Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 15
MORGU'NBIAÐIÐ IFIMMTUDAGUR 13. DESBMBER 1990
i5r
Þú ræktar ekki
garðinn þinn, ef...
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Undan illgrcsinu
Höfundur: Guðrún Helgadóttir
Myndir: Gunnar Karlsson
Útgefandi: Iðunn
Sagan segir frá Mörtu Maríu og
hefst á því að Marta er að flytja í
nýtt hús, ásamt móður sinni og
tveimur bræðrum. Nýtt hús fyrir
hana — en í rauninni mjög gamalt
hús sem á sér sögu ...
Marta María er að flytja úr einbýl-
ishúsi í nýju hverfí, en því húsi var
móður hennar um megn að halda,
eftir að faðir Mörtu lést. Faðirinn
hafði verið í innflutningi — og strax
í upphafí er ljóst að ekki er allt með
felldu í sögunni um dauða hans —
eða, lesandinn fær álíka mikla vitn-
eskju og Marta María, sem er ellefu
ára. Henni finnst bróðir sinn, sem
er fjórtán ára, og móðir hafa breyst
í viðmóti við hana eftir fráfall föður-
ins en hún á fremur'erfitt með að
skýra á hvern hátt. Það er meira til-
finning. Tilfinning fyrir að hafa að-
eins fengið að heyra hálfan sannleik-
ann.
Marta María hefur líka „tilfmn-
ingu“ gagnvart húsinu sem hún er
að flytja inn í og hún er varla búin
að komá sér fyrir í herbergi sínu,
þegar hlutir fara að koma í ljós.
Á efri hæðinni býr skrítin fjöl-
skylda, eldri kona og dóttursonur
hennar, tvær háaldraðar konur; önn-
ur húsmóðir, hin vinnukona. Dóttur-
sonurinn er á sama aldri og Marta
María. Hann er sérkennilegur og
samlagast ekki umhverfínu og það
er ljóst að aldraða húsmóðirin drottn-
ar yfir heimilinu og stjórnar þögn-
inni um húsið og fjölskylduna. Marta
María er mikið ein heima á daginn.
Það er sumar, móðirin og eldri bróðir-
inn, Daníel, éru í vinnu og litli bróðir-
inn, Tómas, er á dagheimili.
Það sem Marta María undrast
mest í sambandi við húsið, er garð-
urinn sem umlykur það. Hann er
geysistór og fjölskrúðugur, en á kafi
í arfa og illgresi. Til að dunda sér
við eitthvað, fer hún að reyta upp
illgresið — til að sólin nái að skína
á blómin og hún uppgötvar marga
dýrgripi í garðinum; marmarastyttur
og ker — og garðhúsið sem geymir
mikla leyndardóma. Þegar hún fer
að vinna í garðinum, kynnist hún
smátt og smátt Matthíasi, drengnum
á efri hæðinni, og í sameiningu reyta
þau illgresi úr garðinum og úr lífi
fjölskyldunnar á efri hæðinni — og
í lokin afhjúpar Marta María leyndar-
mál sinnar eigin fjölskyldu.
Guðrún Helgadóttir erí þessari bók
Tónleikar í
Óperunni
HLJÓMSVEITIRNAR Ný dönsk
og Todmobile sendu nýverið frá
sér breiðskífur .og í tilefni af því
halda hljómsveitinar tónleika í
íslensku óperunni. Tónleikarnir
verða í kvöld og hefjast kl. 21.00.
Þessar hljómsveitir héldu einnig
sameiginlega tónleika á svipuðuni-
tíma fyrir ári og urðu þá margir
frá að hverfa. .
Ný dörtsk, sem séndi frá sér
breiðskífuna Regnboguiand, er
skipuð þeim Birni Jr. Frjðbjörns-'
syni, Daníel Ágúst Haraldssyni og
Olafi Hólm, en sér til aðstoðar hafa
þeir Jón Ólafsson og Stefán Hilm-
arsson. Todmobile, sem sendi frá
sér samnefnda hljómplötu, skipa
Artdrea Gylfadóttir, Þorvaldur B.
Þorvaldsson og Eyþór Arnalds? en
sér til aðstoðar hafa þau Atla Örv-
arsson, Gunnlaug Briem, Eið Arn-
arson, Einar B. Bragason, Jóhann
Hjörleifsson, Össur Geirsson og
Helenu Jónsdóttur dansara.
Forsala aðgöngumiða er í hljóm-
plötuverslunum Steina hf.
Guðrún Helgadóttir
að fást við mörg þemu sem plaga
samfélag okkar í dag, engu síður en
liðin samfélög; þögnina — sem er
manneskjunni svo hættuleg að hún
leggur heilu fjölskyldumar í rúst;
þögnina sem bindur fólk á klafa,
festir það í hlutverkumm sem það
þorir ekki út úr af ótta við að allt
komist upp. Fjölskyldan á efri hæð-
inni á sér hræðilegt leyndarmál.
Matthías hefur ekki hugmynd um
hvað það er og það er ekki á dag-
skrá að segja honum frá því. Samt
er leyndarmálið á góðri leið með að
eyðileggja líf hans. Langamma hans
rígheldur sínu fólki saman — þetta
er vellauðug fjölskylda sem þarf ekki
að fara út fyrir hússins dýr, og ger-
ir það ekki: Leyndarmálið hefur
múrað hana inni í húsinu og hún á
enga möguleika á að lifa eðlilegu lífi.
Strax í fyrsta kafla nær Guðrún
að hlaða upp spennu og „Undan ill-
gresinu" er spennusaga. í henni eru
leyndardómar og týndir fjársjóðir,
sem ekki kæmu í ljós, nema vegna
þess að Marta María er haldin óseðj-
andi forvitni og hún er sannleiksleit-
andi. En hér er ekki á ferðinni nein
afþreyingarsaga, vegna þess að í
henni eru mjög skýr skilaboð: Þú
getur ekki ræktað garðinn þinn,
nema horfast í augu við sannleikann.
Persónusköpunin í þessari bók er
frábær; persónurnar era ekki fulltrú-
ar fyrir nein gildi, heldur breyskar
manneskjur, sem reyna að komast
af í tilverunni: Móðir Mörtu, sem ein
reynir áð berjast áfram með börn sín
og hefur ekki leyfi til að sligast.
Amman, sem talar í umvöndunartón,
en er skilningsrík og sátt við tilver-
una, afínn, skemmtilegur og elsku-
legur karl, unglingurinn Daníel, sem
er stoð og stytta móður sinnar, Tóm-
as litli, bráðskemmtilegur krakki
undir skólaaldri, sem skynjár alltaf
„réttu“ augnablikin til að segja
óþægilega hluti. Svo er það „prins-
essan“ á efri hæðinni, amma Matt-
híasar, sem er að kafna undan því
oki sem foreldrar hennar hafa lagt
á hana og leikur bara ólíkindaleiki,
en eftir að sannleikurinn kemur í ljós
— hin Ijóta saga fjölskyldunnar —
getur hún loksins fellt grímuna. Líf
hennar er að mestu leyti glatað en
léttirinn er kannski mestur fyrir
hana. Vinnukonan Þrúða, sem hefur
þjónað fjölskyldunni frá því hún var
17 ára, varfengin til að grafa leynd-
ardóm fjölskyldunnar og þarmeð
sjálfa sig innan veggja hennar. Allt
trúvérðúgar og skemmtilegar pei'-
sónur'. . -
Mér fínnst þetta ótrúlega góð bók;
vel skrifuð, spennandi, fyndin og
skemmtileg, felur í sér ótvíræð skila-
boð, án þess að prédika, eða jafnvel
nefna. þau. Guðrún fæst við mjög
viðkvæm mál í þessari unglingabók,
eins og sjálfsvíg og lífslygar, sneiðir
hjá allri væmni en fer þó ekki með
efnið eins og það sé léttvægt. Henni
einfaldlega tekst að hitta á rétta
tóninn. Bókin er um 140 síður og
strax á síðu 50 var ég farin að kvíða
því að ljúka henni. Myndirnar í bók-
inni eru mjög skemmtilegar og vel
gerðar og undirstrika þann leyndar-
dómsfulla blæ sem yfír henni er.
AUSTURSTRÆTI22, REYKJAVÍK, SÍMl 22925
Fóðraður frakki kominn aftur
Verð kr. 8.980,-
Herrabuxur úr
riffluðu flaueli
Verð kr. 2.390,-
Herraskyrlur 100%
bómull
Verð kr. 990r
Kuldajakki m/hettu
kominn aftur
Verð kr. 5.400,-
Herrapeysa
Verð kr. 1.980r
Vaxbornir regnheldir kuldajakkar
m/hettu komnir aftur Verð kr. 5.900,-
Vatnsheldir,
fóðraðir
kuldajakkar
m/hettu
Vérð hr.
4.900r
Kuldahúfa
Verö kr. 390,-
Leðurstígvél
Verd kr. 3.900r
Kuldajakki
Verð kr. 5.900/-
Einnig: Gallabuxur, m.a. yfirstærðir, frákr. 2.690,- Fínni herrabuxur,
teryline & ull, kr. 3.900,- Mikið úrval af kuldaúlpum frá kr. 3.900,- .
VTTV