Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJÓNVARP FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989
UTVARP
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4/ 93,B
6.46 Veðurfregnir. Bæn, séra Kristinn
Ágúst Friðfinnsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 i morgunsárið með Ingveldi Ólafs-
dóttur. Fréttayfirfit kl. 7.30 og 8.30, frétt-
ir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið
úr forustugreinum dagblaðanna að loknu
fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar lesnar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Baldur Sigurösson talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. „Kári litli og Lappi."
Stefán Júlíusson les sögu sína (3). (Einn-
ig um kvöldið kl. 20.00.)
9.20 Morgunleikfimi. Halldóra Björnsd.
9.30 Staldraöu viðl Jón Gunnar Grjetars-
son sér um þáttinn. (Einnig útvarpað kl.
18.20 síðdegis.)
9.40 Landpósturinn — Frá Norðurlandi.
Umsjón: Pálmi Matthiasson á Akureyri.
10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá Jiðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Kynntur tónlistarmaður
vikunnar: Hróðmar Sigurbjörnsson tón-
skáld. Umsjón: Leifur Þórarinsson. (Einn-
ig útvarpað kl. 00.10 nk. föstudag.)
11.66 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.06 í dagsins önn — Kvennaguöfræöi.
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
13.36 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup"
eftir Yann Queffeléc. Guðrún Finnboga-
dóttir þýddi. Þórarinn Eyfjörð les (16).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.06 Fimmtudagssyrpa Magnúsar Ein-
arssonar. (Einnig útvarpað aðfaranótt
sunnudags kl. 2.05.)
15.00 Fréttir.
16.03 Leikrit vikunnar: „Nafnlaust leikrit"
eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóri: Helga
Bachmann. Leikendur: Rúrik Haraldsson,
Kristbjörg Kjeld, Bríet Héðinsdóttir og
Helgi Skúlason. Frumflutningur I Útvarpi
árið 1971. (Endurtekið frá þriðjudegi.)
16.46 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Umsjón: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi — Mendelssohn,
Saint-Saéns og Massenet. „Ruy Blas",
forleikur op. 95 eftir Felix Mendelssohn,
Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur;
Claudio Abbado stjómar. Fiðlukonsert
nr. 3 eftir Camille Saint-Saéns, Itzhak
Perlman leikur með Parísarhljómsveitinni;
Daníel Barenboim stjórnar. „Scénes Pitt-
oresques" eftirJules Massenet. Sinfóníu-
hljómsveitin í Toronto leikur; Andrew
Davis stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni.
18.20 Staldraðu við. Jón Gunnar Grjetars-
son sér um þáttinn. (Endurtekinn frá
morgni.) Tónlist. Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.37 Kviksjá. Þáttur um menningarmál.
Umsjón: Friörik Rafnsson og Halldóra
Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatiminn. „Kári litli og Lappi".
Stefán Júlíusson les sögu sína (3). (Endur-
tekinn frá morgni.)
20.16 Úr tónkverinu. Sinfónísk tónlist.
Þýddir og endursagðir þættir frá þýska
útvarpinu i Köln. Sjöundi þáttur af þrett-
án. Umsjón: Jón örn Marinósson. (Áður
útvarpað 1984.)
20.30 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói. Fyrri hluti. Stjórn-
andi: Petri Sakari. Einleikarar: György
Pauk og Guðný Guðmundsdóttir. Kon-
sert fyrir tvær fiðlur og hljómsveit i d-
moll eftir Johann Sebastian Bach. „Chain
II", fiðlukonsert eftir Witold Lutoslavski.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
21.30 „Völundarhús einsemdarinnar."
Þáttur um skáld Rómönsku Ameríku.
Umsjón: Berglind Gunnarsdóttir. (Áður á
dagskrá í maí 1987.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.07 Frá Alþjóðlega skákmótinu í
Reykjavík. Jón Þ. Þór segir frá gangi mála
í þriðju umferö.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma. Guðrún Ægis-
dóttir les 22. sálm.
22.30 James Galway leikur lög eftir Carl
Nielsen.
22.40 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands i Háskólabiói. Síðari hluti. Stjórn-
andi Petri Sakari. Sinfónia nr. 4 í Es-dúr
„Hin rómantíska" eftir Anton Bruckner.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Margrét Vil-
hjálmsdóttir. (Endurtekinn frá föstudags-
morgni.)
1.00 Veöurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
RÁS 2 — FM 90,1
1.10 Vökulögin.
7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson
og Ólöf Rún Skúladóttir. Fréttir kl. 9.00.
9.03 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Alberts-
dóttur. Fimmtudagsgetraun. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir
tekur fyrir það sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.16 Heimsblöðin
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Umhverfis landið á áttatíu. Margrét
Blíjndal og Gestur Einar Jónasson leika
þrautreynda gullaldartónlist. Fréttir kl.
14.00.
14.06 Milli mála. Óskar Páll á útklkki. —
Hvað er í bíó? Ólafur H. Torfason.
Fimmtudagsgetraun endurtekin. Fréttir'
kl. 15.00 og 16.00.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Ævar Kjartansson
og Sigriður Einarsdóttir. — Kaffispjall upp
úr kl. 16.00, hlustendaþjónustan kl.
16.45. — Meinhorniö kl. 17.30. Fréttir
kl. 17.00 og 18.00.
18.05 B-heimsmeistaramótiö í handknatt-
leik: island - Kuwait. Samúel örn Erlings-
son lýsir síðari hálfleik frá Frakklandi.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram island. Dægurlög með
íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnem-
ann: Vernharður Linnet.
21.30 Fræösluvarp: Lærum ensku. Ensku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjar-
kennslunefndar og Málaskólans Mímis.
Fjórtándi þáttur endurtekinn frá liðnu
hausti. Fréttir kl. 22.00.
22.07 Sperrið eyrun. Anna Björk Birgis-
dóttir leikur þungarokk á ellefta tímanum.
23.46 Frá Alþjóðlegá skákmótinu í
Reykjavík. Jón Þ. Þór skýrir valdar skákir
úr þriðju umferð. Fréttir kl.24.
1.10 Vökulögin. Að loknum fréttum kl.
2.00 verður endurtekinn frá raánudegi
þátturinn „Á frívaktinni", Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalög sjómanna. Að lokn-
um fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægur-
málaútvarpi fimmtudagsins. Fréttir kl.
2.00 og 4.00.
BYLGJAN — FM 98,9
7.30 Páll Þorsteinsson — Fréttir kl. 8.00
og 10. Potturinn kl. 9.00.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Bibba og Hall-
dór kl. 11.00. Fréttir kl. 12.00 og 13.00.
Potturinn kl. 11.00.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson. Fréttir kl.
14.00 og 16. Potturinn kl. 15.00 og
17.00. Bibba og Halldór milli kl. 17 og 18.
18.00 Fréttir.
18.10 Reykjavík síðdegis.
18.00 Freymóður Th. Siguörsson
20.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
RÓT — FM 106,8
13.00 Úr Dauðahafshandritunum (11).
13.30 Mormónar.
14.00 Hanagal. E.
15.00 Alþýðubandalagið. E.
16.30 Við og umhverfið.
16.00 Fréttir frá Sovétríkjunum.
16.30 Umrót. Tónlist, fréttir o.fl.
17.00 Breytt viðhorf. Sjálfsbjörg.
19.00 Opið.
20.00 Fés. Unglingaþáttur. Umsjón: Iris.
21.00 Barnatimi.
21.30 Úr Dauðahafshandritunum. Harald-
ur Jóhannsson les (11). E.
22.00 Opiö hús.
23.30 Rótardraugar.
24.00 Við við viðtaekið. Tónlistarþáttur i
umsjá Jóhanns Eirikssonar og Gunnars
L. Hjálmarssonar. E.
2.00 Næturvakt til morguns.
STJARNAN — FM 102,2
7.30 Jón Axel Ólafsson.
10.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
14.00 Glsli Kristjánsson.
18.00 Tónlist.
20.00 Sigursteinn Másson.
ÚTRÁS — FM 104.8
16.00 FÁ.
18.00 MH.
20.00 FB.
22.00 FG.
1.00 Dagskrárlok.
ÚTVARP ALFA — FM 102,9
10.00 Morgunstund. Guðsorð og bæn.
10.30 Alfa með erindi til þín.
14.00 Orð Guðs til þín.
16.00 Alfa með erindi til þín. Frh.
21.00 Biblíulestur.
22.00 Miracle.
22.16 Alfa með erindi til þín. Frh.
24.00 Dagskrárlok.
HUÓÐBYLGJAN
FM 96,7/101,8
7.00 Réttum megin. Ómar Pétursson.
9.00 Morgungull. Hafdís Eygló Jónsdóttir
12.00 Ókynnt tónlist.
13.00 Perlur og pastaréttir. Snorri Sturlu-
son.
17.00 Síðdegi í lagi. Þráinn Brjánsson.
19.00 Ókynnt tónlist.
20.00 Pétur Guðjónsson.
22.00 Þráinn Brjánsson.
24.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.30—19.00 Svæöisútvarp Austurlands.
ÓLUND AKUREYRI
FM 100,4
19.00 Skólaþáttur.
20.00 Skólaþáttur. Nemendur I Tónlistar-
skólanum. Klassísk tónlist.
21.00 Fregnir.
21.30 Listaumfjöllun.
22.00 Táp og fjör. Kristján Ingimarsson fær
listamenn ( heimsókn.
24.00 Dagskrárlok.
Vænlanleg a allar urvals myndbandaleigur.
INA CITY STRANOLED BY WAft
THBRE'S A NEW FHONT UNE - CRIME
SAIGON
William Dafoe (Platoon, Síðasta freist-
ing Krists) og Gregory Hines (Running
Scared) í magnaðri mynd.
CRS
FOX
VIDCO
Fréttastofan
Sumir fréttamenn ríkisútvarps-
ins virðast eiga svolítið bágt
er kemur að hinu stríðshijáða Afg-
anistan. Þannig nefndu þeir and-
spymumennina „uppreisnarmenn"
í þriðjudagshádegisfréttatímanum
en er leið að kveldi höfðu and-
spymumennimir er berjast nú gegn
leppstjóm hins læknismenntaða
pyntingameistara Najibullah breyst
í „skæruliða". Það væri vel þegið
að heyra frá fréttastofunni hvaða
nafngift Víet-kong-andspymu-
mennimir bám á sínum tíma í
fréttatímum ríkisútvarpsins. En svo
gleymist brátt Afganistan líkt og
Víetnam og hinir stimamjúku herr-
ar í Moskvu og Washington taka
að kýta á öðrum vettvangi. Smárík-
in ijúkandi rústir og sárin gróa
seint eða aldrei. En það er máski
skárra að beijast gegn valdníðing-
unum en þiggja stöðugt ölmusur
og blessunarorð — en það er nú
önnur saga er tilheyrir úlfaldanum
og nálarauganu.
En hvað sem segja má um hug-
takaruglið á fréttastofu ríkisút-
varpsins þá verður ekki af frétta-
mönnunum skafið að þeir leita
ákaflega víða heimilda. í þessu
sambandi er vert að minna á örygg-
isvaktina í rafmagnsleysinu þar sem
öryggisnet fréttaritaranna
reyndist harla tryggt.
Fyrrgreint verklag fréttamanna
ríkisútvarpsins lætur oft lítið yfir
sér en ég hvet hlustendur til að
leggja við hlustir ekki síst þegar
kemur að aðalfréttatímum og
fréttaskýringaþættinum Hér og nú
í vikulokin. Reyndar slaka frétta-
mennimir afar sjaldan á kröfunni
um að . . . hafa heldur það sem
sannara reynist . . . þótt ekki
rúmist nú mikil speki í 3 mínútna
fréttatímunum sem eru oft ansi lit-
lausir. Annars er sannleikurinn af-
stæður eins og allir vita. Þannig
má klippa til viðtöl að frétt breytist
í áróðurspistil. En slík vinnubrögð
eru fáheyrð á fréttastofu ríkisút-
varpsins þótt vissulega gliðni stund-
um möskvar öryggisnetsins.
En það er erfitt að gera öllum
til hæfis og stundum fyrtast stjóm-
málamenn þegar kastljósið fellur
ekki á réttan hátt á verk þeirra.
Stjómmálamennimir hafa vissulega
fuilan rétt á að mótmæla vinnu-
brögðum fréttamanna en það er
ekki þar með sagt að fréttamenn-
imir þurfí að beygja sig undir vilja
valdsmanna. En fréttamenn eru
breyskir eins og aðrir menn og láta
því ef til vill stöku sinnum stjómast
af persónulegum löngunum og
þrám — jafnvel pólitík?
Metnaðarfullur fréttastjóri gætir
þess hins vegar að fréttir séu skoð-
aðar frá fleiri en einni hlið. Þannig
treystir hann upplýsingaflæðið er
fijálst lýðræðissamfélag hvílir á.
Og vissulega er krafan um slíka
upplýsingamiðlun næsta hávær í
nútímasamfélaginu. Við sjáum bara
hvert stefnir með flokksblöðin. Það
gengur ekki öllu Iengur að sveipa
ákveðna stjómmálamenn og flokka
dýrðarljóma í íjölmiðlunum. Þar
verða allir að sitja við sama borð
og sætta sig við smásjárskoðun
fréttahaukanna. Það er hins vegar
heldur óviðkunnanlegt er haukamir
taka upp á því að leggja ákveðna
stjómmálamenn í einelti. Slíkt
vinnulag léttir ef til vill undir með
fréttamanninum er lætur málglaða
stjómmálamenn teygja lopann. En
það er óþarfi að ráðast á menn líkt
og er fréttastjóri Stöðvar 2 og að-
stoðarmaður settust að utanríkis-
ráðherra í fyrrakveld. Temjið ykkur
vinnulag sumra fréttamanna ríkis-
útvarpsins er skoða málin í róleg-
heitum frá ýmsum hliðum. Þessir
menn starfa í kyrrþey og uppskera
góða samvisku. Það er því óþarfi
að nefna þá sérstaklega á nafn.
Stjömudýrkun á ekki við í ranni
útvarpsfréttamanna þótt sjónvarps-
fréttamennimir verði óhjákvæmi-
lega húsgangar.
Ólafur M.
Jóhannesson