Morgunblaðið - 22.11.1990, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER 1990
49
Hafliði í nýju versluninni. Morgunblaðið/Silli
Húsavík:
Ný niálniiig'arversluii
Húsavík.
MÁLNINGARÞJÓNUSTAN á
Húsavík opnaði verslun á
Húsavík fimmtudaginn 15. þessa
mánaðar á Garðarsbraut 22 og
verslar þar með málningarvörur
og allt, sem tilheyrir þeirri þjón-
ustu. Þeir versla með vörur frá
Málningu hf., Efnamiðstöðinni
og fleirum.
Eigendur *. Málningarþjónustunn-
ar eru fimm málarar hér í bæ, sem
undanfarin ár hafa verið hér aðal-
verktakar málningarvinnu og hugsa
sér nú að veita sérstaka faglega
ráðgjöf í sambandi við málningu.
Nú um tíma ætla þeir að veita þjón-
ustu utan afgreiðslutíma búðarinn-
ar og hafa vaktir um kvöld og helg-
ar, svo þeir sem mála sjálfir heima
hjá sér og verða uppiskroppa með
málningu, geta hvenær sem er
hringt í Málningarþjónustuna og
fengið fúslega veitta þjónustu.
Framkvæmdastjóri Málningar-
þjónustunnar er Hafliði Jónsson
málarameistari.
- Fréttaritari.
Skáldsaga eftir
Hallgrím Helgason
ÚT ER komiu hjá Máli og menn-
ingu skáldsagan Hella eftir
Hallgrím Helgason sent er lians
fyrsta skáldsaga.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Sagan fjallar um fjóitán ára stúlku
í þorpi úti á landsbyggðinni. Hún
afgreiðir í Söluskálanum þar sem
inn streyma af þjóðveginum þýskir
túristar, fjölskyldur úr Reykjavík,
þéttvaxnir ■ flutningabílstjórar og
töffarar á fylleríi. Hestamannamót-
ið nálgast og þá dregur til tíðinda
í lífi hennar og lífi hins friðsæla
sveitaþorps.
Hella er nýstárleg skáldsaga um
ísland. Hér er lýst ungu fólki og
ungri þjóð, dægurmenningu og
umróti, aldagömlum hefðum og rót-
grónum einkennum og ekki sjst
síkvikri náttúru."
Bókin er 154 bls., prentuð hjá
G. Ben. prentstofu hf. Ingibjörg
Hallgrímur Helgason
Eyþórsdóttir hannaði kápu, en ljós-
myndir á kápu tók Lárus Karl Inga-
son.
MICROUNE DAGAR
Við höldum kynningu á OKI MICROUNE tölvu-
prenturum í húsakynnum okkar að Skeifunni 17 og
stendur hún til 24. nóvember næstkomandi.
OKI MICROLINE hefur löngum verið val þeirra,
sem gera mestar kröfur um prentgæði og mikla
endingu og segir það sína sögu að nú hafa yfir 5000
MICROLINE prentarar verið seldir hérlendis !
Fjölmargir prentarar verða sýndir, þar á meðal nýi
OKILASER prentarinn, sem er fyrirferðarminni og
tæknilega fullkomnari en flestir aðrir laser prentarar
á markaðnum í dag.
Meðan á kynningunni stendur bjóðum við sérstakan
afslátt á þessum prentara og er verðið nú aðeins:
Kr. 124.900 stgr*
Athugið að aðeins takmarkað magn verður boðið á
þessu verði.
*Afb. verð er kr. 129.900
VERIÐ VELKOMIN I
MICROLINE LASER 400
AF-10 SUPER
SÉRTILBOÐ KR. 9.950.- stgr.
m/dagsetningar-
möguleika 10.950.- Stgr.
Aíborgunarskilmálar [g]
VÖNDUÐ VERSLUN
688005 I
f \
OLYMPUS
ALSJÁLFVIRK
MYNDAVÉL
(Auto Focus)
Bragðgott
og brakandi
u jonnson & Kaöber h f
...ekki bara kafíi
SlMI: 91 -24000
OKI
TÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665/687175
SklMVW
*■ (,()TI ■