Morgunblaðið - 22.11.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1990
37
Félag íslenskra fræða:
Rannsóknir
Einars
Pálssonar
FÉLAG íslenskra fræða heldur
opinn fund í Skólabæ á horni
Suðurgötu og Kirkjugarðsstígs í
dag, fimmtudaginn 22. nóvemb-
er, kl. 20.30.
Einar Pálsson segir á þessum
fundi frá upphafi rannókna sinna.
Einar er vel þekktur fyrir bækur
um rætur íslenskrar menningar og
fjallar sú nýjasta um Egilssögu
Skallagrímssonar.
■ DÚÓIÐ Possibillies heldur
útgáfutónleika í Islensku Oper-
unni í dag fimmtudaginn 22. nóv-
ember í tilefni af nýútkominni plötu
þeirra sem ber heitið Töframaður-
inn frá Riga. Dúóið Possibillies
skipa Jón Ólafsson, Stefán Hjör-
leifsson og Sigmundur Ernir
Rúnarsson sem er þriðji maður.
Þeim til halds og trausts verða
hljómsveitin Ný Dönsk, Stefán
Hilmarsson og stórhljómsveit skip-
uð þekktum tónlistarmönnum. Tón-
leikarnir hefjast stundvíslega kl.
21.00.
Einar Pálsson
■ HELGINA 24. og 25. nóvem-
ber verða haldin í Reykjavík tvö
námskeið. Fyrra námskeiðið fjallar
um Stjörnuspeki og heilun en það
síðara um Leiðsögn — leið til sjálfs-
hjálpar. Fyrirlesari og leiðbeinandi
á námskeiðunum verður Marilyn
Allen frá Englandi. Hún hefur unn-
ið við stjörnuspeki og heilun í mörg
ár og er um þessar mundir að setja
fram nýjar kenningar og þróa sínar
eigin aðferðir í stjörnuspeki. Gjald
fyrir hvort hámskeiðið er kr. 1.850.
Námskeiðin verða haldin í fundar-
herbergi Rósakrossreglunnar í
Bolholti 4, 4. hæð. Túlkur verður
á námskeiðunum en þau fara fram
á ensku. (Fréttatilkynning)
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
21. nóvember.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 121,00 77,00 103,68 50,398 5.225.422
Þorskur(ósL) 108,00 78,00 92,46 4,621 427.238
Ýsa 104,00 76,00 92,20 14,092 1.299.253
Ýsa (ósl.) 94,00 76,00 82,16 4,502 369.862
Karfi 50,00 43,00 46,22 14,383 664.734
Ufsi 56,00 20,00 43,20 12,650 546.533
Steinbítur 59,00 57,00 57,95 5,827 337.619
Blandað 30,00 27,00 27,20 0,457 12.429
Blandað 24,00 ?0,00 20,55 1,708 35.100
Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,021 420
Keila 27,00 24,00 24,37 1,263 30.780
Langa 54,00 44,00 50,37 3,961 199.473
Lúða 455,00 140,00 342,07 0,711 243.215
Lýsa 36,00 30,00 32,01 0,718 22.980
Skata ' 105,00 105,00 105,00 0,037 3.885
Skarkoli 48,00 20,00 20,88 0,860 17.956'
Skötuselur 260,00 100,00 225,71 0,105 23.700
Undirmál 80,00 29,00 62,36 1,295 80.761
Samtals 81,13 117,607 9.541.361
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 117,00 68,00 95,46 36,990 3.531.196
Ýsa 99,00 28,00 82,91 26,375 2.186.909
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,193 2.895
Skötuselur 100,00 100,00 100,00 0,005 500
Skata 50,00 50,00 50,00 0,014 700
Gellur 270,00 270,00 270,00 0,021 5.670
Lúða 420,00 300,00 350,59 0,606 212.281
Keila 39,00 6,00 25,21 8,352 210.574
Ufsi 79,00 15,00 42,02 26,011 1.093.080
Steinbítur 65,00 47,00 50,46 0,641 32.347
Lýsa 30,00 10,00 23,59 0,156 3.680
Langa 67,00 10,00 58,33 5,182 302.283
Karfi 49,00 44,00 46,38 0,315 14.610
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,010 50
Samtals 72,44 104,871 7.596.775
Selt var úr Hrungni GK, Hauk GK og dagróðrabátum. Á morgun verður selt
úr dagróðrabátum.
Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síðustu tíu vikur,
11. sept. - 20. nóv., dollarar hvert tonn
Góður sigur vannst
gegn Spánverjum
4. umferð Olympíuskákmótsins í Novi Sad
___________Skák_______________
Karl Þorsteins
ÍSLENSKA skáksveitin vann
góðan sigúr á Spánverjuni í
fjórðu uinferð Ólympíumótsins
í Novi Sad. Lokatölur viður-
eignarinnar urðu 2 vinningur
gegn 1 vinningi Spánverja. Eft-
ir fjórar umferðir á mótinu er
islenska sveitin í 27.-39. sæti á
mótinu með 9 vinning. Sveitir
Bandaríkjann'a og V-Þýska-
lands eru efstar með 13 vinn-
inga og sovéska sveitin er
þriðja í röðinni ineð 12 vinn-
inga. A mótinu verða tefldar
14 umferðir samkvæmt
Monrad-kerfi þannig að staðan
núna veitir vitaskuld takmark-
að gildi um líklega þróun á
mótinu.
4. umferð:
Island — Spánn 2-1
Helgi Ólafsson — Illescsas 0-1
Margeir Pétursson — Fernandez 1 -0
-Héðinn Steingrímsson — Romero
Björgvin Jónsson ~ Magem 1-0
Báðum varamönnum íslenska
liðsins var stillt upp í viðureign-
inni gegn Spánverjum. Sú ákvörð-
un reyndist happadrjúg, því Héð-
inn og Björgvin mættu báðir mjög
ákveðnir til leiks. Spánverjar eru
engir aukvisar á skáksviðinu með
stórmeistara og sterka alþjóðlega
meistara í sveitinnj. Samt máttu
þeir prísa sig sæla að tapa aðeins
með minnsta mun.
Helgi Ólafsson tefldi á fyrsta
borði gegn stórmeistaranum II-
lescas með svörtu. Upp kom
drottningarindversk vörn og stað-
an var í jafnvægi þegar Helga
urðu á slæm mistök sem leiddu
til tapaðrar stöðu.
Margeir Pétursson tefldi ensk-
an leik af miklu öryggi gegn stór-
meistaranum Fernandez á öðru
borði og vann góðan sigur í 42
leikjum.
A þriðja borði átti Héðinn
Steingrímsson í höggi við Ro-
mero. Romero þessi er sterkur
alþjöðlegur meistari með 2475
ELO-skákstig. Skákstíll hans er
mjög hvass en það hafði engin
áhrif á Héðin sem náði undiitök-
unum í miðtaflínu og síðan vinn-
ingsstöðu. í tímahrakinu yfirsást
honum snjall möguleiki andstæð-
ingsins sem tryggði Romero þrá-
skák.
Björgvin Jonsson kom inn á í
fyrsta skipti á mótinu og hafði
hvítt á fjórða borði. Andstæðingur
hans beitti Caro-Kann-vörn held-
ur óhönduglega. Björgvin tefldi
af mikilli grimmd, hann náði lield-
ur þægilegri stöðu eftir bytjunina
sem hann bætti hægt og sígandi
eins og sjá má í skákinni hér á
eftir.
Styrkur varnarmannanna kom
vel í ljós í þessari umferð. Hlut-
verki sínu skiluðu þeir með mikl-
um ágætum og af taflmennskunni
gegn Spánveijuni að dæma er
óhætt að treysta þeim gegn hvaða
andstæðingum sem er.
Hvítt: Björgvin Jónsson
Svart: Magem
Caro-Kann-vörn
1. e4 - cfi 2. d4 - d5 3. Rc3 -
dxe4 4. Rxe4 — Gf5 5. Rg3 —
Bg6 6. Rf3 - Rd7 7. h4 - hfi
8. h5 - Bh7 9. Bd3 - Bxd3 10.
Dxd3 - Dc7 11. bd2 - Rgffi
12. 0-0-0 - 0-0-0 13. Re4 - e6
14. g3 — Rxe4 15. Dxe4 — Bd6
Byrjunarleikirnir véita ekki til-
efni til skýringa enda velþekktir
í byijunarfræðum skákmanna.
Kasparov lék í sömu stöðu 15. —
Be7 í skák gegn Geller fyrir rúm-
lega tíu árum síðan og skákinni
lyktaði með jafntefli. Endurbætur
hafa fundist á taflmennsku Gell-
ers í áðurnefndri skák. Magem
velur því annan leik sem hefur
notið meiri vinsælda á undanförn-
urn árum.
16. c4 - Rf6 17. De2 - c5 18.
Bc3 - Hhe8 19. Kbl - Dc6 20.
Hh4!
Góður leikur. Drottningarupp-
skipti væru svörtum í hag og með
hróksleiknum kemur Björgvin í
veg fyrir De4 í eitt skipti fyrir
öll. Hvíta staðan er liðlegri og í
áframhaldinu styrkir Björgvin
stöðu sína hægt og rólega.
20. - a6 21. Hcl - He7 22. Re5
- Bxe5 23. dxe5 - Re8 24. Hf4!
Hvítúr hefur rýmri stöðu. Bisk-
upinn er sterkari en skrefstuttur
riddarinn í svona stöðum auk þess
sem svörtu peðin á kóngsvæng
eru veikleiki til frambúðar.
24. - b6 25. Df3 - Dxf3 26.
Hxf3 - Kb7 27. Kc2 - Hed7
28. Hel - Kc6 29. He4 - Ha7
30. a3 - Had7 31. Hee3 - a5?
Það er misráðið hjá Magem að
hrófla við peðunum á drottningar-
væng. Réttast var að sitja aðgerð-
arlaus með öllu. Endataflið með
biskup gegn riddara er nú unnið
hjá hvítum.
32. Hd3! - a4 33. g4 - Hxd3
34. Hxd3 - Hd7 35. f4 - Rc7
36. Hxd7 Kxd7 37. Kd3 - Ke7
38. f5!
Hvítur hótar nú að leika 38.
f6+! og eftir uppskiptin öðlast
hvítur frípeð á h-línunni sem ræð-
ur úrslitum. Styrkleikamunurinn
á biskup livíts og svarta riddaran-
um kemur hér vel í ljós. Biskupinn
beinir spjótum sínum að svörtu
peðunum á kóngsvæng á meðan
riddarinn er innilokaður innan eig-
in varnarmúra.
38. - exfð 39. gxf5 - g6 40.
hxg6 — fxg6 41. fxg6 — h5 42.
Bel - Re6 43. Ke4 - Rg5+ 44.
Kf4 - Re6+ 45. Kf5 - Rd4+
46. Kg5
Nú gengur 46. — Rf3+ 47. Kh6
Rxel skammt sökum 48. g7 og
peðið verður a-drottningu. Svart-
ur gafst því upp.
Stjórnarfrumvarp um starfsmannamál:
Ríkisstofnanir fá aukin völd
í stjórnarfruiíivarpi, sein fjár-
málaráðherra hefur lagt fram,
er gert ráð fyrir að stjórnendur
stofnana, sem flyljast frá sveitar-
félögum til ríkisins um áramótin,
munu áfram annast ráðningar
og launavinnslu starfsmanna
sinna í héraði. Einnig er gert ráð
fyrir, að fjármálaráðherra geti
heimilað öðrum ríkisstofnunum
að sjá um framkvæmd kjara-
samninga og útreikning launa
fyrir starfsmenn sína.
í frumvarpinu er einnig gert ráð
fyrir því að opinberir starfsmenn í
þeim stöðum, sem flytjast til ríkis-
ins um áramótin, geti valið á milli
aðildar að viðkomandi stéttarfélagi
ríkisstarfsmanna og aðildar að
starfsmaiinaíelagi byggðarlagsins.
I frétt frá fjármálaráðuneytinu
Ráðhúsið:
*
Agreining'-
ur um auka-
fjárveitingu
ÁGREINlNGUR varð á fundi
borgarráðs á þriðjudag, vegna
tillögu um 105 milljón króna auk-
afjárveitingu til framkvæmda við
Ráðhúsið.
Lagðar voru fram bókanir á
fundinum vegna málsins og því
vísað til borgarstjórnar.
segir, að um síðustu áramót hafi
orðið verulegar breytingar á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Þær höfðu í för með sér, að um
800 starfsmenn sveitarfélaga urðu
ríkisstarfsmenn. Launavinnsla fyrir
þessa starfsmenn var þá færð til
launaskrifstofu fjármálaráðuneytis-
ins í Reykjavík í samrænii við stefnu
sem verið hefur síðustu áratugi, að
launavinnsla fyrir ríkisstarfsmenn
um allt land fari fram þar.
Um áramótin munu 3000 starfs-
menn í heilbrigðisþjónustu skipta
um atvinnurekanda og gerast ríkis-
starfsmenn. Fjármálaráðuneytið
segir, að nú þyki rétt að hverfa frá
fyrri stefnu og nota þetta tækifæri
til að stíga fyrstu skref í átt til
valddreifingar, aukinnar stjórnar
starfsmannamála í héraði og auk-
innar ábyrgðar einstakra stjórn-
enda í tengslum við þessar breyt-
ingar.
^ Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Árekstur við Álfabakka
Harður árekstur tveggja bifreiða varð á mótum Álfabakka og Stekkj-
arbakka skömmu fyrir klukkan 22 á þriðjudagskvöld. Tveir voru flutt-
ir á slysadeild, þar sem gert var að sárum þeirra, Bílarnir skemmd-
ust mikið.