Morgunblaðið - 16.02.1989, Síða 19

Morgunblaðið - 16.02.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 19 Tónlistarfræðslan Staða hennar og framtíðarhorfiir mmmmm I TAKT VIÐ TIMANN Viltu skara fram úr á hörðum vinnumarkaði? Við bjóðum þér upp á hagnýta kennslu í viðskipta- og tölvu- greinum, ásamt því helsta sem gerir þig að hæfum og dugandi starfskrafti. Þú getur valið um morgun- eftir- miðdags- eða kvöld tíma, eftir því sem þér hentar. Að námskeiðinu loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Innritun og allar nánari upp- lýsingar færðu í símum 68 75 90 og 68 67 90. Við erum við símann til kl. 22 í kvöld. Kristján Sveinsson „Ég haföi fariðánámskeiö hjáTölvu- fræðslunni og líkað vel. í framhaldi af því ákvað ég að drífa mig í skrifstofu- tækni. Námið var mjög fjölbreytt og skemmtilegt og hópurinn samhentur Það kom mér samt á óvart hve námið hefur nýst mér vel í starfi" JÖLVUFRÆÐSLAN Borgartún 28 eftirHjört Þórarinsson Menntamálaráðuneytið stóð fyrir ráðstefnu um tónlistarfræðslu laug- ardaginn 21. janúar sl. Á ráðstefn- unni voru flutt 12 stutt en gagn- merk erindi auk ávarps mennta- málaráðherra, Svavars Gestssonar, í upphafi ráðstefnunnar. í lok ráð- stefnunnar voru fyrirspurnir og pallborðsumræður. Þar sem fyrir- heit var gefíð um að birta þessi ágætu erindi og greinargóðu upp- lýsingar verða þeim ekki gerð sér- stök skil á þessum vettvangi. Tilgangur þessa greinarkoms er að mótmæla áður framkominni til- lögu í verkaskiptum ríkis og sveitar- félaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög taki alfarið að sér launakostnað við tónlistarfræðsl- una undir þeim formerkjum að sam- an skuli fara Qárhagsleg ábyrgð og framkvæmd verkefiia. í um- ræðum var þetta atriði sérstaklega dregið fram. Það er alls ekki sjálf- gefið að menntamálaráðuneytið haldi áfram með faglega náms- stjóm, raunhæft og samræmt námsmat, eftirlit með stigsprófum, annist nauðsynleg tengsl við grunn- og framhaldsmenntun. Þetta hefur verið hlutverk námsstjóra og starfs- manna menntamálaráðuneytisins auk fjármálaeftirlits og aðildar að kjarasamningum kennara. Það væri bein þversögn við markmið verk- efnatilfærslunnar, ef þessum af- skiptum yrði haldið áfram í óbreyttri mynd og jafnvel er það álitamál hvort núgildandi lög um tónlistarfræðslu geti staðist, ef fjár- hagsleg ábyrgð og framkvæmd verður sett á hvert einstakt sveitar- félag. Þéttbýlissveitarfélögin munu vafalaust halda í horfinu hvað fjár- veitingar snertir. Ég hefi mestar áhyggjur af dreifbýlissveitarfélög- um að þar verði önnur verkefni sett framar á §árhagsáætlun þegar syrtir í „fjárhagsálinn“. Einnig má búast við að hinar tímabundnu sveiflur, sem koma á fjögurra ára fresti, muni eitthvað segja til sín. Eftir stendur það álit mitt á þess- um fyrirhuguðu breytingum að bæði stjómarfarslega og menntun- arlega er tónlistarfræðslunni stefnt sé í hættu, ef eftirlit og yfirstjóm menntamálaráðuneytis verður svipt í burtu. „Verði lögð áhersla á að breyta núverandi skiptingn launakostn- aðar við tónlistar- kennsluna, þá eiga tón- listarskólarnir að vera verkefiii ríkisins en ekki sveitarfélaganna.“ Tónlistarfræðslan hefur blómstr- að og dafnað í skjóli þessara laga. Ef litið er til hinna Norðurland- anna, sem hafa reynslu af þessum fyrirhuguðu tillögum verkaskipta- nefndarinnar, þá þolir það engan samanburð. Þá reynslu ættu áhuga- menn um breytinguna að kynna sér. „Verði lögð áhersla á að breyta núverandi skiptingu launakostnað- ar við tónlistarkennsluna, þá eiga tónlistarskólarnir að vera verkefni ríkisins en ekki sveitarfélaganna." Meðan fræðsla almennings og menning þjóðarinnar er talin grund- vallarréttindi, þá má ekki gera þessa menningarþjónustu að versl- unarvöru eða skiptimynt fyrir verk- legar framkvæmdir sveitarfélag- anna. Höfundur er rekstrarstjóri Tón- listarskóla Arnessýslu. Farsímar: Mánaðarreikn- ingnreftalað er fyrir meira en 5 þúsund SÚ nýbreytni hefur verið tekin upp hjá Pósti og síma að farsíma- eigendur, sem greiða meira en 5.000 kr. á mánuði fyrir notkun símans, fá nú mánaðarlegan reikning í stað hins hefðbundna ársQórðungsreiknings. Að sögn Jóhanns Hjálmarssonar, blaðafulltrúa Pósts og síma, er tek- ið upp á þessu notendum til aukins hagræðis. „Menn eiga auðveldara með að hafa yfírsýn yfir notkunina, ef þeir fá sérstakan reikning mán- aðarlega, og það léttir þeim greiðslubyrðina," sagði Jóhann. Hann segir að febrúarmánuður sé fyrsti mánuðurinn, sem greiddur verði með þessu fyrirkomulagi. Hjá innheimtudeild Pósts og síma fengust þær upplýsingar að margir farsímaeigendur hefðu kvartað undan því að geta ekki fengið mán- aðarlegan reikning til þess að átta sig betur á því hvað síminn væri mikið notaður. Þetta ætti til dæmis við um útgerðarmenn, en á bátum væru oft farsímar þar sem yfir tíu manns væru um notin. TH0RPAC FILMA TTOFALT LENGRI 75 METRAR AF GÓÐRI FILMU í EINUM PAKKA THORPAC-FILMAN E R MJÚK OG L0KAST VEL. |TH0RPAC-FILM AN HENTAR VEL í FRYSTINN OG 0RBYLGJ.U0FNINN Thorpac Dreifing: I. Guðmundsson og Co.-hf Sími: 24020.' P&Ó/SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.