Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 7
ÍSLENSKA AUCLÝSINGASTOFAN Hf.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
7
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
Steinunn Sigurðardóttir hefur á
undanförnum árum unnið marga sigra
með ritverkum sínum, sögum og ljóðum
og hlotið fyrir þau mikið lof. Síðasta
orðið er viðamikið og frumlegt skáldverk
þar sem hún leikur sérlistilega að máli og
stíl eins og henni einni er lagið.
IÐUNN
Að landlæknisdótturinni glæsilegu, Öldu
Ivarsen, standa sterkir stofnar valmenna
og kvenskörgunga. Hér stíga ættmenni
hennar ffam á sjónarsviðið, eitt af öðru,
séð með augum samferðarmanna sinna.
Þetta er mikill ættbogi, „þrútinn af
lítillæti, manngæsku og stórhug,“ en
byrgir bresti sína og leyndarmál bak við
luktar dyr.
I þessari margslungnu og áleitnu
skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur er
saga þessa fólks sögð í eftirmælum,
greinum og sendibréfum héðan og að
handan. Öll er sú saga ofin ísmevgilegri
kímni, nöpm háði og einlægri samúð. Og
eins og oft gerist í eftirmælum segir það
sem ósagt er látið einatt hálfa söguna.
♦ VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR ♦
Ævi og örlög
Einars Benediktssonar
Einar Benediktsson er einn merkilegasti og
stórbrotnasti maður sem fæðst hefur á þessu landi.
Fáir íslendingar hafa barist af meiri eldmóði fyrir
hugsjónum sínum en Einar Benediktsson. Ljóð hans
lifa með þjóðinni, djúpvitur sannleikur, áköf
barátta, snilld sem á fáa sína líka. Athöfn fylgdi
orði, og lífshlaup hans var ferð um breiðgötur
heimsins.
Gils Guðmundsson rekur hér ævintýralegan æviferil
skáldsins og veitir innsýn í verk hans og óvenjulega
athafnasemi. Hafsjór fróðleiks, frásagna af hinum
mikla væringja íslensku þjóðarinnar.
&
&
ík
♦ V A NDAÐAR BÆKUR í 45 Á R ♦