Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.02.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 37 Þegar 1 króna verð- ur að 600 krónum eftirPétur Pétursson Margt er nú rætt og ritað um lánskjör, vísitölu og vexti, gráan markað og hvaðeina, er snertir lífskjör og afkomu almennings. Forsætisráðherrann hótaði nýverið hnútasvipu í baráttu sinni við „verð- bólguvandann". Hvort honum tekst betur með því verkfæri en þeim sem áður kváðust ætla að „koma bönd- um á verðbólgubálið" skal ósagt látið. Svo eru margir, sem hafa talað um að „slá á verðbólguna". Kunningi minn einn sem lenti í harðbráki á gamlárskvöld fyrir all- mörgum árum kvaðst ekki hafa komist hjá því að stilla til friðar er handalögmál upphófust á miðnætti, (í gestaboði og boðflenna spillti friði) rétt í þann mund er bálköstur logaði glatt í nágrenni. Hann gekk þannig frá friðarspilli, að eigin sögn, að þar sem munnbólgunni sleppti, þar tóku glóðaraugun við, en þar sem nefíð hafði verið, þar var hola. En það er allt önnur saga. Við samanburð á vöxtum og bankakostnaði er gilti í tíð ráðu- neytis Hermanns Jónssonar árið 1942 og kjara þeirra er lántakendur búa við nú má nefna eftirfarandi dæmi. Þau sýna forvexti, stimpil- gjöld og bankakostnað af sömu lánsupphæð. Allar tölur eru auðvit- að afstæðar, og samanburður allur gerður með fyrirvara, en dæmið er eigi að síður fróðlegt, og sannar að fleira ber að telja til útgjalda en vextina eina. Sagan er ekki öll sögð með prósentutölu þeirra. Bankakostnaður mun nú 0,65% af víxlum er nema hærri upphhæð en 85 þúsund krónum. Fastur kostnað- ur hinsvegar reiknaður lágmark kr. 620 og gildir þá einu hve lág skuld- arupphæðin er. Við þetta bætist svo stimpilgjald og vextimir sjálfir, eins og þeir eru á hverjum tíma. Víxilnóta frá árinu 1942 sýnir að bankinn krafðist kr. 43,45 í vaxtakostnað, bankaþóknun og stimpilgjald fyrir víxilskuld að upp- hæð kr. 2.550,- í 90 daga. Nú krefst sami banki kr. 730,- í sama kostnað fyrir sömu upphæð í sama dagafjölda. Við nánari athugun kemur í ljós að vaxtaupphæðin er nærri þreföld nú, stimpilgjaldið nær Pétur Pétursson tvöfalt, en bankakostnaður rúmlega 600-faldast. Ilöfundur er fyrrverandi þulur. Royal Cristina við Palmaströndina (búðahótelið Royal Cristina er glæsilegra og betur búið innan dyra sem utan, en flest önnur sólarstrandahótel. fbúðirnar eru rúmgóðar og smekklegar og allur búnaður þeirra eins og frekast verður á kosið. Royal Cristina stendur við Palmaflóann þar sem verslanir, veitinga- og skemmtistaðir eru á hverju strái og 10 mín. akstur inn til Palmaborgar. HALL VEIGARSTÍG 1, SlMI 28388 Bók Kund- era í ann- arriútgáfu BÓKAÚTGÁFA Máls og menn- ingar hefur sent frá sér nýja útgáfu bókarinnar „Óbærilegur léttleiki tilverunnar", eftir tékkneska rithöfundinn Milan Kundera, i þýðingu Friðriks Rafiissonar. Skáldsaga þessi kom fyrst út árið 1984 og var gefín út á íslensku árið 1986. Helsta sögusvið bókar- innar er Tékkóslóvakía árið 1968, en leikur hennar berst víða. Milan Kundera fæddist í Prag árið 1929. Hann hefur fengist við tónlist og kvikmyndir auk bók- mennta og fengist við tónlist og kvikmyndir auk bókmennta og hlot- ið fjölmargar viðurkenningar fyrir skáldverk sín. Árið 1975 fluttist hann til Frakklands þar sem verk hans koma út nú, þar eð þau fást ekki birt í heimalandi hans. þvottavélar Úrvalsvestur- þýskar þvottavélar. 5 gerðir - hagstætt verð. Góð greiðslukjör. Einar Farestveit KCo.hf. BORQARTÚNI28, SÍM118996. L«IA 4 stoppar vlA dymar ómœldri léttúð og lausung!! Gleði- og gáskadrotthj'ngin EJsa Lxind ríður á vaðiö og lætur gámminn geysa ásamt flokki valinkunnra gleðimanna í skammdegissprengju ársins. Sé.rstakir gestir okkar heittelskujðu^JEIsu eru m.a. galsa- bræðurnir Halli og Laddi; raftæknirinn og stuðgjafinn Skúli Amper Oh,márssohVSmári ,,sjarmör“ Sjutt, skóari; Magnús, tjóndi; Valgerður Molíer og Leifur óheppni. Undir og yfir og allt urp kring er svo stórsöngvarinn og feröagrínarinn Egill Óláfsson ásamt hinni tón- og söngelsku hljómSV.eit Magnúsar Kjartanssonar. Og siðast en ekki sjst: gleðigjafinn Nadia Banine. Stjórnandi og spennugjafi: Egill Eðvarðsson. . .'.'4" . v v Þriréttuö veislumáltiö aö hætti Elsu Lund. Hú,siö Opnar kl. 19.00. Boröapantanir daglega i simum 23333 og 23335. — Elsa: ..Betra eráð gripa sima panta i tima svo að ekki þurfi að hima úti í kulda og trekk meö mina". v Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld. Enginn býður betur en Þórscafé í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.