Morgunblaðið - 16.02.1989, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.02.1989, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 fUUfiLHPffi Alþýðubanka- mót í brids HIÐ árlega Alþýðubankamót Bridsfélags Akureyrar og Al- þýðubankans verður haldið í Al- þýðuhúsinu á Akureyri laugar- daginn 18. febrúar. Um er að ræða tvímenningsmót með Mitchell-fyrirkomulagi. Mótið hefst klukkan 10.00 og lýkur því um kl. 18.00. Tekið er á móti þátt- tökutilkynningum í Alþýðubankan- um á Akureyri á afgreiðslutíma. Þátttökugjald er 1.300 krónur á par, en innifalið í verði er kaffi meðan á spilamennsku stendur. „Börn norðursins“ opnuð í Dynheimum Myndir úr norrænum barnabókum Sýningin „Börn norðursins" verður opnuð i Dynheimum í dag klukk- an 17.00. Sýningin samanstendur af 70 til 80 myndskreytingum úr norrænum barnabókum. Hún er hingað komin á vegum Norræna hússins og Bamabókaráðsins, en þetta er sama sýning og haldin var í Osló dagana 26.-30. september 1988 í tilefni af 21. Alþjóðaþings IBBY þar. Þing þetta bar yfirskriftina „Barnabókmenntir og nýju miðlamir". Skipuleggjendur og umsjónar- menn þingsins voru fulltrúar IBBY-deildanna á Norðurlöndum í sameiningu. Frá íslandi voru send verk eftir Brian Pilkington, Önnu Cjmthiu og Sigrúnu Eldjám. A meðan á sýningunni stendur í Dyn- heimum verður lesið upp úr bama- bókum og sagðar verða sögur fyrir böm og unglinga í grunnskólum Akureyrar. Lesarar verða þær Kristín Steinsdóttir, Þórey Aðal- steinsdóttir og Sigríður Schiöth. Það er Norræna upplýsinga- skrifstofan á Akureyri sem skipu- lagt hefur sýningarhaldið hér norð- anlands. Forstöðumaður hennar er Bergljót Jónasdóttir. Upplýsinga- skrifstofan tók til starfa þann 1. mars 1988. Hlutverk hennar er að sinna upplýsinga- og kynningar- starfsemi um norræn málefni, nor- ræna menningu og listir. í sam- vinnu við Norræna félagið í Reykjavík veitir skrifstofan upplýs- ingar um það helsta sem er á döf- inni svo sem ferðir og ferðamögu- leika til handa þeim, sem í félaginu eru. Þá eru einnig handbærar upp- lýsingar um norræna lýðháskóla og möguleika ungs fólks til að stunda nám í þeim og auk þess veitir skrifstofan upplýsingar um Nordjobb, sem er sumarvinna ungs fólks. Skrifstofunni berast einnig bækur og blöð fi-á Norðurlanda- ráði, Norrænu ráðherranefndinni og frá Norrænu upplýsingaskrif- Siglugörður: Félag sjó- stangaveiði- manna stofiiað Siglufírði. NÝLEGA var stofhað hér á Siglufirði Félag sjóstangaveiði- manna. Formaður í því félagi er Helgi Magnússon og með honum í stjóm em Viðar Ottesen, Kristrún Halldórsdóttir, Ragn- heiður Rögnvaldsdóttir og Sveinn Aðalbjörasson. Félagið er opið öllum Siglfirðing- um, hvort sem þeir eru búsettir á Siglufírði eða annars staðar. - Matthías Fjárhags- áætlun Akur- eyrarbæjar samþykkt Fjárhagsáætlun Akureyrarbæj- ar fyrir árið 1989 var samþykkt á bæjarstjómarfundi á þriðjudag með niu atkvæðum gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Alþýðubanda- lagsins. Fulltrúar minni flokk- anna, Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks, lögðu fi-am sfnar breytingartillögur á fundinum, en þær vom allar felldar. Breytinga- tiUögur bæjarráðs vom allar sam- þykktar. Fulltrúar minnihlutans vildu nýta tekjuafgang af vatnsveitunni til reksturs og framkvæmda á vegum bæjarsjóðs. Einnig vildi minnihlutinn gera ráð fyrir að skuldir bæjarsjóðs myndu vaxa á milli ára. Ekki yrði því gert ráð fyrir að greiða niður skuldir bæjarins, eins og nú er áætl- að, heldur að hafa Iántökur jafnháar afborgunum. Breytingatillögur bæj- arráðs fólust í nokkrum smáatriðum, eða ákveðnum leiðréttingum sem upp komu á milli umræðna auk þess sem ákveðið var að hækka framlag til vélasjóðs um þtjár milljónir og til nýframkvæmda um 3,2 milljónir kr., að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar bæjarfulltrúa. Þær breytingar, sem orðið hafa á niðurstöðutölum frá fyrri umræðu, gera ráð fyrir að rekstrargjöld lækki um rúmar 8,5 milljónir króna. Rekstrargjöld eru því áætluð nú 929.549.000 krónur. SLj. m $9 Morgunblaðið/Rúnar Þór Berg-ljót Jónasdóttir, forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrif- stofunnar, og Halldóra Ágústsdóttir í stjóra Norræna félagsins unnu að uppsetningu sýningarinnar í Dynheimum í gær. stofunum, sem starfandi eru á hin- um Norðurlöndunum. Upplýsingaskrifstofunni á Akur- eyri er ætlað að efla tengsl við norrænu félögin á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd, Sauðár- króki, Ólafsfírði, Dalvík, Húsavík og Kópaskeri. Þess má geta að Norræna ráðherranefndin setur það að frumskilyrði að sltkar upp- lýsingaskrifstofur, sem reyndar eru starfandi á öllum Norðurlöndunum, séu sem flærstar höfuðborgum landanna. Sýningin „Böm norðursins" er opin til 22. febrúar. Opið er virka daga frá kl. 15.00 til 19.00 og um helgar frá kl. 15.00 til 18.00. Morgunblaðið/Rúnar Þór Flugleiðavélin á maganum i skafli utan flugbrautar. Á efri mynd- inni sést er hlaðmenn bera póstinn á bakinu inn í flugstöðina og á myndinni til hliðar sjást skemmdirnar á nefhjóli vélarinnar Flugleiðavél hlekktist á í lendingu: Sáum ekkert út, en vissum að vélin var ekki lengur á flugbrautinni - sagði einn af farþegunum 32 „VÉIIN virtist lenda eðlilega. Þá fór hún að dansa til á brautinni og þegar hún svo stöðvaðist mjög snögglega, urðum við greinilega vör við að hún var ekki lengur á brautinni. Við höfðum hinsvegar ekki hugmynd um hvar hún staðnæmdist þvi hún þyrlaði upp svo miklum snjó að við sáum ekki glóru út. Þá kom flugstjórinn aftur í vélina og sagði hana hafa lent í smáskafli og bað farþega að halda ró sinni,“ sagði Jón Lárusson, einn af 32 farþegum, sem komu með Fokker-vél Flugleiða, TF Náttfara, til Akureyrar kl. 14.07 í gær. Auk farþeganna voru þrir i áhöfii vélarinnar. Vélinni hlekktist á í lendingu með í nótt. Viðgerðarmenn Flugleiða þeim afleiðingum að hún fór út af komust ekki norður í gær sökum brautinni austanmegin beint á móti ófærðar, en von er á þeim með vara- flugstöðinni. Hún keyrði beint inn í hluti strax nú í morgunsárið. Flug- metersháan snjóskafl og sat í honum vallaiyfirvöld á Akureyri lokuðu flugvellinum fyrir allri umferð í gær þar sem vélin var of nálægt braut- inni, en búast má við að hann verði opnaður um leið og flugvélin verður fjarlægð. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við Morg- unblaðið að orsök óhappsins væri ókunn. „Vélin kom inn til lendingar við góð skilyrði, í 20 hnúta vindi af norðvestri. Bremsuskilyrði voru ágæt á brautinni. Aðflug og lending virðast hafa verið eðlileg. Þegar vél- in var komin um það bil hundrað metra inn á brautina, fór hún að rása til vinstri og þrátt fyrir tilraun- ir flugstjóra til að snúa vélinni inn á brautina aftur, tókst það ekki. Vélin stefndi út af og stöðvaðist í ruðningi utan brautar. Farþegamir 32 gengu frá borði án þess að meið- ast nokkuð og fengu þeir farangur sinn afhentan þar, eins og venju- lega. Þetta virðist allt hafa farið blessunarlega vel og farþegar voru hinir rólegustu," sagði Einar. Nefhjól vélarinnar skemmdist töluvert. Aðrar skemmdir eru ókunn- ar og virtust hreyflar og skrúfublöð vera heil. Rannsóknarlögreglan á Akureyri vann að athugunum í gær fyrir Loftferðaeftirlitið. Að því búnu var farið að grafa snjóinn undan vélinni svo hægt verði að fjarlægja vélina af staðnum. Óvíst er um fjár- hagslegt tjón, sem hlotist hefur af óhappinu og ekki heldur vitað hvað viðgerð tekur langan tíma. Þetta var eina flugvélin, sem lenti á Akureyri í gær. Óllu öðm flugi Flugleiða til Akureyrar hefur verið frestað þar til búið er að fjarlægja Náttfara og er farþegum, sem bókað eiga frá Akureyri, bent á að hafa samband við afgreiðslu Flugleiða klukkan 10.00 árdegis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.