Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 7

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 7
ÍSLENSKA AUCLÝSINGASTOFAN Hf. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 7 STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Steinunn Sigurðardóttir hefur á undanförnum árum unnið marga sigra með ritverkum sínum, sögum og ljóðum og hlotið fyrir þau mikið lof. Síðasta orðið er viðamikið og frumlegt skáldverk þar sem hún leikur sérlistilega að máli og stíl eins og henni einni er lagið. IÐUNN Að landlæknisdótturinni glæsilegu, Öldu Ivarsen, standa sterkir stofnar valmenna og kvenskörgunga. Hér stíga ættmenni hennar ffam á sjónarsviðið, eitt af öðru, séð með augum samferðarmanna sinna. Þetta er mikill ættbogi, „þrútinn af lítillæti, manngæsku og stórhug,“ en byrgir bresti sína og leyndarmál bak við luktar dyr. I þessari margslungnu og áleitnu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur er saga þessa fólks sögð í eftirmælum, greinum og sendibréfum héðan og að handan. Öll er sú saga ofin ísmevgilegri kímni, nöpm háði og einlægri samúð. Og eins og oft gerist í eftirmælum segir það sem ósagt er látið einatt hálfa söguna. ♦ VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR ♦ Ævi og örlög Einars Benediktssonar Einar Benediktsson er einn merkilegasti og stórbrotnasti maður sem fæðst hefur á þessu landi. Fáir íslendingar hafa barist af meiri eldmóði fyrir hugsjónum sínum en Einar Benediktsson. Ljóð hans lifa með þjóðinni, djúpvitur sannleikur, áköf barátta, snilld sem á fáa sína líka. Athöfn fylgdi orði, og lífshlaup hans var ferð um breiðgötur heimsins. Gils Guðmundsson rekur hér ævintýralegan æviferil skáldsins og veitir innsýn í verk hans og óvenjulega athafnasemi. Hafsjór fróðleiks, frásagna af hinum mikla væringja íslensku þjóðarinnar. & & ík ♦ V A NDAÐAR BÆKUR í 45 Á R ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.