Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 29

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 29 Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. ANDSPYRNUSVEIT, P-26, hef- ur starfað leynilega innan svissn- eska varnarkerfisins í tæp þrjátíu ár án þess að nokkur hafi veitt henni athygli. Hún fékk fjárveit- ingar frá varnarmálaráðuneytinu en ráðherrum voru veittar sára- litlar sem engar upplýsingar um hana og þingmenn vissu ekki af henni. Hún hafði vopnabúr á vísum stöðum ef að því kæmi að Sovétmenn réðust inn í landið og hún þyrfti að takast á við stjórn á vegum þeirra. Sveitin var þjálf- uð í einu ríkja Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) en fullyrt er að hún hafi hvorki átt beint sam- starf við varnarbandalagið, leyni- þjónustu Bandaríkjanna (CIA), né svokallaðar Gladio-sveiti.r þeirra. Sérstök þingnefnd sem hefur rannsakað starfsemi leyniþjónustu varnarmálaráðuneytisins að und- anförnu fletti ofan af P-26 í lok síðustu viku. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja sveitina niður en nokkrir þingmenn krefjast ítarlegr- ar könnunar á ólöglegri starfsemi hennar. Rannsóknin á leyniþjónustunni leiddi í ljós að hún hefur farið langt út fyrir sitt verksvið og njósnað um svissneska einstaklinga og hreyfing- ar sem talið var að lýðræði landsins og her gæti staðið hætta af. Rann- sóknarnefndin komst að þeirri nið- urstöðu að eftirlit með starfsemi hennar hafi verið ófullnægjandi og hún hafi ekki ætið gefið rétta mynd af starfí sínu. Þar á meðal var skrá- setning þúsunda einstaklinga sem á einhvern hátt þóttu tortryggilegir. Þessj skrá fór út í öfgar og nú þyk- ir enginn maður með mönnum á vinstri væng stjórnmálanna án þess að hafa komist á spjald hjá leyni- þjónustunni. Uppljóstrunin um P-26 og al- mennt kæruleysi stjórnmálamanna um starf hins opinbera eykur á óör- yggi svissnesku þjóðarinnar sem nú stendur á tímamótum. Flavio Cotti, innanríkisráðherra landsins, sagði um heilsu þjóðarinn- ar að hún væri með sótthita. Hún hefur hingað til haft þá sérstöðu í Evrópu að vera hlutlaus þjóð er gat þjónað sem milligöngumaður milli austurs og vesturs. Þessi tíð er liðin og sameinuð Evrópa blasir við. Svisslendingar vita ekki hvaða hlut- verki þeir geta gegnt í framtíðinni og óánægja með innanríkismál dregur úr sjálfsöryggi þeirra. JAPISS BRAUTARHOLTI2 ■ SÍMI 625200 * Verð miftast við staðgrciðslu. Magnarinn er 100 wött og með fimm banda tónjafnara Útvarpið er með 24 stöðva minni (FM/LB/MB) Tvöfalda segulbandið er bæði með hraðyfirfærslu og raðspilun Plötuspilarinn er hálfsjálfvirkur Hátalarnir, sem eru sérlega vandaðir, eru í viðarkassa. Ekki má gleyma fullkomnum 18 bita geislaspilara. Jólatilboðsverð á samstæðunni er aðeins 59.400 kr.* Technics X-10CD er fullkomnasta hljómtækja- samstæðan á jólatilboði Japis. Öll tækin eru sjálfstæðar einingar og fullkomin fjarstýring stjórnar öllum aðgerðum stæðunnar. • Magnarinn er 160 wött með tengingu fyrir ,jurround“ hátalara. • Útvarpið er með 28 stöðva minni (FM/LB/MB) og innbyggðri klukku („titner"). • Tvöfalda segulbandið er bæði með hraðyfirfærslu og raðspilun, auk þess sem annað tækið spilar í báðar áttir. • Plötuspilarinn er alsjálfvirkur með T4P tónhöfði. Hátalararnir eru bæði fallegir og sérlega hljómgóðir. Geislaspilarinn er 18 bita og með 20 laga minni. Með þessari samstæðu er einnig hægt að fá fjöldiska geislaspilara. Jólatilboðsverð á samstæðunni er aðeins 85.400 kr.* Panasonic SG-HM35CD er fjarstýrð samstæða sem sómir sér vel í hvaða stofu sem er. Hermönnum fjölgað á N-írlandi St. Andrews. Frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins. BRESKUM hermönnum hefur verið fjölgað á Norður-írlandi um 600 til að koma í veg fyrir hryðjuverkaöldu á aðventunni. Fyrir síðustu helgi voru 600 bre- skir hermenn sendir til Norður-ír- lands til viðbótar þeim, sem fyrir voru. Yfirmaður lögreglunnar á Norður-írlandi, Hugh Annesley, hafði varað við hryðjuverkaöldu nú á aðventunni. Talið er, að viðvönin- in byggist á upplýsingum frá njósn- urum lögreglunnar í röðum hryðju- verkamanna. írski lýðveldisherinn (IRA) myrti fyrrum lögreglumann um helgina og særði eiginkonu hans mjög al- varlega. Á sunnudagskvöld sprakk sprengja í Norður-Belfast og tveir lögreglumenn slösuðust. Á þessu ári hafa 73 látist á Norð- ur-írlandi í átökum stríðandi fylk- inga. 46 hafa verið óbreyttir borg- arar og 27 annaðhvort hermenn eða lögreglumenn. Á síðasta ári létust 60 í þessum átökum. Á síðasta ára- tug hafa fjórum sinnum látist fleiri en 90 á ári. Það hefur orðið æ erfiðara fyrir norður-írska hryðjuverkamenn að vinna verk sín á heimaslóðum. IRA hefur því unnið æ fleiri hryðjuverk í Englandi og á meginlandi Evrópu. Búist hefur verið við sprengjuher- ferð IRA í Belfast nú í haust. Vel- megun hefur smám saman verið að aukast í borginni, en IRA reynir að grafa undan þessari velmegun. Talsmenn mótmælenda hafa fagnað fjölgun hermannanna og vonast til að hún komi í veg fyrir fleiri morð IRA. Breskir hermenn á Norður-ír- landi hafa ekki verið fleiri þar í tæplega 10 ár. Þeir eru nú um 11 þúsund. Kœru vinir! Þakka innilega þann heiður og hlýhug, sem þið sýnduð mér á 85 ára afmœlinu 29. nóv. Sérstakar þakkir til Inner Wheel kvenna. Inga Karlsdóttir. Hljómtæki á jólatilboði! Matti vdtallt um málib... Sviss: Leynisveit og njósnastarf án vitundar ráðamanna Panasonic SG-HM10CD er nútímaleg og glæsileg hljómtækjasamstæða á góðu verði. • Magnarinn er 40 wött og með þriggja banda tónjafnara • Útvarpið er með 16 stöðva minni (FM/LB/MB) • Tvöfalda seglulbandið er bæði með hraðyfirfærslu og raðspilun • Plötuspilarinn er hálfsjálfvirkur • Hátalararnir eru í viðarkassa. • í jólatilboðinu fylgir fullkominn 18 bita geislaspilari með samstæðunni og verðið er aðeins 49.800 kr.*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.