
verslanir í borginni of margar áður
en Kringlan var byggð og þeir sem
þar eiga verslanir ættu því síst að
kvarta yfir of mörgum verslunum
í borginni,” sagði Ástbjörn Egils-
son. „Ég tek undir þá skoðun að
átak sé nauðsynlegt í gamla mið-
bænum og það er einmitt það sem
samtökin Gamli miðbærinn hafa
verið að vinna að. Ég vil hins vegar
benda Garðari, og öðrum þeim
kaupmönnum sem ekki eru félagar.
í samtökunum, á að þau eru ein-
mitt rétti vettvangurinn til að beij-
ast á fyrir framfaramálum í gamla
miðbænum.
Aðkoman að gamla miðbænum
er ekki nógu góð og hún hefur
versnað vegna til dæmis fram-
kvæmda við ráðhúsið. Við reynum
hins vegar að koma á framfæri
hugmyndum um að bæta aðkom-
una. Það er hugsanlegt að tvístefna
verði leyfð á Hverfisgötunni frá og
með næsta sumri og það eru fleiri
lagfæringar á döfinni.
Reykjavíkurborg byijaði ekki
nógu snemma á því að fjölga bíla-
stæðum í gamla miðbænum en þeim
hefur þó verið fjölgað mikið að
undanfömu, til dæmis með ská-
stæðum. Þannig sköpuðust þar 200
ný bílastæði. Bílageymsluhús verð-
ur byggt á homi Bergstaðastrætis
og Skólavörðustígs og framkvæmd-
ir við það eiga að hefjast í vetur.
Einnig er áætlað að byggja bíla-
geymsluhús við Tryggvagötu.
Við höfum lagt til að Faxaskáli
verði gerður að bílageymsluhúsi og
hægt er að nýta svokallað Bakka-
stæði við skálann betur. Bíla-
geymsluhús væri einnig hægt að
reisa gegnt Þjóðleikhúsinu og á lóð
Landsbankáns á Laugavegi 77,“
sagði Ástbjörn Egilsson.
INGIBJÖRG Marteinsdóttir
hefur tekið við hlutverki Rann-
veigar Fríðu Bragadóttur sem
Nicklausse, forunautur Hoff-
manns í óperunni Ævintýri
Hoffmanns, sem sýnt er um
þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.
Rannveig Bragadóttir heldur nú
aftur til Vínarborgar, en þar er
hún meðlimur í Studio der Wiener
Staatsoper. Hún mun á næstunni
taka þátt í þremur uppfærslum á
aðalsviði Staatsoper.
Ingibjörg Marteinsdóttir var um
skeið í einkatímum í söng hjá
Maríu Markan. Eftir nokkurra ára
hlé, eða haustið 1983, hóf hún
tónlistarnám við Söngskólann í
Reykjavík, þar sem Þuríður Páls-
dóttir er kennari hennar. Ingibjörg
hefur sótt námskeið hjá Erik
Werba, Ingeborg Hallstein í Weim-
ar og gita Denice í London. Hún
lauk einsöngvaraprófi frá Söng-
skólanum árið 1987. í vetur stund-
ar hún nám í kennaradeild skólans.
Ingibjörg söng hlutverk Adinu
í Ástardrykknum í uppfærslu
Söngskólans 1987 og hlutverk
Tebaldo í Don Carlos í konsertupp-
færslu Sinfóníuhjómsveitar Is-
lands í mars sl.
Uppselt hefur verið á allar sýn-
ingar á Ævintýrum Hoffmanns til
þessa og er sala þegar hafin á
aðgöngumiðum á sýningar eftir
áramót.
/
Ingibjörg Marteinsdóttir
HAFRANNSÓKNIR VIÐ
ÍSLAND Jón Jónsson
Verslun hefur dregist jafii
mikið saman á öllum stöðum