Morgunblaðið - 22.11.1990, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR
22. NOVEMBER 1990
Úlfar Jónsson lék mjög vel og er í 31. sæti í einstaklingskeppninni.
ÚRSLIT
Handknattleikur
2. deild karla:
ÍH-Ármann.................20:19
2. deild kvenna:
Ármann-ÍBK................16:15
Haukar - Grindavík.......21-ilO
Knattspyrna
Evrópukeppni landsliða, 6. riðill
Rotterdam:
Ilolland - Grikkland........2:0
Dennis Bergkamp (7.) og Marco van Basten
(18.).
Áhorfendur: 25.000.
Staðan:
Portúgal.............,...2 1 1 0 1:0 3
Grikkland..................2 1 0 1 4:2 2
Holland.................. 2 1 0 1 2:1 2
Finnland...................1 0 1 0 0:0 1
Maita......................1 0 0 1 0:4 0
■Næsti leikur: Malta - Finnland 25. nóv-
ember.
ítalska bikarkeppnin, 3. umferð, síðari leik-
ir:
Lecce — AC Mílan...................2:2
(AC Mílan vann samanlagt 5:2)
Genoa — AS Roma....................1:1
(Roma vann samanlagt 3:1)
Góð byijun en óheppni í lokin
íslendingar í 29. sæti eftirlyrsta daginn.
daginn. Frábærárangurhjá Úlfari
ÚLFAR Jónsson og Sigurjón
Arnarsson eru í 29. sæti eftir
fyrsta daginn á Heimsmeist-
aramótinu í golfi sem fram fer
á Grand Cypress vellinum í
Orlando. Þeir léku á 156 högg-
um og eru 20 höggum á eftir
Englandi sem er í efsta sæti.
Úlfar lék mjög vel, var aðeins
einu höggi yfir pari, en Sigurjón
náði sér ekki á strik, var 11
högg yfir pari. Óheppni á
síðustu holunum setti strik í
reikninginn hjá þeim báðum en
þá bættu þeir báðirtveimur
höggum við. Þess má geta að
ífyrradag, er leikmenn fengu
að æfa á vellinum, lék Úlfar á
71 höggi, einu höggi pari, sem
er frábært. Sigurjón lék á 76,
sjö höggum betur en f gær.
Ulfar lék af miklu öryggi í gær.
Fyrri níu holur var hann einu
höggi yfír pari og í síðari hlutanum
átti hann mjög góðan kafla. Lék
14. og 15. holu undir pari en missti
það aftur á tveimur síðustu holun-
um. Hann er í 31. sæti sem er frá-
bær árangur, er t.d. einu höggi á-
undan Ronan Rafferty, sem er einn
besti kylfingur í heimi og einu á
eftir Ian Woosnam.
„Ég er ekki alveg sáttur við dag-
inn og veit að ég hefði getað gert
betur. En það hefði líka getað verið
verra," sagði Úlfar. Hann sagðist
vera óánægður með síðustu holum-
ar. Á 17. holu lentu þeir í glompu
og á þeirri síðstu þrípúttuðu þeir
Sigurjón Arnarsson lék vel fram-
an af.
báðir. „Ef allt gengur úpp ætti ég
að geta leikið á 68 til 69 höggum.
Ég átti nokkur slæm högg í dag
og við stefnum að því að bæta okk-
ur,“ sagði Úlfar.
Sigutjón var fjögur högg yfir
pari eftir fyrri níu en á þeim síðari
bætti hann sjö höggum við. Hann
lék tvær fyrstu holurnar á pari en
eftir það gekk honum illa og síðustu
sjö holurnar lék hann á sjö höggum
yfir pari.
Frábær árangur
Síðustu tvær holurnar voru
slæmar og þar töpuðust fjögur dýr-
mæt högg. Árangur íslendinganna
Heimsmeistarakeppnin í golfi
Staðan eftir fyrsta dag. Par vallarins er 72.
136 England Richard Boxall 68, Mark James 68
137 Spánn Jose Rivero 68, Miguel Jimenez 69
138 Argentína Miguel Guzman 69, Luis Carbonetti 69
Skotland Gordan Brand Jr 69, Sam Torrance 69
Bandaríkin Jodie Mudd 69, Payne Stewart 69
139 Tailand Saneh Sanqsui 65, Taworn Wiratehant 74
140 Wales Mark Mouland 68, Ian Woosnam 72
141 Suður-Kórea Sang-Ho Choi 70, Nam-Sin Park 71
Svíþjóð Mats Lanner 67, Magnus Persson 74
Þýskaland Torsten Giedeon 70, Bernhard Langer 71
142 Kanada Dave Barr 69, Rick Gibson 73
Nýja-Sjáland Frank Nobilo 68, Greg Turner 74.
írland Ronan Rafferty 72, David Feherty 70
143 Ástralía Peter Senior 68, Brian Jones 75
144 Danmörk Anders Sörensen 67, Steen Tinning 77
Frakkland Jean Van de Velde 70, Emmanuel Dussart 74
145 Mexíkó Carlos Pelaez 73, Carlos Espinoza 72
Sviss Paolo Quirici 72, Andre Bossert 73
Kína Ching-Chi Yuan 71, Liang-Hai Chen 74
148 Jamaíka Seymour Rose 72, Christian Bernard 76
Ítalía Constantino Rocca 74, Alberto Binaghi 74
150 Brasilía Rafael Navarro 72, Acacio Jorge Pedro 78
Holland Ruud Bos 75, Chris van der Velde 75
Bermúda Dwayne Pearman 73, Keith Smith 77
151 Kólumbía Ivan Renjifo 75, Juan Pinzon 76
153 Filipseyjar Robert Páctolerin 76, Francisco Minoza 77
Japan Tadami Ueno 75, Katsuyoshi Tomori 78
154 Singapore Samson Gimson 79, Bill Fung Hee Kwan 75
156 ísland Úlfar Jónsson 73, Siguijón Amarsson 83
160 Fiji-eyjar Manoa Rasigatale 79, Vilikesa Kalou 81
161 Puerto Rico Jesus Rodriguez 80, Julio Martinez 81
164 Tékkóslóvakía Jiri Zavazal 77, Miroslav Nemec 87
er þó frábær. Úlfar gefur þeim
bestu lítið eftir og hefur leikið mjög
vel. Sigutjón hefur ekkert getað
æft síðustu vikur og leikur vel mið-
að við það.
Mótið stendur yfir í fjóra daga
og er ekki hægt að segja annað en
að byijunin lofi góðu. Islendingum
var spáð í neðsta sæti fyrir mótið
en þeir sýndu að þeir eiga mögu-
leika á að gera betur.
Árangur
íslands
Árangur íslenska liðsins.
Fyrst par holunnar, svo ár-
angur Úlfars og Siguijóns
og loks hve mikið yfir.eða
undir pari. 1. (4) 4 4 0
2. (5) 5 6 +1
3. (4) 4 4 0
4. (3) 3 3 0
5. (4) 5 5 +2
6. (5) 5 6 + 1
7. (4) 4 4 0
8. (3) 3 3 0
9. (4) 4 5 +1
Út (36) 37 40 +5
10. (4) 4 4 0
11. (5) 4 5 -1
12. (3) 4 4 ■ +2
13. (4) 4 5 +1
14. (4) 3 6 +1
15. (5) 4 6 0
16. (4) 4 4 0
17. (3) 4 4 +2
18. (4) 5 5 +2
Inn (36) 36 43 +7
St. (72) 73 83 +12
Ikvöld
Körfuknattleikur
Haukar og ÍR leika í 1. deild kvenna
í fþróttahúsinu Strandgötu kl. 19.00.
Handknattleikur
Stjarnan og Grótta leika í 1. deild
kvenna í Garðabæ kl. 18:30. Tveir
leikir verða í 2. deild karla í kvöld.
Þór og Völsungur eigast við á Akur-
eyri kl. 20:30 og UMFN og Breiða-
blik i Njarðvík kl. 20:00.
GOLF / HM
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍÞýskalandi
ÍÞRÓmR
FOLK
H ALFREDO Di Stefano var ráð-
inn. þjálfari spænska liðsins Real
Madrid í gær. Hann tekur við af
John Toshack sem var rekinn frá
félaginu á mánudag og mun stjóma
liðinu út tímabilið. Di Stefnao, sem
er 64 ára gamall Ai-gentínumaður,
lék á sínum tíma með Real Madrid
og var þjálfari þess 1982 til 1984.
Aðstoðarmenn hans verða þeir
Ramon Moreno Grosso og Jose
Antonio Camacho, sem báðir hafa
leikið með Real Madrid.
BRESKA Ólympíunefndin
hefur í hyggju að sækja um að
halda Ólympíuleikana árið 2000,
en endanleg ákvörðun um það verð-
ur tekin í næsta mánuði og þá í
hvaða borg. Manchester sótti um
að halda leikana 1996, en fékk
ekki þar sem ieikarnir verða haldn-
ir í Atlanta í Bandaríkjunum það
ár. Ástralir hafa þegar sótt um að
halda leikana 2000 í Sydney og
eins hefur Berlín og Beijing sótt
um að halda sömu Ieika.
■ WERNER Fuchs, þjálfari
Herta Berlín í vestur-þýsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu, var rekinn
frá félaginu um helgina. Pal
Zernai, sem var
þjálfari Bayern
Miinchen er Ásgeir
Sigurvinsson var
hjá félaginu 1982,
tekur við liðinu sem nú er í neðsta
sæti deildarinnar.
■ PETER Neururer þjálfara
Schalke 04, var sagt að taka
pokann hjá félaginu á sunnudaginn.
Schalke 04 er eitt frægasta félag
Þýskalands og er í efsta sæti 2.
deildar. Það kom því mjög á óvart
að Neururer, sem hefur verið hjá
félaginu í tvö ár, var látinn hætta.
Við störfum hans tekur Aleksand-
ar Ristic, sem nú þjálfari Diissel-
dorf. Schalke var áður búið að
semja við Ristic um að hann tæki
að sér þjálfun liðsins eftir þetta
tímabil. Ekki er Ijóst hvort hann fái
sig lausan frá Dusseldorf fýrr en
samningur hans rennur út 1. júlí á
næsta ári.
■ KARLHEINZ Feldkamp,
þjáifari Kaiserslautern, hefur sýnt
áhuga á að kaupa Marcel Witeczek
frá Bayer Uerdingen. Feldkamp
var áður þjáflari hjá Uerdingen
og þekkir því vel til Witeczeks.
■ WIELAND Schmidt, austur-
þýski landsliðsmarkvörðinn í hand-
knattleiks sem leikur nú með Ha-
meln í vestur-þýsku 2. deildinni,
hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna eftir þetta keppnistímabil.
FELAGSLIF
Víkingar með
afmælishóf
Handknattleiksdeild Víkings
heldur upp á 50 ára afmæli
deildarinnar á föstudaginn. Afmæl-
ishóf Víkinga verður í Fóstbræðra-
heimilinu og hefst það kl. 20. í til-
efni dagsins verða margir Víkingar,
sem hafa komið við sögu sl. fimmtíu
ár, heiðraðir. Foráðamenn deildar-
innar vonast að sem flestir Víking-
ar mæti. Verð aðgöngumiða er kr.
1.500.
AðalfundurGolf-
klúbbs Kópavogs
Aðalfundur Golfklúbbs Kópavogs
verður haldinn í Félagsheimili
Kópavogs , 2. hæð, sunnudaginn
25. nóvember og hefst kl. 16. Kos-
ið verður í stjórn, auk venjulegra
aðalfundarstarfa. Hannes Valdi-
mareson, varaforseti GSÍ, flytur
ávarp.