Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 25

Morgunblaðið - 16.02.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 &5 Kaupmannahöfn: Allt með friði og spektí Krístjaníu Kaupmannahöfn. Reuter. FRIÐUR ríkti að nýju í „fríríkinu" Krisljaníu í Kaupmannahöfn í gær eftir átökin, sem urðu á þriðjudag, þegar lögreglan lokaði öllum veitingastöðunum þar. Lögreglan réðst inn á 13 veitingastaði, sem fengið höfðu frest til 1. febrúar til að sækja um vínveitingalejrfí, en ekki hirt um að verða við kröfum hins opinbera, áður en frestur- inn rann út. Fríríkið hefur ver- ið fleinn í holdi stjómvalda allt frá því að til þess var stofnað, skömmu eftir að danski herinn rýmdi byggingamar þar fyrir sautján árum. Fjölda hústökufólks, hvað- anæva að úr Kaupmannahöfn, dreif að, þegar fréttist um að- gerðir lögreglunnar. Kastaði fólkið steinum og bensín- sprengjum, en lögreglan beitti táragasi og kylfum. Flestir af íbúm Kristjaníu héldu sig í hæfilegri fjarlægð og fýlgdist með átökunum. „Við færðum lögreglunni kaffí og blóm,“ sagði Jorgen Tulipan, sem á sæti í stóm fríríkisins. íbúamir hafa hummað fram af sér allar tilraunir til að koma Kristjaníu undir umsjón hins opinbera. í aðgerðunum á þriðjudag, hreinsaði lögreglan allt úr kæli- geymslum veitingahúsanna og fjarlægði drykkjarföng. Að sögn dómsmálaráðuneytisins meiddust fímm lögreglumenn í átökunum, en enginn þeirra alvarlega. Átta voru handtekn- ir. Jorgen Tulipan sagði, að veitingahúsin hefðu opnað aft- ur strax og lögreglan hefði horfíð af vettvangi. „Hér er allt komið í eðlilegt horf aftur,“ sagði hann. Fhigslysið á Azoreyjum: Hvorki um að ræða bilun né skemmdarverk Lissabon. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR sem vinna að rannsókn flugslyssins á Azoreyj- um í síðustu viku, þegar Boeing 707-flugvél í eigu bandarísks flugfélags rakst á fjallstind á eyjunni Santa Maria með þeim afleiðingum að 144 manns fór- ust, hafa visað á bug tilgátum að skemmdarverk eða bilun hafi valdið slysinu. Báðir flugritar vélarinnar hafa fundist og búist er við að niðurstöður rannsókn- arinnar liggi fyrir innan mánað- ar. „Ég hef hlustað á samræður flugmannsins og flugumsjónar- manna í flugtumi og allt virðist hafa farið fram með eðlilegum hætti,“ sagði Antonio Alves Junior, yfírmaður portúgalska flugráðsins. Hann sagði að ekki væri hægt að ráða af segulbandsupptökunum að skemmdarverk hefði verið unnið eða bilun orðið í flugvélinni áður en hún rakst á fjallstind á Santa Maria á miðvikudag í síðustu viku. Þegar flugvélin fórst var hún á leið með ítalska ferðamenn frá Bergamo á Ítalíu til Dóminikanska lýðveldisins. Já, ótrúlegt en satt. Viö hjá Heimilistækjum hf. erum tilbúnir aö gefa allt aö 5.000 krónur fyrir gamla tækiö þitt; sjónvarpið eöa þvottavélina og kr 3.500 fyrir gamla kæliskápinn þinn, án tillits til gerðar, ástands og aldurs. Við tökum tækið sem greiðslu upp í nýtt PHILIPS eða PHILICO sjónvarp, þvottavél eða kæliskáp. Tilboð þetta gildir aðeins í stuttan tíma. Sækjum og sendum. Að sjálfsögðu sendum við nýja tækið heim til þín og sækjum það gamla þér að kostnaðarlausu. Hafðu samband eða láttu sjá þig í verslunum okkar við Sætún 8 eða Kringlunni. Heimilistæki hf Sætúni 8 • Kringlunni SÍMI: 69 15 15 SÍMI:69 15 20 ísanuuK^utK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.