Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 20
rs
20 -
06(!í H33M323a 3UOAaiJW3Ifl<I ai0Atl3HrJO5IOM
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
MANSTU EFTIR
steikinni hennar mömmu úr
r¥mer pottinum?
i I l 111 Lí
Nú eru þessir sívinsælu leirpottar aftur fáanlegir hér á landi
ó betra verði en nokkru sinni fyrr. Heilnæmari og bragðbetri
steiking fæst ekki. Römer leirpotturinn byggir á aldagamalli
matreiðsluhefð Rómverja. íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir.
3 stærðir. Verð 1.290,1.690,2.450.
Heíldsala - smásala
Einar
Borgartúni 28, sími 622901.
Gabriela Sabatini
ILMVÖTN OG BAÐVÖRUR
LEIKANDI LÉTTURILMUR í ANDA
LÉTTS LEIKS Á VELLINUM
Útsölustaðir: Stella, Bankastræti; Hagkaup, Kringlunni og Skeifunni;
Snyrtivöruverslunin, Glæsibæ; Stykkishólmsapótek; Kaupfélag Eyfirðinga,
Akureyri; Rangárapótek; Annetta, Keflavík.
Námsgögn
og kennarar
eftir Birgi ísleif
Gunnarsson
Frumvarp það til grunnskólalaga
sem Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, hefur lagt fram á Alþingi
er nokkuð breytt frá því frumvarpi
sem lagt var fram á síðasta þingi.
Flestar eru breytingarnar til bóta og
þá einkum að meira tillit er nú tekið
til sveitarfélaga í kjölfar nýrra laga
um verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga.
Namsgögn
í frumvarpinu er gengið lengra í
valddreifingu en í fyrra frumvarpi,
þótt augljóslega megi gera betur í
þeim efnum. Einkum mætti auka
sjálfstæði skólanna sjálfra og efla
stjórnedur þeirra til meiri ábyrgðar.
Ljóst er að hjarta ráðherrans slær
með miðstýringu, en á móti kemur
kall tímans um aukna ábyrgð skóla.
Frekari hugleiðingar um það verða
þó að bíða betri tíma.
Eitt atriði frumvarpsins vil ég hins
vegar gera sérstaklega að umtalsefni
í þessari grein en það er ákvæðið
um námsgögn. Ljóst er að í kjölfar
álitsgerðar umboðsmanns Alþingis
um kaup á námsbókum, viðurkenn-
ingu á námsbókum og efnisgjöld
hefur farið fram mikil athugun í
ráðuneytinu á þessum málum. Um-
boðsmaður komst að þeirri niður-
stöðu að óheimilt væri að láta nem-
endur í skyldunámi kaupa námsbæk-
ur, að menntamálaráðuneytinu hafi
borið samkvæmt eldri lögum um
Námsgagnastofnun að annast viður-
kenningu á námsgögnum og að
óheimilt væri að ætla nemendum að
greiða svokallað efnisgjald.
Miðstýring á námsefni
I 50. grein lagafrumvarpsins er
kveðið á um hvemig framtíðarskipun
þessara mála eigi að vera. í greinar-
gerð frumvarpsins er niðurstöðunni
lýst á eftirfarandi hátt:
„Er tekið af skarið um það í 50.
grein frumvarpsins að nemendur í
skyldunámi skuli ekki greiða fyrir
kennslu, námsgögn eða annað efni
sem þeim er skylt að nota. Þetta
þýðir í raun að skólar eiga að fá öll
námsgögn frá Námsgagnastofnun
eða fyrir milligöngu hennar. “ (Letur-
breyting mín.)
Hér er of langt gengið og í raun
þýðir þetta ofsalega miðstýringu á
námsefni. Nú er það vitað að kennar-
ar hafa í nokkuð ríkum mæli útbúið
námsefni fýrir nemendur. Fyrir því
hafa aðallega verið tvær ástæður:
Onnur er sú að námsefni hefur hrein-
lega vantað. Hin ástæðan á rætur
að rekja í sköpunargleði kennara.
Kennarar hafa útbúið efni til uppfyll-
ingar og þannig komið sínum per-
sónulega stíl og sínum eigin kennslu-
aðferðum á framfæri. Þetta hefur
verið þáttur í að gera kennslu góðra
kennara í grunnskólum lifandi og
oftast árangursríkari.
Losa þar um
Nú á að taka fyrir þetta. Nú eiga
öil námsgögn „að koma frá Náms-
gagnastofnun eða fyrir milligöngu
hennar". Þetta er ekki að stuðla að
sjálfstæði skóla eða starfsmanna
þeirra. Ég er eindregið þeirrar skoð-
unar að kennarar eigi áfram að geta
samið efni ef þeir vilja innan ramma
námsskrár. Með því er nýtt sköpun-
argleði þeirra nemendum í hag. Það
Birgir ísleifur Gunnarsson
„Ég er eindreg’ið þeirr-
ar skoðunar að kennar-
ar eigi áfram að geta
samið efni ef þeir vilja
innan ramma náms-
skrár. Með því er nýtt
sköpunargleði þeirra
nemendum í hag.“
efni hlýtur auðvitað að kosta peninga
og því tel ég alls ekki úr vegi að
lögfest verði heimild fyrir skóla að
innheimta efnisgjald fyrir slíkt efni
eins og tíðkast hefur.
Önnur leið er sú að skólarnir fái
ákveðna fjárveitingu til kaupa á
námsgögnum og ráði því svo sjálfir
hvernig það er nýtt. Gætu þeir þá
ýmist greitt kennurum skólans fyrir
það námsefni sem þeir framleiða eða
keypt frá öðrum en Námsgagna-
stofnun.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.
Fjörukráin í jólaskapi
Þríréttaður hádegis-
verður á 600 krónur
Hvunndagsfreisting með
Jólaívafi 600-900 krónur
Ómótstœðilegt helgar-
tilboð á 1850krónur
Mlðnœturseðlll um helgar
Ljúf tónllsf - notaleg stemnlng
ViS höfum opiS { hádegimt fimmtudaga fóstudaga og
laugardaga og hjiSum þá gimilega fiskritti — þririttaSa
máltiSfyrir litlar 600 krinur.
Frá mánudegi úl miSvikudags farSu þririttaSan kvöldverð á
ítrúlegu verSi - súpa, aSalrittur og kaffifyrir 600 krinur.
VeljirSu rjúkandi heitan jiladrykk { áhati fierSu
sannkaUaðan hátíðarkvöldverðfyrir aðeins 900 krinur.
AUan desember bjiðum viðfastan kvöldverðarseSilfirá
fimmtudegi til sunnudags. Á honum hýðstþir súpa eðapati i
forritt og svo geturðu valið um nokkrar tegundir afgimsatri
viUihráð {aðalritt. Tilaðfúllkomna máltíðina eru
pönnukökur með bláhetjafyUingu.
Viö bryddum upp á peirri nýjung aö hafa
eldhúsið opið fram eftir nóttu um helgar og
bjóðum svöngum nceturhröfnum girnilega
kabarett-rétti á vcegu veröi.
Auk alls þessa bjóðum við að sjálfsögðu glœsi-
legan sérréttaseöil og til aö gestir okkar fái enn
betur notiö notalegs andrúmslofts er lifandi
píanótónlist öll kvöld.
Jilaglögg ogjilastemning.
Sérhafum okkur i titlum hipum.
Hringið og ieitið nánari uppíýsinga.
Strandgata 55 • H af narf jöröur •s:651213 og 65 1 890