Morgunblaðið - 22.11.1990, Side 30

Morgunblaðið - 22.11.1990, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1990 Sovétríkin: Jeltsín krefst þjóðaratkvæða- greiðslu um völd Gorbatsjovs Harðlínumenn óþreyjufullir vegna aðgerðaleysis forsetans Moskvu. Reuter. Umbótasinninn Borís Jeltsín, forseti stærsta lýðveldis Sov- étríkjanna, Rússlands, krafðist þess í gær að efnt yrði til þjóð- aratkvæðagreiðslu um hvort veita ætti Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta vald til að sljórna með tilskipunum. Gorbatsjov sætti einnig harðri gagnrýni harðlínumanna, þar á meðal Viktors Alksnís, leiðtoga Sojúz-hreyfingarinnar, sem kvaðst ætla að krefjast afsagn- ar Sovétforsetans ef hann gripi ekki til aðgerða til að binda enda á þjóðaólguna í landinu. Jeltsín sagðist vera orðinn þreyttur á klisjum um vilja alþýð- unnar og efna ætti til atkvæða- Fyrsti biskup Færeyja vígður fréttaritara Morgunblaðsins. mannahöfn, sem vígir hinn nýja biskup að viðstöddu ýmsu fyrir- fólki, þ.ám. Margréti Danadrottn- ingu. Hafnarkirkja verður um leið gerð að dómkirkju Færeyja. Þetta er í annað skipti sem drottning heimsækir Færeyjar. Hún kom þangað ásamt eiginmanni sínum í sumar og hafði fjögurra daga viðdvöl. Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, FÆREYJAR eru nú orðnar sjálf- stætt biskupsdæmi en heyrðu áður undir biskupsstól í Kaup- mannahöfn. Hans Jacob Joensen, fyrsti biskup Færeyja, verður vígður á sunnudag. Joensen, sem er 61 árs gamall, hefur verið sóknarprestur í Hafnar- kirkju í Þórshöfn síðan árið 1978. Það er Ole Bertelsen, biskup í Kaup- Indland: Hlutabréfaverð féll er Shekhar kynnti ráðherralista sinn Nýju Delhí. Reuter. CHANDRA Shekhar, forsætis- ráðherra Indlands, kynnti ráð- herralista sinn í gær. Hlutabréf féllu strax í vérði á helstu verð- bréfamörkuðum landsins vegna vantrúar verðbréfasala á hæfni ráðherranna til að takast á við efnahagsvanda landsins. Ashis Nandy stjórnmálaskýrandi sagði að lítið úrval hæfra manna hefði valdið því að Shekhar hefði tekið sér 11 daga til að mynda ríkis- stjórn. greiðslu um hvort hún vildi auka völd Gorbatsjovs. Slík atkvæða- greiðsla er talin jafngilda í raun almennri atkvæðagreiðslu um hvort Sovétforsetinn njóti trausts á meðal almennings. Sovéska þingið kaus Gorbatsjov sem for- seta í mars en Jeltsín og fleiri róttækir umbótasinnar kröfðust þess þá að efnt yrði til almennra forsetakosninga. Sovéska þingið hefur þegar samþykkt tillögur Gorbatsjovs, sem kveða á um að ríkisstjórn Sovétríkjanna heyri beint undir hann. Búist er við að fullrúaþing- ið samþykki einnig tillögumar 17. desember. Viktor Alksnis sagði að hann myndi krefjast afsagnar Gor- batsjovs í næsta mánuði ef hann kæmi ekki í veg fyrir borgara- styijöld í landinu. Hann sagði að úr því ætti að fást skorið innan mánaðar hvort Gorbatsjov ætlaði að standa við loforð sín um að gera einhveijar ráðstafanir til binda enda á þjóðaólguna í landinu. fbúa landsins, sem eru um 850 millj- ónir talsins, búa í dreifbýli. Þjóðin hefur einnig veruiegan hluta gjald- eyristekna sinna af ferðaþjónustu. ERLENT Reuter Michael Milken mætir í dómshús í New York í gær ásamt konu sinni, Lori. Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir fjársvik New York. Reuter. MICHAEL Milken, fyrrverandi verðbréfasali í New York, var í gær dæmdur í 10. ára fangelsi fyrir falsanir og svik. Milken, sem var háttsettur hjá Drexel Burnham Lambert verðbréfafyrirtækinu, sem nú er gjaldþrota, játaði sekt sína fyrir dómstól í apríl á þessu ári. Milken, sem þekktur var sem svikum í verðbréfaviðskiptum hefur „konungur áhættu-verðbréfanna" varð áhrifamesti maður Wall Street-verðbréfamarkaðarins í New York á áratugnum sem er að líða og þótti persónugervingur „áratug- ar græðgi" vegna ótrúlega skjóts frama og jafnskjóts falls. Tekjur hans á árunum 1984-1987 námu 1,1 milljarði Bandaríkjadala, eða um 60 milljörðum ÍSK. Helming þeirrar upphæðar fékk hann á árinu 1987 einu saman. Áhættu-verðbréf geta fært fjárfestum mikinn og skjótan hagnað en þeim fylgir meiri áhætta en öðrum bréfum. Fjögurra ára opinber rannsókn á aðallega beinst að Milken. Hann var dæmdur fyrir að svindla bæði á kaupendum og seljendum verð- bréfa. Hann samþykkti að greiða um 600 milljónir Bandaríkjadala (33 milljarða ISK) í sektir og endur- greiðslur, sem er hæsta upphæð sem einstaklingur hefur greitt í fjársvikamáli í Bandaríkjunum. Fyrirtæki Milkens, Drexel, greiddi 650 milljónir Bandaríkjdala (rúmlega 35 milljarða ÍSK) í sektir og endurgreiðslur í desember 1988 og var tekið til gjaldþrotaskipta sl. sumar. Leiðtogakjör breska íhaldsflokksins: Margaret Thatcher hvött til að draga sig í hlé með reisn Lundúnum. Reuter. NOKKUR áhrifamikil dagblöð í Bretlandi hvöttu í gær Margaret Thatcher, forsætisráðherra landsins, til að draga sig í hlé með reisn fremur en að hætta á að bíða ósigur fyrir keppinaut sínum í leiðtogalqöri breska íhaldsflokksins, Michael Heseltine, fyrrver- andi varnarmálaráðherra. Shekhar gat valið milli 60 manna af þeim 524 sem sitja í neðri deild indverska þingsins. Stærsti flokkur- inn á þingi, Kongressflokkurinn, styður ríkisstjórn Shekhars en eng- inn ráðherranna er úr fiokknum. Meðal ráðherra í ríkisstjóminni eru fyrrverandi embættismaður, Yashwant Sinha, sem er nú fjár- málaráðherra og Subramaniam Swamy, fyrrverandi prófessor við Harvard-háskóla, sem er nú við- skiptaráðherra. Efnahagur Indveija byggir aðal- lega á landbúnaði en meira en 70% Búlgaría: Akæra á hend- ur Zhívkov Sófiu. Rcuter. Ríkissaksóknari i Búlgaríu segir að senn fari fram réttar- höld í máli Todors Zhívkovs fyrr- verandi leiðtoga landsins. Zhívkov er ákærður fyrir að hafa sölsað undir sig tugmilljónir króna af opinberu fé og fyrir að hafa misnotað vald sitt. Zhívkov sem er 79 ára gamall hefur ekki sést opinberlega síðan í hallarbyltingunni á síðasta ári er umbótasinnaðir kommúnistar steyptu honum af stóli. Hann er nú í stofufangelsi á heimili barnabarns síns. Um síðustu helgi var það haft eftir Zhívkov að hann teldi sig aldr- ei hafa brotið nokkuð af sér og ákæran á hendur sér væri óhróður einn. Breska blaðið Daily Telegraph, sem hefur fylgt Thatcher að mál- um, sagðist styðja hana áfram en viður- kenndi þó að gild rök væru fyrir því að farsælast væri að „Járnfrúin“ drægi sig nú í hlé eftir ellefu ár í embætti forsætisráðherra. Blaðið sagði að hún væri „einn mesti for- sætisráðherra í nútímasögu Bret- Iands“ og ávítaði þingmenn íhalds- flokksins harðlega fyrir að auð- mýkja hana. „Það væri heimskulegt að viðurkenna ekki að færa má rök fyrir því að best væri að frú Thatch- er drægi sig í hlé með reisn á þeirri forsendu að slíkt væri líklegast til að skapa einingu innan flokksins.“ Bresku dagblöðin, jafnt til hægri sem vinstri í stjórnmálunum, voru sammála um að það hefði verið mikið áfall fyrir Thatcher að geta ekki tryggt sér endurkjör í fyrri umferðinni á þriðjudag. Daily Mirr- or sagði í risafyrirsögn að tímabært væri fyrir Thatcher að segja af sér. í ritstjórnargrein blaðsins sagði að hún hætti á að flekka minninguna um fyrri afrek hennar með því að beijast fyrir því að halda völdunum án fulls stuðnings flokksmanna sinna. Meira en þriðjungur þing- manna íhaldsflokksins greiddi at- kvæði gegn henni. Báðir frambjóðendurnir gagnrýndir í blöðunum Sun og Daily Star kom hins vegar fram eindreginn stuðningur við Thatcher. Þau fóru hörðum orðum um Michel Hesel- tine, fyrrverandi varnarmálaráð- herra sem hefur lengi stefnt að leið- togaembættinu, og sögðu að frama- draumar hans gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir Breta. The Times lagði áherslu á að Heseltine hefði rétt með naumindum tekist að knýja fram aðra umferð og honum bæri að draga sig í hlé. í The Independent komu hins vegar fram efasemdir um dóm- greind Thatcher vegna þeirrar ákvörðunar hennar að berjast áfram þótt valdabaráttan afhjúpaði djúpstæðan ágreining innan fiokks- ins um þær aðferðir sem hún beitir sem leiðtogi og andstöðu hennar við nánari samvinnu Evrópubanda- lagsríkja. „Svo lengi sem Thatcher verður við völd gleyma þingjnenn íhaidsflokksins ekki þeim lærdómi sem dreginn var af hinum nauma sigri í fyrstu umferðinni. Goðsögnin um að Thatcher sé ósigrandi heyrir sögunni til,“ sagði Independent. „Með því að segja af sér, fóma sér fyrir flokkinn, gæti hún bætt þetta upp og farið frá með sæmd. Hinn valkosturinn er lokakafli í æ blóð- ugri harmleik," bætir blaðið við. Financial Times tók í sama streng og sagði að Thatcher ætti að víkja fyrir samstarfsmanni í stjórninni, annaðhvort Douglas Hurd utanríkisráðherra eða John Major fjármálaráðherra. „Það væri farsælla að fara frá núna með sæmd,“ sagði í ritstjórnargrein blaðsins. Howe vill ekki í framboð gegn Thatcher Áhrifamenn innan íhaldsflokks- ins beittu sér mjög fyrir því í gær að annaðhvort Thatcher eða Hes- eltine drægju sig í hlé. Margir þeirra eru Heseltine reiðir fyrir að auð- mýkja Thatcher. Aðrir hafa hætt stuðningi við hana og segja að tíma- bært sé að skipta um leiðtoga. Flestir þeirra vilja að Thatcher víki fyrir hugsanlegum þriðja frambjóð- anda, sem minni styrr stæði um, svo sem Douglas Hurd eða John Major. Þeir lýstu því báðir yfir á þriðjudagskvöld að þeir styddu Thatcher áfram og vildu ekki heyja baráttu við hana um leiðtogastöð- una. Heimildarmaður innan íhalds- flokksins sagði að sir Geoffrey Howe, sem sagði af sér embætti aðstoðarforsætisráðherra nýlega, kynni að bjóða sig fram gegn Thatcher. Það leiddi að öllum líkind- um til klofnings á meðal þeirra sem greiddu Thatcher atkvæði í fyrstu umferðinni og gæti orðið til þess að Heseltine færi með sigur af hólmi. Howe sagði hins vegar í gær að hann gæfi ekki kost á sér í ann- arri umferðinni. Einnig þykir koma til álita að Thatcher víki fyrir Hurd eða Major á næstu mánuðum beri hún sigur úr býtum í leiðtogakjör- inu. Heseltine bjartsýnn Forsætisráðherrann fékk 204 atkvæði í fyrri umferð leiðtoga- kjörsins á þriðjudag og Heseltine 152. Samkvæmt reglum um kjörið þurfti hún meirihluta atkvæða og 15% að auki umfram Heseltine til að ná endurkjöri í fyrstu umferð- inni. Henni hefði tekist það ef tveir þeirra, sem greiddu Heseltine at- kvæði, hefðu stutt hana á þriðjudag. Heseltine kvaðst í gær búast við því að margir þeirra, sem studdu Thatcher í fyrstu umferðinni, legð- ust á sveif með honum í annarri umferð. Þá þurfa frambjóðendurnir aðeins meirihluta til að ná kjöri. Önnur umferð fer fram á þriðjudag en tilkynna þarf um framboð fyrir hádegi í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.