Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 24

Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 Leiðtogar Mið-Ameríkuríkja: Ný samþykkt um frið í Nicaragua Costa del Sol, E1 Salvador. Reuter. LEIÐTOGAR Mið-Amerikuríkja samþykktu á þriðjudag, að skæru- liðum, sem beijast gegn sandinistastjórninni í Nicaraga, yrði vísað burt frá bækistöðvum sínum í Hondúras gegn því, að haldnar yrðu fijálsar kosningar í Nicaragua snemma næsta árs. Skærulið- ar segjast ekki munu fallast á þetta fyrr en sandinistar hafi komið á þeim lýðræðislegu umbótum, sem þeir hafa lofað. Samkomulagið náðist eftir tveggja daga fund þar sem reynt var að blása nýju lífi í friðaráætl- unina frá 1987. Var stundum mjög heitt í kolunum á fundinum en honum lauk með því, að Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, las upp samþykktina en í henni segir, að innan þriggja mánaða verði tilbúin áætlun um að leysa upp skæruliðasveitirnar. Sandinistar heiti því á móti að koma á pólitískum umbótum, þar á meðal tjáningar- og fjölmiðla- frelsi, og að takmarka á engan hátt starfsemi stjómarandstöð- unnar. Þá skal efna til þing- og forsetakosninga í Nicaragua ekki síðar en 25. febrúar 1990. Daniel Ortega, forseti Nic- aragua, sagði að fundinum lokn- um, að samkomulagið byndi enda á starfsemi skæruliða í landinu og væri því mikill sigur fyrir sandin- ista. Skæruliðar segja einnig, að samkomulagið sé mikill sigur en ekki fyrir sandinista. Með pólitísk- um umbótum og fijálsum kosning- um yrði þeim greitt náðarhöggið. Ýmsir frammámenn meðal skæru- liða segja hins vegar, að'þeir muni ekki fallast á samkomulagið fyrr en sandinistar hafí í raun efnt eitt- hvað af því, sem þeir lofa. Reuter Salman Rushdie með bókina sína, „Söngva Satans“. Honum hefúr vegnað vel sem rithöfúndur og skrifað mikið um erfitt hlutskipti innflytjenda i Bretlandi en nú standa á honum spjótin úr annarri átt. Sovétríkin: Tölur yfir afbrot birtar fyrstasinni Moskvu. Reuter. SOVÉSK stjómvöld birtu í gær í fyrsta sinn tölulega samantekt um glæpi i ríkjasambandinu og kemur þar meðal annars fram, að morð- um hafi fjölgað í fyrra og vom alls 16.710. TASS-fréttastofan sagði, að á síðasta ári hefðu verið skráðir 1.867.223 glæpir, 68.700 fleiri en á árinu áður. Morðum fjölgaði milli ára um 14,1%, voru 16.710 í fyrra, og nauðganir voru 17.658, höfðu aukist um 5,3%. Mest fjölgaði þjófnuðum, um 44,4%, og svipað var með rán og líkamsárásir. Einu afbrotin, sem hefur fækkað, eru svik og stuldur frá hinu opinbera. „Þegar allt kemur til alls er það aðeins samfélagið sjálft, sem getur spymt við fótum og fækkað glæpun- um en í þeim birtast mörg þeirra vandamála, sem við höfum lengi glímt við,“ sagði í fzvestíu. Múhameðstrúarmenn fera ham- förum gegn „Söngvum Satansu Skora hver á annan að drepa höfundinn, setja milljón dollara til höfiiðs honum o g boða samræmdar þvingxmaraðgerðir gegn útgefimdanum ERLENT London, Teheran, Islamabad. Reuter. UM 10.000 manns söfúuðust í gær saman fyrir framan breska sendi- ráðið f Teheran í íran til að mót- mæla bókinni „Söngvum Satans“ og höfúndi hennar, Salman Rush- die, en Khomeini erkiklerkur hef- Sovéskir fiölmiðlar: Sagt frá hryðjuverkum Sovétliðs í Afganistan Moskvu. Reuter. SAMTÍMIS því er síðustu sovésku hermennimir fara frá Afganistan skýra sovéskir fiölmiðlar I fyrsta sinn frá hryðjuverkum er hermenn- imir hafa unnið i landinu. í lesendabréfúm og athugasemdum frétta- manna birtist einnig hryggð sovéskra borgara vegna árásarstríðs Kremlarstjómar í Afganistan er stóð í níu ár og olli dauða einnar milljónar Afgana auk þess sem nokkrar milljónir manna urðu að flýja heimili sín. Að sögn yfírvalda féllu 15.000 Sovétmenn og 37.000 særð- ust. Dagblaðið Litematúmaja Gazeta birti í gær frásögn blaðamannsins Gennadíjs Botsjarovs af aftöku hóps Afgana og sagði hann að ekkert hefði bent til þess að fólkið tengdist skæruliðahópum. Fólkið, sem var í bíl, neitaði að stansa við sovéska varðstöð. Var þá skotið nokkrum aðvörunarskotum en síðan skutu hermennimir á bílinn, drápu unga konu, særðu bílstjórann og tvo far- þega. Gömul kona og tvö böm sluppu ómeidd. En þegar hermennimir höfðu þar næst fjarskiptasamband við yfirmann sinn og spurðu hvað þeir ættu að gera við fólkið sagði hann: „Ég vil enga fanga." Yfirmað- urinn, Rudykh að nafni bað mennina að fjarlægja öll verksummerki og fara sem hljóðlegast að öllu. „Það gerðu hermennimir," segir í grein Botsjarovs. „Bíllinn var eyði- lagður með brynvagni og síðan urð- aður." Rudykh var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir framferði sitt en var síðar náðaður. Óbreyttur her- maður, Shamkov, er framfylgdi skipun Rudykhs, hlaut fimm ár í þrælkunarbúðum fyrir vikið, að sögn blaðsins. í síðustu viku lýsti blaðið Komsomolskaja Pravda því hvemig afganska ieyniþjónustan hefði pynt- að fanga. Botsjarov segir einnig að mikið hafi verið um liðhlaup í her lepp- stjómarinnar í Kabúl. „Hermennim- ir vissu ekki fyrir hverju þeir voru að beijast eða hvað deilt var um,“ segir fréttamaðurinn. „Við fyrstu hentugleika hlupust þeir undan merkjum. Stundum, einkum þegar á leið, var um að ræða heilar hersveit- ir.“ Komsomolskaja Pravda birti les- endabréf á forsíðu í gær og var þar látin í ljós hryggð yfir því hve stríðið hefði dregist á langinn, mannfallinu og álitshnekkinum. Móðir 19 ára gamals hermanns sem féll í orrustu, skrifaði m.a.:„Ég hef heyrt að það eigi að reisa minnismerki yfir her- mennina [sem féllu]. Mig langar aðeins til að segja að okkur vantar ekki minnisvarða um heiður og frægð heldur sorg.“ Annar bréfritari segist ánægður með að herliðið hafi verið flutt á brott frá Afganistan en minnir á að hefði það gerst fyrr hefðu mun fleiri ungir menn komist heim heilir á húfi. Aðalritstjóri blaðs- ins Neman í Hvíta-Rússlandi segir í ritstjómargrein:„Þetta er söguleg- ur dagur fyrir þjóð sem hafði hug- rekki til að horfast í augu við raun- veruleikann. Það er biturt að við skyldum þurfa að bíða svo lengi eft- ir skynsamlegri ákvörðun og fóma svo rniklu." ur dæmt hann til dauða. Strangur lögregluvörður er nú um Rushdie í London og ekki síst eftir að einn af leiðtogum múhameðstrúar- manna í Bretlandi tók undir með Khomeini og sagði, að bókar- höfúndinn ætti að hengja. Þá ætla Pakistanar að beita sér fyrir sam- ræmdum aðgerðum múhameðs- trúarríkja gegn Rushdie og útgef- endum hans. Starfsmenn breska sendiráðsins í Teheran sögðu, að mannsöfnuðurinn hefði hrópað „dauði yfir Englending- um, dauði yfir Bandarfkjamönnum" og grýtt bygginguna og hefði því verið farið fram á lögregluvemd um húsið. íslamskir byltingarverðir sögðu í gær, að „kúgaðar þjóðir og múhameðstrúarmenn" mættu ekki unna sér hvfldar fyrr en Salman Rushdie og útgefendur hans hefðu verið afmáðir af jörðunni og Ali Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, hefur hvatt til skyndifundar í Samtökum múhameðstrúarríkja, ICO, til að ræða um bókina. Milljón doUarar fyrir að drepa Rushdie Útvarpið í Teheran flutti í gær áskorun frá Khomeini erkiklerk þar sem hann sagði, að „höfundur bókar- innar, sem stefnt er gegn islam, spá- manninum og kóraninum, og allir þeir, sem áttu hlut að útgáfunni, hafa verið dæmdir til dauða. Ég skora á alla múhameðstrúarmenn að drepa þá hvar sem þeir finnast". ír- anska ríkissjónvarpið skýrði svo frá því, að Hassan Sanei, háttsettur klerkur í íran, hefði heitið milljón dollurum hveijum þeim, sem tækist að drepa Rushdie. Breskir fjölmiðlar sögðu í gær, að vopnaðir lögreglumenn úr sérsveitum Scotland Yards gættu Rushdies nótt sem dag enda sagði Sayed Abdul- Quddus, leiðtogi múhameðstrúar- manna á Norður-Englandi, að Rush- die hefði „afskræmt múhameðstrúna og hann verður að gjalda þess. Það á að hengja hann. Eg er fjölskyldu- maður en ég er tilbúinn til að fóma henni allri til að koma höndum yfir bókarhöfundinn". Minnir á nasismann í Bretlandi verður þetta mál sífellt alvarlegra og á þingi hefur þess ver- ið krafist, að Quddus verði rekinn úr landi vegna ummæla sinna. Þá hafa bókabrennumar, sem múha- meðstrúarmenn hafa gengist fyrir að undanfömu, minnt margan mann- inn, einkum eldri kynslóðina, óþægi- lega á bókabrennur nasista í Hitlers- Þýskalandi. Talsmaður pakistanska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær, að sendi- herrum allra múhameðstrúarríkja í landinu yrði kynnt áætlun um sam- ræmdar aðgerðir gegn bókinni „Söngvum Satans", sem væri hið argasta guðlast. Er þar meðal ann- ars kveðið á um, að allar bækur frá Viking Press, sem gefur út bókina, verði bannaðar í islömskum ríkjum nema útgáfan geri öll eintök af henni upptæk og einnig á að fara þess á leit við Breta og Bandarflq'amenn, að þeir banni bókina. A sunnudag kom til mikilla mót- mæla við bandarísku menningarmið- stöðina í Islamabad vegna fyrir- hugaðrar útgáfu bókarinnar í Banda- ríkjunum og í þeim og öðrum mót- mælum í Pakistan hafa samtals sex menn misst lífíð. Salman Rushdie, sem býr í Bret- landi, er af indversku bergi brotinn, fæddur í Bombay og ólst upp í trú á spámanninn frá Mekka. í sögunni „Söngvum Satans" flallar hann á táknrænan hátt um baráttuna milli góðs og ills og spyr ýmissa spuminga um trúna, dregur til dæmis í efa, að kennisetningar hennar séu heilag- ur sannleikur. Reuter Síðustu sovésku hermennimir aka brynvögnum sínum um brú yfir Amú Darja-fljótið á landamærum Afganistan og Sovétríkjanna í gær. Brottflutningi sovéska herliðsins lauk á umsömdum degi en samið var um tilhögun og tímasetningu í Genf á síðasta ári. V estur-Þýskaland: Stærsti hassfarm- ur sem fundist hefur Wiesbaden. Reuter. VESTUR-ÞÝSKA lögreglan lagði hald á stærsta hassfarm sem fundist hefúr i landinu, að sögn lögregluyfirvalda í gær. Atta tonn af hassi fundist í 320 kössum um borð í flutningaskipinu Northstar sem skráð er í Singa- pore, þegar það lagðist við bryggju í Hamborg fyrir viku síðan. Hassfarmurinn er þrisvar sinn- um meira magn en fannst á öllu árinu 1986. Söluverðmæti hassins er talið nema mörgum tugum millj- óna króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.