Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
©1988 Univerul Piett Syndicate
//
aidrei heyrt ur^tcikiá
/, takfcu þér SöetL'', fyrr?"
Ég hringi til þín aftur
seinna...
HÖGNI HREKKVtSI
Islenskar landbún-
aðarvörur bestar
Kæri Velvakandi.
Fyrir skömmu birtist grein í Vel-
vakanda þar sem farið var hörðum
orðum um íslenskan matvælaiðnað
en hliðstæðri framleiðslu erlendri
hrósað á hvert reipi. Þar var t.d.
fundið að íslenska smjörinu og sagt
að víða erlends væri smjör mikið
betra. Þessu er ég mjög ósammála.
Ég hef farið nokkuð víða en hvergi
fengið eins gott smjör og hér. Það
má með réttu halda því fram að
íslenskar landbúnaðarafurðir séu
dýrar en gæði þeirra verða ekki
dregin í efa. Ég er viss um að ef
neytendur erlendis vissu hversu fer-
skar og ágætar íslenskar land-
búnaðarafurðir eru værum við ekki
í vandræðum með að selja alla okk-
ar landbúnaðarframleiðslu með
góðum hagnaði. Erlendis eru alls
kyns lyf og eitur notuð í stórum
stíl á búum og geta hinar ódyru
afurðir verið stórlega heilsuspill-
andi.
Þá var fjallað um ofsöltun. Nokk-
uð er til í því að sum matvæli eru
of mikið söltuð en það finnst mér
ekki eiga við um smjörið. Það mun
líka vera framleitt ósaltað smjör
hér fyrir þá sem ekki kunna að
meta saltið. En varðandi þessa salt-
umræðu vil ég benda á að ekki er
allt salt jafn óholt. Hér á íslandi
er framleitt mikið gæðasalt hjá
Saltverksmiðjunni á Reykjanesi
sem allt of lítið hefur verið kynnt.
Rannsóknir lækna benda til að
svonefnt sjávarsalt sé heilsusamlegt
en saltið sem við flytjum inn er því
miður ekki af því tagi. Islenskur
matvælaiðnaður ætti eingöngn að
nota saltið frá Saltverksmiðjunni á
Reykjanesi og þá myndi hollusta
framleiðlunnar aukast til muna.
Gamall bóndi
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Yíkverji skrifar
Ung kona þurfti fyrir nokkru
að kaupa bensín á lítinn
Fíat Uno og ók því inn á OLÍS-
bensínstöðina í Álfheimum til
þess að láta fylla bílinn. Þetta er
í raun ekki í frásögur færandi,
ef bensínafgreiðslumaðurinn
hefði ekki orðið svo óheppinn að
bijóta lykil konunnar í bensínlok-
inu um leið og hann ætlaði að
opna tankinn.
Nú voru góð ráð dýr og þurfti
að þvinga upp lokið til þess að
opna tankinn. Við það eyðilagðist
lokið. En bensínafgreiðslumaður-
inn dó ekki ráðalaus. Hann varð
sér úti um nýtt lok hjá Fíatum-
boðinu og þegar unga konan
ætlaði að borga bensínið og allt
var komið í lag, var henni sagt
að þess þyrfti hún ekki — ben-
sínið fengi hún ókeypis fyrir
óþægindin og biðina.
Unga konan var því alsæl og
lofar nú í hástert þjónustuna hjá
OLÍS við Álfheima.
Víkveiji hefur margoft bent á
þann leiða vana fjölmiðla, að
tala alltaf um fylki í Bandaríkjun-
um. Þetta fýlkjatal hefur tröllriðið
öllum fréttum t.d. beggja sjón-
varpsstöðvanna og um leið og for-
setakosningamar í Bandaríkjunum
fóru fram kastaði tólfunum í þessu
efni. Þetta mikla ríki í vesturálfu
heitir ekki Bandafylki Norður-
Ameríku, heldur Bandaríki.
Eins og kunnujgt er eru Banda-
ríkin 50 að tölu. I Kanada eru hins
vegar fylki, enda er þar við líði allt
annars konar ríki. Enn eitt ríki, sem
er samband margra ríkja eru og
Sovétríkin. Nýlega heyrði Víkveiji
á Stöð 2, að þar voru menn farnir
að tala um fýlki líka. Armenía er
ekki fylki í Sovétríkjunum, heldur
eitt af 15 ríkjum, sem mynda Sov-
étríkin.
XXX
Ur því að minnst er á sjónvarp
er ekki úr vegi að minnast
aðeins á þann leiða vana að slíta
sundur kvikmyndir á síðkvöldum til
þess að koma fréttum klukkan 23
að. Þetta er leiður ávani, að slíta
sundur dagskrárþætti og hefur
einkum verið tíðkaður í Banda-
ríkjunum, þar sem auglýsingum er
síknt og heilagt skotið inn í án
nokkurrar viðvörunar. Þessi truflun
í kannski annars spennandi mynd
er óþolandi, sem ætti að sleppa.
Því má ekki ljúka dagskránni með
þessum fréttum?
xxx
Ifréttum á Stjömunni í fyrrakvöld
var sagt frá árekstri tveggja
misstórra skipa í Akranesshöfn þá
um morguninn. Fréttaþulur Stjörn-
unnar skýrði frá atburðinum og
sagði, að trillukörlum um borð í
minni bátnum, hefði tekizt „að sigla
fleyi sínu upp í fjöru áður en það
sökk“. Nú er bara spurning: Sökk
trillan?