Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 32

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 33 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík FlaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 100 kr. eintakið. Gerræði og geðþótti Stjórnmálakreppunni, sem virtist í uppsiglingu vegna bráðabirgðalaganna um BHMR, virðist hafa verið afstýrt með þeirri yfir lýs ingu Hjörleifs Guttormssonar í gær, að hann mundi greiða fyrir framgangi málsins í Neðri deild Alþingis. Allt þetta mál sýnir þó, að ríkis- stjómin stendur höllum fæti á Alþingi. Hún getur, að því er virðist, ekki treyst á stuðning þingmanna stjórnarflokkanna í veigámestu málum og fyrir helg- ina var frá því skýrt, að formað- ur þingflokks Borgaraflokksins liti ekki lengur á sig sem stuðn- ingsmann ríkisstjórnarinnar. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn, sem vinstri stjórn er á fall- anda fæti síðari hluta kjörtfma- bils. Ríkisstjórnin, sem hér sat 1980-1983, var komin í áþekka stöðu og hið sama má segja um vinstri stjórn Ólafs Jóhannesson- ar veturinn 1974. Svo miklar andstæður eru komnar upp í þingliði núverandi stjórnar- flokka, að það verður miklum erfíðleikum bundið fyrir þá að taka nauðsynlegar ákvarðanir þá mánuði, sem eftir eru fram að kosningum. í þeim sviptingum, sem orðið hafa síðustu daga á vettvangi stjómmálanna hefur það berlega komið í ljós, að forystumenn stjórnarflokkanna stefndu að þingrofí og kosningum. Samtal, sem birtist hér í Morgunblaðinu sl. laugardag við Jón Baldvin Hannibalsson, formann Alþýðu- flokksins, sýndi jafnframt hvaða hugleiðingar um framhaldið vora uppi í herbúðum ríkisstjómar- innar þá. í samtali þessu sagði Jón Baldvin Hannibalsson, að yrði þing rofið og efnt til kosn- inga, mundi núverandi ríkis- stjórn sitja áfram sem starfs- stjóm og gæti hún þá sett ný bráðabirgðalög á kjarasamninga ríkisstjórnarinnar og BHMR. Nauðsynlegt er að stöðva við þessi ummæli eins helzta for- ystumanns ríkisstjórnarinnar og átta sig á hvað í þeim felst. Ríkisstjórnin gerði kjara- samninga við BHMR vorið 1989. í febrúar 1990 tók hún á sig ákveðnar skuldbindingar vegna kjarasamninga vinnuveitenda og verkalýðsfélaga, sem gengu þvert á kjarasamningana, sem stjómin _ hafði sjálf gert við BHMR. I júní ákvað ríkisstjórnin einhliða að fresta sumum ákvæðum kjarasamninga BHMR. Félagsdómur dæmdi þá aðgerð stjórnarinnar ógilda. Þá setti ríkisstjómin bráðabirgðalög til þess að afnema kauphækkun BHMR, sem Félagsdómur hafði dæmt ríkisstjórnina til að greiða. Morgunblaðið hvatti ríkis- stjómina á þeim tíma til þess að kalla Alþingi saman til að setja slíka löggjöf, þar sem hæp- ið væri í meira lagi að setja bráðabirgðalög til að nema úr gildi ákvæði kjarasamninga, sem dómstóll hefði dæmt gild. Raun- ar era sumir lögfræðingar þeirr- ar skoðunar, að Alþingi sjálft geti heldur ekki sett slíka lög- gjöf- Eftir að þing kom saman kom í ljós, að ríkisstjórnin hafði ekki meirihluta fyrir þessum bráða- birgðalögum. Vegna atvika und- anfarinna daga íhugaði hún þingrof og Jón Baldvin Hannib- alsson upplýsti, að ráðherrarnir hefðu hugleitt að setja ný bráða- birgðalög á BHMR eftir þingrof- ið. Fyrst eru sett bráðabirgðalög. Síðan virtist sem ekki væri þing- meirihluti fyrir bráðabirgðalög- um og þá ætlaði stjórnin að senda þingið heim og setja ný bráðabirgðalög! Hvað heitir þetta? Þetta heitir að stjórna landi með gerræði og geðþótta. Stjórnmálamenn, sem láta sér til hugar koma að stjórna landinu með þessum hætti era á hættulegri braut. Þeir hafa uppi tilburði til þess að hafa að engu rótgrónar leikreglur þingræðis og lýðræðis. Það eitt, að slíkar hugleiðing- ar hafa verið uppi og bersýnilega ræddar í ríkisstjórn íslands er nægilegt tilefni til þess, að þing það, sem nú situr, taki þegar í stað í taumana og fjarlægi þær freistingar, sem valda því, að stjómmálamenn láta sér yfírleitt til hugar koma að ástunda vinnu- brögð af þessu tagi. Þetta á Al- þingi að gera með því að sam- þykkja á þessu þingi að afnema rétt ríkisstjórna til þess að setja bráðabirgðalög. Eins og Morg- unblaðið hefur margsinnis bent á, era þau rök, sem fyrir mörgum áratugum vora til staðar fyrir setningu bráðabirgðalaga ekki lengur fyrir hendi. Nú er hægt að kalla Alþingi saman með 1-2 sólarhringa fyrirvara. Sá kostn- aður, sem því fylgir skiptir engu máli í þessu sambandi enda bæði alþingismenn og starfslið þingsins á fullum laununj allt árið um kring. Hugrenningar ráðherranna um að ijúfa þing og setja ný bráðabirgðalög í kjölfar þing- rofsins era nægilegt tilefni til þess að tillaga um afnám ákvæða um bráðabirgðalög verði lögð fram á Alþingi þegar í stað. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Þingrof átti stuðning allra stj ómarformanna nema Júlíusar Harðar deilur í þingflokki Sjálfstæðisflokksins í gærkveldi HJÖRLEIFUR Guttormsson greindi forsvarsmönnum stj órnarflokkanna frá þeirri ákvörðun sinni að setja ekki fótinn fyrir staðfestingarlög bráðabirgðalaganna á kjarasamning ríkisins og BHMR á elleftu stundu. Á hádegi í gær lá fyrir ákvörðun Steingríms Hermannssonar forsætis- ráðherra um að íjúfa þing og boða til kosninga 19. janúar nk. Þing skyldi rofið eftir hádegi í gær og í síðasta lagi í dag. Forsætisráðherra hafði þegar ritað þingrofsbréf til forseta Islands og var tilbúinn með texta að nýjum bráðabirgðalögum um samninga ríkisins og BHMR sem áttu að gilda fram yfir kosningar og myndun næstu ríkisstjórnar, eða fram í mars á næsta ári. Það var síðastliðinn föstudag á hádegi sem forsætisráðherra reifaði möguleikann á þingrofi og kosning- um, án þess að bráðabirgðalögin kæmu til atkvæða í neðri deild Al- þingis, við þá Jón Baldvin Hannibals- son og Olaf Ragnar Grímsson. Var þá rætt um að þingrof ætti sér stað í gær, mánudag. Olafur Ragnar var þessa ekki fýsandi til að byija með, en honum snérist hugur síðdegis á föstudag. Ekki var haft samráð við Júlíus Sólnes. Raunar vissi hann ekki hvað til stóð fyrr en á sunnudag. Af yfirlýsingum þingflokksfor- manna stjómarflokkanna um að greiða bæri atkvæði um bráðabirgða- lögin á Alþingi er augljóst að ekkert samráð var haft við þá, því formenn stjómarflokkanna höfðu aldrei hugs- að sér að láta koma til atkvæða- greiðslu um málið, nema fyrir lægi yfirlýsing einhvers yfirlýsts andstæð- ings frumvarpsins um að honum hefði snúist hugur og hann hygðist ekki leggjast gegn samþykki fnim- varpsins. Á sunnudagskvöld lá fyrir ákvörð- un þeirra Steingríms og Jóns Bald- vins þess efnis að þing yrði rofið éftir hádegi í gær, en Olafur Ragnar var þá erlendis. Einungis einn fyrir- vari var á þessari ákvörðun ráðher- ranna. Þeir vom sammála um að ganga yrði úr skugga um, með form- legum hætti, að engum yfirlýstum andstæðingi bráðabirgðalaganna hefði snúist hugur. Því varð úr að Alþýðubandalagið ákvað að hafa þingflokksfund í gærmorgun, þar sem reynt yrði til þrautar að hafa áhrif á þá Hjörleif Guttormsson og Geir Gunnarsson. Þeir Jón Baldvin og Steingrímur töldu sig jafnframt hafa vitneskju um að miklir brestir væru komnir í þá samstöðu sem greint hafði verið frá að ríkti í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins um samþykkt þá sem öllu fjaðrafokinu olli. Töldu þeir að Matt- hías Bjarnason myndi ekki greiða atkvæði gegn bráðabirgðalögunum, jafnframt því sem heyrst hafði að Ingi Björn Albertsson væri staðráð- inn í að sitja hjá við atkvæðagreiðsl- una og efasemdir voru úppi um hvað Kristinn Pétursson myndi gera. Þess- ir þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins sitja allir í neðri deild. Það er deginum ljósara að óánægja er megn meðal ákveðinna þingmanna Sjálfstæðisflokksins með það hvemig staðið hefur verið að þessu máli. Samkvæmt upplýsingum mínum er mikil þykkja í Matthíasi Bjarnasyni, og beinist hún ekki síst að Davíð Oddssyni varaformanni flokksins, sem Matthías er sagður Morgunblaðið/RAX Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra tók á móti þeim Þor- steini Pálssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddssyni vara- formanni og Ólafi G. Einarssyni þingflokksformanni kl. 8.30 í gær- morgun. Forsætisráðherra skenkti sjálfstæðismönnunum kaffi, sem breytti þó engu um afstöðu þeirra til bráðabirgðalaganna. telja að hafi beitt sér af allt of mik- illi hörku í málinu. Það varð því úr hjá ríkisstjóminni að boðaður skyldi fundur í fjárhags- og viðskiptanefnd á hádegi í gær, en þar eiga sæti Friðrik Sophusson og Matthías Bjarnason fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Stjómarliðar vildu láta á það reyna á þessum fundi, hver afstaða Matthíasar væri. Þessi áætlun stjórnarliða breyttist ekki fyrr en Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, hafði samband við Steingrím Hermannsson, á milli kl. 12 og 13 í gær og greindi honum frá því hver afstaða Hjörleifs væri. Þar með var málið úr sögunni, og ekki lengur til- efni til þingrofs og kosninga. Til tíðinda dró svo á þingflokks- fundi Sjálfstæðisflokksins síðdegis í gær og var þar deilt hart. Voru ákveðnir þingmenn afar óánægðir með framvindu mála og vildu ganga : Morgunblaðið/RAX Forystumenn vinnuveitenda og forysta Sjálfstæðisflokksins ræddu í gærmorgun viðhorfin til bráðabirgða- laga ríkisstjórnarinnar í höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, án þess að viðhorf aðiia breyttust í neinu. Frá vinstri: Ólafur G. Einarsson, Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson, Kjartan Gunnarsson, Árni Benediktsson og Hjörtur Eiríksson frá Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Einar Oddur Kristjáns- son, formaður VSÍ og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI. svo langt að breyta niðurstöðu þing- flokksins frá því síðastliðinn miðviku- dag. Hörð gagnrýni á flokksforyst- una kom frá þingmönnunum Salome Þorkelsdóttur, Eggert Haukdal, Ey- jólfi Konráð Jónssyni, Matthíasi Bjarnasyni, Pálma Jónssyni, Inga Bimi Albertssyni og Kristni Péturs- syni. Þingflokksfundi var frestað áður en umræðu um málið var lokið til kl. 22 í gærkveldi. En laust fyrir kl. 22 var honum síðan aflýst. Andstaða ríkisstjómarinnar við það að láta bráðabirgðalögin koma til atkvæðagreiðslu á Alþingi, án þess að meirihlutafylgi í neðri deild væri tryggt, byggðist fyrst og fremst á þeirri staðreynd að ef lögin hefðu verið felld, hefði það jafngilt van- trausti á ríkisstjómina og hún hefði orðið að fara frá. Ef þing var á hinn bóginn rofið, og boðað til kosninga án þess að atkvæðagreiðsla færi fram, gat ríkisstjórnin setið áfram fram yfir kosningar. Þessi möguleiki var stjórnarliðum misjafnlega þóknanlegur. Kratar og alþýðubandalagsmenn töldu að þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins hefði með samþykkt sinni í síðustu viku tekið ákvörðun um að gera Steingrím Hermannsson að hetju þjóðarsáttar- innar. Segja þeir að Steingrímur og Framsóknarflokkurinn hefðu ekki átt í nokkrum vandræðum með að rökstyðja það að hann með þingrofi og nýrri setningu bráðabirgðalaga væri forsætisráðherrann sem bjargað hefði þjóðarsáttinni. Því sé það mjög skiljanlegt að for- sætisráðherrann sé ekkert alsæll með hugarfarsbreytingu Hjörleifs Gutt- ormssonar. Ljóst er af máli þessara manna, að þeim var það minna kappsmál en framsóknafmönnum að ijúfa þing og boða til kosninga. Telja þeir að þannig hefði orðið um mjög heiftúðuga kosningabaráttu að ræða, þar sem aðaláherslan yrði lögð á að kosið yrði um þjóðarsátt eða þjóðar- sundrung. Lykilmál eins og álmál og EFTA-EB-mál hefðu horfið í skugg- ann, jafnframt því sem yfirlýst mark- mið Sjálfstæðisflokksins um að koma Framsóknarflokknum í pólitískt frí hefði fjarlægst. Segja þeir að stjórnarflokkamir, þ.e. Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, hefðu líklega þjappast svo saman í slíkri kosninga- baráttu að möguleikar á annars kon- ar stjórnarmynstri í kjölfar kosninga hefðu stórum minnkað. A Atök um þjóðarsátt óskynsam leg út frá heildarhagsmunum - segir Hjörleifur Guttormsson sem ætlar að sitja hjá við afgreiðslu bráðabirgðalaganna EFTIR tvo þingflokksfundi Alþýðubandalagsins í gærmorgun lýsti Hjörleifur Guttormsson því yfir á Alþingi við upphaf þingfundar í gær, að hann myndi sitja hjá við afgreiðslu staðfestingarfrumvarspns um bráðabirgðalögin, sem sett voru á samninga BHRM í sumar. Þar með liggur fyrir, að frumvarpið hefur meirihluta í neðri deild. Hjör- leifur segist hafa verið farinn að óttast, að umræðan um bráðabirgða- lögin snérust upp í pólitískt hanaat, þar sem ákvarðanir yrðu teknar út frá skammtímasjónarmiðum, og farið yrði í kosningar með stuttum fyrirvara um eitt einagrað mál en mikilvæg þjóðhagsleg mál, svo sem stóriðjumál og tengslin við Evrópubandalagið, fengju ekki þá um- ræðu og athygli sem þörf væri á. Hjörleifur hefur til þessa lýst andstöðu við og gagnrýnt bráða- birgðalögin og sagði við Morgun- blaðið, að ef þau hefðu komið fram á þinginu sem afmarkað mál, hefði hann ætlað að fylgja því eftir eins og samviska hans bauð. „En nú hafa komið fram nýir þættir, sem ég kýs að taka tillit til og eitt að því er sú afstaða sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tók. Ég hafði alltaf gert ráð fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn yrði skiptur í sinni afstöðu. En það er nýtt að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins taki efnislega afstöðu, án þess að horfa til hægri eða vinstri, í rauninni um leið og þeir undir- strika stuðning sinn við svokallaða þjóðarsátt. Þarna er slík mótsögn, að hún gengur ekki upp, og verður ekki skilin öðruvísi en svo að menn séu í rauninni að tefla út frá skammtímasjónarmiðum," sagði Hjörleifur. Hjörleifur sagði einnig að komið hefði til greina af hálfu ráðamanna, að efna til þingkosninga með skjót- um hætti og einangrað við þetta mál. „Ég óttast ekki kosningar, en ég tel ekki skynsamlegt út frá heild- arhagsmunum að takast á um þessa svokölluðu þjóðarsátt einangrað í núverandi stöðu,“ sagði Hjörleifur. Hann sagði að þessi afstaða síri væri vitaskuld umdeildanleg, en hann vonaðist til þess að hann hefði með þessu stuðlað að því að svigrúm skapaðist til að bæta fyrir það. sem gerst hefði með setningu bráð- birgðalaganna, með því að leita eft- ir samningum við BHMR svo þau Veiðiréttareigendur við Norð- urá í Borgarfirði hafa ákveðið að ganga til samninga við Stangaveiðifélag Reykjavíkur um vejðiréttinn í ánni næstu 3-5 árin. Áin var boðin út og bárust tvö tilboð í hana, annað frá SVFR, en hitt frá hópi manna undir forystu Sigurðar Helga- sonar, fyrrum forstjóra Flug- leiða, en hann á fyrir hlutdeild í leigu á Þverá og Kjarrá í Borg- samtök gætu einnig orðið þátttak- I endur í lausn mála til lengri tíma. Hjörleifur sagðist, á þingflokks- fundunum í gærmorgun, hafa heitið á ráðherra Alþýðubandlagsins, að beita sér sérstaklega fyrir því að tekið yrði á málum BHMR á næst- unni með það í huga að leita sátta. Hann sagðist aðspurður telja að á því væru möguleikar en viðræðurn- ar hefðu leitt í strand vegna umræð- unnar um bráðabirgðalögin. Þegar hann var spurður hvort hann teldi að nýir menn þyrftu að koma að þeim samningum, svaraði hann að þar þyrfti nýtt hugarfar. Hjörleifur sagðist aðspurður aldrei hafa hafa orðið fyrir þrýst- ingi frá þingflokki Alþýðubanda- lagsins eða flokksmönnum á Aust- urlandi, en þar var forval fyrir fram- arfirði. SVFR reyndist vera með 30 milljóna króna tilboð fyrir veiðiréttinn næsta sumar, en Sig- urður og félagar með um 26 miHjóna krónur og ákveðnar skuldbindingar um seiðaslepp- ingar og samgöngubætur með ánni. SVFR hefur haft Norðurá á leigu í 43 ár og að sögn stjórn- armanna í félaginu hefði það verið reiðarslag að tapa ánni. Leigan á Norðurá var 22 milljón- Hjörleifur Guttormsson skýrir fréttamönnum frá ákvörðun sinni í gær. boðslista flokksins um helgina. Nið- urstaða foi-valsins hefði engin áhrif haft á þessa ákvörðun. Sjá á bls. 35 ummæli manna eft- ir ákvörðun Hjörleifs Guttorms- sonar. ir króna. Tap varð á rekstri SVFR á árinu og munaði ekki minnstu um það að illa gekk að selja veiði- leyfi einmitt í Norðurá og var hún þó á óbreyttu verði frá, 1989. Jón G. Baldvinsson formaður SVFR segir að hækkun leigunnar verði að mæta með aukinni sókn á erlend- an markað með besta veiðitímann, en félagið muni reyna að hafa hækkanir veiðileyfa á „íslendin- gatímum“ í algjöru lágmarki. Yerð veiðileyfa hækkar: Leiga fyrir Norðurá hækkaði um 8 milljónir króna milli ára Setning’ bráðabirgðalagaiina er andstæð stjórnarskránni eftirÁrna Grétar Finnsson Umræður um staðfestingu bráðabirgðalaganna, sem ríkis- stjórnin setti í sumar til ógildingar á samningum sínum við BHMR, eru nú í brennidepli. í þeim umræðum virðast margir horfa fram hjá þeim meginkjarna málsins, að setning bráðbirgðalaga eftir á til að ógilda efnislega niðurstöðu félagsdóms er andstæð stjórnarskránni. Stjómarskráin er sá grunnur, sem stjórnskipun íslenska lýðveldis- ins byggist á. Til að ti’yggja festu stjórnarskrárinnar, gilda aðrar og umfangsmeiri reglur um breytingar á henni, heldur en um venjulegar lagasetningar. Alþingismenn vinna sérstakt heit að því að virða stjórn- arskrána. Almenn lög mega ekki bijóta í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar. I 28. grein hennar sem fjallar um útgáfu bráðabirgðalaga, er sérstak- lega tekið fram: „Ekki mega þau þó ríða í bága við stjórnarskrána.“ Urskurðarvald um, hvort lög sam- rýmist stjórnarskránni, er í höndum dómstólanna. Eru dæmi þess, að Hæstiréttur hafi vikið lögum á þeim forsendum, að þau væru andstæð ákvæðum hennar. Samkvæmt 2. grein stjórnar- skrárinnar er ríkisvaldinu skipt í löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Þar er sérstaklega tekið fram, að dómendur fari með dóms- valdið. Hliðstæð skipting ríkisvalds- ins er í stjórnarskrám annarra ríkja með svipað stjórnarfar og íslend- ingar búa við. Hugmyndin að þrískiptingu ríkisvaldsins er nær fjögurra alda gömul. Henni er ætlað að dreifa hinu mikla valdi ríkisins og stuðla að því, að hver einstakur þáttur þess veiti hinum aðhald. Þar er hlutverk óháðra dómstóla mikil- vægt, þar sem þeirra nýtur ekki lengur tekur alræði framkvæmda- valdsins við. Samkvæmt 60. grein stjórnar- skrárinnarskera dómstólar úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda. Þar er dómstólum fengið vald til að úrskurða um, hvort hand- hafar framkvæmdavaldsins, þar með taldir ráðherrar, hafá farið að lögum í stjórnarathöfnum sínum. Dómum verður ekki breytt með lögum Af því, sem nú hefur verið rakið,. er ljóst, að dómstólum er ætlað að veita handhöfum löggjafar- og framkvæmdavaldsins víðtækt að- hald. Þeir eru oft eina vörn þegn- ■ anna gegn öðrum þáttum ríkis- valdsins, sérstaklega framkvæmda- valdinu. Hlutverk dómstólanna er að sjálfsögðu mun víðtækara en þetta, þótt ekki verði um það fjallað hér. Með störfum þeirra er ætlunin að tryggja, að endi skuli bundinn á alla þrætu. Ákvæði stjórnarskrár- innar um að dómendur fari með dómsvald þýðir að niðurstaða þeirra er endanleg í hveiju einstöku máli, sem þeir úrskurða. Henni er ekki hægt að breyta, hvorki af löggjaf- ar- né framkvæmdavaldi. Undan- tekningar um náðun og uppreisn æru f sakamálum eiga ekki við í því tilfelli, sem hér er til umfjöllun- ar. Endurupptaka máls, til dæmis sökum nýrra sönnunargagna, er háð ákvörðun dómstóla. Félagsdómur fékk til úrskurðar mál BHMR og ríkisins, vegna ágreinings um framkvæmd kjara- samninga, sem þeir gerðu sín á milli 1. maí 1989. BHMR krafðist þess, að umdeild ákvæði samnings- ins um kauphækkanir tækju gildi, en ríkisstjórnin taldi forsendur ákvæðanna brostnar. Niðurstaða Árni Grétar Finnsson. „Ákvæði stjórnarskrár- innar um að dómendur fari með dómsvald þýð- ir að niðurstaða þeirra er endanleg í hverju einstöku máli, sem þeir úrskurða. Henni er ekki hægt að breyta, hvorki af löggjafar- né fram- kvæmdavaldi.“ félagsdóms gekk sem kunnugt er BHMR í vil og úrskurðaði dómur- inn, að hin umdeildu ákvæði kjara- samningsins væru í fullu gildi. Þar með var málinu lokið á lögformleg- an hátt. Hér skiptir ekki máli, hvaða afstöðu menn hafa til efnis um- rædds kjarasamnings BHMR eða hvort hann kunni að hafa einhver áhrif á aðra samninga, sem kennd- ir hafa verið við „þjóðarsátt". Dóm- urinn er endanlegur fyrir báða að- ila. Samkvæmt áðurnefndum* ákvæðum stjórnarskrárinnar og viðurkenndum réttarreglum, sem af ákvæðunum leiða, er óheimilt að breyta efnislegri niðurstöðu dómsins með lögum. Setning bráða- birgðalaganna 3. ágúst sl. er því andstæð stjórnarskránni. Alvarlegt fordæmi Slík lagasetning eftir á, til að breyta efnislega dómsniðurstöðu, á sér ekkert fordæmi hér á landi, að því er ég best veit. Ef ríkisstjómin vildi með lögum fella niður hin umdeildu ákvæði í kjarasamningi sínum við BHMR, þá bar henni að gera það áður en málið fór fyri- félagsdóm, þá hafði hún heimild til lagasetningar, en eftir að dómur var genginn, var ekki heimilt að breyta niðurstöðu hans efnislega með lögum. Setning bráðabirgðalaganna undir þessum kringumstæðum hef- ur í för með sér mjög alvarlegt for- dæmi, ef samþykkt yrði. Þar með gætu ríkisstjórnir í framtíðinni með bráðabirgðalögum eða Alþingi með venjulegum lögum breytt efnislega eftir á dómum, sem féllu ríkinu í óhag. Menn, sem ættu kröfur á ríkið og fengju þær staðfestar með dómi, yrðu þá að sæta því, að þær yrðu efnislega ógiltar með lögum eftir að dómur væri genginn. Allir sjá til hvílíks ófarnaðar slíkt myndi leiða, en hvar eru mörkin eftir að fordæmið hefur verið gefíð. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.