Morgunblaðið - 21.12.1988, Side 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR,21. DESEMBER 1988
félk í
fréttum
DANSSKÓLI HEIÐARS ÁSTVALDSSONAR
Jóladansleikur á Hótel íslandi
Dansskóli Heiðars Ástvaldsson-
ar hélt jólaskemmtun sína í
"^fyrsta sinn í 30 ár fyrir jólin, en
ekki milli jóla og nýárs eins og ver-
ið hefur siður hjá þeim. Margt var
sér til skemmtunar gert á Hótel
íslandi á sunnudag og dönsuðu
saman ungir sem aldnir eins og
myndimar bera með sér. Að sögn
Heiðars Ástvaldssonar er markmið-
ið að blanda aldurshópum saman
eins og unnt er í danskennslu. Það
væri og orðið algengt að foreldrar
mæti með bömum sínum í
danstíma.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Börkur Birgisson sigurvegarinn á Flughótel-mótinu í snóker
ásamt Steinþóri Júlíussyni hótelstjóra á Flughóteli í Keflavík.
SNOKER
Börkur sigraði í
Flughótel-mótinu
Keflavík.
Börkur Birgisson varð sigur-
vegari í Flughótel-mótinu í
snóker sem var nýlega haldið í
Keflavík. En þetta er í fyrsta
mótið af þessu tagi og hiaut Börk-
ur að launum veglegan bikar.
Hann sigraði alla andstæðinga
sína af öryggi. Til úrslita lék
Börkur við Suðumesjameistarann
Tómas Marteinsson. Talsverður
uppgangur er í þessari íþrótt á
Suðumesjum, en þar hefur nú um
eins árs skeið verið starfandi
knattborðsstofa með átta 12 feta
borðum af bestu tegund.
- BB
HÁR & FEGURÐ
V erðlaunahafar
í forsíðukeppni
Anna Margrét Elíasdóttir, hár-
greiðslustofunni Salon Ritz,
hlaut fyrstu verðlaun í forsíðu-
keppni tímaritsins Hárs & fegurðar.
Verðlaunin voru listaverk eftir Nic-
olai, mynd af skáldinu Edgar Allan
Poe, og opinn flugmiði með Flug-
leiðum. í öðm sæti varð Helena
Hólm, Klassísku hárgreiðslustof-
unni. Á myndinni má sjá, frá
hægri, sigurvegarann, Önnu
Margréti, ásamt Pétri Melsteð, rit-
stjóra tímaritsins, og Helenu Hólm.
Móðir Teresa
í Armeníu
Fáir núlifandi einstaklingar
hafa áunnið sér meiri virð-
ingu fyrir óeigingjamt starf og
fómir í þágu annarra en móðir
Teresa frá Kalkútta. Víða um lönd
eru hópar starfandi sem rétta
þeim sem minna mega sín hjáipar-
hönd í hennar nafni. Slíkur hópur
starfar meðal annars fyrir tilstilli
kaþólskra hér á landi. Móðir Ter-
esa fór til jarðskjálftasvæðanna í
Armeníu á miðvikudag og er
myndin tekin á flugvellinum í
Jerevan höfuðborg landsins. Við
komuna þangað sagði hún: „Mig
langar að veita fólkinu ást og
umhyggju.“
ÍSLENSKUNÁM
Erfitt en gefst ekki upp
Atján ára gömul stúlka, Donna
Faith Frances frá einni af eyj-
um Karabíahafsins, St. Lucia,
stundar nám í vetur sem skiptinemi
Hún sagðist ekki hafa eignast
marga vini og þótti það slæmt, en
taldi að málaerfíðleikar ættu þátt í
því. Hún sagðist hafa mestan áhuga
á að skynja mannlífið hér á landi.
Margt væri mjög framandi miðað
við það sem hún hefði áður kynnst
og hún kvaðst hvergi hafa hitt fólk
sem væri í raun líkt íslendingum.
Hún kvað fólkið á hennar heima-
slóðum mjög opið og tilbúið til þess
Donna. að yiðurkenna annað fólk eips, og
við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti.Ástæðan fyrir því að hún kom
til íslands var sú að hún hitti tvo
Islendinga í heimalandi sínu og
þótti ísland forvitnilegt.
Donna fékk áhuga á því að læra
íslensku og mun ekki snúa heim
aftur fyrr en í júníbyrjun. Donna
sagði að námið reyndist sér mjög
erfitt vegna þess að hún þyrfti mik-
ið að þýða úr íslensku yfír á ensku
og stundum úr dönsku yfir á
íslensku, en hún kvaðst vona að
þetta léttist. Oft sagðist hún þurfa
að sitja við heilu nætumar við þýð-
ingar.
það væri og hún kvaðst ekki sjá
að íslendingar væru öðruvísi þótt
þeir hefðu sinn stíl. Donna kvaðst
stunda hér eitt af áhugamálum
sínum, afrísk- karabískan dans, en
tvisvar í viku sækir hún danstíma
og dansar þá tvo tíma í senn.