Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 1

Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 1
64 SIÐUR B 39. tbl. 77. árg._________________________________FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Viðskipti Imhausen-Chemie í Líbýu: Stjómin fékk veður af málinu árið 1980 Bonn. Reuter. STJÓRNVÖLD í Vestur-Þýskalandi fengu veður af þvi árið 1980 að vestur-þýskt fyrirtæki, Imhausen-Chemie, hefði hugsanlega gert samninga við Líbýumenn um sölu á búnaði sem unnt væri að nota við framleiðslu efnavopna. Upplýsingar þessar koma fram í skýrslu um málið sem ríkisstjórn Helmuts Kohls kanslara lagði í gær fyrir þingmenn í Bonn. Stjórnvöld hafa fram tíl þessa haldið þvi fram að upplýsingar um viðskipti fyrirtækisins og Líbýumanna haS ekki borist fýrr en í mai á siðasta ári. Reuter Boris Gromov, hershöfðingi, yfirmaður sovézku hersveitanna í Afganistan, þiggur kökusneið úr hendi prúðbúinna sovézkra yngismeyja. Níu ára og sjö vikna veru sovézka innrásarhersins í Afganistan lauk er Gromov gekk siðastur liðsmanna sovézka hersins yfir svonefiida friðarbrú milli Iandamæraborganna Termez og Hayratan. Sovétmenn hvelja til vopnahlés í Afganistan Kabúl. London. Reuter. NÍU ÁRA og níu vikna veru sovézka innrásarhersins í Afganistan lauk í gær. Sovézka stjórnin hvatti til þess að tafarlaust yrði lýst yfir vopnahléi i átökum hers stjórnarinnar í Kabúl og skæruliða og að vopnasendingum til deiluaðila yrði hætt. James Baker, ut- anrikisráðherra Bandaríkjanna, sagði Bandaríkjamenn ánægða með að áratugar hernaðarofbeldi Sovétmanna í Afganistan væri lokið, og hvatti þá til þess að styðja endurreisnarstarf þar. í skýrslunni, sem þingmenn í Bonn fengu í gær, kemur fram að leyniþjónusta Vestur-Þýskalands hefði fyrst fengið veður af viðskipt- um þessum árið 1980. Fullyrt hefur verið að Imhausen-Chemie hafí selt Líbýumönnum búnað til að fram- leiða eiturefni í verksmiðju einni í Rabta, skammt frá Trípóli. Stjóm- völd í Bandaríkjunum og Bretlandi telja sig hafa óyggjandi sannanir fyrir því að Líbýumenn hyggist framleiða eiturefni og efnavopn í verksmiðjunni, en þeir síðamefndu hafa vísað ásökunum þessum á Söngvar Satans: Einsognas- isminn aft- urgenginn London. Reuter. AÐFÖRIN að Salman Rushdie, höfúndi bókarinnar „Söngva Sat- ans“ verður æ alvarlegri með degi hveijum og í augum margra Vesturlandamanna er hún farin að minna óþyrmilega á það, sem á gekk í Þýskalandi nasismans. I Pakistan hafa sex menn látist vegna mótmæla gegn útkomu bók- arinnar, sem múhameðstrúarmenn telja guðlast; Khomeini erkiklerkur í íran hefur dæmt Rushdie til dauða og annar klerkur lofað milljón doll- urum þeim manni, sem drepur hann; einn leiðtogi múhameðstrúar- manna í Bretlandi segist fús að fórna allri flölskyldunni til að geta drepið bókarhöfundinn og íranir hafa hvatt til skyndifundar í sam- tökum múhameðstrúarríkja. Pak- istanar vilja banna allar bækur frá útgáfunni, Viking Press, í islömsk- um ríkjum og táknrænar bóka- brennur eru tíðar. Menn úr sérsveitum Scotland Yard gæta nú Rushdies nótt sem dag og á breska þinginu hafa orðið umræður um „þetta miðaldafár" eins og einn þingmannanna komst að orði. Talið er, að á Bretlandseyj- um sé hálf önnur milljón múham- eðstrúarmanna og hafa öfgamenn f þeirra hópi neytt margar bóka- verslanir til að hætta að selja „Söngva Satans". Öðrum lands- mönnum, einkum fullorðnu fólki, fínnst hins vegar sem þeir sjái fyr- ir sér nasismann afturgenginn. Marga múhameðstrúarmenn hryllir raunar við ofstækinu en þeir eru fáir, sem þora að mæla gegn því. Sjá „Múhameðstrúarmenn fara hamförum .. . á bls. 24. bug. í skýrslu þýsku stjómarinnar segir að verksmiðjan hafí verið hönnuð til eiturvopnaframleiðslu. í skýrslunni sagði að borist hefði orðsending frá sendiráði Vestur- Þýskalands í Moskvu þess efnis að fulltrúar Imhausen-Chemie hefðu undirritað samning í Hong Kong um sölu á búnaði til eiturefnafram- leiðslu. Sagði í skeytinu að ástæða væri til að ætla að samningurinn hefði verið gerður við sendimenn Líbýustjómar. Orðsendingunni var komið til leyniþjónustunnar, en upp- Iýsingar þessar vom hundsaðar þrátt fyrir að leyniþjónustan hefði rannsakað hugsanleg viðskipti vest- ur-þýskra fyrirtækja og Líbýu- manna allt frá árinu 1980. í frétt vestur-þýska blaðsins Die Welt sagði að tæknifræðingar frá Im- hausen hefðu verið viðstaddir er verksmiðjan var gangsett í fyrsta skipti. Stjómvöld í Bonn segjast fyrst hafa frétt af viðskiptum þessum í maí á síðasta ári er bandarískir stjómarerindrekar lögðu fram skýrslu þar sem sagði að þijú vest- ur-þýsk fyrirtæki væru bendluð við eiturefnaframleiðslu Líbýumanna. Mál þetta þykir hafa spillt fyrir samskiptum Bandarílqamanna og Vestur-Þjóðverja auk þess sem and- stæðingar Kohls kanslara á þingi hafa gagnrýnt hann harðlega. Brezka stjómin skoraði í gær á leppstjóm Sovétmanna í Kabúl að segja af sér til þess að greiða fyr- ir friðsamlegri lausn deilu stríðandi fylkinga í Afganistan. Samtök isl- amskra ríkja sem eiga höfuðstöðv- ar í Jeddah, hvöttu stjómina til að afsala sér völdum í hendur skæru- liða ellegar yrði henni steypt. Za- hir Shah, fyrrum konungur Afgan- istans, sem búið hefur í útlegð í Rómaborg frá 1973, bað lands- menn að sættast og taka höndum saman um endurreisn landsins. Sir Geoffrey Howe, utanríkis- ráðherra Bretlands, líkti íhlutun Sovétmanna í Afganistan við nátt- úruhörmungar. Kínveijar sögðu að innrás Sovétmanna hefði verið meiri háttar skyssa, en lofuðu hins vegar Míkhaíl Gorbatsjov, Sovét- leiðtoga, fyrir þá ákvörðun að kalla innrásarherinn heim. Boris Gromov, hershöfðingi, tár- aðist en leit þó ekki um öxl er hann gekk síðastur sovézku her- mannanna yfír svonefnda vináttu- brú milli landamæraborganna Ha- yratan í Afganistan og Termez í Sovétrílq'unum í gærmorgun. Menn, sem málum eru kunnug- ir, telja að blóðugt lokastríð deilu- aðila um yfírráð í Afganistan hefj- ist að loknum brottflutningi sovézka herliðsins. Vadím Perfíljev, talsmaður sovézku stjómarinnar, sagði að 30.000 skæruliðar sætu um Kabúl og mætti búast við stórsókn þeirra á hverju augnabliki. Skæruliðar komu sér saman um skipan bráðabirgðastjómar í gær undir forystu Ahmads Shahs, verk- fræðings, sem hlaut menntun sína í Bandaríkjunum. Hann er strang- trúaður múslimi. Beðið var eftir því að sérstök ráðstefna leiðtoga hinna ýmsu hreyfínga skæmliða, shura, samþykkti skipan stjómar- innar. Abdurrab Rasul Shah, talsmað- ur shura, sagði að gerð yrði ný tillaga um skipan stjómarinnar ef núverandi skipan yrði ekki sam- þykkt. Sjá „Sagt frá hryðjuverkum Sovétliðs í Afganistan" á bls. 24. Svíakonungur vill að Norðmenn stöðvi selveiðar Ösló. Frá Rune Timberlid, firéttaritara Morgunbiaðsins. KARL Gústaf Svíakonungur reitti Norðmenn til reiði í gær er hann gagnrýndi selveiðar þeirra og skoraði á Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra, að stöðva þær. Svíakonungur er nú á ferðalagi í Nýja Sjálandi. Gaf hann þar út yfírlýsingu um selveiðar Norð- manna, sem sætt hafa mikilli gagnrýni í Svíþjóð, til sín taka. „Sé Gro Harlem Bmndtland ófær um að stöðva veiðamar þá skil ég ekki hvemig hún getur yfir- leitt stjómað landinu," sagði í yfírlýsingu Karls Gústafs. Norskir stjómmálamenn, hvar í flokki sem þeir stóðu, bmgðust ókvæða við ummælum konungs. Jo Benkow, forseti Stórþingsins, sakaði hann um óviðeigandi af- skipti af innanríkismálum Norð- manna. Gro Harlem Bmndtland vildi ekki tjá sig um gagnrýni Karl Gústaf konungs. Hún neitaði einnig að taka við mótmælaskjali með und- irskrift 48.000 Svía gegn veiðun- um. Full samstaða er á norska þing- Gro Harlem Brundtland ingu um þá ákvörðun norsku stjómarinnar að skipa alþjóðlega sérfræðinganefnd til þess að gera úttekt á selveiðunum og skila áliti um þær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.