Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 24

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 Skýr afstaða til grundvallaratriða eftirJón Kristinsson Það er fróðlegt að skoða við- brögð við ályktun flokksþings framsóknarmanna um Evrópumál- in. Helst ber á upphrópunum eins og vanþekking, einangruna- rstefna, hræðsla við útlendinga o.s.frv. Það er fullkomlega rétt, að þær viðræður sem nú fara fram um evrópskt efnahagssvæði eru ekki einfaldar í sniðum. Þær snúast um flókna aðlögun sem hefur áhrif víða. Hitt er ljóst, að í þessum við- ræðum verður að gæta þes að hvika ekki frá grundvallaratriðum sem eru einföld. Stefna Framsókn- arflokksins er ljós í þessum atrið- um, en því miður hefur stefna annarra flokka verið óljós, og sleg- ið úr og í ef undanskilinn er Kvennalistinn sem fylgir einang- runarstefnu í öllum þessum mál- um. Stefna framsóknarmanna Stefna Framsóknarflokksins er sú að nauðsynlegt sé að tryggja nána samvinnu og sem greiðust viðskipti á sem flestum sviðum við ríki Evrópu. Þess vegna styður flokkurinn þátttöku i viðræðum um evrópska efnahagssvæðið. Þau at- riði sem skiptir mestu máli að ná fram eru þessi: 1. Gagnkvæmt frelsi í vöruvið- skiptum með iðnaðar og sjávar- afurðir. 2. Gagnkvæmur réttur til að sækja menntun og til þátttöku í rann- ' sóknar og vísindastörfum. 3. Gagnkvæmt frelsi í þjónustuvið- skiptum eftir ákveðinn aðlögun- artíma. Á þessar viðræður verður að reyna til þrautar. Þar með fæst úr því skorið hvort samningar nást þar sem tekið er tillit til veiga- mestu fyrirvara sem Islendingar hafa. Þeir fyrirvarar sem eru lang- þýðingarmestir eru þessir. 1. Íslendingar vilja ekki setja auð- lindir sínar undir sameiginlega stjórn á evrópsku efnahags- svæði. Hér er átt við fiskimiðin, landið og orkuna. 2. Við getum ekki gengið undir yfirþjóðlegt vald. Þetta atriði er auðvitað nátengt hinu fyrsta. 3. Um atvinnu og búsetufrelsi verður smáþjóð eins og ísland að fá inn öryggisákvæði svipað og er í samningum um norræn- an vinnumarkað. Þar er kveðið á um heimild til takmörkunar á aðstreymi fólks ef röskun verður í einstökum atvinnugreinum, í einstökum byggðarlögum eða á landinu öllu^ r Þetta eru langveigamestu fyrir- varamir, og enn er ekki séð hvort samningar nást á þessum nótum. Ef svo fer að þeir náist ekki verður á það að reyna hvort íslendingar nái viðunandi samningum með tvíhliða viðræðum. Hvað þýðir aðild að EB Aðild að Evrópubandalaginu þýðir að við verðum að samþykkja Rómarsáttmálann sem samstarf Evrópuþjóða byggist á. Það þýðir að tómt mál er að tala um áður- nefnda fyrirvara. Afstaða Fram- sóknarflokksins er að þetta komi ekki til greina fyrir íslendinga og‘ aðild að Evrópubandalaginu sé því útilokuð sem valkostur ef slitnar upp úr núverandi samningaviðræð- um. Þetta er langt í frá að vera ein- angrunarstefna, og það er langt í frá að framsóknarmenn séu því andvígir að hafa sem nánast sam- starf við aðrar þjóðir. Það viljum við hafa og verðum að hafa, ekki síst vegna þess að við erum háðari utanríkisviðskiptum en allar þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Sérstaða okkar meðal Evrópu- þjóða í atvinnulegu tilliti er mikil, því okkar atvinnulíf hvílir í svo ríkum mæli á einni stoð, sjávarút- veginum. Lönd Evrópubandalags- ins eru iðnaðarþjóðfélög. Afkoma sjávarútvegsins er háð náttúrufari og árferði i mjög ríkum mæli, sem þýðir að sveiflur í afkomu eru meiri en annars staðar gerist. Þess- ari sérstöðu getum við ekki litið fram hjá. Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins? Þessi stefna er skýr, en það sama er ekki að segja um stefnu annarra flokka. Síðastliðinn vetur héldu Ný verkalýðs- hreyfing eftirÞóri Karl Jónasson Hugsið ykkur ef aðeins fyndust 63 einstaklingar sem vildu sitja á Alþingi íslendinga. Þá slyppum við við alþingiskosningar. Það væri auðvitað miklu ódýrara fyrir þjóð- ina. En slíkt myndi fljótlega leiða til stöðnunar fyrir okkur. Alveg eins og núverandi stjóm Dagsbrúnar hefur staðnað, því miður. Það hefur verið ánægjulegt fyrir okkur sem stöndum að mótframboðinu að fylgjast með fjölmiðlum að undan- fömu, þar sem stjóm Dagsbrúnar hefur verið með skrautsýningu útaf vaxtahækkun íslandsbanka. Stjóm Dagsbrúnar hefur vaknað af ára- tuga svefni. Það er mat okkar að stjórn félagsins hefði ekki tekið fjármagn félagsins nema vegna þess að þeir standa frammi fyrir því að kannski sitji þeir ekki nema út þetta kjörtímabil. Við erum sem sé að segja að það sé kominn kosn- ingaskjálfti í þá. Þetta er ópólitískt framboð verkamanna enda eiga verkamenn ekki sterk ítök í neinum flokki eins og allir vita. Snemma á 9 áratugnum byijaði mikil ólga í Póllandi þegar Sam- staða (Solidarnosc) fór að láta á sér bera og fór fram á umbætur og aukið lýðræði, enda var það fótum troðið. Það er aðdáunarvert hyernig verkalýðshreyfingin í Póllandi um- breytti heilu landi, eða eins og sum- ir segja, þar hófust lýðræðisbreyt- ingar í Austur-Evrópu. Það er samt ekki ætlun okkar að gera byltingu á íslandi, en hér mætti ýmislegt betur fara og skal ég nefna nokkur atriði, t.d. hið fé- lagslega húsnæðiskerfi. Stór hluti þeirra sem fær þar úthlutað er fólk sem getur skammtað sér laun sjálft, sem sagt sjálfstæðir atvinnurekend- ur. Tekjumörk í félagslega hús- næðiskerfínu eru svolítið einkenni- leg. Tekjumörk eru svo lág að mik- ið af verkafólki sem vinnur myrkr- ana á milli til að eiga fyrir útborg- un fær ekki úthlutað vegna þess að það hefur of háar tekjur, en það er ekki hugsað hvað þar liggja margar vinnustundir að Saki. Þetta kerfi þarf að taka til gagngerar endurskoðunar til þess að þeir sem á því þurfa að halda fái það en ekki atvinnurekendur. Við lítum á það sem sjálfsögð mannréttindi að hver fjölskylda eigi eigið húsnæði. Okkur finnst það hljóti að fylgja því ábyrgð að ráða fólk í vinnu. Þegar atvinnurekandi ræður fólk í vinnu á hann ekki að geta sagt því upp með jafn litlum fyrirvara og nú er. Fólk sem vinnur lengi hjá sama atvinnurekanda, jafnvel ára- tugi, á að hafa mun lengri uppsagn- arfrest en nú er. Við viljum skattleggja fjár- magnstekjur og afnema launataxta undir velsæmismörkum. Hærri skattleysismörk og að laun verði vísitölutryggð svo framarlega sem lán okkar eru það. Helst viljum við afnema verðtryggingu, einnig vilj- um við annað skattþrep. Við styðj- um framkomnar tillögur um húsa- leigustyrki. Eg hef komið hér inn á ýmsar hugmyndir sem við höfum. Kom- umst við til valda í félaginu getum við komið þessum hugmyndum í framkvæmd. Mjög sennilega koma ýmis öfl til með að vinna á móti okkur, því það eru margir í þessu þjóðfélagi sem ekki vilja að hróflað sé við neinu frá því sem nú er. Við hvetjum alla Dagsbrúnarmenn til að styðja okkur heilshugar og gefa okkur tækifæri. Ef við stöndum okkur ekki er alltaf hægt að skipta Þórir Karl Jónasson Við hvetjum alla Dags- brúnarmenn til að styðja okkur heilshugar og gefa okkur tæki- færi“. okkur út, því við munum breyta lögum félagsins til að auðvelda framboð í Dagsbrún. Ég kom hér áðan inn á breyting- amar í Austur-Evrópu. Hér á Is- landi þarf líka að gera ýmsar breyt- ingar, okkur vantar t.d. trúverðugri verkalýðsforustu. Við höldum fund sunnudaginn 9. desember kl. 20 á efstu hæð í Sportklúbbnum (áður Klúbburinn) Borgartúni 32. Við skorum á félagsmenn að fjölmenna og hlýða á hvað við höfum að segja, einnig viljum við minna fé- lagsmenn á að við höfum opnað reikning í Landsbankanum, Austur- stræti 11. Það og er almenn bók og höfum við kosið að kalla hana Nýtt framboð og hún er nr. 175577. Höfundur er í trúnaðarráði Dagsbrúnar og framkvœmdastjóri mótframboðsins. Jón Kristinsson „Sérstaða okkar meðal Evrópuþjóða í atvinnu- legu tilliti er mikil.“ þingmenn Sjálfstæðisflokksins uppi málþófi á Alþingi um tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið. Á sama tíma tala áhrifamenn í þeirra röðum um aðild að því. Það hefur ekki verið sótt um slíka aðild, og enginn flokkur hefur tekið slíka aðild á sína stefnuskrá. Hins vegar bíður þjóðin eftir því að sjá skýra stefnu flokkanna um þetta mál. Framsoknarmenn hafa lagt spilin á borðið, en áhrifamenn í öðrum flokkum, einkum Sjálfstæðis- flokknum, tala út og suður um málið. Allt þetta verður til þess að rugla fólk í ríminu. í þessu vanda- sama máli er nauðsynlegt að skil- greina gnmdvallaratriði og fá fram skýra afstöðu til þeirra. Flokksþing Framsóknarflokksins hefur mótað sína afstöðu, sem er Ijós og skýr. Það má furðu sæta ef Sjálfstæðis- flokkurinn fær traust með loðna og óljósa afstöðu um svo mikið grundvallarmál sem hér er um að ræða. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins í Austurlandskjördæmi. Sjúkraliðar annast sjúklinginn líka 24 tíma sólarhringsins arnir útskrifaðir frá Landspítalan- um og allar götur síðan hafa sjúkra- liðar starfað þar við hjúkrun 24 tíma sólahringsins. I dag eru 358 starfandi sjúkraliðar á Landspítal- anum og hlýtur það að gefa auga- leið að fleiri en ein starfsstétt ann- ast sjúklinginn allan sólarhringinn. Það má því teljast óeðlilegt að taka eina stétt út úr og staðhæfa að hún ein standi fyrir allri þeirri umönnun sem sjúklingurinn þarfnast. Við höfum það á tilfinningunni að störf sjúkraliða, ljósmæðra og stafsstúlkna í aðhlynningu og fleiri stétta séu ekki metin sem skyldi í ummælum hjúkrunarforstjórans. Höfundar eru allar í stjórn Sjúkraliðafélags íslands. eftir Pálu Jakobs- dóttur, Sigríði Þórarinsdóttur og Sólveigu Halblaub „Miklar kröfur hafa ávallt verið gerðar til hjúkrunarfræðinga og þeir hafa í raun verið eina stéttin í gegnum árin sem annast hefur sjúklinginn 24 tíma sólarhringsins. Aðrar stéttir koma og fara,“ segir Vigdís Magnúsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri Landspítalans. Vegna þessara ummæla Vigdísar í Morgunblaðinu sunnud,aginn 25. nóvember sl. sjáum við okkur til- neyddar að gera athugasemd við þessi ummæli hennar. Árið 1966 voru fyrstu sjúkralið- Samkeppni arkitekta um kirkju í Grafarvogi Nýlega var greint frá niðurstöð- um úr lokaðri samkeppni arkitekta ■ Komin er út hjá Máli og menningu stór bendibók fyrir yngstu börnin. Bókin er með þykk- um blaðsíðum sem þola harkalega meðferð, enda ætluð fyrir minnstu börnin til að skoða sjálf eða með fullorðnum sem geta þá um leið kennt þeim að þekkja hluti og hug- tök úr heimi litla bamsins, myndir af dóti, fatnaði, matvælum, hreyf- ingum og umfjöllun um liti og töl- umar upp í tíu svo eitthvað sé nefnt. ■ PRÓFESSOR Everett Fol- lette heldur opinberan fyrirlestur á vegum Félagsvísindadeildar Há- skóla íslands þriðjudaginn 4. des- ember kl. 17.15 í Odda, stofu 101. Prófessor Follette fjallar um kennslu náttúrufræðigreina. Próf- essor Follette er frá Suður-Dakota í Bandaríkjunum og dvelur hér á vegum Fulbright-stofnunarinnar og Félagsvísindadeildar Háskóla ís- lands. vegna væntanlegrar kirkju í Grafar- vogi. Greint var frá því að tillaga þeirra Finnns Björgvinssonar og Hilmars Þórs Bjömssonar hefði hlotið fyrstu verðlaun af hálfu sókn- arnefndar, en ekki var getið um það að í öðm sæti hefði verið tillaga, Vatnars Viðarssonar arkitekts. Áður hafði dómnefnd, skipuð arkitektum og fulltrúum úr sókn- inni, raðað tillögum arkitektanna Finns Björgvinssonar og Hilmars Þórs Björnssonar, Dagnýjar Helga- dóttur og Guðna Pálssonar, Tryggva Tryggvasonar og Guðjóns Bjarnasonar í 1.-3. sæti. Um leið og eftirfarandi er komið á framfæri er keppendum, arkitekt- unum sem tóku þátt í samkeppn- inni, þökkuð sérstaklega góð og vönduð vinna, en allar tillögurnar sem bárust þóttu um margt nýstár- legar og mjög svo hentugar fyrir nútímalegt safnaðarstarf. _ Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogssókn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.