Morgunblaðið - 13.12.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
Hita- og
rafmagns-
laustí
Breiðholti
RAFMAGN fór af stórum hiuta
Breiðholtshverfis í gærkvöldi
vegna bilunar í háspennustreng.
Rafmagni sló út af dælustöð
Hitaveitu Reykjavíkur á Stekkja-
bakka með þeim afleiðingum að
hiti fór af húsum i Breiðholti í
rúma eina klukkstund.
Bilun varð í háspennustreng milli
aðveitustöðvar 5 sem er í Elliðaár-
dal og dreifistöðvar í Blesugróf.
Rafmagn fór kl. 20.08 af fjórðungi
byggðar í Breiðholti, þ.e. Stekkja-
og Bakkahverfi auk hluta af Selja-
hverfi, af þessum völdum og komst
aftur á allt Breiðholt kl. 20.30.
Rafmagnsveitan hefur þurft að
sinna nokkuð mörgum bilunum
undanfarna mánuði í háspennu-
strengjum, einkum í tengihólkum.
Ekki er vitað um orsakir þessara-
bilana.
Dælustöð Hitaveitunnar í
Stekkjabakka sló út við rafmagns-
leysið og fór hiti af húsum víða í
Breiðholti.
Ok á og var
sleginn
MAÐUR sem varð fyrir því
að ekið var á bíl hans í
Bankastræti í fyrrakvöld sló
þann sem ákeyrslunni olli í
andlitið, svo að á honum sá,
og ók svo á brott. Hann hef-
ur verið kærður fyrir líkams-
árás.
Kærandinn ók niður Banka-
stræti þegar næsti bíll á undan
í röðinni nam skyndilega stað-
ar. Hann reyndi að hemla en
lenti á klakabunka þannig að
bíllinn rann á stuðara fremri
bílsins, án þess þó að á sæi.
Að sögn kærandans rauk öku-
maður þess bíls við þetta upp
og eftir stuttar ýfingar og rysk-
ingar sló hann tjónvaldinn mik-
ið högg í andlitið og ók á brott
við svo búið.
Karlmaður
kærði nauðgun
UNGUR karlmaður kærði þrjá
menn fyrir nauðgun snemma í
gærmorgun.
Maðurinn kom á lögreglustöð og
kærði atburðinn sem hann sagði
að hefði átt sér stað í samkvæmi í
húsi í Vesturbænum.
Rannsóknarlögregla ríkisins fékk
málið til meðferðar.
Sverrir Einarsson, sakadómari og dómsformaður í Hafskips- og Útvegsbankamálum, umkringdur
dómskjölum og dómsgerðum í málinu.
Umkringdur dómskjölum og dómsgerðum
DÓMSGERÐIR í Hafskips- og Útvegsbankamálum eru nú frá-
gengnar og munu að öllum líkindum berast Páli Arnóri Páls-
syni, sérstökum saksóknara, í dag.
Dómurinn var sem kunnugt er lanum lengst til hægri á myndinni
kveðinn upp 5. júlí síðastliðinn en
vinna við frágang dómsgerðanna
hófst um miðjan september, að
loknum sumarleyfum dómend-
anna þriggja og ritara. Það starf
hefur síðan verið unnið með öðr-
um störfum dómendanna, sem
allir hafa fengið fjölmörg önnur
mál til meðferðar.
Dómsgerðimar, sem eru í staf-
hér að ofan , munu vera þær
lengstu í sögu opinberra mála á
íslandi og telja um 4.100 blað-
síður, þar af er dómurinn sjálfur
1.250 síður. Algengast er að
dómsgerðir í opinberum málum
rúmist á 15-60 blaðsíðum. í staf-
lanum til vinstrí eru þau skjöl sem
ákæruvaldið lagði fram við þing-
festingu málsins og í miðjunni eru
þau skjöl sem verjendur og
ákæruvald lögðu fram til viðbótar
undir rekstri málsins. Alls eru
þetta á ellefta þúsund blaðsíðna.
Frá því að sérstökum saksókn-
ara berast dómsgerðir í hendur
skal hann innan þriggja mánaða
ákveða hvort dómi sakadóms
verði áfrýjað til Hæstaréttar en
Páll Arnór Pálsson hefur látið í
veðri vaka í samtali við Morgun-
blaðið að ákvörðunar hans sé ekki
langt að bíða.
Bílaborgar-
húsið slegið
Landsbanka
HÚS Bílaborgar við Fossháls í
Reykjavík var í gær slegið
Landsbanka íslands á þriðja og
síðasta nauðungaruppboði fyrir
264,5 milljónir króna. Bruna-
bótamat hússins, sem er eign
þrotabús Bílaborgar, er 788
milljónir króna. Itrekaðar til-
raunir til að selja það á frjálsum
markaði hafa ekki borið árangur
til þessa.
Verslunarlánasjóður bauð í húsið
á móti Landsbankanum upp að fyrr-
greindri upphæð en lét þá staðar
numið enda hafði veð sjóðsins þá
verið tryggt og Landsbankinn átti
veð allt upp að 400 milljónum
króna. Alls hvíldu á sjötta hundrað
milljóna króna á húsinu.
Ráðiuieytið þarf ekki að
endurgreiða Hagvirki
BORGARDÓMUR hefur sýknað fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
af kröfum Hagvirkis hf. um að fyrirtækinu verði endurgreiddar rúm-
lega 108 milljónir króna auk dráttarvaxta, en þá upphæð hafði fyrir-
tækinu verið gert að greiða í áætlað viðbótarsölugjald, álag og dráttar-
vexti fyrir árin 1983 og 1984, með úrskurði ríkisskattanefndar í júlí
1989. Fyrirtækið undi ekki úrskurðinum en greiddi hin álögðu gjöld
í ágúst 1989 til að forða því að rekstur þess yrði stöðvaður vegna
skuldarinnar öðru sinni.
Fyrirsvarsmenn Hagvirkis töldu
að í greiðslunni fælist ekki viður-
kenning á réttmæti álagningarinnar,
heldur væri greitt til að forðast
óþægindi vegna rekstrarstöðvunar,
en til þess úrræðis hafði áður verið
gripið gagnvart fyrirtækinu þann
23. júní 1989 vegna sömu skuldar
í framhaldi af lögtaki sem inn-
heimtumaður ríkissjóðs hafði látið
gera til tryggingar henni.
Fyrirtækið byggði mál sitt meðal
annars á því að starfsemi Hagvirkis
við húsbyggingar og mannvirkja-
gerð væri undanþegin skatti sam-
kvæmt lögum um söluskatt. Fjár-
málaráðuneytið taldi svo ekki vera
og Borgardómur féllst á skilning
ráðuneytisins. Meðal annars vísaði
borgardómur til dóms Hæstaréttar
frá 1987 um það að ekki sé átt við
notkun svo stórvirkra véla sem Hag-
virki noti við starfsemi sína þegar
talað sé um í undanþáguákvæði laga
um söluskatt að „vinna við húsbygg-
ingar og aðra mannvirkjagerð", sé
undanþegin söluskatti.
Fjölmörgum öðrum málsástæðum
fyrirtækisins hafnaði borgardómur
einnig. Fyrirtækið taldi að fjármála-
ráðuneytið hefði knúið sig til að
greiða hina áætluðu fjárhæð með
ólögmætri valdbeitingu og þving-
unaraðgerðum. Því hafnaði dómur-
inn og sagði að skattálagning, sem
sé lögleg og sem lögskylt sé að
greiða, geti ekki orðið endurgreiðslu-
skyld vegna sjónarmiða um ólög-
mæta innheimtuaðferð, enda sé
greiðsla á skatti ekki bótaskylt tjón.
Borgardómaramir Garðar Gísla-
son, Allan V. Magnússon og Eggert
Óskarsson kváðu upp dóminn.
Að sögn Jóhanns G. Bergþórsson-
ar, forstjóra Hagvirkis, verður
ákvörðun tekin í næstu viku um
hvort dómi borgardóms verði áfrýjað
til Hæstaréttar.
Sljórnarfrumvarp;
Fjárlaga-
og hagsýslu-
stofnun
sameinist
ráðuneyti
STJÓRNARFRUMVARP um
breytingar á lögum um Stjórnar-
ráð Islands hefur verið lagt fram
á Alþingi. I frumvarpinu er lagt
til að fjármálaráðuneytið og
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
verði sameinuð.
Samkvæmt núgildandi lögum er
Fjárlaga- og hagsýslustofnun sjálf-
stæð stjórnardeild innan fjármála-
ráðuneytisins og lýtur stjóm hag-
sýslustjóra. Forsætisráðherra heim-
ilaði í byrjun þessa árs að hagsýslu-
stjóra yrði jafnframt embætti sínu
falið að gegna starfi ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu og
vinna að sameiningu ljármálaráðu-
neytisins og Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar. I greinargerð með fmm-
varpinu segir að ástæða sameining-
arinnar sé breyttar aðstæður og sú
'skoðun að með henni náist fram
hagræðing í rekstri ráðuneytisins.
Jafnréttisráð;
Afgreiðslu kæru um
fæðingarorlof frestað
Kvótaúthlutun til smábáta:
Forseti efri deildar
kallar eftír listanum
JÓN Helgason, fyrseti efri deildar, hefur skrifað sjávarútvegs-
ráðherra bréf þar sem hann óskar eftir að ráðherra sjái (til
þess, að nefndarmenn fái í hendur, sem trúnaðarmál, Iista ýfir
þá eigendur og útgerðarmenn smábáta sem fengið hafa bréf
frá sjávarútvegsráðuneyti um áætlaðan fiskveiðikvóta.
Alþingismennimir eru Halldór
Blöndal og Guðmuridur H. Garð-
arsson Sjálfstæðisflokki,
Danfríður Skarphéðinsdóttir
Kvennalista, Karvel Pálmason
Alþýðuflokki og Skúli Alexar.d-
ersson Alþýðubandalagi.
Sjávarútvegsnefndin fór fram
á það við sjávarútvegsráðherra
að fá þennan lista í hendur, en
fékk synjun. Halldór Blöndal
óskaði þá eftir því við Guðrúnu
Helgadóttur forseta sameinaðs
Alþingis að hún beitti sér fyrir
því að sjávarútvegsráðherra léti
nefndinni þessar upplýsingar í
té. Guðrún vildi ekki aðhafast í
málinu þar sem forseti hefði ekki
vald til að skipa ráðherra fyrir
um meðferð þessara gagna.
KÆRA Rögnvaldar Sæmundsson-
ar, iðjuþjálfa, fyrir Jafnréttisráði
um sömu laun opinberra starfs-
manna og annarra launþega í
fæðingarorlofi, var ekki afgreidd
í Jafnréttisráði í gær vegna óska
fulltrúa ASÍ og VSÍ um frestun á
málinu.
Þetta er í annað sinn sem af-
greiðslu þessarar kæru er frestað og
verður málið tekið fyrir að nýju 9.
janúar næstkomandi. Rögnvaldur,
sem er opinber starfsmaður, fær
samkvæmt reglum um skyldur og
réttindi opinberra starfsmanna ekki
greidd full laun frá ríki í fæðingaror-
lofi, heldur getur hann sótt um dag-
peninga frá Tryggingastofnun ríkis-
ins.
Þórunn Sveinbjömsdóttir, fulltrúi
ASÍ í Jafnréttisráði, sagði ástæðu
þess að afgreiðslu k’ærunnar hefði
verið frestað að hér væri um flókin
lögfræðileg atriði að ræða sem þyrftu
nánari skoðunar við.
Hrafnhildur Stefánsdóttir, fulltrúi
VSÍ, tók í sama streng og sagði jafn-
framt að nefnd á vegum heilbrigðis-
ráðuneytis sem fulltrúar ASÍ og VSÍ
áttu sæti í hefði þegar samið frum-
varp að nýjum fæðjngarorlofslögum
sem gerir ráð fyrir að þessi mismun-
un opinberra starfsmanna og ann-
arra launþega verði afnuminn.
Neskaupstaður:
Sjómenn og
Síldarvinnsl-
an semja
S AMNINGAR náðust í gær í deilu
togarasjómanna og Síldarvinnsl-
unnar hf. á Neskaupstað en tog-
arasjómenn á Neskaupstað hafa
verið í verkfalli I tæpan hálfan
mánuð.
ínn
Tveir togarar, Bjartur og Barð-
-...i, halda til veiða í dag, en þriðji
togarinn Birtingur hefur lokið veið-
um á árinu. Samið var um verulega
hækkun á heimalöndunarálagi og
var tillagan samþykkt með 35 at-
kvæðum gegn 6 í hópi togarasjó-
manna.___________________