Morgunblaðið - 08.06.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JUNI 1989
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Sambandið:
Guðjón vann þessa orrustu
en bíður hans styijöld?
ÞAÐ VERÐUR ekki sagt um 87. aðalfund Sambands íslenskra
samvinnufélaga, að hann eigi effcir að lifa í minningu manna
íyrir þær sakir að um litríkan og tíðindamikinn fund væri
að ræða. Miklu fremur eiga menn eftir að minnast fundarins
fyrir það sem ekki var sagt. Ólafiir Sverrisson, nýkjörinn
formaður Sambandsstjórnar, þakkaði Guðjóni B. Ólafssyni,
forstjóra, ekki störf hans og samstarf. Guðjón minntist í ræðu
sinni Qölmargra, einkum starfsmanna Sambandsins með þakk-
læti, áður en harin ,í lok ræðu sinnar, þakkaði samstarfið við
Sambandssljórn, með einni setningu, en hann þakkaði ekki
Vali Arnþórssyni fyrir samstarfið. Valur þakkaði ekki heldur
Guðjóni, þegar hann flutti langa kveðjuræðu seinni fundar-
daginn. Það var flestum ljóst, sem þennan fund sátu að sætt-
ir stríðandi fylkinga höfðu ekki tekist, en á hinn bóginn var
gert óopinbert samkomulag um vopnahlé til eins árs.
Flestir aðalfundarfulltróar
virtust gera sér fulla grein
fyrir því að samvmnuhreyfíngin
er í sárum, með hroðalega af-
komu liðins árs á bakinu. Tapið
nam tæpum 1.200 milljónum og
eigið fé Sambandsins rýmaði um
nálægt 50% . Því hafí þessi stund
ekki verið vel til átaka fallin.
Að vísu hvein hraustlega í ein-
staka manni á fundinum, en sá
skilningur var lagður í slíkar
rokur að menn væru að fá útrás
fyrir uppsafnaðan pirring og
hreinsa andrúmsloftið.
Vopnahlé í eitt ár
Veigamikill þáttur í því vopna-
hléi, sem nú hefur verið gert, er
kjör Ólafs Sverrissonar sem for-
manns Sambandsstjórnar. Ólaf-
ur, sem áður var kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Borgfirðinga,
heyrir tvímælalaust til þeim hópi
samvinnumanna sem ber hag
kaupfélaganna úti á landi fyrir
bijósti. Hann er náinn vinur
Vals Arnþórssonar, fyrrverandi
stjómarformanns, og breytingar
á stjórn undir hans formennsku
verða litlar frá því sem var hjá
Vali. Því er reyndar haldið fram
af ákveðnum mönnum að Valur
stýri ennþá Sambandinu að hluta
til, í gegnum Ólaf. Þó er líklegt
að friðurinn milli forstjóra og
framkvæmdastjóra Sambands-
ins annars vegar og stjómar
Sambandsins hins vegar, verði
meiri en verið hefur að undanf-
ömu, þar sem persónulegri an-
dúð manna í milli er ekki fyrir
að fara í sama mæli og í stjórnar-
formennskutíð Vals. Það hefur
ekki farið leynt á undanförnum
árum að köldu hafí andað milli
þeirra Guðjóns og Vals.
Kjör Ólafs einkennist líka af
því, að samvinnuhreyfíngin hef-
ur ekki fundið sér þann kandídat
til formennsku, sem breið sam-
staða er um. Árið, sem framund-
an er, verður því notað til þess
að leita ljósum logum að manni
sem verður að vera fær um að
sameina ólík sjónarmið dreifbýlis
og þéttbýlis. Það er ekki lítið
verk, því hafsjór skilur á milli
þeirra samvinnumanna sem tala
fyrir málstað samvinnubænda og
þeirra sem tilheyra neytenda-
kaupfélagi eins og KRÖN. Þá
þarf að ná sáttum um verslunar-
deild Sambandsins og með hvaða
hætti viðskipti kaupfélaganna
verði við deildina. Á fundinum
komu fram miklar óánægjuradd-
ir með viðskipti við deíldina, og
ar tískuorð á fundinum.) Þó var
bent á, að þótt nú hefði skapast
það sem starfsmenn Sambands-
ins nefndu „vinnufriður", þá
væri enginn fullnaðarsigur unn-
in. Hann ynnist aðeins með
rekstri sem skilaði hagnaði, en
enn væri langt í land að svo væri.
Guðjón gerði grein fyrir af-
komu Sambandsins fyrstu fjóra
mánuði þessa árs, og í máli hans
kom fram að heildartap á rekstr-
inum var 58 milljónir, miðað við
210 milljónir í fyrra. Þessu virt-
ust fundarfulltrúar fagna, en
dæmið er ekki jafneinfalt og
virðast kann í fljótu bragði.
Ríkisstjómin felldi gengið um 4%
2. janúar síðastliðinn og sú geng-
isfelling kostaði Sambandið
síðasta árs var hreint veltufé
orðið neikvætt um 983 milljónir
króna, sem þýði það í raun og
veru að fyrirtækið sé nálægt því
að vera komið í greiðsluþrot. í
árslok árið 1987 var hreint
veltufé jákvætt um 172 milljónir
og versnaði því á þessu ári um
1.155 milljónir króna.
Ólafur. Sverrisson fékk við
formannskjörið tæp 76% at-
kvæðanna og er það ólík niður-
staða frá því sem verið hefur
þegar Valur Amþórsson hefur
verið lqörinn stjómarformaður,
en þá hefur hlutfallið verið afar
nálægt 100%, þannig að hann
hefur ávallt hlotið kosningu sem
gjaman er nefnd „Rússakosn-
ing“.
Morgunblaðiö/Sverrir
Er Ólafúr Sverrisson, stjómarformaður Sambandsins ekki að bjóða Guðjóni B. Ólafssyni, forstjóra
í nefið? Þeirra bíður mikið og erfitt verk næsta árið, og mun þeim jafiigott að gera einkunnarorð
87. aðalfundar Sambandsins að sínum, en þau sjást hér að baki þeirra.
gengu menn svo langt að hóta
að segja sig úr verslunardeild-
inni, ef kaupfélögin hefðu ekki
meiri hag af viðskiptum sínum
við hana, en nú er. Þröstur Ólafs-
son, forstjóri KRON, sagði að
KRON fengi hagstæðari kjör hjá
öllum öðmm heildsölum en
KRON fengi hjá sinni eigin heild-
sölu, verslunardeildinni. Á sama
tíma og þessi mikli þrýstingur
er settur á breytta og bætta til-
högun hjá verslunardeildinni
blasir það á hinn bóginn við að
hún tapar stórfé.
Guðjón styrkti stöðu sína
Flestir viðmælenda minna á
fundinum vom sammála um að
Guðjón B. Ólafsson, hefði styrkt
stöðu sína á fundinum. Vissulega
hafi tapið á liðnu ári verið mikið
reiðarslag, en það sé ekki við
hann að sakast, heldur íslenskt
efnahagsumhverfi. (Þetta orð,
efnahagsumhverfi, var einskon-
hvorki meira né minna en 120
milljónir króna í gengistapi.
Þetta gengistap kemur hins veg-
ar ekki inn í efnahagsreikning
þessa árs, heldur síðasta árs.
Gengistap Sambandsins á liðnu
ári var 677 milljónir króna, að
þessum 120 milljónum meðtöld-
um, en afkoma fyrstu fjóra mán-
uði þessa árs, væri ekki svona
miklum mun betri en í fyrra, ef
þetta 120 milljón króna tap þessa
árs væri reiknað inn í efnahags-
reikning þessa árs. Þá væri tap-
ið 178 milljónir króna.
Það er því síður en svö hægt
að fullyrða að SÍS-skútan sé að
komast á lygnan sjó, enda herma
heimildir mínar að annað reiðar-
slag bíði samvinnumanna, þegar
afkoma Sambandsins í maímán-
uði verður gerð opinber.
Hreint veltufé neikvætt
um tæpan milljarð
Jafnframt er bent á að í árslok
Þröstur Ólafsson, forstjóri
KRON (Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis) fékk 14 atkvæði
við formannskjörið, og er talið
fullvíst að þessi 14 atkvæði séu
öll frá aðalfundarfulltrúum
KRON. Við stjómarkjör, á hinn
bóginn, fékk Þröstur glæsilega
kosningu, 91 atkvæði. Hann
fékk næstflest atkvæði við
stjómarkjör, en Gunnar Sveins-
son, kaupfélagsstjóri í Keflavík
fékk flest atkvæði, eða 93. Þröst-
ur kemur því inn í Sambands-
stjóm sem nýr stjórnarmaður og
tekur sæti Ingólfs Ólafssonar,
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs. Það sést best af kosningu
Þrastar, um hvað er búið að
semja áður en kosningin sjálf fer
fram. Uppi höfðu verið raddir
um það að ef Þröstur ekki yrði
kjörinn formaður Sambands-
stjórnar, þá gæfí hann ekki kost
á sér í stjóm. Annað hvort voru
þessar sögusagnir rangar, eða
Þresti snerist hugur, því hann,
alþýðubandalagsmaðurinn, fékk
greinilega fjölmörg atkvæði
framsóknarmanna á fundinum.
Kommi getur ekki orðið
stjórnarformaður
Þrátt fyrir ágreining innan
samvinnuhreyfíngarinnar, em
flestir samvinnumenn þeirrar
skoðunar að útilokað sé að gera
Þröst Ólafsson að stjómarfor-
manni Sambandsins. Sambandið
hefur jú á sér afar sterkt fram-
sóknaryfírbragð og svo hefur
jafnan verið. Framsóknarrfienn
heQast til valda innan samvinnu-
hreyfíngarinnar, hvort sem það
er hjá Sambandinu eða kaup-
félögunum. Þeir segja einfald-
lega að það sé alveg sama hvort
Þröstur Ólafsson sé hæfur mað-
ur eða ekki. Hann sé alþýðu-
bandalagsmaður, og það nægi
til þess að útiloka hann frá slíku
virðingarstarfí sem starf for-
manns Sambandsstjómar sé.
Þar að auki em fjölmargir
samvinnumenn sem hafa hálf-
gert horn í síðu KRON. Þeir telja
KRON vera vigtarlítið neytenda-
kaupfélag vinstri manna á
Reykjavíkursvæðinu. Era margir
aðalfundarfulltrúa ósáttir við þá
vigt sem KRON hefur á aðal-
fundum, en nú átti KRON 39
fulltrúa af 131. Félagsmenn í
KRON vom um síðustu áramót
16.783, og það er þessi mikli
fyöldi sem gerir það að verkum
að félagið á svona marga aðal-
fundarfulltrúa. Hvort hægt er
að setja hreinan alþýðubanda-
lagsstimpil á félagið, skal ekkert
um sagt hér, en ekki þarf annað
en renna augum yfír nafnalista
aðalfundarfulltrúanna til þess að
þekkja þar mörg kunn alþýðu-
bandalagsnöfn. Þar em nöfn eins
og Þröstur Ólafsson, Þómnn
Klemensdóttir, (eiginkona Þrast-
ar), Kjartan Ólafsson, Guðmund-
ur Jónsson, Ólafur Jónsson,
Baldur Óskarsson, Siguijón Pét-
ursson og Jón- Thor Haraldsson.
Þetta era aðeins nokkur nafn-
anna, en fullyrða má að yfír 20
af 39 fulltrúum frá KRON em
ýmist flokksbundnir alþýðu-
bandalagsmenn eða sterklega
tengdir flokknum. Það eitt næg-
ir til þess að samvinnumenn vilja
veg KRON ekki meiri en hann
er innan Sambandsins.
Nú má ekki gleyma því að
þeir Þröstur Ólafsson og Guðjón
B. Ólafsson hafa átt hið ágæt-
asta samstarf og segja kunnugir
að hlýtt samband sé þeirra í
millum. Guðjón mun því fagna
því að Þröstur sé kominn í stjóm
Sambandsins og treysta á stuðn-
ing hans.
Vilja ungan og frískan
kaupfélagssljóra
Það mun nánast vera ákveðið,
að leita að næsta stjómarfor-
manni Sambandsins í röðum
kaupfélagsstjóra landsbyggðar-
innar. Þannig telja menn að best
verði tryggð bætt sambúð eig-
endanna (kaupfélaganna) við
Sambandið. Enginn ákveðinn
kaupfélagsstjóri hefur verið sér-
staklega orðaður við formennsk-
una, en menn virðast gera sér
vonir um að ungur, sprækur,
hæfur kaupfélagsstjóri fáist til
starfans. Einn af forkólfum sam-
vinnuhreyfingarinnar sagði við
mig að helst væri rætt um að
reyna að fá Hermann Hansson,
kaupfélagsstjóra á Höfn í Homa-
fírði til þess að taka að sér stjórn-
arformennskuna, en kunnugir
telja ólíklegt að Hermann fengist
til þess. Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA, er ekki
talinn ólíklegur kandídat. Sömu-
leiðis ekki þeir Þórólfur Sigurðs-
son, kaupfélagsstjóri á Sauðár-
króki og Þórir Páll Guðjónsson
í Borgamesi, en fátt virðist enn
vitað um það hvort þeir væra
reiðubúnir til starfans.