Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989
Tanngarður heiti Hrafiiseyri.
Læknadeild vill
að Tanngarður
heiti Hrafnseyri
LÆKNADEILD Háskóla íslands hefiir lagt til að hús læknadeildar
og tannlæknadeildar heiti Hrafiiseyri. Húsið hefur verið kallað Tann-
garður og vill tannlæknadeildin að það nafii haldist áfram. Háskólar-
áð lagði tU að heimspekideild Háskólans velti fyrir sér nafhgiftinni
og er nú beðið eftir áliti hennar.
Eftir að tannlæknadeild Háskól-
ans flutti í húsið, sem stendur við
Vatnsmýrarveg 16, var það manna
á meðal kallað Tanngarður, með
vísan til starfseminnar þar og nafna
stúdentagarða Háskólans, Gamla
Garðs, Nýja Garðs og Hjónagarða.
„Þetta nafn er smellið, en ekki jafn
virðulegt og nöfn annarra bygginga
háskólans," sagði Þórður Harðar-
son, forseti læknadeildar. „Þar sem
læknadeildin er einnig til húsa þar
vildi hún hafa eitthvað um nafnið
að segja og efndi til samkeppni.
Fjölmargar tillögur bárust og
læknadeild samþykkti að mæla með
nafninu Hrafnseyri."
Hrafnseyramafnið vísar til
Hrafns Sveinbjamarsonar, goðorðs-
manns á Eyri við Amarfjörð. Hann
var uppi á síðari hluta 12. aldar og
fram á þá 13. og gat sér frægðar-
orð fyrir að vera læknir góður.
„Hrafn er án efa frægastur allra
íslenskra lækna að fomu og nýju,“
sagði Þórður. „Félagar okkar í
tannlæknadeildinni vom ekki vissir
um að Hrafn hefði verið eins mikill
tannlæknir og hann var almennur
læknir, en við bentum þeim á að á
þeim tímum var ekki um sérgrein-
ingu að ræða. Þá vísuðum við einn-
ig til frásagnar í Hrafns sögu Svein-
bjamarsonar hinni sérstöku, þar
sem segir frá því er Hrafn náði
tönnum úr rostungi, sem rak á land.
Tennumar, sem þóttu mikil ger-
semi, fór hann með til Kantaraborg-
ar í Englandi og gaf þær Tómasi
Beckett, síðar dýrlingi. Það er varla
hægt að sýna tönnum og tann-
drætti öllu meiri virðingu en Hrafn
Sveinbjamarson gerði með þessum
hætti,“ sagði Þórður Harðarson.
I
I
Væntanleg á allar úrvals myndbandaleigur
RUN TILL YOU FALL
Sannsöguleg mynd um baráttu fráskildra foreldra yfir
bækluðum syni sínum. Mynd sem skilur mikið eftir sig.