Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 51

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 51 Samráðsstefnu bænda- forystunnar hafnað eftirBjarna Harðarson Var rétt af bændum að ganga til samráðs um málefni landbúnaðar við launþegahreyfinguna eins og gert var við þjóðarsáttarsamning- ana. Undirritaður hefur opinberlega haldið fram að með því hafi bændur leikið af sér og veikt mjög áróðurs- stöðu sína. Auk þess er hagræðing- araðferð sú sem hér er falin gagns- laus með öllu og í besta falli mein- laus. Bændur fengu prik Með þátttöku sinni í þjóðarsátt má segja að staðfest hafi veirð veigamikil stefnubreyting hjá for- ystu bændastéttarinnar sem hefði vafalítið verið óhugsandi fyrir fáum árum. Við þjóðarsáttina var bænda- forystunni í fyrsta sinn gefið lítils- háttar prik, þjóðin leit svo á að hún hefði brotið odd af oflæti sínu og væri sanngjamari en áður. Á fundi um innflutning landbún- aðarvara sem Neytendasamtökin á Suðurlandi og stéttarfélögin héldu á Selfossi fyrir skemmstu mætti Guðmundur Gylfi Guðmundsson, fulltrúi ASÍ í svokallaðri 7 manna nefnd, en hana skipa fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og bændur og hún er skipuð í framhaldi af þjóðar- sáttarþátttöku bænda. Sameigin- lega skulu þessir aðilar leita leiða til að lækka verð á innlendri mat- vöru. í ræðu sinni benti Guðmundur Gylfi á að verðlækkun á innlendri matvöru gæti fært þjóðinni betri lífskjör. Allt lítur þetta vel út og af máli hagfræðingsins er ekki að efa að þar fer maður sem vinnur af heilindum og málflutningur hans einkenndist af meiri sanngirni og réttsýni heldur en við sem um land- búnað fjöllum eigum að venjast frá fólki með þennan fræðatitil. Lengi reyndu bændur að andæfa áróðrinum Um langt skeið hefur því verið haldið fram að andstæðingum land- búnaðar að verð landbúnaðarvara hér á landi sé óeðlilega hátt, hafi hækkað meira en almennt verðlag í landinu og ekkert sé gert af hálfu bændaforystu til að spoma við of- framleiðslu, óhagkvæmni og ör- birgð bændanna sjálfra. Talsmenn bænda reyndu lengi vel að benda á það sem rétt er í þessu máli að verðhækkanir hafa verið mun minni en á mörgum öðrum innlendum varningi, hagræðingar hafa verið gríðarlegar frá setningu búvörulaga o.s.frv. Abendingar um marga aðra þætti okkar atvinnulífs sem eru óhagkvæmir og margfalt óhag- kvæmari en landbúnaðurinn hafa verið til lítils. Lítill skilningur hefur verið á þeim erfiðleikum sem hljóta að vera því samfara að snúa atvinnugrein á skömmum tíma fra'því að vera útflutningsgrein sem byggir á magnframleiðslu niður í að þjóna einasta litlum og hratt minnkandi innanlandsmarkaði. Bláeyg bændaforysta Með samráðsstefnu bænda og launþega getur almenningur alls ekki litið öðruvísi á en að andstæð- ingar bænda hafi haft rétt fyrir sér og bændaforystan hafi viðurkennt það í verki. Viðbrögð forystunnar- vekja að vísu upp lítilsháttar vor- kunnarviðbrögð og samúð én um leið er undanhald greinarinnar skipulagt. Þetta gerist á mjög við- sjárverðum tíma þegar ráðherrar standa nærri þeirri freistingu að fórna landbúnaðinum á altari (ímyndaðra?) markaðshagsmuna saltfisks og freðfisks. - Lærdómsríkt er að á sama tíma og þjóðarsáttin var gerð var almenn umræða um það í samfélaginu að ýmsir þættir íslenskrar þjónustu og framleiðslu væru of dýrir. Talsvert var rætt um vaxtamun bankanna, sem er miklu meiri en í nálægum löndum. Þegar svo einhveijir ráku augun í það að Landsbankinn, sem er stærstur og býr yfir mestri upp- safnaðri óhagkvæmni og bruðli, hefði fengið alþjóðlega sérfræðinga til að leita uppi óhagkvæmnina þá sagði Sverrir Hermannsson þetta vera innanhúsmál. Ekki held ég að hann hafi viljað fá inntil sín sameig- inlega nefnd ASÍ-manna og banka- manna sem meta ætti hvernig bæri að útrýma óhagkvæmninni og koma skikki á bankann. Samt virðast hann og aðrir forsvarsmenn bank- ans meðvitaðir um að bregðast þarf við óhagkvæmninni og laga banka- kostnað að því að vera nær því sem erlendis þekkist. En bankastjórar hafa vit á að þegja þegar mest er gelt að þeim. Hefði landsbankinn farið að bás- úna óhagkvæmnina og fá ASÍ hag- fræðinga til samráðs þá hefðu þeir Bjarni Harðarson „Með samráðsstefnu bænda og launþega get- ur almenningur alls ekki litið öðruvísi á en að andstæðingar bænda hafi haft rétt fyrir sér.“ um leið viðurkennt vanmátt sinn játað á sig að þeir hafí sjálfir alls ekki unnið nógu vel að verkinu til þessa og muni ekki gera nema ein- hveijir komi þeim til hjálpar og eft- irlits. Það er einmitt þetta sem bændur hafa, í bláeygu sakleysi gert. Sósíalísk nefndastjórnun Ekki er ástæða til að efa að vandi landbúnaðar er mjög mikill og það er vel hægt að framleiða iandbúnað- arvörur með minni tilkostnaði en gert er. Breytingarnar frá tilkomu búvörulaganna 1985 hafa líka flest- ar stuðlað að því að svo megi verða, þó sumt hafi verið öfugsnúið. Mestu myndi muna í dag ef sláturkostnað- ur yrði lækkaður verulega með því að breyta hávaðalaust þeim viðmið- unum sem sláturhús eru látin starfa eftir og koma á virkri en vitrænni samkeppni í bæði mjólkur- og kjöt- iðnaði. En útilokað er að aukin hagkvæmni eða lækkað verð skili sér með tilkomu samráðsnefndar launþega og bænda. Sósíalískar nefndarstjórnunaraðferðir af því tagi hafa hvergi skilað árangri en sums staðar valdi óbætanlegu tjóni eins og rústir Sovétríkjanna tala skýru máli um. í þessu tilviki mun umrædd sjömanna nefnd stuðlaði að því að firra rétta aðila í landbún- aðargeira ábyrgð en líklegast ekki valda neinu frekara tjóni. Nefndina skipa enda ágætir menn og vel viti bornir. Bændaforystan má auðvitað vel sýna vilja sinn til að taka þátt í almennu verðlækkunarátaki eins og þjóðarsáttin er, en hún á ekki að láta það upp á sig spyijast að hún geri það einasta vegna þrýstings frá launþegum. Enda hafa bændur reyndar oft áður gefið eftir sinn hlut án þess að vera gerðir jafn aumkunarverðir eins og þeir bafa verið frá tímum undirskriftar þjóð- arsáttar. Jónas sigraði bændastéttina innanfrá Jónasi Kristjánssyni og hans mönnum tókst ekki, þrátt fyrir að vel væri að vondu verki staðið, að vinna meirihluta þjóðarinnar á þá skoðun að leggja skuli af íslenskan landbúnað. En Jónasi tókst, óvænt reikna ég með, að vinna íslensku bændastéttina innanfrá, skapa siíkar efasemdir meðal forystu hennar að við stöndum nær algeru tapi í áróðursstríðinu en nokkru sinni. Nú er ekki annað að gera en bíða og reyna að taka því sem koma mun með jafnaðargeði. Höfundur er ritstjóri Bændablaðsins Frábær læki til heimilisins og í jólapakkann •.. • • • á ómótstæðilegu jóla-tilboðs-verÓi ELTA 3630 Ferðaútvarp. Verð kr. 2.390,- ELTA 6080 Einfalt mónó ferðatæki. Verð kr. 4.990,- ELTA 3850 Vasaútvarp m/heyrnartækjum. Verð kr. 1.390,- ELTA 4220 Útvarpsklukka m/vekjara. Verð kr. 2.390,- DM-200 HLJÓMBORÐ Bamahljómborð, 4 litir. Verð kr. 6.990,- ELTA 5751 ELTA 6248 CD-ferðadiskspilari m/tösku og fl. Einfalt stereó ferðatæki. Verð kr. 15.990,- Verð kr. 5.990,- ELTA 5865 Vasadiskó m/útvarpi FM og MW. Verð kr. 2.790,- ELTA 4530 Útvarpsklukka m/vekjara. Verð kr. 2.790,- DM-450 HLJÓMBORÐ Hljómborð m/skemmtara. Verð kr. 12.990,- ELTA 2524 Sambyggt hljómflutningstæki m/ CD, fjarstýringu og hátölurum. Verð kr! 16.690,- ELTA 6438 Tvöfalt stereó ferðatæki m/ tónjafnara og lausum hátölurum. Verð kr. 10.490,- ELTA 2012 14“ litasjónvarp m/fjarstýringu. Verð kr. 27.990,- GreiðsMqör vié liUrlf ix ELTA-KH-202 Nett heymartæki m/spöng, vasadiskóstærð. Verð kr. 490,- FIDEK CD 3ja geisla diskspilari m/ íjarstýringu. Verð kr. 19.990,- fíatfij á aóéu vcrÓi Allt verð er staðgreiðsluverð. Faxafeni 12, simi 670420 WS4 >œX£lX&X&M&X&#&H£ÍX£iM£iX£iX£ÍMi#£íH£iM£iX£i?t£iM£iX£ÍX£iH£iM£f#£iX£iM£ÍM£Í/œM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.