Morgunblaðið - 02.12.1988, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
fclk í
fréttum
FYRIRSÆTA
Margeaux á ný til starfa
Margeaux Hemingway
Margeaux Hemingway, bama-
bam bandaríska rithöfúnd-
arins og blaðamannsins Emests
Hemingways, var ein auðugasta
ljósmyndafyrirsæta heims hér áður
fyrr. Hún lenti hins vegar í blind-
götu er hún þurfti að fara í með-
ferð vegna eiturlyfjanotkunar.
„Mér finnst mjög gaman að kasta
klæðum fyrir framan myndavélar,
en ég afklæði mig aldrei alveg, eitt-
hvað verður að vera eftir fyrir
ímyndunaraflið," segir þessa
þokkafulla kona. „Nú er ég á upp-
leið. Ég vil feta í fótspor afa míns,
kannski mun ég skrifa bækur einn
góðan veðurdag og verða enn fræg-
ari en hann,“ og hún bætir við: „En
líkami minn er besta auglýsingin
sem ég hef sýnt í gegnum árin,“
og eflaust verða fáir til þess að
bera á móti því.
LISA MARIE PRESLEY
Hjónabandssælunni lokið
- Cyrir skömmu gengu þau Lisa Keough í hjónaband. En sú sæla og sigldu á snekkju einni um
Marie Presley (dóttir rokk- stóð ekki lengi, aðeins í tæpa tvo Karíbahaf í nokkrar vikur. Siglingin
kóngsins Elvis Presley) og Danny mánuði. Þau fóm í brúðkaupsferð fór illa í Lisu sem er barnshafandi
og var skapið ekki upp á marga
fiska hjá ungu brúðhjónunum með-
an á ferðinni stóð, en bæði eru þau
rétt um tvítugt. Þau búa nú hvort
í sínu lagi, hann býr einn í Los
Angeles en hún býr til skiptis hjá
móður eða móðurömmu í Kali-
fomíu.
Lisa segir það vera sök móður
sinnar hvernig komið væri. Priscilla
Presley átti að hafa þvingað hana
til þess að giftast kærastanum þeg-
ar ljóst var að hún gengi með barn
hans. Lisa sló til en hefur sem sagt
skipt um skoðun og elskar Danny
ei meir. Vinir hans segja að hann
sé aftur á móti enn ástfanginn af
Lisu en hún er erfingi Presley-auð-
ævanna, sem eru ekkert slor. Hver
veit/ nema þau sættist á aðra til-
Lisa Marie Presley og Danny Keough hljómlistarmaður eru skilin raun, slíkt hefur áður gerst í henni
að skiptum eftir tveggja mánaða hjónaband. veröld.
TOPPFUNDUR
Leysir evrópsk
matarást málin?
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, og
Francois Mitterrand, forseti
Frakklands, áttu stuttan fund á
miðvikudag í klausturborginni
Mont Saint-Michel sem reist var
á 8. öld og er umkringt söndum
Normandie-héraðs við Ermar-
sund. Þau snæddu saman miðdeg-
isverð í veitingahúsinu Mere Poul-
ard sem frægt er fyrir óvenju lát-
lausa en velheppnaða uppskrift
að eggjaköku. Frúin sýndi tilburð-
um matsveinsins mikinn áhuga
er hann, ijóður í vöngum, þeytti
eggin af miklu kappi í koparskál.
„Þarftu virkilega að þeyta þau
svona lengi?,“ spurði Thatcher.
Kakan var borin fram flamberuð
í rommi á eftir lambálæri sem bar
keim af saltlauguðu grasi hag-
anna í nágrenni borgarinnar.
Leiðtogamir ræddu málefni Evr-
ópubandalagsins og ekki er útilok-
að að Thatcher, sem varað hefur
við ofstjórn embættismanna
bandalagins í Brussel, hafi orðið
hugsað til ummæla eins af fyrir-
rennurum Mitterrands í forseta-
embættinu, Charles de Gaulle.
Hann sagði „Bandaríki Evrópu"
aldrei verða að veruleika þar sem
ekki væri hægt að „búa til eggja-
köku úr soðnum eggjum.“
KEFLAVÍK
92-15222
n
Prufu-hitamælar
- 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
■Lr.N'
SfiwiíaMgiwr ttS&trtSíSOini
VESTURGOTU 16 - SlMAR 14630 - 21480
JÓLIN NALGAST
Höfum tíl
afgreiðslu
af lager
jóla-kúlur og
lengjur (garland)
í ótal litum og
stærðum.
KjÖrið til útstillinga
og skreytinga.
gjl1
UMBOÐS
Ármúli 23, sl
Guttormsson hf.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Ármúli 23, slmi 82788, pósthólf 8895, 128 Reykjavlk
CSAMEIND
Brautaxholti 8.
suru 25833
TOPP
LYKLASETT
KARÓLÍNA KRUGER
Hver man ekki eftir ungu
norsku stúlkunni sem söng sig
inn í hjörtu fólks í söngkeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva hér um árið.
Nú hefur Karólína Kruger þénað
vel á söng sínum bæði í Noregi og
Frakklandi. En hvað gerir hún við
peningana? Hún ættleiddi litla tæ-
lenska stúlku sem heitir Jupa og
er fjögurra ára gömul. Ekki býr sú
stutta þó hjá „mömmu sinni heldur
sendir Karólína fjárhaldsmanni
telpunnar dágóða upphæð mánað-
arlega — sem eflaust kemur til
góða bami sem lifað hefur alla sína
tíð í fátækt.