Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989
nncu
Erum að taka upp mikið
úrval af prjónakjólum og
peysum frá Micha.
GO
CZ
<
m
XJ
GO
VERSLUNARHUSINU MIÐBÆ
HÁALEITISBRAUT 58-60 S: 38050 105 RVK.
.ekki heppH
Sala getraunaseðla með ensku knattspyrnunni lokar á laugardögum kl. 14:45.
7. LEIKVIK/ 18. FEBRÚAR 1989 11 m 2
Leikur 1 Barnsley - Everton
Leikur 2 Blackburn - Brentford
Leikur 3 Bournemouth - Man. Utd.
Leikur 4 Charlton - West Ham
Leikur 5 Hull - Liverpool
Leikur 6 Luton - Middlesbro
Leikur 7 Q.P.R. - Arsenal
Leikur 8 Sheff. Wed. - Southampton
Leikur 9 Bradford - W.B.A.
Leikur 10 Leicester - Leeds
Leikur 11 Plymouth - Chelsea
Leikur 12 Swindon - Sunderland
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir kl. 17:15 er 91-84590 og -84464.
Ath . SPRENGIVIKA
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Jabbar að hressast
Dugði þó skammt gegn Detroit íThe Forum í Los Angeles
KAREEM ABDUL-JABBAR átti
sinn besta leik í vetur með liði
Los Angeles Lakers þegar
Detroit Pistons kom í heimsókn
á þriðjudagskvöld íThe Forum.
Þrátt fyrir góðan leik Jabbar
sigraði Detroit í leiknum
111:103. Jabbar hefur átt erfitt
uppdráttar í vetur, en síðustu
þrjár vikurnar fyrir stjörnuleik-
inn sáust merki þess að kapp-
inn vœri aðeins að hressast. í
lið Lakers vantaði „Magic“ Jo-
hnson og við það þurfti Jabbar
að koma meir inn í sóknarleik
liðsins.
Detroit hafði forystu mestan
hluta leiksins, en í fjórða leik-
hluta náði Los Angeles að jafna
leikinn. Detroit átti þó góðan enda-
sprett og tryggði sér
Gunnar 111:103 sigur. Best-
Valgeirsson ur í liði Detroit var
skrifar Isiah Thomas, sem
skoraði 23 stig og
tók 15 fráköst! Jabbar var stiga-
hæstur í liði Lakers með 21 stig.
Þetta var þriðji tapleikur Lakers á
heimavelli í vetur. Liðið hefur
reyndar tapað þar þremur af síðustu
fjórum leikjum sínum.
Stjömumar skína
Margir leikmenn sem þátt tóku
í stjörnuleiknum á sunnudag áttu
góða leiki með liðum sínum á þriðju-
dag. Enginn þó eins og Akeem
Olajuwon frá Houston sem skoraði
37 stig og tók 21 frákast í heima-
sigri gegn Boston, 137:123.
Mark Price var stigahæstur leik-
manna Cleveland í sigri liðsins í
Miamiborg, 109:98. Þá skoraði
Charles Barkley 26 stig og tók 14
fráköst í Indianapolis þar sem
Akeem Olajuwon átti stórleik gegn
Boston.
Philadelphia 76ers unnu 113:108 í
jöfnum og spennandi leik. Dom-
inique Wilkins átti stórleik fyrir
Atlanta í Chicago. Hann skoraði
36 stig í sigri Atlanta sem vann
leikinn, 106:98, á lokamínútunum,
en leikurinn var mjög jafn allan
tímann. Michael Jordan var að sjálf-
sögðu stigahæstur heimamanna
með 28 stig.
„Maður leiksins" úr stjömuleikn-
um, Karl Malone, skoraði 28 stig
fyrir Utan í sigri gegn Denver,
119:105. John Stockton átti einnig
góðan leik, hann skoraði 22 stig
og átti 21 stoðsendingu í leiknum.
Loks er að geta sjötta sigurs New
Charles Barkley var öryggið upp-
málað í Indiana.
York Knicks í röð. Liðið vann í
Charlotte, 129:117, og er með ör-
ugga forystu í Atlantshafsriðli aust-
urdeildarinnar.
IMBA-úrslit:
N.Y. Knicks - Charlotte.....129:117
Philadelphia - Indiana......113:108
Cleveland - Miami Heat.......109:98
Houston - Boston Celtics....137:123
Dallas-L.A. Clippers.........117:98
Milwaukee- New Jersey........132:91
Atlanta - Chicago Bulls......106:98
Utah Jazz-Denver............119:105
Seattle- San Antonio........129:113
Detroit-LA. Lakers..........111:103
Washington - Sacramento......107:99
KÍLÓW ÍÆKKAR M110 KRÓMIR!