Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 41

Morgunblaðið - 16.02.1989, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1989 ÓlöfS. Magnús■ dóttir — Kveðja Lífíð er óáreiðanlegt og getur verið grimmt og eitt af því grimm- asta sem getur gerst, er”að ung manneskja deyr í blóma lífsins. Eg á mjög erfitt með að skilja að það sé staðreyndin um Ólöfu Sæunni Magnúsdóttur. I langan tíma vorum við Ólöf bestu vinkonur og óaðskiljanlegar. Hún var mér sem systir, en þó að við hefðum haft lítið samband síðustu árin, þá var þetta vinskapur sem hefði efalaust átt eftir að end- umýjast, ef við hefðum haft tæki- fæn til þess. Ólöf var mér mjög kær, og núna finnst mér eins og ég hafí glatað parti úr lífí mínu sem ég átti sam- eiginlegan með henni. Ég á eftir að sakna hennar svo lengi sem ég lifí. Sérstakar samúðarkveðjur vil ég senda Einínu, Binnu, Helenu, Magnúsi og Kidda. Marta Johnny verður stilltur Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Vertu stilltur, Johnny („Johnny Be Good“). Sýnd í Háskólabfói. Bandarisk. Leikstjóri: Bud Smith. Handrit: Steve Zacharias, Jefif Buhai og David Obst. Fram- leiðandi: Adam Fields. Kvik- myndataka: Robert D. Yeoman. Helstu hlutverk: Anthony Mic- hael Hall, Robert Downey, jr., Paul Gleason og Una Thurman. Það skiptir frama skólamanns miklu vestur í Bandaríkjunum að geta eitthvað í íþróttum, t.d. amerískum fótbolta, sem er víst að verða mjög vinsæll um allan heim. Háskólar keppa um að fá til sín íþróttastjömur menntaskólanna og lokka þær til sín með ýmsum gylliboðum. Gamanmyndin Vertu stilltur Johnny („Johnny Be Good“), sem sýnd er í Háskólabíói, er um það og segir frá algerlega frábærum fótboltamanni að nafni Johnny (Anthony Michael Hall") í mennta- skólaliði einhvers smábæjarins, sem útsendarar stórra háskóla reyna með öllum brögðum að fá í sínar raðir. „Vertu stilltur" getur verið fynd- in svo langt sem hún nær á meðan menntaskólahúmorinn er á mörk- um fáránleikans, persónumar em ýktar og boðskapurinn fjarri góðu gamni. En það er gallinn við þess- ar ódým og metnaðarlausu ungl- ingaafþreyingar að þær geta ekki látið sér nægja að vera bara uppá grín. Þær verða helst að burðast með tilgang og boðskap og taka siðferðilega afstöðu í einhverri gríðarlegri alvöm, sem yfírleitt er hnýtt við endinn af fullkominni smekkleysu og væmni. Mörg ágæt- isskemmtanin hefur farið algerlega í hundana á síðustu fimm eða tíu mínútunum útaf þessu og svo er um mynd Háskólabíós. Alvara málsins er þessi: Johnny er rotinn. Hann nýtur þess að vera eftirsóttur og láta millana bjóða í sig og fara í skoðunarferðir í alla fínu háskólana og láta dekra við sig. Því er lýst á skemmtilega mein- hæðinn hátt þegar skólamir em að lokka til sín íþróttaefnin, líka er gaman að tilraunum þjálfarans (frábærlega leikinn af Paul Glea- son), sem er langt í frá nein mann- vitsbrekka en slægur djöfull, til að hagnast á stráknum og útsendarar ríku háskólann em vemlegir smjaðrarar. En svo fer stráksi að sjá að sér og gera sér grein fyrir að hann hefur látið eigingimi og sjálfselsku ráða sér en ekki sitt unga og góða smábæjarhjarta, með slæmum af- leiðingum fyrir alla þá sem hann þráðu og ekki síst þá sem skemmt höfðu sér svolítið á myndinni fram að því. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu samúð og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóð- ur, ömmu og systur, JENNEYJAR SIGRÚNAR JÓNASDÓTTUR, Borðeyri. Ottó Björnsson, Sigrfður Magnúsdóttir, Erling óttósson, Gunnhildur Höskuldsdóttir, Björn Ottósson, Sigrfður Gfsladóttir, Alda Ottósdóttir, Halldór Þorvaldsson, Jónas Ingi Ottósson, Helena Jónsdóttir, Sigurður Þór Ottósson, Malan fsakssen, Heimir Ottósson, Majbritt Hanssen, barnabörn og systkinl. Skrifstofutækninám Betra verð - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 (n 41 TJöfðar til X Xfólks í öllum starfsgreinum! + Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur vinsemd og samúð við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS LÁRUSSONAR, Dvalarheimilinu Hlff, ísafirði. Fanney Jónasdóttir, Inga Guðbjörg Ingólfsdóttir, Hörður Ingólfsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ORLANE ANAGENESE Barátta við tímann Forskot húðarinnar á gangi tímans Kynntídag frákl. 13-18. S AR A, Bankastræti 8. ■ ■ OG PRENTARABORÐ « ► Stflhreint útlit, mjög traustur frágangur. Unnt er aö nota sex mismunandi pappírsform í einu, aöeins eitt handtak þarf til aö skipta um pappir. Þrjár grindur fylgja boröinu en hægt er aö fá aukagrindur, eftir þörfum hvers og eins. ► Öll boröin eru á hjólum meö tilheyrandi læsingu. ÞÆGILEG HONNUN SEM HENTAR ÖLLUM! Við bjóðum nú nýja linu í tölvu- og prentaraborðum, alíslenska hönnun og framleiðslu. Borðin bjóða upp á sveigjanleika og mikil þægindi fyrir alla þá sem vinna við tölvur og prentara. ▼ Þetta borö er fyrir flestar stæröir stórra prentara. Þaö hefur bæði botngrind fyrir pappír og grind fyrir útprentun. Fæst meö eöa án pappírsraufar. yTölvuborö meö stillanlega plötuhæð. Hægt er að fá hliöarplötu sem passar báöum megin. Einnig fæst standur undir sjálfa tölvuna og er hann festur á boröfótinn. AÞetta borð hentar vel fyrir alla minni prentara. Fæst meö eða án grindar. TOLVU HUGBÚNAÐUR L SKRIFSTOFUTÆKI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.