Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989
Stjörjru-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hanna og systurnar
Eins og alkunna er hefur
bandaríski leikstjórinn Woody
Allen leikstýrt fjölda kvik-
mynda. Meðal mynda hans er
Hanna og systumar sem m.a.
Qallar um þijár systur og sam-
skipti þeirra við eiginmenn
sína. Ein systirin er leikin af
Miu Farrow, hinni Ijósu,
grannvöxnu og fíngerðu vin-
konu Allens.
Mia Farrow
í myndinni er Mia Farrow að
því er virðist hamingjusamlega
gift. í hlutverki eiginmannsins
er breski leikarinn Michael
Caine. í myndinni gerist það
að Michael fer að halda fram-
þjá Miu með systur hennar sem
þó er góður vinur Miu. Það sem
er athyglisvert við hlutverk
Miu er að þó öllum persónum
myndarinnar finnist vænt um
hana, þá vorkennir henni eng-
inn. Það er að sjá að það sé í
lagi þó farið sé á bak við hana
eða hún beitt órétti.
Hjálpsöm
ogyfirveguö
Þetta vekur þá spumingu:
Hvernig persónuleika leikur
Mia Farrow? í fyrsta lagi virð-
ist hún yfirveguð og yfir henni
hvílir ákveðin heiðríkja og ró-
semd. Hún ræðir málin við
fólk en missir aldrei stjóm á
tilfinningum sínum. Við sjáum
fá svipbrigði á andliti hennar
og aldrei öskrar hún eða æpir
á vini og vandamenn. Hún er
einhvers konar klettur í ólgu-
sjó lífsins, en jafnframt er hún
ijarlæg og eilítið óraunveraleg.
Hún er hin skynsama sem
hjálpar öðrum í fjölskyldunni
en lætur lítið með sjálfa sig.
Erhún Vatnsberi?
Þegar ég var að horfa á þessa
mynd og þá persónu sem Mia
Farrow leikur þá vöknuðu hjá
mér nokkrar spumingar. Mia
Farrow hlýtur að vera Vatns-
beri, hugsaði ég. (Ég hef tekið
eftir því að amerískir leikarar
era oft fyrst og fremst að leika
sgálfa sig, á meðan t.d. þeir
bresku nota tækni til að skapa
persónuleika sem er fjarlægur
þeirra eigin.) I öðru lagi var
,-^nér hugsað til þess hvort hún
hefði (og þá um leið Vatns-
berinn) sterkar tilfinningar þó
hún sýndi þær ekki. Er þetta
yfirvegað fólk tilfinninga-
lausara en aðrir?
Hœttulegur
sjálfsagi
Að sumu leyti svaraði myndin
þessu sjálf. Mia Farrow segir
i einu atriðanna: „Af hveriu
halda allir að ég sé tilfinninga-
laus?“ Svarið við því er auðvit-
að það að hún sýnir ekki til-
finningar sínar. Spuming
hennar gefur hins vegar í skyn
að hún hafi sterkar tilfmning-
ar. Ég held að við þurfum að
draga þann lærdóm af þessu
að varasamt er að láta of mik-
ið á þá „sterku“. Þeir sem búa
yfír sjálfsaga þurfa einnig að
slá eitthvað af, til þess einfald-
lega að lenda ekki í því að
aðrir álíti þá tilfinningalausa
og fari að bjóða þeim hvað sem
er.
Já, hún er
Vatnsberi
Og að lokum. Er Mia Farrow
Vatnsberi? Svarið við því er já.
Hún er fædd 9. febrúar 1945,
með Sól og Merkúr í Vatns-
bera, Tungl og Mars í Stein-
geit og Venus í Hrút. Það er
því Steingeitin sem hjálpar upp
á og gerir hana sannfærandi
i hlutverki hinnar öguðu og
ábyrgu mannesku. Bæði merk-
in, Vatnsberi og Steingeit, lúta
stjóm Satúmusar, sem setur
okkur skorður eða gerir kröfu
um ábyrgð, aga ogyfirvegun.
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
UÓSKA
I HA/HJNGV.AU
GÓE>A! H\/AE>
FERDINAND
SMÁFÓLK
Á hvað ertu að hlusta? „Síðdegi Það er mjög fallegt. Ég get hugsað „Siðdegi hvolpsins"
skógarpúkans" eftir Debussy. mér annað fallegra ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Bridsklúbbur stúdenta í
Kaupmannahöfn fagnaði sex-
tugasta starfsári sínu með al-
þjóðlegri tvímenningskeppni í
lok síðasta árs. Meðal þátttak-
enda voru landsliðsmennirnir
sænsku, sem spiluðu á NM í
Reykjavík sl. sumar. Anders
Morath og Svend-Áke
Bjerrgárd. Bjerrgárd vann til
verðlauna fyrir spilamennsku
sína í eftirfarandi slemmu úr
mótinu. Sænski félagi þeirra,
Svend-Olof Flodquist, taldi
reyndar líka, að sérstök verðlaun
hefði átt að veita fyrir sagnir
þeirra í spilinu:
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ D64
V9
♦ G1074
♦ D10843
Austur
jlml + 752
II ^03
♦ A82
*KG6
Suður
♦ ÁKG108
¥Á872
♦ -
♦ Á752
Vestur Norður Austur Suður
— Pass 1 hjarta 1 spaði
2 hjörtu 2 spaðar Pass 3 lauf
3 tíglar 4 spaðar Pass 5 tíglar
Pass 6 lauf Pass Pass
Pass
Útspil: hjartafjarki.
Eftir hægfara þreifingar kem-
ur smám saman í ljós að spilin
falla mjög vel saman.
Bjerregárd drap fyrsta slag-
inn á hjartaás og spilaði strax
litlu laufí á tíu blinds. Hann
þóttist viss um að austur ætti
laufkónginn og vildi halda þeim
möguleika opnum að ráða við
hann þriðja. Áustur fékk slaginn
á gosa og lagði niður tígulás,
sem var trompaður.
Nú þurfti að tímasetja spila-
mennskuna vel. Bjerregárd
stakk hjarta í blindum og svínaði
svo laufsjöunni. Nú hafði hann
samgang í spaða til að stinga
tvö hjörtu í viðbót og taka
trompásinn. Fallegur öfugur
blindur.
SKÁK
Vestur
♦ 93
♦ 10654
♦ KD9653
♦ 9
Umsjón Margeir
Pótursson
Á alþjóðlega mótinu í Wijk aan
Zee í Hollandi í janúar kom þessi
staða upp í skák hins unga hol-
lenska alþjóðameistara Jeroen
Piket, sem hafði hvítt og átti leik,
og ungverska stórmeistarana Gy-
ula Sax.
24. Hxc5! og svartur gafst upp,
því bæði 24. — Rxc5 og 24. —
Hxc5 getur hvítur svarað með 25.
Dc3 og það kostar svart mikið lið
að loka löngu skálínunni. Úrslitin
í Wijk aan Zee urðu sem hér seg-
ir: 1.-4. Ribli og Sax (báðir Ung-
verjalandi), Anad (Indlandi) og
Nikolic (Hollandi), 7'/2 v. af 11
mögulegum. 5.-6. Georgiev (Búlg-
aríu) og Piket (Hollandi), 7 v. 7.-8.
Van der Wiel (Hollandi) og Miles
(Englandi), 6*/2 v. 9.-11. Vaganj-
an og Tseshkovskíj (báðir Sov-
étríkjunum) og Benjamin (Banda-
ríkjunum), 6 v. 12.-13.1. Sokolov
(Júgóslavíu) og Granda Zuniga
(Perú), 5Ú2 v. 14. Douven (Hol-
landi), 5 v.