Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 40

Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 t Móðir okkar, ELISABET EINARSDÓTTIR, áður búsett é Linnetstíg 9b, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði hinn 14. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börnin. t Móðir mín, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR kaupkona, lést 6. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til starfsfólks Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund- ar, ásamt trúsystkinum úr Fíladelfíusöfnuðinum og ættingjum og vinum, sem mundu eftir henni í veikindum hennnar. Guð blessi ykkur öll. Ólafur Jóhannesson. t Bróðir minn, HÁLFDÁN ÓLSEN GUÐMUNDSSON, lést í Borgarspítalanum 14. febrúar. Guðrún Guðmundsdóttír og fjölskylda. t Eiginmaður minn, GUÐMUNDUR SÍMONARSON, Melabraut 5a, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu þann 14. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Guðmundsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VIGDÍS BRUUN MADSEN, Hringbraut 58, Hafnarfirði, verður jarðsungin föstudaginn 17. febrúar kl. 15.00 í Víðistaða- kirkju Hafnarfirði. Jens Erllngsson, Sólveig Erllngsson, Guðrún B. Madsen, Ragnar Jónsson, Karen B. Madsen, Sigurður Ingólfsson og barnabörn. t Hjartkær eiginkona mín, KRISTJANA H. EINARSDÓTTIR SCHMIDT, Furugrund 66, verður jarðsett á morgun, föstudaginn 17. febrúar kl. 10.30, frá Fossvogskirkju. Robert Schmidt, Bernhard Reynir Bryndís Gfsladóttir, Ágúst Robert, Birna Skarphéðinsdóttir, Kristján Grétar, Vala Hallbjörnsdóttir, Kjartan Leo, Ragnhelður Friðsteinsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir ókkar, tengdafaðir og afi, SVEINBJÖRN BERENTSSON, Túngötul, ^ Sandgerði, er lést 6. febrúar, verður jarösunginn frá Hvalsneskirkju laugardag- inn 18. febrúar kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeir sem vildu minnast hans, vin- samlegast láti líknarstofnanir njóta þess. Hólmfríður Björnsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við fráfall og útför GÍSLA KÁRASONAR Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands. Guð blessi ykkur. Sigrfður Jónatansdóttir, Anna Edda Gfsladóttir, Birglr Steinþórsson, Margrét Stefanfa Gfsladóttir, Þórdfs Lilja Gfsladóttir, Þráinn Hafsteinsson, Konráð Breiðfjörð Pálmason, Marfn Slgurgeirsdóttir. Minning: Sigurður Gísla- son kaupmaður Fæddur 10. apríl 1910 Dáinn 7. febrúar 1989 Það er erfitt að trúa því að hann afi Siggi sé dáinn. Þó hann væri búinn að stríða við erfíðan sjúkdóm í þó nokkur ár, þá vonuðumst við eftir að hann ætti langt eftir hér á jörðu. En hann lést í Borgarspítal- anum þann 7. febrúar. Afi fæddist á Patreksfirði 10. apríl 1910, ellefti í röðinna af 13 systkinum, og af þessum stóra hópi eru aðeins 3 á lífi. Foreldrar hans voru Gísli Sigurðsson trésmiður og Kristjana Sigríður Pálsdóttir. Um fermingaraldur fluttist hann til Reykjavíkur þar sem hann stund- aði ýmsa atvinnu um árahil, eða þar til hann stofnaði Ávaxtabúðina um miðjan fertugasta áratuginn. Ávaxtabúðin var lengst af við Óð- instorg, eða þar til afi hætti verzlun- arrekstri fyrir um 15 árum. 22. októBer 1935 kvæntist hann Jósefínu Guðnýju Björgvinsdóttur, eða ínu ömmu eins og við krakkam- ir kölluðum hana. Þau hjónin eign- uðust 4 böm. Elst er Rósa móðir okkar, gift Gunnari Jóhannessyni, búsett í Seattle. Gísla Albert misstu þau á unga aldri, aðeins tæpra tveggja ára. Næst er Erla, gift Jóni Eiríkssyni, búsett í Reykjavík, yngstur er Gísli, einnig búsettur í Reykjavík. Ina amma lést fyrir aldur fram 2. maí 1982, og var það mikill miss- ir fyrir okkur öll, sérstaklega afa. Við bamabömin emm 7 samtals og bamabörnin eru orðin 6. Það er alltaf gaman að koma á Óðinsgötuna til afa og ömmu. Þá fór maður alltaf fyrst inn til ömmu þar sem ýmislegt góðgæti var á borðum og leikföngin biðu á stiga- pallinum. Síðan var farið út í búð að hitta afa þar sem oft var horft löngunaraugum á sælgætisborðið ög hafði afi gaman af, og rétti svo mola yfir borðið. Stundum fékk maður að hjálpa til í búðinni, þó sjálfsagt megi deila um hversu mik- il hjálp var í okkur, og einstöku sinnum fengum við að fara niðrá lager með afa að sjá ,jólasveininn“. Jafiivel þegar við urðum eldri og bjuggum í úthyerfum borgarinnar, þá þótti það ekki bæjarferð vera ef við komum ekki við á Óðins- götunni. Afi og amma voru alltaf mjög stór hluti af lífi okkar. Á jólunum komum við öll saman og hefði okk- ur ekki fundist nein jól vera án afa og ömmu og á afmælum okkar létu t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við frófall og jarðarför LAUFEYJAR PÁLSDÓTTUR. Ragna Blandon, Sígurður Haukur Lúðvígsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls GUNNARS HANSSONAR. Hulda Valtýadóttir, Kristfn Gunnarsdóttir, Stefén P. Eggertsson, Helga Gunnarsdóttlr, Michael Dal, Hildigunnur Gunnarsdóttlr, Ásgeir Haraldsson, Hanna Þórðarson, og fjölskylda. t Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur vináttu og samúð við andlát og útför sonar okkar, bróður, mágs og dóttursonar, MAGNÚSAR GRÉTARS HEIÐARSSONAR. Jón Heiðar Magnússon, . Óli Þór Heiðarsson, Valdfs Heiðarsdóttir, Lérus Heiðarsson, Júlfanna Guðmundsdóttir, Kolbrún Leifsdóttir Guðrún Sveinsdóttir, Hörður Jónsson, Leifur Heiðarsson, Lérus Björnsson. t Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURJÓNS ÞORSTEINSSONAR, Kleppsvegi 58, Reykjavfk. Ásta Haraldsdóttir, Guðmundur Péll Jónsson, Haraldur Jónsson, Guðrún H. Jónsdóttir, Elfsabet G. Jónsdóttir, Helga Jónsdóttir. t Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall og útför sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EGGERTS LOFTSSONAR, Kleppsvegi 6. Mélfrfður Slgfúsdóttlr, Matthfas Eggertsson, Margrét Guömundsdóttir, Guðbjörg Eggertsdóttir, Kristjén Aðalbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. 4 þau sig aldrei vanta. Þær voru líka ófáar nætumar sem við fengum að gista þar, alltaf vorum við velkom- in, og þá var oftast farið í bíltúr, annaðhvort eitthvað út úr bænum eða niðrá höfn og í vesturbæinn að kaupa ís. Aldrei gleymast heldur veiðiferð- imar á Amarvatnsheiðina. Við bræðumir voram búnir að heyra talað um þær í mörg ár af báðum öfunum okkar og pabba, og loksins urðum við nógu stórir til að fá að vera með í „karlaveiðiferð". Þvílíkt ævintýri. Afí varð aldrei samur maður eft- ir að amma dó, en mamma fékk hann til að koma með sér til Seattle um tímá, en þangað fluttum við fyrir um 10 áram. Við reyndum öll að stytta honum stundir eins og hægt var, og mikið fannst honum gaman að fá að dunda sér við að mála húsið og grindverkið hjá mömmu og pabba og ekki var lak- ara að hafa billjard í kjallaranum. Hann bókstaflega yngdist um mörg ár við að riija upp uppáhalds tóm- stundagamanið frá unglingsáran- um og stóð honum enginn á sporði í þeim leik. Ekki leið á löngu þar til hann lagði upp í aðra Ameríkuferð og þá í fylgd með Gísla frænda. Það vora ánægjuleg jól og áramót, en um leið þau síðustu sem við höfðum afa hjá okkur. Afí var rólegur og þolinmóður maður, hafði gaman af að glíma við allskonar gestaþrautir og púslu- spil og að spila á spil. Hann kenndi okkur að leggja kapal og á sína rólegu vísu var hann hrókur alls fagnaðar. Um áratuga skeið var hann virk- ur meðlimur í Oddfellowreglunni, í stúkunni Þórsteini nr. 5, og átti hann þar margt góðra vina og fé- laga. Það þurfti eitthvað mikið að bjáta á til að afi sleppti stúkufundi á fimmtudegi og sýnir það best hversu hjartfólginn félagsskapurinn og reglan var honum. Við vitum að söknuðurinn er jafnsár hjá frændum okkar og frænku, Sævari, Sigga, Guðna og Dagnýju, og minningamar þær sömu sem koma upp í hugann þessa dagana. Við höfum ekki getað hitt afa eins mikið og við hefðum viljað, en á svona stundum er erfítt að búa langt í burtu. Mamma og pabbi fylgja afa síðasta spölinn, en við bamabömin í Ameríku, makar okk- ar og böm eram öll með hugann á íslandi um þessar mundir og færam skyldfólkinu heima á Fróni okkar innilegustu þakkir fyrir góða umönnun og hjálpsemi við afa síðustuárin. Nágranna hans, Hall- dóra, færam við sérstakar þakkir svo og Bemharði húsverði og öðram vinum og nágrönnum í Miðleiti 5 og 7. Fyrir stuttu fór afi að tala um að koma í heimsókn til okkar einu sinni enn, en þetta er löng og erfið ferð og fannst okkur best að hann biði fram á vor og yrði hjá okkur í sumar, en úr því gat ekki orðið, sláttumaðurinn mikli sá fyrir því. Afi verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, fímmtudag, klukkan 13.30. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Sandra, Birgir og Haukur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.