Morgunblaðið - 22.11.1990, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER 1990-
53
Minning:
SalbjörgL Jónatans-
dóttir frá Hrísey
Salbjörg Ingibjörg Jónatansdótt-
ir fæddist 10. ágúst 1914 á Siglu-
firði, dóttir hjónanna Jónatans Guð-
mundssonar söðlasmiðs, sem var
Skagfirðingur, og Vilhelmínu Norð-
ijörð Sigurðardóttur frá Mjóafirði.
Þegar Salbjörg var sex ára flutti
Ijölskyldan til Hjalteyrar og fimm
árum síðar til Hríseyjar.
Systkinin urðu fjórtán. Þijú dóu
barnung; Maríus, og tvíburarnir
Gunnþórunn og Sigurður. Af þeim
sem upp komust lifa nú sex; Sig-
urlína, Guðrún, Valgerður, Lovísa,
Halla og ísafold, en fimm eru látin;
Sigurður, Tryggvi, Guðmundur og
nú Salbjörg.
Átján ára gömul giftist Salbjörg
Oskari Siguivin Kristjánssyni frá
Framnesi í Grýtubakkahreppi og
bjuggu þau í Hrísey. Börn þeirrá
eru fimm; Ósk Norðfjörð, Hjördís
Sigríður, Kristján og Vilhelmína
Norðfjörð. Óskar og Salbjörg fluttu
1956 til Akraness og bjuggu þar í
tvö ár en þá skildu þau. Salbjörg
flutti til Reykjavíkur með yngstu
börnin.
Hún hafði þá þegar fundið til
veikinda en orsökin fannst ekki fyrr
en hún veiktist alvarlega 1962. Þá
gekkst hún undir hættulega höfuð-
aðgerð í Danmörku og náði sæmi-
legum bata. Tólf árum síðar fékk
hún alvarlegt heilablóðfall. Hún
barðist þó til nokkurrar heilsu á ný
en þó mikið skertrar. Nokkur ár
var hún á hjúkrunarheimilinu
Grund og vann þar hlutastarf í
þvottahúsi nokkurn tíma. Viljinn
var alltaf óskertur. Hún fór svo af
Grund rúmlega sjötug og bjó sjálf-
stæð til dauðadags, síðustu árin á
Mánagötu 6. Síðustu mánuðirnir
voru henni mótdrægir vegna veik-
inda. Snemma árs hafði greinst í
henni illkynja sjúkdómur og hefur
sá nú sigi'að. Meiripartinn var hún
þó heima, núna síðast nær mánuð.
Hún sofnaði svo burt 11. nóvember
á Landakotsspítala, þá eftir stutta
legu.
Salbjörg var atorkudugleg kona.
í Hrísey vann hún mikið við útgerð
þeirra hjóna við mannahald, beitn-
ingar og fisk ásamt með heimilis-
haldinu. Eftir að suður kom vann
hún verkakvennastörf og fjölda
sumra sáltaði hún síld, var umtals-
verð kappmanneskja. Börnin fóru
ung að vinna og hjálpuðu mikið.
Salbjörg vann sér og sínum svika-
laust og hlífðist ekki. Einhverntíma
hefur hún ofboðið sér því hún veikt-
ist af asthma sem varð henni þung-
ur og batnaði ekki.
Salbjörg var rnikil mannperla.
Þó ævin hafi verið misvindasöm þá
mæddist hún ekki. Eignamissir og
jafnvel heilsutap slævði ekki lífsbar-
áttuviljann. Hún stríddi til rnikils
og mikið hún fékk, var sú gæfu-
manneskja að muna illa mótlætið,
kannske mest fyirr það hve lífið er
í raun gjöfult. Hennar mesti auður
var barnalán. Börn hennar og mak-
ar þeirra hafa verið mannkostafólk.
Það voru björtustu sólargeislarnir
hennar Salbjargar og þeim íjölgaði
með barnabörnunum. Lífið er dýrt.
Víst var stundum á brattan en ekki
til lítils Iifað; mikil umbun fékkst
fyrir mikið starf.
Það er sárt að sjá af Boggu,
þessari látlausu hetju hversdagslífs-
ins. Tvisvar hafði hún fengið frest-
un hjá sínúm mikla meistara, nú
voru k'omin leiðarlok. Nú er mikið
ljóst hvað maður hefur mikið að
þakka.
Hennar Ijós var hlýtt og bjart.
Það yljar og lýsir okkui' leiðir fram.
Fyrir mig og ástvini Salbjargar
þakka ég starfsfólki Landakotsspít-
ala góða umönnun.
Þórður
-------*-+-*--------
■ NÆSTKOMANDl fimmtudag,
22. nóv., munu hljóðverk verða flutt
úr Stað í Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3b. Hljóðverkin munu
G.G.R.G.R.G.G.R.G.G. flytja og
mun flutningur hefjast upp úr
klukkan 20.30. Flutningur þessi er
í tilefni af sýningu Kristínar Reyn-
isdóttur sem hófst 16. nóvember
síðastliðinn og stendur til 2. des-
ember. Sýningin er opin daglega
frá kl. 14-18.
Yndislegu vinir, ættingjar og allir, sem gerðu
mér 13. nóvember sl. ógleymanlegan meö gjöf-
um, blómum og skeytum:
Þakka ykkur af alhug.
Hansina Einarsdóttir,
Engjavegi 29,
ísafiröi.
BREIÐHOLT
STEKKIR I:
Skriðustekkur - Lambastekkur
Hólastekkur - Urðarstekkur
Hressandi morguntrimm,
sem borgar sig.
p|iírr0íiwilitóilji
Sími 691253
MIKIÐ URVAL AF LEIKFONGUM
JÓLASKRAUT Á SPRENGHLÆGILEGU VERÐI
SÉRTILBOÐ
HVÍT 6 MANHA MATARSTELL KR. 2.990
HVÍT 6 MANNA KAFFISTELL 1 R , ' ' I KR. 1.990
ÁÐUR Rð
BARNAKRUMPU6ALLAR KR. 7.375 2.900
KRUMPU6ALLAR KR. 8.900 3.900
BARNASKÍOAGALLAR KR. S.990 2.900
SVARTAR GALLABUXUR KR. 3.990 1.990
S/ENGURVERASETT KR. 1.790 890
SNJÓBOMSUR KR. 2.870 1.100
- allar stæröir
SÉRTItBOÐ
BARNAÚLPUR
ÁDUR KR. 4.990
NÚ KR. 1.990
OPIÐ VIRXA DA6A FRÁ KL. 12.00 TIL 18.00
LAUGARDA6A FRÁ KL. 10.00 TIL 10.00
SNORRABRAUT 56, 2. HÆÐ