Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 2

Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 Suðurnes og Hafnargörður: Þorskafli eykst í janúar þrátt fyrir lélegar gæftir Reyknesingar juku þorskafla sinn um 58% ÞRÁTT fyrir mikla umhleypinga það, sem af er árinu, varð botn- fískafli okkar i janúarmánuði nœr jafnmikill og á síðasta ári. Þorsk- afli varð hins vegarmeiri en í fyrra. Botnfiskaflinn nú varð alls 33.349 tonn, tœplega 1.700 tonnum minni. Séu loðna og síld teknar með í dæmið verður munurinn hins vegar um 50.000 tonn. Sala ísfisks jókst verulega milli tímabilanna enda verð fyrir flestar tegund- ir hærra nú. Heildaraflinn í mánuðinum varð 204.023 tonn, en 255.786 í fyrra. Munurinn liggur nær allur í loðnu. Fiskifélag íslands tekur að vanda saman yfirlit þetta og segir þar meðal annars, að í þessum tölum sé ekki tekið tillit til landana norskra skipa á Seyðisfirði og í Neskaupstað, samtals 8.484 tonna. Þá seldu 28 togarar og 3 bátar 4.359 tonn af botnfiski erlendis í janúar nú að upphæð 326,4 milljón- ir króna. í sama mánuði ‘í fyrra seldu 17 togarar og 3 bátar 2.909 tonn af ísuðum bótnfiski erlendis fyrir 193,2 milljónir. Nú var 19.712 lestum af loðnu landað erlendis en 14.447 í fyrra. Jaftiframt tekur Fiskifélagið fram, að af heildarafla togaranna nú hafi afli. 10 frystitog- ara verið 16% og hafi þeir verið með 21,2% af þorskafla togaranna. Þrátt fyrir þrálátar brælur, hafa Reyknesingar sótt fast í janúar. Það ís lokar Ön- undarfirði Flateyri. MIKINN ís rak inn á Önundar- Qörð í gær. Lokaðist fyrir siglingu inn fiörðinn á tímabili. Djúpbátur- inn Fagranesið, sem var að koma firá ísafírði með varning til Flat- eyrar, varð frá að snúa en komst inn á Súgandafjörð um hádegis- bilið. En seinni part dags tókst honum að komast til Flateyrar. Aðspurður sagði Hjalti Hjaltason, skipstjóri á Fagranesinu, að ferðin hefði gengið vel í seinni tilraun, þeir hefðu þurft að ýta til töluverðum ís til þess að komast. Fagranesið kom með mjólk og aðrar nauðsynjar fyrir verslanir, en mjólk hefur ekki komið í heila viku. er eina landsvæðið, sem eykur heildarafla sinn miðað við sama tíma í fyrra. Aukningin nemur um 7.000 tonnum, sem er nærri 50%. Munurinn liggur að mestu í loðnu, en Reyknesingar juku einnig þorsk- afla sinn um 2.300 tonn, úr 3.821 í 6.052 eða um 58%. Sunnlendingar juku þorskafla sinn einnig, úr 674 tonnum í 881. Karfaafli Reyknes- inga jókst einnig lítillega. Þorskafli á öllum öðrum tilgreindum land- svæðum dróst saman, en landanir á þorski erlendis jukust. Þorskaflinn nú var 24.859 tonn, en var í fyrra 23.403. Ýsuafli dróst verulega saman, féll úr 3.312 tonn- um í 1.963’‘0g afli af ufsa og karfa er í kringum 300 tonnum minni nú, varð um 2.500 tonn af hvorri teg- und. Loðnuafli varð 168.031 tonn, en var í fyrra 213.832. Samkvæmt yfírliti LÍÚ um út- flutning á ferskum karfa til Þýzka- lands voru í janúar flutt utan 1.327 tonn á móti 1.138 tonnum í fyrra. í janúar 1987 voru seld 1.398 tonn ytra. Meðalverð nú er á gengi í dag 106 krónur, en var í fyrra 94 á hvert kíló og 1987 78 krónur. Karfaverð á mörkuðunum hér heima var í janúar um 30 krónur. í þessari viku var meðalverð á karfa í Þýzkalandi komið niður í um 75 til 77 krónur. I hveijum janúarmánuði síðustu §ögur á hafa verið flutt utan til Bretlands 2.500 til 2.900 tonn af ísuðum þorski. Verð hefur verið svipað, 0,99 til 0,88 pund, 79 til 89 krónur á kíló á núverandi gengi. Nú voru flutt utan 2.756 tonn, litlu meira en í fyrra en verðið hefur aldrei á þessu tímabili verið lægra, 0,88 pund, 79 krónur. Af ýsu var nú flutt heldur minna utan en í fyrra, en verð var nokkru hærra nú. Kolaútflutningur jókst hins veg- ar og verð hækkaði verulega. Sameiginlegt fískuppboð FYRSTA sameiginlega uppboðið á fískmarkaðinum í Hafinarfirði og Fiskmarkaði Suðurnesja var hald- ið í gær. „Þetta uppboð heppnað- ist mjög vel,“ sagði Helgi Þóris- son, skri&tofiistjóri fiskmarkað- arins í Hafiiarfírði, í samtali við Morgunblaðið. „Við tengjumst tölvu Fiskmarkaðs Suðumesja með mótaldi og fiskverkendur á höfiiðborgarsvæðinu, sem ekki hafa farið á uppboð suðurfrá, bættust til dæmis í hópinn hér,“ sagði Helgi. „Nú geta þeir, sem eru á fískmark- aðinum í Hafnarfirði, boðið í fisk á Fiskmarkaði Suðumesja í Keflavík og Grindavík en ekki öfugt. Það verð- ur næsta skref að gera það mögu- legt,“ sagði Ólafur Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suðumesja. Faxamarkaður kemur síðar inn í sameiginlega uppboðið. Vanskil á staðgreiðslu: Dæmi um 30 milljóna kr. skuld DÆMI eru um að fyrirtæki skuldi ríkissjóði 30 milljónir króna í staðgreiðsluskatta, og einnig, að fyrirtæki hafi ekki skilað skýrslu um fjölda starfe- manna sinna og staðgreiðslu- skatta þeirra, allt síðasta ár. 199 fyrirtæki skulda meira en eina milljón króna í staðgreiðsluskatt, og verður þeim sent bréf þar sem greiðslu verður krafist innan 15. mars, ella verði öllum tiltækum ráðum beitt til að innheimta skuldina, þar með talið lokun. Rúmlega 8300 fyrirtæki hafa enn ekki gert skil á staðgreiðslusköttum starfsmanna sinna til ríkisins, og námu heildarvanskil tæpum IV2 miIHarði króna í byijun janúar. Ölafur Ragnar Grímsson §ár- málaráðherra sagði á fréttamanna- fundi, að fyrirtæki þessi væru bæði stór og lítil og í ýmsum starfsgrein- um, svo sem verslun, þjónustugrein- um, iðnaði og sjávarútvegi. Einnig væru skuldimar mismunandi hár, og nefndi Ólafur Ragnar dæmi um að eitt fyrirtæki skuldaði 4 milijón- ir, annað 10 milljónir, þriðja 20 milljónir og eitt skuldaði um 30 milljónir króna. Tæpum 60 milljónum króna úthlutað úr Kvikmyndasjóði KVIKMYNDASJÓÐUR íslands hefur úthlutað tæpum 60 miljjón- um í sfyrki til leikinna kvikmynda, heimildamynda, teiknimydar, handritagerðar og undirbúnings.Hæstu styrki hlutu Lárus Ýmir Óskarsson, 15 miiyónir og Ágúst Guðmundsson 10 milljónir tU leikinna kvikmynda. 74 umsóknir bárust um styrkina. Að voru veittar sem viðurkenningar og styrkir tæpar 2 inilljónir, til fullvinnslu á fimm handritum að kvikmynd fyrir börn og unglinga en 32 handrit bárust I samkeppnina sem efiit var til. Að sögn Guðbrands Gíslasonar framkvæmdastjtfra sjóðsins, er heildarfjárveiting til hans 71 milljón á árinu en ætti samkvæmt lögum að vera 110 milljónir. Knútur Hallsson formaður úthlut- unamefndar, sagði að Kvik- myndasjóðurinn væri lang stærsti sjóðurinn, sem styddi. listir og menningu í landinu. Hann sagði að 60 milljónir væru ekki há upp- hæð þegar haft er í huga að staða þeirra, sem fara út í kvikmynda- gerð er veik og að upphæðinni þarf að skipta milli margra. Sjóð- stjómin gengur ríkt eftir ná- kvæmri fjárhagsáætlun og nú stendur til að herða kröfur til umsækjenda og endursenda þær umsóknir, sem ekki þykja full- nægjandi. Rithöfundamir Þor- varður Helgason og Birgir Sig- urðsson eiga sæti í úthlutunar- nefnd og sagði Birgir, að frá- gangur handrita væri betri nú en áður þegar menn lögðu jafnvel fram eina setningu sem umsókn um styrk. Fjórar nýjar umsóknir bárust um styrk til leikinna kvikmynda og fengu tvær þeirra styrk. Ágúst Guðmundsson, 10 millj. til sögu- aldarkvikmyndar og Láms Ýmir Óskarsson, 15 millj. til „Bílaverk- stæðis Badda". Auk þess fær Þráinn Bertelsson 9 millj. til kvik- myndarinnar „Magnús" en hann fékk 13 millj. fyrir sömu mynd á síðasta ári. Umbi fær 3 millj. í styrk og kr. 2.350.000 að láni frá sjóðnum. Styrki til heimildamynda hlutu: Anna Bjömsdóttir, 600 þús. fyrir „Ást og stríð“, Jón Hermannsson, 5 millj. fyrir „Hin rámu regin- djúp“, Hjálmtýr Heiðdal 1,5 millj. fyrir „Saga bílsins á íslandi", Magnús Magnússon 400 þús. fyr- ir „íslenskir sjófuglar" og Páll Steingrímsson, 4 millj. fyrir „Tón- list á íslandi". Styrki til undirbúnings hlutu: Hirt hf., 2 millj. fyrir „Palli var einn í heiminum" og María Kristj- ánsdóttir, 1,5 millj. fyrir „Eirar- bakka-Amdís“. Ein teiknimynd hlaut styrk en það er mynd Har- aldar Guðbergssonar, „Völuspá“, 500 þús. Þá fengu nokkrir kvik- myndagerðarmenn 800 þús. vegna námskeiðs í kvikmynda- gerð á vegum Kvikmyndasjóðs. Styrk til handritagerðar hlutu: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Erlingur Gíslason, Guðbjörg Guð- mundsdóttir, Hlín Agnarsdóttir, Jón Tryggvason, Sigríður Hall- dórsdóttir, Sveinbjöm I. Baldvins- son og Þórarinn Eldjám og fá þau 400 þús. hver. Sigurbjöm Aðalsteinsson, Vilborg Halldórs- dóttir og Þorsteinn Marelsson fá 200 þús. hver. Til Kvikmynda- klúbbs íslands er veitt 500 þús. Viðurkenningu og styrk til að fullvinna handrit að bama- og unglingamynd hlutu: Andrés Ind- riðason og Kristín Steinsdóttir, 500 þús. hvort. Guðrún Helga Sederholm og Ævar Öm Jóseps- son 330 þús. hvort og Valdemar Leifsson ásamt Þorsteini Marels- syni 330 þús. - Magnea.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.