Morgunblaðið - 16.02.1989, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 16.02.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 29 Borgarráð: Skipulag gerir ráð fyrir iðn- aðarsvæði við Arbæjarhverfi Bókanir vegna sorpböggunarstöðvar í SVARI Þorvaldar S. Þorvaldssonar forstöðumanns Borgarskipu- lags, vegna fyrirspurnar AJfreðs Þorsteinssonar fulltrúa Fram- sóknarflokksins um sorphauga og sorpmóttökustöð, kemur fram að á staðfestu aðalskipulagskorti er gert ráð fyrir iðnaðarsvæði á Hádegismóum og við Eggjar innri og hafi ekki komið fram athugasemdir við það. Fyrirspurnin var lögð fram í borgarráði vegna mótmæla íbúasamtaka Árbæjarhverfis við fyrirhugaðri sorpböggunarstöð ofan við byggðina. I fyrirspum Alfreðs segir, að samkvæmt skipulagsreglugerð um aðalskipulag skuli auðkenna svæði fyrir sorphauga eða sorpeyðingar- stöðvar og að auki svæði fyrir iðn- að, sem hefur í för mað sér meng- un eða aðra hættu. „í nýlega sam- þykktu Aðalskipulagi Reykjavík- ur, sem gilda á til ársins 2004, er ekki gert ráð fyrir slíkri starf- semi í svokölluðum Hádegismóum, austan Suðurlandsvegar, í ná- grenni við Árbæjar- og Selás- hverfi, en nú hafa borgaryfírvöld lýst áhuga sínum á að koma þar fyrir sorpmóttökustöð, sem tvímælalaust fellur undir fyrr- greind ákvæði.“ Spurt er hvort það hafí verið mistök eða talið ónauðsynlegt að gera grein fyrir möguleikum á sorpmóttökustöð á þessu svæði með því að auðkenna það sérstak- lega. Hyggjast borgaryfirvöld halda því til streytu að byggð verði sorpmóttökustöð á þessu svæði þrátt fyrir öflug mótmæli íbúa og fyrirtækja í næsta nágrenni. Og loks, verði sú raunin á, hvemig ætla borgaryfírvöld að bæta úr þeim ágalla aðalskipulagsins sem lýst hefur verið? í svari borgarskipulags segir að í greinargerð Aðalskipulags Reykjavíkur sé kafli um sorphirðu og áætlun borgaryfírvalda í sam- vinnu við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru raktir allir kostir sem til greina hafa komið og gerð grein fyrir þeim kostum sem stefnt er að. „Þessi kafli er hluti staðfests aðal- skipulags og komu ekki fram nein- ar athugasemdir við hann hvorki við vinnslu né kynningu skipulags- ins, né heldur við umfjöllun í skipu- lagsstjóm eða ráðuneyti. Á stað- festur aðalskipulagskorti er gert ráð fyrir iðnaðarsvæði í Hádeg- ismóum og við Eggjar innri og hafa ekki komið athugasemdir við það. Samkvæt upplýsingum um pökkunarstöð er hún ekki talin mengunarvaldur né hættuleg byggðu umhverfí. Ekki er hér um að ræða sorphauga eða sorpeyð- ingarstöð í venjulegum skilningi." í framhaldi af svari borgar- skipulagsins lét Alfreð Þorsteins- son bóka að í viðtali við Morgun- blaðið hafi Davíð Oddsson borgar- stjóri viðhaft ummæli um stjóm Framfarafélagsins í Árbæjar- hverfí, sem eru lítt sæmandi borg- arstjóranum í Reykjavík þegar hann líkir andstöðu íbúa í Árbæj- arhverfi við mótmæli bænda gegn lagningu símastrengs í upphafi aldarinnar. Með þeim ummælum er borgarstjóri með óbeinum hætti að koma því á framfæri, að íbúar Fiskverð á uppboðsmörkuðum 16. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta MeAal- Magn Helldar- verö verA verA (lestir) verA (kr.) Þorskur 70,00 67,00 67,65 13,266 897.511 Þorskur(ósK) 62,00 39,00 47,81 6,232 298.017 Ýsa 118,00 94,00 98,66 2,531 249.703 Ýsa(ósl.) 121,00 106,00 120,21 0,548 65.874 Steinbítur 42,00 41,00 41,71 1,398 58.351 Steinbítur(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,013 195 Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,025 383 Ufsi(ósl.) 15,00 15,00 15,00 0,014 218 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,017 255 Lúða 350,00 300,00 334,91 0,079 26.625 Langa 31,00 31,00 31,00 0,093 2.907 Keila 18,00 18,00 18,00 0,197 3.546 Samtals 65,67 24,417 1.603.585 Selt var aðallega úr Núpi ÞH, frá Stakkholti hf., Gullfara HF, Guðrúnu Björgu ÞH og Björgu HF. I dag verða meðal annars seld 3 tonn af þorski frá Tanga hf., 4 tonn af ýsu frá Enni hf., 3 tonn af ýsu og 10 tonn af þorski frá Eskey hf. og 0,1 tonn af laxi frá íslandslaxi. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 74,00 66,00 68,09 6,215 423.185 Þorsk.(ósl.l.bL) 86,00 48,00 53,30 0,900 47.970 Þorsk.(ósl.dbL) 41,00 26,00 38,42 0,552 21.207 Þorskur(dbL) 52,00 52,00 52,00 2,260 117.520 Þorsk(ósl1-4n) 47,00 40,00 46,20 5,598 258.646 Ýsa 112,00 86,00 98,02 0,796 78.026 Ýsa(ósL) 105,00 96,00 98,47 0,254 25.012 Steinbltur 56,00 49,00 52,68 14,434 760.408 Koli 87,00 85,00 85,93 0,921 79.141 Langa 15,00 15,00 15,00 0,025 375 Lúöa(smó) 290,00 215,00 288,19 0,166 47.840 Skötuselur 110,00 110,00 110,00 0,011 1.210 Hrogn 220,00 45,00 165,34 0,268 44.310 Samtals 58,79 32,400 1.904.850 Selt var frá Heimaskaga hf., Krossnesi SH og Farsæli SH. I dag verður meðal annars selt óákveðið magn af þorski úr Far- sæli SH og Ólafi Bjarnasyni SH. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 59,00 54,50 56,39 25,193 1.420.567 Undirmál 30,00 28,00 29,48 0,690 20.340 Ýsa 110,00 61,00 99,69 4,945 492.997 Ufsi 22,00 22,00 22,00 0,050 1.100 Karfi 44,50 15,00 32,77 3,855 126.316 Steinbítur 54,00 35,00 42,13 1,390 58.560 Lúöa 400,00 250,00 302,67 0,090 27.240 Langlúra 12,00 12,00 12,00 0,033 396 Kella 12,00 12,00 12,00 0,100 1.200 Skata 71,00 71,00 71,00 0,050 3.550 Samtals 59,13 36,396 2.152.266 Selt var aðallega úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK, Eldeyjar-Boða GK og Þorsteini Glslasyni GK. f dag verður selt úr dagróðrabát- um ef á sjó gefur. heils bæjarhverfis séu illa upplýst- ir og á móti framförum í meðferð sorps en það er ekki rétt. Ekki sé verið að.leggjast gegn nýrri tækni heldur hafí þeir sem um málið hafi fjallað, fagnað þeim breyting- um sem fyrirhugaðar eru í með- ferð sorps. < „Hins vegar hafa íbúamir rétti- lega bent á, að staðsetning sorp- pökkunarstöðvar í næsta nágrenni við gamalgróið íbúðarhverfi sé út í hött og skapi óþarfa mengunar- hættu. Þann rétt til mótmæla get- ur hvorki borgarstjóri né neinn annar tekið af íbúunum með hvatvíslegum ummælum á borð við þau, sem borgarstjóri lét falla í viðtali við Mbl.“ í svari borgarstjóra vegna bók- unnar Alfreðs Þorsteinssonar seg- ir: „Alfreð Þorsteinsson, vara- áheymarfulltrúi Framsóknar- flokksins, skýtur langt yfír markið í þessari bókun sinni. Ummæli mín í Morgunblaðinu gefa ekki tilefni til þeirra ámæla, sem fram koma í bókuninni. Á hinn bóginn kemur fram í viðtali við mig í Morgunblaðinu að varhugavert er að mynda sér skoðun á tilteknu álitaefni meðan þekkingargrund- völlurinn er í molum og jafnframt er stórámælisvert af hálfu ein- Þjóðleikhúsið: Síðasta sýninff á Fjalla- Eyvindi SÍÐASTA sýning verður í kvöld, í Þjóðleikhúsinu á verki Jóhanns Sigurjónssonar, Fjalla-Eyvindi og konu hans, í leikstjórn Bríetar Héðinsdótt- ur. Siguijón Jóhannsson teiknaði leikmynd og búninga, Leifur Þór- arinsson samdi tónlist við verkið og ljósahönnuður er Páll Ragnars- son. Náttsöngur og söngdagskrá NÁTTSÖNGUR verður f kvöld klukkan 21 í Fríkirkjunni i Hafharfirði. Þetta er ný- breytni i helgi- Frfkirjan í Hafn- Safiiaðar- arfirði. ms. Sigurður Þórir Sigurðsson myndlistarmaður og Gunnar Helgason útibússtjóri. Sýning í SPRON SIGURÐUR Þórir Sigurðsson opnaði nýlega málverkasýningu í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis að Álfabakka 14, Breiðholti. Á sýningunni eru 13 olíumyndir málaðar á árunum 1986—1989 og eru þær allar til sölu. Sýningin stendur yfír til 31. mars nk. og er opin frá mánudegi til fimmtu- dags, frá klukkan 9.15—16.00 og föstudaga frá klukkan 9.15— 18.00. Fundaröð um málefini grunn- skóla Kór kirkjunnar mun leiða söng- inn undir stjóm organistans, Smára Ólafssonar. Sólveig Sigríð- ur Einarsdóttir, Magnús Gíslason og Gunnar Jónsson, sem eru nem- endur Snæbjargar Snæbjamar- dóttur í söngdeild Tónlistarskólans í Garðbæ, flytja söngdagskrá á undan tíðagjörðinni. Tónleikar á Hótel Borg SVERRIR Stormsker heldur tónleika á Hótel Borg í kvöld. Um það bil ár er nú síðan Sverr- ir Stormsker hélt síðast opinbera sólótónleika á höfuðborgarsvæð- inu. Efnisskráin samanstendur af frumsömdum sálmum og bama- gælum, sem Sverrir kyijar við eig- in slaghörpuleik. Tónleikamir hefj- ast klukkan 22 en húsið verður opnað klukkan 21. Leiðrétting í FRÉTT um íslandskeppni í hár- greiðslu og hárskurði var rang- lega farið með keppnisstað. Rétt er að keppnin verður á Hótel ís- landi sunnudaginn 19. febrúar og hefst kl. 9 að morgni og stendur fram til kl. 16:30. Menntamálaráðuneytið er nú að hefia röð fimda þar sem Svav- ar Gestsson menntamálaráð- herra, Guðrún Ágústsdóttir að- stoðarmaður hans og Gerður G. Óskarsdóttir ráðunautur ( upp- eldis- og kennslumálum munu ræða við skólastjóra, foreldra og kennara f grunnskólum Reykjavíkur. Markmið fundanna er að gefa fólki tækifiæri á að bera fram eigin hugmyndir um uppeldis- og kennslumál og hvernig nýta mætti þær i menntakerfinu. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Hagaskólanum í dag fyrir skóla- stjóra, foreldra og kennara í Aust- urbæjarskóla, Grandaskóla, Haga- skóla, Melaskóla, Landakotsskóla, Tjamarskóla og Vesturbæjarskóla. Næsti fundur verður í Laugar- nesskóla 21. febrúar fyrir ísaks- skóla, Langholtsskóla, Laugalækj- arskóla, Laugamesskóla, Voga- skóla og Æfíngaskóla KHÍ. Þriðji fundurinn verður í íþróttahúsi Seljaskóla 7. mars fyrir Breiðholts- skóla, Fellaskóla, Hólabrekku- skóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla. Fjórði fundurinn verður í Hvassa- leitisskóla 16. mars fyrir Álfta- mýraskóla, Bústaðaskóla, Breiða- gerðisskóla, Fossvogsskóla, Hlíða- skóla, Hvassaleytisskóla og Rétt- arholtsskóla. _Loks verður fimmti fundurinn í Árbæjarskóla 4. apríl fyrir Árbæjarskóla, Ártúnsskóla, Foldaskóla og Selásskóla. stakra borgarfulltrúa að ala á ranghugmyndum og bábiljum í sambandi við þá umhverfísbylt- ingu, sem sorpböggunarstöð í rauninni er. Frá borgarstjóra- embættinu hefur margoft komið fram, að á allar athugasemdir verði hlýtt og margvíslegar aðrar staðsetningar verði kannaðar. Að öðm leyti vísa ég árásum borgar- fulltrúa Alfreðs Þorsteinssonar á bug.“ Bjami P. Magnússon fulltrúi Alþýðuflokksins, lét bóka að hann teldi að enn hafí ekki komið fram efnisleg rök sem hreki vilyrði borg- arráðs og beri að harma þá af- stöðu fulltrúa íbúanna að þekkjast ekki boð um kynnisferð til að kanna slíkan rekstur. „Ég er þeirr- ar skoðunar að rétt sé eftir sem áður að kanna allar hugsanlegar lausnir og athuga hvort ekki megi ná fram farsælli lausn málsins.“ Guðrún Ágústsdóttir fulltrúi Alþýðubandalagsins óskaði bókað: „Varðandi þetta mál vísa ég til tillögu stjómarandstöðu í skipu- lagsnefnd um meðferð málsins, en hún er þar í frestun." Stjörnubíó sýnir „Mann- ætusýkilinn“ STJÖRNUBÍÓ hefiir tekið til sýninga myndina, „Mannætu- 8ýkiliinn“. Með aðalhlutverk fara þau Kevin Dillon, Shawnee Smith og Donovan Leitch. Leik- stjóri er Chuck Russel. í friðsælum smábæ í Banda- ríkjunum er skyndilega allt i hers höndum er ungir sem aldnir hverfa á dularfullan hátt, segir í kynningu á efni myndarinnar. Kevin Dillon og Shawnee Smith í hlutverkum sínum. Kynfiræðslu- námskeið Kynfræðslan verður með tvö námskeið á næstunni. í dag hefst fimm vikna námskeið, „Kynreynsla kvenna", fyrir konur og í byrjun mars verður haldið námskeið fyrir foreldra barna og unglinga. Leiðbeinandi á báðum nám- skeiðunum er Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kynffæðingur. Athugasemd frá Hollustu- vernd DANÍEL Viðarsson hjá Holl- ustuvernd rikisins vildi koma á framfæri athugasemd vegna fféttar um bann við sölu úða- brúsa, sem birtist í Morgun- blaðinu í gær. í fréttinni segir að Eiturefna- nefnd geti veitt undanþágu frá banninu. Daníel segir að allar umsóknir um slíkar undanþágur verði að berast Hollustuvemdinni, sem síðan taki ákvörðun í sam- ráði við Eiturefnanefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.