Morgunblaðið - 08.06.1989, Page 31
y ÓRGÚNBlJV^^ÍMÍaíé'tíÍGlÍfi '8 1 'iijiif
m
Fjárkröfiir Tryggingastofii-
unar ríkisins á hendur 6
Tire$tonc
læknum á Suðurnesjum
Athugasemd vegna fréttar í Morgunblaðinu
eftir Pál Þorgeirsson
Hinn 30.maí sl. birti Mbl. frétt
um fjárkröfur TR á hendur 6 lækn-
um á Suðurnesjum. Er þar vitnað
til ummæla Kristjáns Guðjónssonar,
deildarstjóra hjá TR og Halldórs
V. Sigurðssonar, ríkisendurskoð-
anda, sem óhjákvæmilegt er að
gera alvarlegar athugasemdir við.
Er þar bæði með rangt mál farið
og réttu hallað.
Athugun Rfldsendurskoðunar
og túlkun á gjaldskrárliðum
Beggja vegna síðustu áramóta
gerði Ríkisendurskoðun mjög ítar-
lega athugun á Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík, þar sem
bornir voru saman reikningar
heilsugæslulækna til sjúkrasamlaga
og færslur á sjúkraskrár. Niður-
stöður þessarar athugunar voru
birtar okkur læknunum nýverið.
Þar var fært til samræmis þar
sem skoðendum fannst samrýman-
legt í reikningi og færslu, annað
til ósamræmis.
í þessum niðurstöðum stóð upp
úr, að færð var alfarið til ósamræm-
is reikningsgerð við vaktstörf, eftir
kl. 17.00 á virkum dögum, um helg-
ar og á öði-um frídögum, þar sem
gerður hafði verið reikningur fyrir
vitjun og samskipti læknis og sjúki-
ings áttu sér stað á heilsugæslu-
stöðlnni.
Þessi fráleita túlkun Ríkisendur-
skoðunar þýðir í sinni skörpustu
mynd meðal annars, að fyrir útkall
læknis vegna sjúklings, sem leitað
hafði til heilsugæslustöðvarinnar
að nóttu til, hefði átt að gera reikn-
FÆREYSK leiksýning verður
í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn
8. júní og fostudaginn 9. júní, en
þá verður leikritið „Logi, logi
eldur mín“. flutt á Litla sviði
Þjóðleikhússins í Lindargötu 7.
Þetta leikverk er leikgerð eftir
„Gomlum Götum“ færeysku skáld-
konunnar Jóhonnu Maríu Skylv
Hansen í leikstjórn Eyðun Johann-
esen. Leikari er Laura Joensen.
Leikritið var frumsýnt í Þórshöfn á
annan í jólum 1988 í tilefni 100
ára afmælis hins sögulega jólafund-
ar, þegar Færeyingar komu saman
og strengdu þess heit að hefja fær-
eyska tungu og menningu til vegs
og virðingar.
Jóhanna María Skylv Hansen
(1877-1973) fór ekki að skrifa fyrr
en börn hennar voru uppkomin. Þá
Happdrætti
unglingaat-
hvarfanna
DREGIÐ hefiir verið í Ferða-
happdrætti unglingaathvarfanna
í Reykjavík. Vinningar komu á
eftirtalin númer:
1. vinningur kom á númer 813.
2. vinningur 1096. 3. vinningur
869. 4 vinningur 868. 5. vinningur
1930. 6. vinningur 1776. 7. vinning-
ur 1520. 8. vinningur 854. 9. vinn-
ingur 1823. 10. vinningur 1600.
(Birt án ábyrgðar.)
ing fyrir viðtal — með álagi, en
ekki útkall/vitjun með álagi.
Hér er nauðsynlegt að vekja at-
hygli á því, að heilsugæslulæknar
eru ekki á bundinni vakt og því
ekki almennt að störfum á vakttíma
nema vegna útkalls.
Hingað til hefur verið yfir allan
vafa hafið, að notkun vitjanaliðar
gjaldskrár heilsugæslulækna heim-
ilaðist, þegar læknir er kvaddur til
heilsugæslustöðvar vegna sjúkl-
inga, sem þangað hafa leitað. Veit
ég fyrir víst, að Læknafélag íslands
aðhyllist þessa túlkun og Kristján
Guðjónsson, deildarstjóri, hefur við-
urkennt hana einnig munnlega,
enda ekkert ákvæði gjaldskrár-
innar þar til trafala.
TR hefur einnig lengi verið ljóst,
að læknar á Suðurnesjum, eins og
raunar um allt land, gerðu reikning
fyrir vitjun á heilsugæslustöð og
ekki gert athugasemdir við.
í áðurnefndri frétt Mbl. er haft
eftir Halldóri V. Sigurðssyni, að
hann teldi túlkun Ríkisendurskoð-
unar á samningum lækna við ríkið
hina sömu og túlkun TR og LÍ Hér
er fýrst og frest um að ræða ágrein-
ing um notkun eins og gjaldskrár-
liðar og skal hér upplýst, að LÍ jafn-
ar þeirri túlkun Ríkisendurskoðun-
ar, sem fram kemur um hann í nið-
urstöðum Keflavíkurathugunarinn-
ar.
í áðurnefndum vitjunarlið gjald-
skrár heilsugæslulækna greinir
hvenær skuli gera reikning fyrir
viðtal við umrædd læknisstörf. Hef-
ur svo verið gert, þegar við hefur
átt.
Mbl. hefur eftir Kristjáni Guð-
jónssyni, að umræddir læknar hefðu
var hún vitavarðarfrú í Mykjunesi.
Ritsafn hennar er í fjórum bindum
undir samheitinu Gamlar götur og
kom það út á árunum 1950-1973.
Leikgerðina unnu þau Malan
Simonsen, Laura Joensen og Eyðun
Johannesen og tónlist og hljóðmynd
Sunnleif Rasmussen. Leikmynd og
ljósmyndir í sýningunni eru eftir
Inga Joensen.
„Hingað til hefiir verið
yfir allan vafa hafið, að
notkun vitjanaliðar
gjaldskrár heilsugæslu-
lækna heimilaðist, þeg-
ar læknir er kvaddur
til heilsugæslustöðvar
vegna sjúklinga, sem
þangað hafa leitað.“
gefið reikning fyrir vitjun vegna
allra heimsókna sjúklinga eftir kl.
05:55 síðdegis. Þetta er alrangt
og naumast trúanlegt, að rétt sé
eftir haft, enda veit hann betur.
Framgangur TR —
lokaorð
Að frágengnunS sínum niðurstöð-
um sendi Ríkisendurskoðun þær til
RT með áðurnefndu ósamræmi út-
reiknuðu. TR brá við, sendi gögnin
til lögmannsskrifstofu og skyldi nú
meint ofreiknun innheimt snarlega.
Engir vafningar voru hafðir um
gerbreytta túlkun á meðferð um-
rædds vitjanaliðar, sem sennilega
var þó forsenda málsins.
í öðrum kafla, 11. gr. gjaldskrár-
innar, er markaður farvegur fyrir
ágreiningsmál, sem rísa kunna út
af breytingu hennar. TR kaus að
vikja hér af leið, gróflega, svo að
eftir verður munað en um það verð-
ur ekki ijallað hér að sinni.
Þessi málsmeðferð, jafn forkast-
anleg og hún var, gat ekki leitt til
annars en áberandi fréttaflutnings,
sem vel uppsettur á heppilegri síðu
íslensks stórblaðs gat bent til þess,
að umræddir læknar hefðu, hver
og einn, haft af ríkinu stórar fjár-
hæðir með rangri beitingu gjald-
skrár. Röng fullyrðing í fréttinni,
höfð eftir deildarstjóra RT, er þar
síst til að draga úr.
Alvarleiki þessa hátternis ráða-
manna TR er mikiil og verður at-
hugað sérstaklega.
Því skal að lokum beint til þeirra,
að taka í framtíðinni faglegar á
ágreiningsmálum út af gjaldskrá
en hér hefur verið gert og halda
sig við ákvæði hennar, ekki síður
en þeir ætla læknum.
HSfiuuhir cr læknir á Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja í Keflavík.
Nýtt námskeið £-\iá
Innhverf íhugun er cinfold tækni sem allir geta lært. Áratuga rannsóknir staðfesta að iðkun henn- ar stuðlar að andlegum þroska, heilbrigði og lífsgleði. Nýtt námskeið hefst með kynningarfyrirlestri í nýju húsnæði félagsins á Laugavegi 18a í kvöld, fimmtudag kl. 20.30. (Aðgangur ókeypis). Sími 16662. íslenska íhugunarfélagið.
Maharishi Mahesh Yogi
Karlmannaföt
kr. 3.995,- til 9.990,-
Terylenebuxur kr. 1.195,- til 1.995,-
Gallabuxur kr. 1.195,-, 1.230,- og 1.295,-
Flauelsbuxur kr. 1.110,- og 1.900,-
Sumarblússur kr. 2.770,- og 2.390,-
Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Færeyskir gestir
í Þjóðleikhúsinu
Firestone vinnuvéladekk fyrir allar
stœrri vinnuvélar. Tröllsterk dekk sem
endast og endast.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, Kópavogi
Simi42600
12 OG 220 VOLTA
LITSJÓNVARPSTÆKI
í BÍLINN
BÚSTADINN
BÁTINN
1 4 tOmmU PHILIPS Verð kr.:
litasjónvarp
með spennubreyti
Frábær mynd- og tóngæði,
10 stöðva minni, innbyggt
loftnet. Tenging
fyrir heyrnartól.
Verð kr.:
29
950
stgr.
Heimilistæki hf
• Sætúni 8 • Kringlunni •
SÍMI: 69 15 00 SÍMI:691520
l/cd&uuH/Sueúya/de^ísaMUKgtíM'