Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ PILTA U-18
Átján strákar í jólaferð til ísraels
„Góður undirbúningurfyrir landsleiki sumarsins," segir Lárus Loftsson þjálfari íslenska liðsins
„ÞETTA árlega mót í ísrael
er sterkt og llð sækjast eftir
að taka þátt. Okkur er nú
boðið annað árið í röð og
kemur það sór vel því mótið
er góður undirbúningur fyrir
landsleiki sumarsins í þess-
um aldursflokki," sagði Lárus
Loftsson, þjálfari landsliðs
pilta í knattspyrnu U-18, að-
spurður um alþjóðlegt mót,
sem fram fer í ísrael um ára-
mótin.
i
Ívikuhni var dregið í riðla í
keppninni, sem fer fram 27.
desembej’ til 3. janúar. Ísland er
í b-riðli með Liechtenstein, Rúm-
eníu, Portúgal, írlandi og b-liði
heimamanna. I a-riðli eru Ung-
verjaland, Sviss, Pólland, Malta,
Sv$jóð og ísrael. „Flest liðin eru
mjög sterk, en við erum sennilega
á svipuðu róli og Liechtenstein
og ísrael B. íslenska liðið stóð sig
vel i fyrra, en nú teflum við fram
mun yngra liði og má nefna að
fimm ieikmenn í hópnum voru í
drengjalandsliðinu í sumar," sagði
Lárus.
Liðið, sem leikur fimm leiki í
EM næsta sumar, hefur æft fimm
sinnum vikulega að undanförnu
en vegna prófa falla æfingar að
mestu niður fyrstu tvær vikurnar
í desember.
Þeirfara
Eftirtaldir 18 piltar eru þegar
í hópnum: Vilhjálmur Vilhjálms-
son, Ríkharður Daðason, Vilberg
Sverrisson, Þorsteinn Bender og
Steinar Guðgeirsson úr Fram,
Skagamennimir Sigurður Sigur-
steinsson, Bjarki Gunnlaugsson,
Lárus Orri Sigurðsson og Amar
Gunnlaugsson, Amar Grétarsson,
Halldór Kjartansson og J. Ásgeir
Baldurs. frá UBK, Þórhallur Jó-
hannesson, Fylki, Ólafur Péturs-
son, ÍBK, Nökkvi Sveinsson, Tý
Vestmannaeyjum, Ásmundur
Arnarson, Völsungi, Þráinn Har-
aldsson, Þrótti Neskaupstað, Axel
Vatnsdal, Þór Akureyri.
Nú eru komnar nýjar Búrfellsvörur á
markaðinn: Álegg, beikon, bjúgu, kœfa, kjöt
fars og svínahamborgarhryggur. Allt góðar
vörur á góðu verði.
Dœmi um verð: Búrfellsskinka 999 kr./kg.
Búrfellsbeikon 829 kr./kg.
Búrfellsbjúgu 348 kr./kg.
KNATTSPYRNA
HM á Ítalíu 1990:
Úrslita-
leikur-
innfer
framí
Róm
ALÞJÓÐA Knattspyrnusam-
bandið lét frá sér fara í vik-
unni, að þrátt fyrir fyrirsjáan-
lega erfiðleika með fram-
kvæmdir á meginknattspyrnu-
völlum Rómarog Torínó, myndi
verða leikið á þeim í loka-
keppni HM í knattspyrnu árið
1990.
Það var ekki nóg með að grænt
ljós væri gefið á umrædda leik-
vanga, heldur tilkynnti FIFA í leið-
inni, að sjálfur úrslitaleikurinn yrði
leikinn á Rómarleikvanginum, svo
pg einn leikur í íjórðungsúrslitum.
I Torinó er verið að byggja nýjan
leikvang í tilefni keppninnar, en þar
mun annar leikur undanúrslitanna
fara fram, en hinn í Napólí.
Taugatitringurinn bytjaði er
verktakar vöktu athygli skipuleggj-
enda mótsins á því að vinna við
leikvangana gengi hægt af ýmsum
orsökum. Varð það til þess að fre-
stað var í nokkra mánuði að til-
kynna hvar einstakir leikir færu
fram. Nú er fresturinn uppurinn og
eftir að fulltrúar FIFA höfðu litið
á stöðuna var sýnt að verkið stæð-
ist áætlun.
Fyrsti leikurinn fer fram í Mílanó
8. júní 1990 og er Ijóst að annað
liðanna verður ríkjandi heimsmeist-
ari, Argentína. Mótherjinn verður
ekki kunnur fyrr en að lokinn und-
ankeppninni og riðladrætti. Heims-
meistaramir leika hina leikina sína
tvo í riðlakeppninni í Napólí, en
þess má geta, að gestgjafarnir ít-
alía leika alla leiki sína á því stigi
í Róm. Auk Rómar, verða leikir í
fjórðungsúrslitum í Flórens, Napólí
og Mílanó, en leikurinn um bronsið
fer fram í Bari. Leikir í 2. umferð
fara hins vegar fram í Róm, Nap-
ólí, Bari, Torínó, Genúa, Mílanó,
Bolognia og Verona.
Ikvöld
Það verður ekki mikið að ger-
ast í íþróttum í kvöld. Einn
leikur verður leikinn í 1. deild-
arkeppni kvenna. Þór og
Víkingur leika kl. 20 á Akur-
eyri.