Morgunblaðið - 22.11.1990, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER 1990
55
\
Guðrún L. Sigfús-
dóttir - Minning
Fædd 25. janúar 1911
Dáin 13. nóvember 1990
Mig langar að kveðja Rúnu mág-
konu mína, Guðrúnu Lilju Sigfús-
dóttur, og minnast hennar með ör-
fáum orðum.
Ég fann alltaf hlýja strauma frá
henni, þar af leiddi að ég hafði þá
reglu að hringja reglulega til henn-
ar eftir að hún varð ekkja þótt heim-
sóknir væru sttjálar. Ég minnist
hennar með trega því hún sýndi
mér tryggð og var ávallt hlýleg í
viðmóti við mig.
Hún var föst fyrir, hafði ákveðn-
ar skoðanir á hlutunum og sagði
þær hispurslaust og af sanngirni,
gat jafnvel verið höst ef því var að
skipta.
Ég kynntist henni 1938 árið sem
hún giftist bróður mínum. Það
hausf tóku þau mig í fóstur og var
ég hjá þeim í 9 mánuði, síðasta
vetur minn í barnaskóla, en móðir
mín var þá flutt til Reykjavíkur frá
ísaftrði. Ég var því fegin að þurfa
ekki að breyta um skóla og þess
vegna fannst mér alltaf ég standa
í þakkarskuld við hana.
Hún var kölluð Rúna af okkar
fólki og vissum við ekki að hún var
kölluð Gunna af sínu fólki og flest-
um Hafnfirðingum, fyrr en mörgum
árum síðar.
Guðrún Lilja fæddist í Hafnar-
firði 25. janúar 1911 og hefði orðið
80 ára næst í janúar. Foreldrar
hennar voru Sigfús Þórðarson og
k.h. Þórhildur Magnúsdóttir ættuð
úr Rangárvallasýslu, af Víkings-
lækjarætt. Hún giftist 31. maí 1938
Svanberg Magnússyni, f. 9. janúar
1909, d. 25 apríl 1974. Börn þeirra
eru: Gunnbjörn, f. 13. mars 1942,
á ísafirði, rafvirki að mennt, kvænt-
ur Unni Helgadóttur, þau eiga tvo
syni, Gunnar og Eyjólf Svanberg,
og búa í Hafnarfirði. Þórhildur, f.
7. mars 1947 í Hafnarfirði, þroska-
þjálfi að mennt, hún er gift Unnari
Halldóri Ottesen, þau eru búsett á
Akureyri.
Rúna og Svanberg byijuðu bú-
skap á ísafirði þar sem hann var
skipstjóri á v/b Auðbirni en þau
fluttu suður til Hafnarfjarðar 1942
og áttu heimili sitt upp frá því í
Mjósundi 2 þar sem hún ólst upp.
Ég minnist þess, þann vetur sem
ég var hjá henni, að allt var í röð
og reglu. Þau voru bæði vandvirk
og handbragð þeirra framúrskar-
andi. Mikið er til eftir hana af
handavinnu og hún vann alveg til
síðasta dags.
Veturinn sem ég var hjá henni,
þá 12 ára, man ég eftir einu atviki
sem mér þótti miður og man alltaf
eftir ,en það var að hún ávítaði mig
fyrir að vera eins og strákur að
hoppa yfir girðingar en það gerðum
við í leik stelpurnar í mínum bekk.
Hún var siðavönd og vildi leiðbeina
mér og sagði að ég væri of stór til
að vera í svona leik og ég tók það
til greina. Hún var há vexti, grönn
og tíguleg með ljóst mikið hár í
tveim þykkum fléttum og gekk
venjulega í íslenskum búningi er
hún fór útí bæ. Það var ekki laust
við að ég væri hreykin af mágkonu
minni í þessari aðskornu síðu svörtu
kápu, svona ung og settleg.
Það var gott að vera hjá þessum
ungu hamingjusömu hjónum. Þau
kenndu mér að vinna vel 'þá handa-
vinnu sem mér bar í skóla og svo
lærði ég að búa til sérlega fallegt
jólaskraut og fleira. Nú vil ég
þakka henni fyrir samveruna í
þessu lífi, fyrir þær stundir sem hún
kenndi mér og fyrir góðmennsku
hennar gagnvart mér.
Ég bið henni Guðs blessunar.
Gunnbirni og Þórhildi ásamt
mökum þeirra og sonarsonum,
Rúnu, Gunnari og Eyjólfi yotta ég
innilega samúð.
Pálína Magnúsdóttir
Kveðjuorð:
Njáll Þórðarson
Fæddur 24. november 1908
Dáinn 2. nóvember 1990
í gær var elskulegur afi okkar,
Njáll Þórðarson, borinn til hinstu
hvílu. Nú þegar vetrarsólin varpar
geislum sínum yfir minningar um
afa okkar þá er margs að minnast
úr æsku. Afi var sérstakur persónu-
leiki og hvað sem á gekk haggaðist
hann aldrei, kom það best í ljós
þegar móðir okkar stóð ein uppi
með okkur systkinin.
Afi okkar var mjög farsæll skip-
stjóri á bátum frá Akranesi og
gerði þar út þar til hann fluttist
árið 1960 til Reykjavíkur. En þá
urðu breytingar á högum afa, því
að hann fór að vinna hjá Fram-
leiðslueftirliti sjávarafurða. Starf-
aði hann-þar sem deildarstjóri, þar
til hann varð frá að hverfa vegna
aldurs. Við systkinin eigum hlýjar
og góðar minningar frá heimili afa
og ömmu sem okkur var alltaf
opið. Afi og amma voru mjög sam-
hent og sýndi það sig best seinni
árin hversu dugleg þau voru að
ferðast, innanlands sem utan.
Veitti það þeim mikla ánægju og
hamingju og þökkuðu þau það
góðri heilsu. Nú biðjum við góðan
Guð að styrkja elsku ömmu okkar
í sorg hennar.
Helga, Kristín, Njáll og Sigurður
Tluta/ZCb
Heílsuvörur
nútímafólks
AXIS
AXIS HUSGOGN HF.
SMIÐJUVEGI 9, KÓPAVOGI
SÍMI: 43500
GRANIT^mL
ISLENSKT HUS GA GNAFYRIR TÆKI
SEM STENDUR UPP ÚR
91-18880 . 91-29311 91-76650 91-687858 91-611700
AUSTURSTRÆTI - VIÐHLEMM - MJÓDD - KRINGLUNNI -ElÐISTORGl
í verslanum
Metsölulisti New York Times
mEST SELDU KILJURnRR
SKÁLDSÖGUR
Vikur
á listanum
Dawn eftir V.C. Andrews. Skólastúlka
í Virginíu verður fyrir skelfilegum
ásóknum
Daddy eftir Danielle Steel.
The Dark Half eftir Stephen King.
Reasonable Doubt eftir Philip Friedman.
The Secret Diary of Laura Palmer
eftir Jennifer Lynch.
Sorceress of Darshiva eftir David Eddings.
The Captive eftir Victoria Holt.
The Minotaur eftir Stephen Coonts.
Exiles, Strak Trek Next Generation
eftir Howard Weinstein.
Defcon One eftir Joe Weber.
Presumed Innocent eftir Scott Turow.
Postcards from the Edge eftir Carrie Fisher
Oldest Living Confederate Widow Tells All
eftir Alex Gurganus.
California Gold eftir John Jakes.
So Worthy My Love
eftir Kathleen E. Woodiwiss.
Eymnndsson
WEBSTER’S DESK
DICTIONARY
Víðtæk, ýtarleg og
afar handhæg 1100
blaðsíðna ensk-ensk
orðabók á aðeins
550 krónur.
H