Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 17

Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 17 Fiðluveisla Eftir Rafh Jónsson Unnendur fíðlutónlistar eiga von á góðum skammti á 9. áskriftartónleikum Sinfóníu- hliómsveitar Islands í Há- skólabíói í kvöld kl. 20.30. Þetta verða fyrstu tónleikarnir á síðara misseri starfsársins. Þijú verk eru á efhisskránni: Konsert fyrir tvær fíðlur í d-moll eftir J.S. Bach, Fiðlukonsert Chain II eftir Lutoslavsky og að lokum Sinfónfa nr. 7 eftir Bruckner. Hljómsveitarstjóri er Petri Sak- ari, aðalhljómsveitarstjóri Sin- fóníuhljómsveitarinnar. György Pauk verður gestur hljómsveitarinnar á þessum tón- leikum. Hann er tónleikagestum Sinfóníuhljómsveitarinnar að góðu kunnur. Hann hefur nokkrum sinn- um komið hingað til tónleikahalds og síðast fyrir tveimur árum. Guðný Guðmundsdóttir, sem mun leika með Pavk í Bach-konsertin- um, minnist hans með hlýhug: „Hann kom hingað fyrst, þegar ég var nýorðinn konsertmeistari hér, tiltölulega nýkomin úr námi. Það var mikils virði fyrir mig að fá að kynnast svona ágætum fiðlu- leikara, sem ég gat spilað fyrir og fengið ráðleggingar hjá og það gerði ég fyrstu árin sem hann kom hingað. Síðan fékk ég hann til að halda svokallaðan „Masterclass" fyrir nemendur mína í tónlistar- skólanum fyrir rúmum áratug og nú ætlum við að endurtaka þessi námskeið. Síðast þegar hann kom hingað sýndi hann áhuga á því að fá að leika þennan tvíkonsert Bachs og þegar í ljós kom, að hann kæmi hingað ti að leika verk Lutoslav- skys, sem tekur um 17 mínútur f flutningi, fannst honum ófært að spila ekki meira og óskaði eftir því að leika þennan tvfkonsert og bauð mér að spila með sér og er mér mikill heiður að því. Hann frum- flutti fiðlukonsert Lutoslavskys í Lundúnum 198_6, en áður hafði verkið verið flutt í Póllandi." Klassík og nútímaverk Tvíkonsert Bachs er dæmigerður fyrir barokk-tímann; hljómsveitin er lítil, aðeins strengir og sembal og í stað einleiks er tvíleikur, þar sem annað hljóðfærið eltir gjaman hitt. Algengt var að einleikshljóð- færin væru t.d. fiðla og selló eða fiðla og óbó en þessi tvfleikur fiðl- anna var eina verk Bachs af því tagi. Að sögn Guðnýjar er óvenju- legt að hljómsveitin leiki verk sem þetta. Fiðlukonsert Lutoslavskys er hins vegar dæmigerður fyrir nútímatónlist. Guðný segir: „Þrátt fyrir að þessi verk séu mjög ólík eru þau bæði mjög falleg og merki- leg fyrir sinn tíma og György Pauk hefur fullkomið vald á hvaða tón- list sem er.“ „Gleymdi að fara heim“ Fyrir ekki alllöngu birtist viðtal við György Pauk f breska tónlistar- blaðinu The Strad, þar sem hann greinir m.a. frá uppvaxtarárum sínum í Ungverjalandi. Hann hóf fiðlunám komungur og lék víða í Austur-Evrópu áður en alþjóðlegur ferill hans hófst í Lundúnum. For- eldrar hans, sem báðir vom tónlist-' armenn, fórust í seinni heimsstyij- öldinni og hann ólst upp hjá ömmu sinni. 1949 gekk hanní Franz Liszt- -akademíuna í Búdapest, þá yngsti nemandi, sem þar hafði lært. Sam- tíða honum í akademfunni var Pet- er Frankl, hinn frábæri ungverski György Pauk Guðný Guðmundsdóttir píanisti. Þrátt fyrir að vera báðir snillingar í tónlist og stunda nám við sama skóla, kynntust Pauk og Frankl á fótboltavelli, en íþróttir em mikið áhugaefni Pauks. Þeir félagar stofnuðu síðar tríó í Lund- únum ásamt Ralph Kirshbaum, sellóleikara, sem lék nýlega á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar og nýtur það mikilla vinsælda f Bretlandi og víðar. Pauk „gleymdi" eitt sinn að koma heim til Ungveijalands úr tónleikaferð og settist að í Hollandi en að ráði Yehudis Menuhins flutt- ist hann til Lundúna, „sem var þá höfuðborg tónlistarinnar", segir Pauk. „Við deildum kjömm þama, ungu listamennimir, þ. á m. Ashk- enazy, Barenboim, Frankl og fleiri. Nútímatónlist verður að leika vel György Pauk fmmflytur gjaman verk eftir nútímahöfunda: „Igamla daga hittust gjaman tónskáldin og hljóðfæraleikaramir og höfðu áhrif hver á annan. Þannig er það hjá mér. Ég frumflyt gjaman ný verk og mér finnst gaman að vinna með tónskáldunum, og sting þá upp á einu og öðru í sambandi við tónsmíðina. Ég hef áhuga á nútí- matónlist," segir hann. „Mér finnst að allir fiðluleikarar ættu að leika nútímatónlist. Maður getur ekki bara leikið Beethoven og Brahms. Mér finnst þeir frábærir, en það em aðrir líka. Nútímatónlist þarf að spila vel, ekki síður en klassíska. Fólk segir gjaman: Ó, nútímatón- list! Hún er ekkert mál, maður heyrir ekki hvað er verið að spila. Slíkt er léleg frammistaða. Nútíma- tónlist verður að spila vel!“ Fiðlan sem György Pauk leikur á á sér langa sögu. Þetta er Stradivaríusar-fiðla frá 1714, sem György Pauk fékk til afnota eins lengi og hann vill hjá auðugum kaupsýslumanni, sem varð síðar mikill vinur hans. Hann segir um þessa fiðlu að fyrir utan það að vera góð Stradivaríusar-fiðla, þar sem háu tónamir em sérstaklega sterkir og bjartir, em djúpu tónam- ir afar hljómmiklir. Höfundur er blaðafulltrúi Sin- fóniuhljóms veitarinnar. Ævintýri Hoffinanns: Fjórar sýn- ingar eftir SÍÐASTA sýning á óperunni Ævintýri Hoffinanns verður i Þjóðleikhúsinu i lok næstu viku. Aðeins Qórar sýningar eru eftir, en óperan hefur nú 'verið sýnd um 30 sinnum. Að sögn Gísla Al- freðssonar Þjóðleikhússtjóra var upphaflega gert ráð fyrir að sýn- ingar yrðu um 25 talsins. Alls hafa fimm sýningar fallið niður á Ævintýmm Hoffmanns af ýmsum ástæðum. Fyrst féllu þijár sýningar niður vegna veikinda. Einni sýningu varð að aflýsa vegna veðurs og á sunnudaginn féll sýning niður vegna rafmagnsleysis í Reykjavík. Ekki er fyrirhugað að fjölga sýning- um á ópemnni vegna þessa. „Það er ekki gerandi fyrir ópem- söngvara að syngja ópem á borð við Ævintýri Hoffmanns í marga mán- uði. Þetta er þvflík ofraun að það er fágætt að söngvari geti lagt slíkt á sig, eins og Garðar Cortes hefur gert í þessu hlutverki sínu. En óperan hefur gengið mjög vel og það er ástæðan fyrir því að sýningamar hafa orðið þetta margar," sagði Gísli Alfreðsson. Bæjarbíó Fjarðar-rokk TÓNLEIKAR verða haldnir í Bæjarbíói Strandgötu 6 Hafhar- firði í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og fram koma hljómsveitimar Ný dönsk, E-X og laglausir, einnig mun ljóðskáldið Sjón koma og flytja frumsamin ljóð. Tónleikamir ganga undir nafninu Fjarðar-rokk og von- ast aðstandendur tónleikanna til að þetta verði árviss viðburður. (Fréttatilkynning) Oryggisbók -Trompbók .. Tværí oruggiun vexti Sparisjóðirnir bjóða tvo góða kosti sem heuta mismunandi þörfum sparifjáreigenda. TROMPBÓK er nýtt og betra Tronip - alltaf laust og án úttektargjalds. - Vaxtaauki reiknast um áramót á óhreyfða imistæðu. 67 ára og eldri fá hærri vaxtaauka en aðrir \ið- skiptavinir. ÖRYGGISBÓK er bmidinn 12 mánaða reikningur með stighækkandi vöxtum á allri upphæðiiuii eftir því sem inn- stæðan hækkar. Á báðum bókum er ávöxtmi þeirra borin saman við verðtryggð kjör og vexti tvisvar á ári og sú ávöxt- un látin ráða sem hagstæðari er sparifjáreigendum hverju sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.